Morgunblaðið - 26.11.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 29
LISTIR
Nýjar hljómplötur
• ÚT er kominn nýr hljómdiskur
með söng Steins Erlingssonar
við undirleik Ólafs Vignis AI-
bertssonar. Nefnist diskurinn „Ó
bjarta nótt. “
Á disknum eru íslensk oger-
lend lög, 21 að tölu, bæði þekkt
og óþekkt. í hópi tónskáldanna
eru Sigvaldi Kaldajóns, Jón
Asgeirsson, Karl Ó. Runólfsson
og Magnús Kjartansson. Úr hópi
erlendra tónskálda mætti nefna
John Rutter og John Jacob Ni-
les.
Lög Jóns Ásgeirssonar „Sig-
urður Breiðfjörð“ og „Spilafífl"
hafa ekki verið hljóðritum áður.
Lögin „Brúðkaupssöngur“ eftir
John Rutter og „Ó bjarta nótt“
eftir Magnús Kjartansson eru hér
í frumflutningi á íslandi við texta
eftir Birgi Svan.
Steinn Erlingsson hóf söngnám
í Tónlistarskóla Keflavíkur en
lauk einsöngvaranámi frá Tón-
listarskóla Garðabæjar vorið
1985. Steinn hefur um langa hríð
sungið með Karla- og Kirkjukór
Keflavíkur, bæði sem kórfélagi
og einsöngvari. Þá hefur hann
komið fram sem einsöngvari með
Skagfirsku söngsveitinni og
sungið einn eða með öðrum við
ýmis tækifæri bæði innanlands
og utan.
Upptökur Halldór Víkingsson.
Grafísk hönnun Bragi Einarsson.
Dreifing Steinn Erlingsson. Verð
1.999 kr.
Freysteinn Bjamason
er útgerðarstjóri Síldarvirmslunnar hf. Neskaupstað.
Hann er
• • •
Starf hans felst í umsjón með útgerð og úthaldi fimm
skipa sem Síldarvinnslan gerir út. Vélfræðimenntunin
gerir það að verkum að Freysteinn hefur góða yfirsýn
og innsýn í það sem lýtur að viðhaldi og innkaupum
á flóknum tæknibúnaði til nútímafiskveiða.
Nánari upplýsingar veitir:
Vanti ykkur traustan starfsmann
með víðtæka sérmenntun á tæknisviði,
bæði bókiega og verklega,
þá eru þið að leita að vélfræðingi.
Vélstjórafélag
íslands
Borgartúni 18,105 Reykjavík
Sfmi: 562-9062
Við skiptum vi|ð
^ i
SPARISJÓÐ VÉLSTJÓRA
Síðasta sýning á
Grískri veislu í
Hafnarborg
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda
aukasýningu á uppsetningu Zorba
hópsins á dagskránni Grísk veisla:
Vegurinn er vonargrænn. Verður
þetta fimmtugasta sýningin og sú
allra síðasta.
Frá því í haust hefur dagskráin
verið flutt í Hafnarborg, menning-
ar- og listastofnun Hafnarfjarðar.
og er hér um að ræða efni sem
dregið er úr verkum gríska Ijóð-
og tónskáldsins Mikis Þeodorakis,
ásamt frásögnum Sigurðar A.
Magnússonar af lífi þessa skálds
Grikkja á þessari öld. Sif Ragn-
hildardóttir flytur lög Þeodorakis
bæði á grísku og íslensku við und-
irleik Jóhanns Kristinssonar á
píanó og Þórðar Árnasonar á gítar
og búsúki.
Fyrir hvetja sýningu býður Jó-
hann Sigurðsson matreiðslumeist-
ari upp á gríska máltíð og einnig
má kaupa veitingar í hléi. Máltíðin
hefst kl. 18.30 en dagskráin sjálf
kl. 20.30. Miðapantanir eru í
Hafnarborg milli kl. 12 og 18 alla
daga nema þriðjudaga, en þá er
tekið við pöntunum milli kl. 12 og
16.
Jólapakkar til
Norðurlanda
Tekið er á móti pökkum hjá BM flutningum, Holtagörðum, við hliðina
á skrifstofum Samskipa, 2., 3. og 4. des. Skipið fer frá íslandi 5. des.
og verður í Árósum 12. des., Moss 13. des. og Varberg 13. des.
Nánari upplýsingar veittar hjá BM flutningum I síma 588 9977.
SAIWISKIP
Holtabakka við Holtaveg • Sími: 569 8300 • Fax: 569 8327
íslináu almanðkin 1997
Ásamt nýju landkynningarbókinni 4 1 j» w v, « j* 1 1*
klandi toirandi landi
msm f
’ ' 'Á' r
Ta vinaog
viðskiptamanna
í átlöndum.
Kiippið út og notið
við innkaupin
11701 íslenska almanakið
11702 Breiða náttúrualmanakið
11703 íslenska náttúrualmanakið
11704 Stóra náttúrualmanakið
11705 íslenska hestaalmanakið
11706 (slenskir fossar (borðalmanak)
ísland Töfrandi land,
vönduð gjafabók
með 80 Ijósmyndum frá helstu
perlum landsins,
Bókin er á 5 tungumálum.
íslenska jólasveinadagatalið
(á sænsku, ensku og þýsku)
Jólakort 5 og 14 í pk.
Útsölustaðir:
bókaverslanir
kaupfélög
minjagripaverslanir
Almanaksútgáfa í
15 ár
Vandaðar gjafir frá
Islandi
almanaksútgáfa & náttúruljósmyndun
Höfðabakki 3 132 Reykjavík
Pósthólf 12210 Sími 567 3350 Fax 567 6671