Morgunblaðið - 26.11.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 13
AKUREYRI
SÉRA Birgir Snæbjörnsson sóknarprestur með biblíuna sem
reynt var að kveikja í á altari Akureyrarkirkju.
BJÖRN Steinar Sólbergsson, organisti í Akureyrarkirkju, stend-
ur hér við pípurnar í orgeli kirkjunnar sem eyðilagðar voru í
innbrotinu. Mestar eru skemmdirnar á minni pípum orgelsins.
Brotist inn í Akureyrarkirkju aðfaranótt sunnudags
Skemmdir unnar á innan-
stokksmunum um alla kirkju
BROTIST var inn í Akureyrarkirkju
aðfaranótt sunnudags og unnar mikl-
ar skemmdir á innanstokksmunum
um alla kirkju, m.a. orgeli kirkjunn-
ar, gamalli altaristöflu og altarisbibl-
íu. Steindur gluggi á austurhlið kirkj-
unnar var brotinn og þar farið inn.
Málið er óupplýst og í rannsókn en
rannsóknardeild lögreglunnar á Ak-
ureyri varðist allra frétta seinni part-
inn í gær.
Fjölmargar pípur í orgelinu voru
eyðilagðar, reynt var að kveikja í
biblíu á altari kirkjunnar, gamla alt-
aristaflan var rifin niður af veggnum
og við það brotnaði ramminn utan
um hana. Söfnunarbaukur í forkirkj-
unni var eyðilagður, snagar þar
brotnir af veggnum, skemmdir voru
unnar í aðstöðu kirkjuvarðar og
geisladiskar kirkjunnar brotnir. Fjár-
hagslegt tjón hefur ekki verið metið
en það nemur í það minnsta einhveij-
um hundruðum þúsunda króna.
Varð nánast orðlaus
Séra Birgi Snæbjörnssyni, sóknar-
presti í Akureyrarkirkju, var að von-
um brugðið er hann korn í kirkjuna
á sunnudagsmorgun. „Ég varð nán-
ast orðlaus og eyðilagður þegar ég
sá hvað hafði gerst. Það er varla að
maður trúi því að nokkur skuli geta
unnið slík spjöll á þessum helga stað
og eyðilagt þá fallegu hluti sem hér
eru og hafa glatt bæjarbúa og aðra
þá sem heimsótt hafa kirkjuna,“
sagði séra Birgir.
Hann sagði að fjölmargir hefðu
haft samband við sig og lýst yfir
hryggð sinni vegna þessa atburðar
og á meðal þeirra biskup Islands,
herra Ólafur Skúlason.
Björn Steinar Sólbergsson, organ-
Morgunblaðið/Kristján
STEINDUR gluggi á austur-
hlið Akureyrarkirkju var
brotinn í innbrotinu og þar
farið inn í kirkjuna.
isti Akureyrarkirkju, segir það hafa
verið mikið áfall að koma að orgelinu
á sunnudagsmorgun. „Ég hins vegar
þakka Guði fyrir að skemmdirnar eru
þó ekki meiri en þetta, því vissulega
hefði verið hægt að valda mun meira
tjóni,“ sagði Björn Steinar. Hann
taldi að um 200 pípur af þeim tæp-
lega 3.300, sem í orgelinu eru, hafi
verið eyðilagðar og að 4 raddir af
49 röddum orgelsins væru óvirkar.
Viðamikil endurbygging fór fram
á orgelinu á síðasta ári og var það
endurvígt við hátíðarmessu 26. nóv-
ember í fyrra. Björn Steinar sagðist
eiga von á mönnum frá danska fyrir-
tækinu, sem endurbyggði orgelið, í
næstu viku til að fullmeta skemmd-
irnar. Hann gerir ráð fyrir að fullnað-
arviðgerð taki nokkrar vikur og að
henni verði vart lokið fyrr en i jan-
úar í næsta ári.
Iþrótta- og
tómstundaráð
Styrkir úr
Afreks-
og styrkt-
arsjóði
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
úthlutar styrkjum og viður-
kenningum úr Afreks- og
styrktarsjóði, en hann var
stofnaður árið 1991. Einnig
hafa verið veittar sérstakar
heiðursviðurkenningar til ein-
staklinga sem þykja hafa
unnið sérstaklega vel að
íþrótta- og tómstuiidamálum
í bænum.
Umsóknir um afreksstyrk
þurfa að berast til íþrótta-
og tómstundaráðs, Glerár-
götu 26, fyrir 10. desember
næstkomandi. Jafnframt
verða veittar viðurkenningar
fyrir íslandsmeistaratitil sem
unninn er af Akureyringi á
þessu ári.
Farið yfir
afrekslista
Til að ekki verði gengið fram
hjá neinum Akureyringi sem
unnið hefur til viðurkenning-
ar væntir íþrótta- og tóm-
stundaráð þess að þau félög,
sem hlut eiga að máli, fari
yfir afrekslista sinna félaga
og tilkynni ráðinu fyrir tilskil-
inn tíma nöfn einstaklinga,
Iiða og sveita sem orðið hafa
íslandsmeistarar á þessu ári.
Stefnt er að því að úthlutað
verði úr sjóðnum föstudaginn
27. desember næstkomandi í
íþróttahöllinni.
Morgunblaðið/Kristján
Útför Finns Eydal
ÚTFÖR Finns Eydal tónlistar-
manns fór fram frá Akureyrar-
kirkju í gær. Séra Pétur Þórar-
insson jarðsöng og honum til
aðstoðar var Valgerður Val-
garðsdóttir djákni. Kór Akur-
eyrarkirkju söng undir stjórn
Björns Steinars Sólbergssonar
organista. Blásarasveit Tónlist-
arskólans á Akureyri lék eitt lag.
Þorvaldur Iialldórsson söng ein-
söng við undirleik Gunnars
Gunnarssonar. Þá var leikið lag-
ið Ó ljóssins faðir, sem Finnur
lék inn á hljómplötuna Unga
kirkjan fyrir nokkrum árum.
Kistuna báru úr kirkju félagar
Finns, þeir Jón Rafnsson, Alfreð
Almarsson, Björgvin Ólafsson,
Grímur Sigurðsson, Friðrik
Bjarnason og Þorleifur Jóhanns-
son.
Árekstrahrina síðustu daga
Brotist inn í fjölda bíla
TÖLUVERT hefur verið um
árekstra á Akureyri síðustu daga,
meiðsl á fólki hafa ekki verið mikií
en umtalsvert tjón á bifreiðum.
Um helgina var farið inn í fjölda
bifreiða, einkum á Suðurbrekku, en
þeir sem að verki voru höfðu lítið
upp úr krafsinu, í nokkrum bílanna
var búið að losa um hljómflutnings-
tæki en þau ekki náðst úr. Alls var
tilkynnt um 9 bíla sem farið hafði
verið inn í.
Lögreglan kærði 10 ökumenn
vöruflutningabíla fyrir að vera ekki
með lögskipaða ökurita í bílunum.
TANGIHF.
Almennt hlutafjárútboð
Útgefandi: Tangi hf., kt. 551265-0219, Hafnarbyggð 7, 690 Vopnafirði.
Sölutímabil: 26. nóvember 1996 - 26. maí 1997.
Fjárhæð útboðs: Nýtt hlutafé að nafnvirði 150.000.000 króna.
Forkaupsréttur: Núverandi hluthafar hafa forkaupsrétt að nýju hlutafé til 6. desember 1996 íhlutfalli við hlutafjáreign sína. Eftir þann tíma verða hin nýju hlutabréf boðin almenningi til kaups. Hluthöfum er heimilt að framselja forkaupsrétt sinn að hluta eða öllu leyti.
Gengi hlutabréfanna: Útboðsgengi til forkaupsréttarhafa er 1,75. Gengi hlutabréfanna verður 1,75 á fyrsta degi eftir að almenn sala hefst, en gengi bréfanna getur breyst verði breytingar á markaðsaðstæðum. Upplýsingar um gengi veitir Kaupþing Norðurlands hf.
Söluaðilar: Kaupþing Norðurlands hf. og Kaupþing hf.
Skráning: Hlutabréf Tanga hf. eru skráð á Opna tilboðsmarkaðnum.
Umsjón með útboði: Kaupþing Norðurlands hf.
Útboðslýsing liggur frammi hjá söluaðilum og útgefanda.
44%KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
-Löggilt verðbréfafyrirtæki
Kaupvangsstrœti 4, 600 Akureyri - sími 462 4700, fax 461 1235