Morgunblaðið - 26.11.1996, Síða 8

Morgunblaðið - 26.11.1996, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ HANN var ÁÐUR sjómaður dáða drengur . . . Veitingahús styrkir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna Vonir um frekari stuðning VEITINGAHÚSIÐ Café Ópera hef- ur ákveðið að styrkja Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna með því að greiða ákveðna upphæð til fé- lagsins fyrir hvern matargest í jóla- hlaðborði þess. Veitingahúsið áætlar að á fjórða þúsund manns borði þar í desember og getur því verið um umtalsverða upphæð að ræða, að sögn Þorsteins Ólafssonar framkvæmdastjóra fé- lagsins. Mikilvægt starf Hann kveðst vona að þetta fram- tak veitingahússins geti orðið hvatning til annarra fyrirtækja og félagasamtaka um stuðning við SKB. „Þegar einn aðili fer af stað fylgja aðrir oft á eftir og bindum við vissulega nokkrar vonir við að svo verði nú. Við höfum frá því félagið var stofnað haustið 1991 notið stuðnings fyrirtækja, en allt er vel þegið í því sambandi," segir hann. Jón Snorrason framkvæmda- stjóri Café Óperu segir að fyrsti stofnfundur SKB hafi verið haldinn í veitingahúsinu og hafi einn af stofnendum styrktarfélagsins rekið það í mörg ár, en sá missti son í haust eftir langa baráttu við krabbamein. Veitingahúsið telji starf SKB mikilvægt og vilji leggja sitt af mörkum til að efla það. Staða félagsráðgjafa í sjónmáli? Að sögn Þorsteins greinast ár- lega að meðaltali 10-12 börn frá 0-18 ára aldurs hérlendis með krabbamein. Um sálrænan og fé- lagslegan stuðning fyrir sjúklinga og fjölskyldur þeirra sé vart að ræða, sem þó sé nauðsynlegur. „Frést hefur þó að heilbrigðis- ráðuneytið hafi fallist á að beita sér fyrir ráðningu félagsráðgjafa við barnadeildirnar í Reykjavík, en skrifleg staðfesting þess efnis hefur enn ekki borist," segir hann. Hann bendir einnig á að fyrir Alþingi liggi frumvarp þess efnis að Trygginga- stofnun greiði fyrir þjónustu sál- fræðings utan sjúkrahúsanna. „Fengist slíkt fram, væri það stór- kostleg breyting í rétta átt,“ segir Þorsteinn. Hann segir jafnframt fregnir þess efnis að ríkisstjórnin hyggist selja eignir á næstunni til að hraða byggingu barna- og unglingaspítala á Landspítalalóðinni fagnaðarefni, enda hafi aðstaða fyrir krabba- meinssjúk böm á Barnadeild Hringsins á Landspítala verið til vansa. Morgunblaðið/Ásdís FORSVARSMENN Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna og veitingahússins Café Óperu kynntu í gær samkomulag sín á milli um stuðning til handa félaginu. Stúdentafélag Reykjavíkur 125 ára Þátttaka í umræðu um framtíðar- sýn á nýrri öld á Islandi Thomas Möller STÚDENTAFÉ- LAG Reykjavíkur fagnar um þess- ar mundir 125 ára af- mæli sínu. Það var stofnað 14. nóvember 1871 af nokkrum stúd- entum Prestaskólans og Læknaskólans. Fé- lagið var afar virkt í allri þjóðmálaumræðu og beitti sér fyrir mörgum framfaramál- um, eins og t.d. lagn- ingu síma, fánamálinu, samgöngumálum og fullveldi íslands. Fé- lagið efndi til málfunda og var helsti vettvang- ur þjóðmálaumræð- unnar á síðustu öld og langt fram á þessa. Annað félag, Kvöldfé- lagið í Reykjavík, var starfandi á þessum tíma, og í ritinu Stúdentafjelag- ið fimmtíu ára eftir Indriða Einarsson, segir að Stúdentafé- lagið hafi verið stofnað af óánægju með Kvöldfélagið. Óánægjan hafi komið fram hjá stúdentum vegna þess að félag- ið hafi ekkert viljað fást við stjórnmál en ungu stúdentarnir „voru hinir æstustu 1871, enda stóð þá stjórnmáladeilan milli íslands og Danmerkur sem hæst“. í riti Indriða kemur fram að Stúdentafélagið hélt málfundi í fyrirlestrasal prestaskólans. Fyrsta sinn sem Stúdentafé- lagsins verður vart út á við er milli jóia og nýárs 1871 en þá hélt það bókamarkað í presta- skólanum. Einnig vakti eftir- tekt á félaginu þegar það hélt fyrsta álfadansinn sem haldinn hefur verið á landinu. Undan- farna áratugi hefur starfsemi félagsins einkum snúist um að standa fyrir fullveldisfagnaði en Thomas Möller formaður félagsins segir að nú standi til að endurmeta hlutverk félags- ins og halda hefðir þess í heiðri. Hvað eru félagsmenn margir og hver eru inntökuskilyrði í Stúdentafélag Reykjavíkur? „í félaginu eru í raun allir stúdentar í landinu en virkir félagar eru mun færri. í stjórn þess eru menn úr viðskiptalíf- inu og háskólaumhverfinu,“ segir Thomas. Hvernig hefur félagið breyst í áranna rás? „Við sjáum þetta gamalgróna félag sem stóð að ýmsum framfaramálum um síðustu aldamót geta komið á áhugaverðan hátt inn í umræðu um framtíð- arsýn íslands á nýrri öld. í fé- laginu nýtist saga þess úr for- tíð, á henni má byggja framtíð- ina. Félagið getur orðið vett- vangur fyrir ýmis framfaramál sem tengja saman Háskólann og atvinnulífið. Reyndar stóð félagið fyrir ráðstefnu um þetta mál fyrir nokkrum árum, að mig minnir á sama tíma og Marel var að fæðast, en það fyrirtæki er eitt besta dæmið ► Thomas Möller er formað- ur Stúdentafélags Iteykjavík- ur. Hann er fæddur 21. febr- úar 1954. Hann er fram- kvæmdastjóri hjá OLÍS og er kvæntur Bryndísi M. Tómas- dóttur kennara og eiga þau þijú börn. um árangursríkt samstarf at- vinnulífsins og Háskólans. Það er ljóst að við íslendingar erum langt á eftir öðrum þjóðum hvað varðar rannsóknar- og þróunarstarf og hagnýtingu þekkingar sem verður til í há- skólum landsins. Þar er verk að vinna sem þetta félag gæti orðið þátttakandi í,“ segir Thomas. Félagið heldur utan um nokkra sjóði. Hverjir eru þeir helstir? „Félagið heldur meðal ann- ars utan um sjóð sem var stofn- aður fyrir aldamótin síðustu en þá lagði það inn í Söfnunarsjóð- inn svokallaða upphæð sem nam einum mánaðarlaunum kennara og hefur verið óhreyfð- ur síðan. Samkvæmt nýlegum útreikningum ætti þessi sjóður að standa í um það bil 200 milljónum króna en hefur brunnið upp í verðbólgubálinu og er í dag nokkrar þúsundir króna. Þetta sýnir hvað hefur orðið um sparifé á þessum árum,“ segir Thomas. Hvernig miðar undirbúningi að full- veldisfagnaði félags- ins og í samstarfi við hverja verður hann haldinn? „Fullveldisfagnaður Stúd- entafélagsins var hér á árum áður einn vinsælasti dansleik- urinn í bænum. Nú höfum við ákveðið í takt við samruna og samstarfshugmyndir í atvinnu- lífinu að ganga til samstarfs við Hollvinasamtök Háskólans og halda sameiginlegan full- veldisfagnað um næstu mán- aðamót á Hótel Sögu,“ sagði Thomas. Heldur utan um sjóð sem var stofnaður á síðustu öld

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.