Morgunblaðið - 26.11.1996, Blaðsíða 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Sími
F 551 6500
Sími ^
F551 6500
LAUGAVEG94
FRUMSYNING: HÆTTUSPIL
Hörkutólið Van Damme (Hard Target", Timecop") og glæsipían Natasha Henstridge (Species")
sameinast í baráttunni gegn rússnesku mafíunni. Rússneska mafían mun aldrei ná sér aftur eftir þessi
hörkuátök. Hér er á ferðinni trylltur hasar með hreint ógleymanlegum og ofsafengnum áhættuatriðum.
Sýnd í A-sal kl. 5, 9 og 11. Sýnd í B-sal kl. 7. B.i. 16 ára.
O .állÉ
BALTASAR KORMAKUR * GISLI HALLDORSSQN • SIGURVEIG JONSDOTTIR
★★★ M.R. Dagsljós
★★★★ A.E. HP
★★★ U.M. Dagur-Tíminn
★ ★★72 S.V.Mbl
★ ★★ V2 H.K. DV
★ ★★ Ó.H.T. Rás 2
síöari tíma á Islandi birtast í nýrri
stórmynd eftir Friðrik Þór Friðriksson
For- eða Gullkortshafar VISA 00 Nómu- og Gengismeðlimir Lands-
AFM.ATT. Gilmr fyrff tvo.
banka fó 25% /
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd í A-sal kl. 7.
Ahugavert framtíðarpopp
Margrét Kristín Sigurðardóttir.
TONLIST
Gcisladiskur
FABULA
Geislaplata Margrétar Kristínar Sig-
urðardóttur. Lög og ljóð: Margrét
Kristín, nema eitt lag sem er eftir
Jón Elvar Hafsteinsson. Söngur og
hljómborð: Margrét Kristín. Aðrir
hljóðfæraleikarar: Jón Elvar Haf-
steinsson gítar, bassi, forritun. Gunn-
laugur Briem ásláttur, trommufor-
ritun. Sigurður Agnarsson selló.
Gunnlaugur Þór Briem píanó. Szym-
on Kuran fiðla. Reynir Jónasson
dragspil. Halldór G. Hauksson
trommur. Þórður Guðmundsson
bassi. Oskar Guðjónsson saxófónn.
Utsetningar, upptökur og hljóð-
blöndun: Jón Elvar Hafsteinsson,
nema í einu lagi: Bjarni Bragi Kjart-
ansson. Vinnsla frumeintaks: Baldur
J. Baldursson. Útgefandi: Margrét
Kristín. Dreifing: Spor. 40.01 mín.
1.999 krónur.
EF TIL vill er það fyrirboði að
þær tvær hljómplötur, sem mest
hafa komið mér á óvart á þessari
útgáfuvertíð, eru eftir óþekktar
söngkonur sem semja tónlist sína
sjálfar. Kannski er það bara tilviljun
og eins hitt að þessi tónlist á það
sameiginlegt að vera eins konar
framúrstefnupopp með dulúðugu
ívafi og óvenjulegri uppbyggingu.
Sú plata sem hér er til umfjöllunar
ber heitir Fabula og er eftir Mar-
.gréti Kristínu Sigurðardóttur, sem
ég veit engin deili á nema það sem
ég las einhvers staðar að hún hefur
búið í Noregi um nokkurra ára skeið.
Mér er hins vegar engin launung á
að tónlist Margrétar höfðar sterkt
til mín. Það eru einhverjir töfrar í
þessum iaglínum og hljómasamsetn-
ingu sem erfitt er að útskýra með
orðum. Menn verða sjálfir að upplifa
þessi hughrif með því að hlusta á
tónlistina. Hins vegar er viðbúið að
tónlist sem þessi sé ekki líkleg til
skjótra almennra vinsælda enda
gerir hún vissulega ákveðnar kröfur
til hlustandans. En Róm var ekki
byggð á einum degi.
Það má heyra samhljóm með
þessari tónlist Margrétar og ákveðn-
um straumum í erlendri dægurtónl-
ist þótt óþarfi sé að draga hana í
einhvern afmarkaðan dilk í þeim
efnum. Margrét stendur fyllilega
fyrir sínu sem sjálfstæður lagahöf-
undur. Ég vil helst flokka þessa
tónlist undir „framtíðarpopp", hug-
tak sem ég veit ekki hvort hefur
verið notað áður, en er eins gott og
hvað annað. Á plötunni eru þrettán
lög og bregður þar fyrir ýmsum til-
brigðum, framúrstefnupoppi með
djassívafi, suðrænni hrynjandi og
afrískum trumbuslætti, fallegum
rólegum ballöðum og þarna má
meira að segja heyra tango í
einu lagi. Platan hefur þó yfir
sér sterkan heildarsvip, sem
kannski hnýtist saman af prýði-
legri söngrödd Margrétar.
Rödd hennar minnir mig á ein-
hverja frá því á hippaárunum,
sem ég kem ekki fyrir mig í
augnablikinu, líklega var það
einhver mótmælasöngkonan?
Þótt tónlist Margrétar sé
vissulega óvenjuleg að upp-
byggingu er hún engu að síður
áheyrileg og „melódísk" og hún
vinnur stöðugt á við hlustun.
Það er erfitt að gera upp á
milli laganna á „Fabula“, en lög
eins og Cut My Stríngs, Myst-
ery, When I Close My Eyes og
Boy You’re Beautiful eru þó
áleitnari en önnur í mínum
huga þessa stundina.
Margrét semur texta sína á
ensku og ferst það vel úr hendi,
eftir því sem þekking mín á því
tungumáli segir mér. Sumir þeirra
eru launfyndnir, eins og til dæmis
í Grocery Store og aðrir hugleiðing-
ar um h'fið og tilveruna. Þeir falla
vel að tónlistinni og sjálfsagt betur
en íslenskir textar hefðu gert þótt
um slíkt megi alltaf deila. Undirleik-
ur er að talsverðu leyti unnin með
tölvuforritun og heiðurinn af þeirri
vinnu, svo og útsetningum, upptök-
um og hljóðblöndun á Jón Elvar
Hafsteinsson að mestu. Að mínu
mati hefur honum tekist ágætlega
til hvað þetta varðar. Þótt oft megi
deila um slíkan framgangsmáta við
hljómplötugerð, hljómgæði almennt
og hvort textar eru á íslensku eða
einhveiju öðru tungumáli trufluðu
þessi atriði mig ekki. Að mínu mati
er Fabula þess virði að fólk staldri
við og gefi sér tíma til að hlusta.
Sveinn Guðjónsson
SAMBIO
TILBOÐ
SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384 |
NETFANG: http://www,islandia. is/sambioin
" ..WMfl.flil
AÐDAANDINN
| Sýnd kl. 9 og 11. B.i. 12 ára. I
L./.viii.'ciJirpn
Sýnd kl. 5 og 7.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÚLFUR Chaka, Gunnar Óskarsson, Haraldur Sigurðsson, Gunn-
ar Bjarni Ragnarsson og Guðlaugur Júníusson.
Splunkuný stórmynd frá leikstjóranum Tony Scott
(Crimson Tide, True Romance, Top Qun). Róbert
DeNiro fer hreinlega á kostum í magnaðri túlkun
sinni á geðvelkum aðdáanda sem tekur ástfóstri
við skærustu stjörnuna í boltanum. Spennan er
nánast óbærileg og hárin rísa á áhorfendum á
þessari sannkölluðu þrumu!!!
Aðalhlutverk: Róbert DeNiro, Wesley Snipes, Ellen
Barkin, Benecio Del Toro og John Leguizamo.
, 9og11.20í
. 12 ára.
I 1 —* 4$%$—1
I r ■ l-I. k 1 B V 1 ’ k ■ r.\l f.\l
FRIÐRIK Friðriksson, María Rut Reynisdóttir, Sigrún Sævars-
dóttir og Kjartan Ingvarsson.
Jetz frumsýnir myndband
► HLJÓMSVEITIN Jetz frum-
sýndi nýtt tónlistarmyndband
sem gert er við lag af nýútkom-
inni plötu þeirra, Jetz, á Kaffi-
barnum um síðustu helgi. For-
sprakki hljómsveitarinnar heitir
Gunnar Bjarni Ragnarsson en
með honum í hljómsveitinni eru
þeir Guðlaugur og Kristinn Jún-
íussynir. Utgáfutónleikar sveit-
arinnar verða fimmtudaginn 28.
nóvember næstkomandi.
KRISTINN Júníusson, Helgi Björnsson, Guðlaugnr Þór, og Sig-
ríður Guðnadóttir.