Morgunblaðið - 26.11.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 51
MINNINGAR
með útvegun skólavistar og náms-
styrkja. Hjá TWA í Wilmington,
Delavare og Newark, New Jersey
starfaði Gunnar í eitt ár og hlaut
hann þar ómetanlega reynslu við
viðhald og viðgerðir á Skymaster-
og Constellation-flugvélum sem
nýttist Flugfélagi íslands vel þegar
hann hóf þar vinnu í maí 1946.
í júní 1952 var flugvirkjun stað-
fest sem iðngrein á íslandi og upp
úr því fengu þeir flugvirkjar sem
nægilega lengi höfðu starfað í grein-
inni meistarabréf. Gunnar fékk sitt
meistarabréf í flugvirkjun 9. janúar
1953.
í janúar 1947 var kominn tals-
verður hópur flugvirkja til starfa hjá
íslensku flugfélögunum og fannst
þeim kominn tími til að stofna félag
til að gæta hagsmuna sinna. Gunnar
var einn þeirra sem kosnir voru í
undirbúningsstjórn og gegndi hann
ýmsum störfum í stjórnum og nefnd-
um Flugvirkjafélagsins óslitið til
1960 enda var hann alla tíð mjög
félagslega sinnaður og hafði sterka
réttlætiskennd. Gunnar vann við og
stjórnaði stórviðgerðum á DC-3 flug-
vélum Flugfélags íslands sem gerðar
voru upp eftir skemmdir á árunum
um og eftir 1950 og fórst það frá-
bærlega vel úr hendi. Árið 1954 var
Gunnar ráðinn flugvélstjóri, fyrst á
Skymaster-flugvélar Flugfélagsins
og síðar á DC-6 vélarnar. Hann
gegndi flugvélstjórastörfum allt til
þess að sexurnar voru seldar úr landi
1972. Eftir það starfaði Gunnar
aðallega við uppbyggingu á þotu-
hreyflum en einnig við almenn flug-
virkjastörf bæði heima og í erlendum
verkefnum hjá Flugfélagi íslands og
síðar Flugleiðum.
í störfum sínum sýndi hann hæfni
og reynslu og reyndist ungum mönn-
um sem voru að hefja störf ómetan-
leg stoð og fyrirmynd í öllum vinnu-
brögðum enda var hann einstaklega
dagfarsprúður og þægilegur í allri
umgengni. Það var aldrei um nein
vandamál að ræða ef Gunnari voru
falin störfin eða stjórn þeirra.
Vorið 1989 varð Gunnar fyrir slysi
við vinnu sína og náði hann sér aldr-
ei fyllilega eftir það. _Við félagar
hans í Flugvirkjafélagi íslands þökk-
um samfylgdina við þann góða dreng
og sendum fjölskyldu hans innilegar
samúðarkveðjur.
Oddur Á. Pálsson.
Á kveðjustund hrannast minning-
ar liðinna stunda fram í hugann. í
bernskuminningum okkar beggja
var hann nýkominn heim frá námi
í Bandaríkjunum, oftast klæddur
bláum borðalögðum einkennisbún-
ingi flugstjóra Flugfélags íslands.
Hann var þá að fara eða koma heim
á Vitastíg 9 úr flugferðum, sem í
barnshuganum voru sveipaðar ævin-
týraljóma þess sem var flestum
ókunnugt og framandi. Hann gaf
sér gjarnan tíma til er hann snaraði
sér út úr nýja gljáandi bílnum sínum
til að tala við okkur börnin sem
hópuðumst að honum og vék gjarnan
einhvetju að okkur. Fas hans var
jafnan glaðlegt, hreyfingar snarar,
andlitssvipurinn sterkur, hávaxinn
og grannur, hárið mikið og ljós-
rautt. Þannig minnumst við Gunnars
Héðins Valdimarssonar frá þessum
árum í lok fimmta áratugarins.
Fullorðinsár okkar breyttu ekki
þessari mynd mikið. Nánari kynni
og sterk fjölskyldubönd fylltu að
sjálfsögðu út í myndina og við sáum
á henni nýjar hliðar. Við kynntumst
í fjölmörgum frásögnum hans þeim
ótrúlegu ævintýrum sem flugferðir
brautryðjendanna voru á stundum
við erfiðar aðstæður. Aðeins braut-
ryðjendur flugsins geta sagt slíkar
sögur og margar þeirra hafa sem
betur fer verið skráðar. Líf Gunnars
var helgað fluginu og fjölskyldunni
og verður ekki greint hvort var
gangvísara í lífi hans, þær flugvélar
sem alltaf náðu heim eða fjölskylda
hans og Þóru sem ætíð hafa hjálp-
ast að við hvaðeina.
Samhentari fjölskyldu við öl! við-
fangsefni er ekki hægt að hugsa sér
og allt var leyst með brosi og gaman-
yrðum á vör. Gunnar vísaði þar veg-
inn.
Samheldni fjölskyldunnar kom
ekki síst fram í veikindum Gunnars
að undanförnu, þar sem allir, eldri
sem yngri, snéru bökum saman og
tóku því sem að höndum bar með
sömu róseminni og bjartsýninni sem
ávallt einkenndi heimilislíf Gunnars
og Þóru.
Gunnar og Þóra brutu sér land
ásamt börnum sínum til byggingar
sumarhúsa í Skorradal. Þar fann
samvinnuandinn og dugnaðurinn sér
einn farveg. Gunnar yar mjög
áhugasamur um trjárækt og naut
þess að sjá gróðurinn vaxa og dafna
og notaði hvert tækifæri er gafst til
dvalar þar í frístundum.
Við kveðjum nú Gunnar með
þakklæti fyrir alla þá hlýju og vina-
hug er hann bar til okkar og vottum
Þóru og fjölskyldunni samúð okkar
og biðjum Guð að styrkja þau í sorg
þeirra og missi.
Hervör Jónasdóttir og
Helgi Ágústsson.
Elías Þorsteinsson
er deildai'sljórj hjá Kælismiðjunni Frosthf., á Akureyri.
Hann er
Vélfrffiðinour...
Starf hans felst í daglegum rekstri fyrirtækis sem
framleiðir margvíslegan hátæknibúnað fyrir frystihús,
frystitogara, mjólkursamlög og matvælafyrirtæki.
Elías telur að vélfræðingsnámið sé undirstaða þess
starfs sem hann hefur með höndum.
Við skiptum við
SPARISJOÐ VELSTJORA
AtvinnureHendur!
Vanti ykkur traustan starfsmann
með víðtæka sérmenntun á tæknisviði,
bæði bóklega og verklega,
þá eru þið að leita að vélfræðingi.
Nánari upplýsingar veitir:
Borgartúni 18,105 Reykjavík
Sími: 562-9062
Stór litaskjár 11,3
1 MB VRAM
skjáminni
Möguleiki á tengdum
aukaskjá með
skjánum í vélinni
1080 MB hdd
256 K L2 Cache
4x geisladrif
1,44 MB
disklingadrif
16 bita
SoundBlaster
hljóðkort
Músarpallur.
Þú stjórnar
bendlinum með
fingrinum.
Hleðslutæki
Spennubreytir
110-240V
4ra tíma rafhlaða
Diplomat Pentium PC fistölva
Hún erfislétt, full af skemmtilegum möguleikum, léttir
undir með þér í vinnunni og sjáðu verðið. Hvernig sem
á það er litið - þú ferð létt með Diplomat Pentium PC.
8B
Microsoft®
Windows®
Tllboðsverð aðeins
265.900 kr.
stgr. m. vsk.
Innbyggður
hljóðnemi og
hátalari
Tengi fyrir heima-
stöð (dokku)
PCMCIA
Flash BIOS
Orkustjórnun
Windows 95
Tengi:
1x9 pinna serial port
1x25 pinna parallel
port
1x15 pinna skjátengi
1x6 pinna PS/2
Músartengi
IxRCA vídeótengi
1x200 pinna tengi
fyrir heimastöð
(dokku)
IrDA samhæft
þráðlaust tengi
BGÐEIND
Tölvuverslun- þjónusta - Mörkinni 6
Sími: 588 2061 Fax: 588 2062