Morgunblaðið - 26.11.1996, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 45
Kjólar
100% bómull
St. 90-140
Verð kr. 3.900
Jólafötin komin
Föt úr
riffluðu flaueli
Sl. 90-160
Jakki frá kr. 3.300
Buxur frá kr. 1.900
Vcsti frá kr. 1.700
3000 m2 sýningarsalur
Opið virka daga 9-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 14-16
Fjölmargir möguleikar
TM - HÚSGÖGN
SíSumúla 30 -Sími 568 6822
SíSumú
Allt tll rafsuðu
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
AÐSENDAR GREINAR
Horft til nýrrar aldar
ÞEGAR líður að
nýrri öld er ekki óeðli-
legt að maður láti
hugann reika um það
sem í framtíðinni kann
að felast, ekki ætla ég
mér þó þá dul að ger-
ast spámaður um hvað
komandi öld kann að
bera í skauti sér, en
eigi að síður er gaman
að láta hugann reika
um þá völundarstigu,
sem framundan kunna
að vera. Mér finnst
það alveg augljóst að
við göngum inn í nýja
öld með það sem ég
hef kallað stærsta
glæp íslandssögunnar í farteskinu,
það er að segja fiskveiðiheimildir
sem bæði er hægt að selja og leigja,
þó ég vonist til að þjóðin beri gæfu
til þess að hrista af sér þessa óværu
sem allra fyrst og stöðva brask ein-
staklinga og fyrirtækja með sjávar-
nytjar sem heyra til allri þjóðinni.
Sem betur fer er þeirri skoðun
að vaxa fiskur um hrygg og ég
vona svo sannarlega að það verði
aðalkosningamál í næstu kosning-
um, það er að segja að bundinn
verði endir á að fáir útvaldir fitni
eins og púkinn á Ijósbitanum á því
að braska með eigur annarra. Slík
eignaupptaka finnst mér vera með
endemum og reyndar með öllu
óskiljanlegt að slíkt skuli geta gerst
nú. Skiljanlegra hefði verið, hefði
slíkt gerst í upphafi aldar, en allur
almenningur var þjakaður og gat
ekki um fijálst höfuð strokið vegna
bændakúgunar, sem njörfaði alþýð-
una niður í eymd og volæði allt
fram á þessa öld.
Á þessum síðustu og verstu tím-
um, eins og gjarnan er sagt, hafa
skotið upp skoðanir og viðhorf, sem
ekki fyrir svo ýkjamörgum árum
hefðu þótt hreint aldeilis fráleit,
reyndar svo fráleit að ekki hefði
nokkrum lifandi manni
komið slíkt til hugar.
Það er svo sem eðlilegt
að skoðanir og viðhorf
breytist í tímans rás og
það sem áður hefði þótt
fráleitt þyki nú sjálf-
sagt. Það er eðlilegt
vegna þess að menntun
hefur aldrei verið svo
mikil sem nú og því
ekki óeðlilegt að lífsýn
unga fólksins sé önnur
en hjá þeim sem á und-
an gengu. Nú er sem
sagt komin fram sú
Jóhann skoðun að kominn sé
Guðbjartsson Wmi til þess að vernda
lífríkið, sem við Islend-
ingar höfum reyndar gert um nokk-
urt ára bil, því við höfum ekki veitt
hval í nokkur ár, vegna þrýstings
erlendra náttúruverndarsamtaka.
Verða útsýniskafbátar
á fiskislóðum, spyr
Jóhann Guðbjartsson,
tekjustofn í framtíðinni?
Nú er komin upp sú staða að við
erum farin að hafa af því umtals-
verðar tekjur að sigla um með er-
lenda ferðamenn til að sýna þeim
þessar tignarlegu skepnur í sínu
rétta umhverfi og heyrst hefur að
slíkar siglingaferðir gefi jafnvel
meira af sér en veiðar og vinnsla
hvalafurða gætu gert. Þessi nýja
náttúruverndarstefna á eflaust eftir
að ryðja sér enn frekar til rúms er
fram líða stundir og gæti þá náð
til okkar hefðbundna sjávarafla. Þá
verður mikil vá fyrir dyrum ef svo
færi og hvað skyldi þá til bjargar
verða þessari þjóð hér norður undir
Dumbshafi, svo ekki sé minnst á
kvótakóngana, sem ekki gætu þá
TTTTTTTTTT7TTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTT
Þú færð allt til rafsuðu
hjá okkur, bæöi
TÆKl, VÍR og
FYLGIHLUTI.
Forysta ESAB
er trygging fyrir
gæðum og
góðri þjónustu.
braskað með sameiginlega auðlind
þjóðarinnar, en manni hefur skilist
að hagsmunir þeirra séu æðri hags-
munum þjóðarinnar. Ekki yrði ég
hissa þótt kóngarnir krefðu þjóðar-
búið um miskabætur vegna verð-
lausra veiðiheimilda.
Hugsanlegt væri að af því mætti
hafa umtalsverðar tekjur að sigla
um fískislóðirnar í þartilgerðum
útsýniskafbátum með hliðsjón af
því sem gerst hefur í kjölfar friðun-
ar hvalastofnana. En eins og ég
sagði í upphafi þá ætla ég mér
ekki þá dul að gerast spámaður um
hvað ný öld kann að bera í skauti
sér, en tek undir það sem einhver
hygginn maður sagði fyrrum: Það
kemur í ljós í fyllingu tímans. Eitt
tel ég þó víst: að sóunarstefna lið-
inna áratuga hlýtur að taka enda
fyrr en seinna.
Höfundur er smiður.
Kjarvalsstaðir
Bækur,
kort,
plaggöt,
gjafavörur.
Opið dag-
lega frá
kl. 10-18.
WALL STREET SKÁVPASAVMSTÆIAV
Húsgögn gæði
‘" Si: Ljj
Ö H
-V 96.000)
^ i i. . . ..S
eru í...
símaskránni