Morgunblaðið - 10.11.1994, Page 47

Morgunblaðið - 10.11.1994, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994 47 FRÉTTIR 11. þing Múrarasambandsins Aukið atvinnu- leysi múrara ALLT að 25% múrara í landinu voru atvinnulaus þegar mest var á síðastliðnum vetri og í ályktun 11. þings Múrarasambands íslands, sem haldið var fyrir skömmu, er þeirri áskorun beint til sveitar- stjórna og annarra opinberra aðila sem sjá um byggingarframkvæmd- ir að haga verkum þannig að inni- vinna sé í hámarki yfir vetrarmán- uði til að draga úr árstíðarsveiflum og jafna atvinnuna. Reiknitala ákvæðisvinnu verði leiðrétt Í atvinnu- og kjaramálaályktun þingsins er bent á að ástæður auk- ins atvinnuleysis meðal múrara séu m.a. þær að hús sem byggð eru í félagslega kerfinu og stór hluti íbúða fyrir aldraða séu ekki múruð nema að litlu leyti. Þess í stað séu bæði inn- og útveggir klæddir á timburgrind með erlendum plötum, sem hafi ekki mikið burðarþol. Þingið bendir á að notkun sumra þessara byggingarefna sé varasöm við tilteknar aðstæður. „Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir við kjarasamninga á liðnum árum hefur ekki tekist að ná fram leið- réttingu á reiknitölu ákvæðisvinnu í byggingariðnaði. Reiknitalan var á sínum tíma slitin úr tengsliim við tímavinnu og hefur síðan jafnt og þétt dregist aftur úr öðru kaupi. Þingið ítrekar þá kröfu að þessi mismunur verði leiðréttur," segir í álytkuninni. Þar er þess einnig krafist að persónuafsláttur við staðgreiðslu skatta verði hækkað- ur og skattalögum verði breytt þannig að hjón og sambýlisfólk fái að nýta til fulls ónotaðan persónu- afslátt hvors annars og að foreldr- ar persónuafslátt unglinga í skóla. Á þinginu voru eftirtaldir kjörn- ir í stjórn Múrarasambandsins til næstu tveggja ára: Helgi Steinar Karlsson formaður, Hafsteinn Sig- urvinsson varaformaður og með- stjórnendur Rafn Gunnarsson, Hörður Runólfsson, Tryggvi Gunn- arsson, Ingvar Guðnason og Hauk- ur Logi Michelsen. Fundur um slysavarnir SLYSAVARNARÁÐ íslands held- ur II. Landsfund um Slysavarnir á Hótel Loftleiðum 11. nóvember og hefst hann kl. 9. Fyrirlesarar á fundinum eru 17 og á dagskrá eru þessi efni: Vinnuslys á sjómönnum, dauðaslys við vinnu, hálendisslys og ökufærni eldri ökumanna. Þátttaka er öllum heimil. Þátt- tökugjald er 1.500 kr. og þarf að tilkynna hana fyrir fundinn til skrifstofu Landlæknis. í Slysavarnaráði íslands eru Landlæknir, Slysavarnafélag ís- lands, Vinnueftirlit ríkisins, Um- ferðarráð, Slysadeild Borgarspít- ala, Samband íslenskra trygginga- félaga, Tryggingastofnun ríkisins, fulltrúi dómsmálaráðuneytisins og Lögreglan í Reykjavík. Námskeið gegn jólakvíða STEFÁN Jóhannsson frá Corner- stone Institue býður upp á nám- skeið, laugardaginn 12. nóvember, fyrir þá sem vilja rífa sig út úr Kristni- boðsdagar í Hafnarfirði HALDNIR verða fjórir kristniboðs- dagar í húsi KFUM og KFUK, Hverfisgötu 15, Hafnarfirði, dag- ana 13. til 16. nóvember nk. Verða almennar samkomur alla dagana og hefjast kl. 20.30. Starf Sambands íslenskra kristniboðsfélaga í Eþíópíu og Kenýu verður kynnt í máli og mynd- um. Einnig verður flutt hugvekja á hveiju kvöldi. Þá verður einsöngur og mikill almennur söngur. Alls eru um þessar mundir 14 Islendingar og 14 börn þeirra á vegum Kristniboðssambandsins á sjö stöðum í Eþíópíu og Kenýu. Starfsmenn hér heima eru þrír. Á fyrstu samkomunni, sunnu- daginn 13. nóvember, syngur Helga Magnúsdóttir einsöng en að öðru leyti sjá Elísabet Haraldsdóttir, Ragnhildur Ásgeirsdóttir og Andrés Jónsson um dagskrárþætti. gömlum vondum jólahefðum og skapa sér og sínum betri og fal- legri jól. í fréttatilkynningu segir m.a.: „Jafnvel þótt alkóhólisminn sé ekki virkur lengur í núverandi fjöl- skyldu aðstandenda eða barna alkóhólista kvíða margir jólunum og kunna ekki að rífa sig út úr andrúmslofti gamalla jólaminn- inga.“ Innritun er hafin hjá Jóhanni Loftssyni, sálfræðingi. Námskeið- ið er haldið að Síðumúla 33, 2. hæð, og hefst stundvíslega kl. 9 og lýkur kl. 16. Námskeiðsgjald er 2.500 kr. og hefst skráning kl. 8.30 um morguninn. Varmaskiptar ♦ ♦ ♦ ■ TROMMULEIKARINN Hall- dór G. Hauksson heldur fyrirlestur um trommuleik í Nýja Músíkskól- anum, Laugavegi 163, 3. hæð, fimmtudaginn 10. nóvember kl. 18. Halldór mun fjalla um ýmsar stil- tegundir í trommuleik og trommu- stillingar. Aðgangur að fyrirlestrin- um er ókeypis og öllum heimill. Áratuga reynsla SINDRI - sterkur í verki BORGARTÚNI31 ■ SÍMI 562 72 22 Basar Kvenfélags Grensássóknar BASAR Kvenfélags Grensássókn- ar verður haldinn í Safnaðarheim- ilinu við Háaleitisbraut laugardag- inn 12. nóvember og hefst hann kl. 14. Konumar verða í safnaðarheim- ilinu við undirbúning eftir kl. 17 á föstudag og eftir kl. 10 á laugar- dag og er þá hægt að koma til þeirra með kökur og muni fyrir basarinn. í fréttatilkynningu segir, að kvenfélagið hafi fært kirkjunni ýmsar gjafir og þegar fyrsta skófl- ustungan var tekin að kirkjuskip- inu, gaf félagið eina milljón króna til kirkjubyggingarinnar. Kirkju- byggingin og tengibygging við safnaðarheimilið eru að verða fok- heldar og er stefnt að fyrstu helgi- stundinni á fyrsta sunnudegi í aðventu, 27. nóvember nk. kl. 14. HASKOLIISLANDS ENDURMENNTUN ARSTOFNUN Starfsmannastjórnun í tækni- og hugbúnaðarfyrirtækjum Efni: Skipurit og markmiðsáætlanir, stjómun fræðslumála, aðferðir við val á starfsfólki, leiðir til hvatningar, gerð starfslýsinga, aðfer- ðir við notkun frammistöðumats/starfsman- nasamtala og áhrif breyttra stjómunarhátta á hópvinnu, ábyrgð og hlutverk starfsmanna með sérstakri áherslu á stjómun í tækni- og hugbúnaðarfyrirtækjum. Leiðbeinandi: Þórður S. Oskarsson, vin- nusálfræðingur hjá KPMG Sinnu hf. Tími: 14. og 16. nóvemberkl. 8:30-12:30. Verð: 8.500 kr. Útboð og eftirlit með verkefnum á tölvusviði Efni: Undirbúningur útboðs, útboðsgögn, sam- skipti við bjóðendur, val á verktaka, gerð verk- samnings, eftirlit með framkvæmd verksins, ágrein- ingsmál, uppgjör, ný útgáfa af ÍST 32, lög um framkvæmd útboða og þær leiðbeiningar, sem til eru um þetta mál, s.s. innkaupahandbók RUT- nefndarinnar. Leiðbeinendur: Daði Öm Jónsson, deildarstjóri ráðgjafar- og þróunardeildar Verk- og kerfis- fræðistofunnar og Jóhann Gunnarsson deildar-stjóri í fjármálaráðuneytinu. Tími: 21. og 22. nóvemberkl. 8:30-12:30. Verð: 8.500 kr. Skráning í síma 694940 eða á faxi 694080. Upplýsingasímar 694923, -24 og -25. icjciciricicjf Panasonic MYNDBANDSTÆKI SD-22 Einstaklega hraðvirkt og hljóðlátt myndbandstæki með mánaðar upptökuminni sem deila má á 8 upptökutíma. INDEX SEARCH - QUICK VIEW - DIGITAL TRACKING SUPER DR/VE SYSTEM ....£L.,.. 1 Verd áður lcr. 53.400,- | 1 1 kr. 39.91 #Or- s*gr |a„, , Brautarholti & Kringlunni • Sími 625200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.