Morgunblaðið - 26.11.1996, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/KS
LÆKNIR, sjúkrabifreið og lögregla komu á slysstaðinn.
Tólf ára drengur
slasaðist alvarlega
Hvammstanga - Tólf ára drengur
slasaðist alvarlega um kvöldmatar-
leytið á sunnudag eftir að ekið var
á hann í Víðidal, skammt frá Víði-
dalsárbrú.
Tildrög slyssins voru þau að hóp-
ferðabifreið sem flutti unglinga af
íþróttamóti stöðvaði skammt frá
brúnni og hleypti tveimur drengjum
út. Bifreiðin stóð á norðurkanti veg-
arins og ætluðu drengirnir að fara
yfir veginn aftan við hana.
Annar þeirra varð fyrir bifreið
sem kom úr gagnstæðri átt og slas-
aðist illa, og mátti litlu muna að
hinn drengurinn yrði einnig fyrir
bifreiðinni.
Læknir, sjúkrabifreið og lögregla
komu á staðinn og var ákveðið að
kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Hún lenti við Hvammstanga og flutti
drenginn til aðgerðar á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur. Hann lá á gjörgæslu-
deild sjúkrahússins í fyrranótt og er
samkvæmt upplýsingum þaðan tals-
vert mikið slasaður en úr lífshættu.
Uppsögn á samningum við skólastjóra
Birkimelsskóla dæmd ólögmæt
Munnlegt sam-
komulag talið
vera
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hefur
úrskurðað að uppsögn Vesturbyggð-
ar á leigusamningi við skólastjóra
Birkimeisskóla um afnot af skóla-
stjórabústað ásamt umsömdum hús-
næðishlunnindum annars vegar og
ráðningarsamningi vegna sérverk-
efna hins vegar, frá 31. október
1995, hafi verið ólögmæt.
Málsatvik voru þau að árið 1984
gerði þáverandi oddviti Barða-
strandahrepps, síðar Vesturbyggð,
samning við stefnanda um að taka
við starfi skólastjóra með þeim
hlunnindum að meðan hann gegndi
störfum skólastjóra hefði hann frítt
húsnæði og þyrfti ekki að greiða
húshitunarkostnað. Taldi skólastjór-
inn þetta hafa verið forsendu fyrir
ráðningu sinni í upphafi.
Tímabundinn leigusamningur
Sveitarfélagið dró á hinn bóginn
í efa að til hafi verið að dreifa leigu-
samningi í skilningi húsaleigulaga
og taldi yfirlýsingu oddvita ekki
nægja eina og sér til að byggja á
rétt skólastjórans á hlunnindum.
I forsendum dóms Héraðsdóms
Vestfjarða er, með hliðsjón af fram-
gildi
burði vitna og athugasemdalausri
framkvæmd samningsins í 11 ár,
talið sannað að munnlegur samning-
ur hafi komist á milli skólastjórans
og Barðastrandahrepps. Talið er
ósannað að gerðir hafi verið fyrirvar-
ar um önnur samningslok en að
stefnandi léti af störfum skólastjóra.
Af þeim sökum væri því um tíma-
bundinn leigusamning að ræða. I
forsendum dómsins segir að það sé
viðurkennd meginregla í íslenskum
rétti að slíkum leigusamningi verði
ekki sagt upp, heldur renni hann út
á umsömdum tíma.
Fyrir réttinum var einnig tekist á
um lögmæti uppsagnar sveitarfé-
lagsins á samningi um gæslustörf,
sem skólastjóri tók að sér gegn
greiðslu, meðan skólinn starfaði.
Fallist var á með skólastjóranum
að um tímabundinn ráðningarsamn-
ing hafi verið að ræða og að slíkum
samningum verði almennt ekki sagt
upp á miðju samningstímabili.
Sveitarfélagið var dæmt til að
greiða stefnanda bætur fyrir ólög-
mæta uppsögn á ráðningarsamn-
ingi, að upphæð 228.476 kr., og
útlagðan kostnað vegna húshitunar.
Nýtt stjórnskipulag
Isafjarðarbæjar
STJÓRNSKIPULAG ísafjarðarbæj-
ar hefur verið í mótun og nú hefur
það verið samþykkt í bæjarráði.
Stjórnsýslunni er skipt upp í sex
svið, stjórnsýslusvið, fjárreiðu- og
áætlanasvið, félagsþjónustusvið,
fræðslu- og menningarsvið, um-
hverfissvið og hafnarmálasvið.
Yfirmenn hvers sviðs verða: Þórir
Sveinsson fjármálastjóri, Jón Tynes
félagsmálastjóri, Rúnar Vífilsson
skóla- og menningarfulltrúi, Ár-
mann Jóhannesson bæjarverkfræð-
ingur, Hermann Skúlason hafnar-
stjóri og Þórunn Gestsdóttir sem
verður aðstoðarmaður bæjarstjóra
og yfirmaður stjórnsýslusviðs.
Hið nýja stjórnskipulag sveitarfé-
lagsins er unnið í samvinnu við
Rekstur & ráðgjöf ehf. í Reykjavík.
Stjórnskipulagið hefur áður verið
kynnt opinberlega en því var breytt
á síðustu stigum vinnsluferilsins.
Helsta breytingin er að í stað bæjar-
ritara sem yfirmanns fjármála- og
stjórnsýslusviðs kemur staða aðstoð-
armanns bæjarstjóra er verður yfir-
maður stjórnsýslusviðs.
Fólki fækkar í Eyjum þrátt fyrir uppsveiflu í atvinnulífinu
Höfuðborgar-
svæðið sogar til sín
Fólki fækkar í
Vestmannaeyjum
þrátt fyrir að
atvinnulífið sé í
uppsveiflu og
meðaltekjur fari
hækkandi. Guðjón
Hjörleifsson
bæjarstjóri segir
Helga Bjarnasyni að
mikill húshitunar-
kostnaður hafi áhrif.
Morgunblaðið/Sigurgeir
GUÐJÓN Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
ÍBÚAR Vestmannaeyja voru
taldir 4.747 klukkan hálftólf síð-
astliðinn föstudag. Hafði þeim
þá fækkað um 58 á tæpu ári, frá
1. desember á síðasta ári. Á árinu
á undan fækkaði einnig, þá um
83 íbúa. Guðjón Hjörleifsson
bæjarstjóri hefur ekki skýringar
á þessu en bendir á að sjá megi
þessa sömu þróun um alla lands-
byggðina. „Það er greinilegt að
höfuðborgarsvæðið sogar til sín
fólkið.“
Guðjón segir að Eyjamenn hafí
góða þjónustu. „Vegna ein-
angrunarinnar höfum við þurft
að vera sjálfum okkur nógir um
alla þjónustu,“ segir hann. Helstu
vandamálin á því sviði sem Vest-
mannaeyjabær á að sjá um hafa
verið í leikskólanum en Guðjón
segir að mikið hafi verið unnið í
því og bæjaryfírvöld séu langt
komin með að útrýma biðlistum
eftir leikskólaplássum. Þá hafa
samgöngur við Eyjar gjörbreyst
með Herjólfí og tíðari flugferðum.
Fyrirtækin í sókn
Mikið breyting hefur orðið í
atvinnumálum á örfáum árum.
Stóru sjávarútvegsfyrirtækin
stóðu illa en hafa náð að snúa
stöðunni sér í hag. Þau eru hætt
að draga saman starfsemina og
Guðjón segir að þau hafi nú stöðu
til að sækja fram á ný. Innanbæj-
arfólk fáist hins vegar ekki til
vinnu. „Ef nýtt fyrirtæki kemur
í bæinn þarf að fljÁja fólkið með,“
segir Guðjón.
Hann bendir einnig á að tölu-
vert sé af aðkomufólki í vinnu í
bænum, meðal annars á frysti-
togurum, og vinna þurfí að því
að fá það til að flytja í bæinn.
„Við þurfum að gera fólki grein
fyrir því hvað það er gott að búa
í Vestmannaeyjum og ala hér upp
börn,“ segir bæjarstjórinn. Líkur
eru á því að stóru sjávarútvegs-
fyrirtækin þurfi að fá innlenda
eða erlenda farandverkamenn til
vinnu, að minnsta kosti á mestu
álagstímum. Spurður að því hvort
samfélagið sé að breytast í stóra
verbúð með tilheyrandi lífi, segist
Guðjón ekki trúa því. „Fyrirtækin
þurfa að manna starfsemi sína
og þau eru að ljúka framkvæmd-
um sem kalla á aukinn vinnu-
kraft. Ég tel að þau leggi áherslu
á að vera með áreiðanlegt starfs-
fólk,“ segir hann.
Þrátt fyrir að fiskvinnslufyrir-
tækin séu búin að fínkemba at-
vinnuleysisskrána eru enn þó-
nokkrir skráðir atvinnulausir.
Það eru þá væntanlega einstakl-
ingar sem í sumum tilvikum geta
ekki unnið í fiski eða eiga við
félagsleg vandamál að etja. Guð-
jón segir að nokkurt atvinnuleysi
sé meðal kvenna. Hann segir að
ef tækist að útvega störf við létt-
an iðnað myndu atvinnuleysislist-
arnir tæmast.
Tekjur aukast
Því má bæta við að meðaltekj-
ur íbúa í Vestmanneyjum eru
talsvert yfir landsmeðaltali. Á
árinu 1994 voru tekjur fólks þar
18% hærri en til jafnaðar á land-
inu öllu, samkvæmt yfirliti
Byggðastofnunar. Aðalástæðan
er hátt hlutfall starfa við fiskveið-
ar en einnig má nefna að meðal-
tekjur á hvert ársverk í fiskveið-
um og fískvinnslu eru hærri í
Vestmannaeyjum en að meðaltali
í landinu öllu. Virðist þessi þróun
halda áfram. Útsvarstekjur juk-
ust um 9% á síðasta ári og útlit
er fyrir 13-16% aftur í ár. Bæjar-
sjóður fær 50 milljónum kr. meiri
tekjur af útsvari í ár en reiknað
var með í fjárhagsáætlun og eru
þetta mestu útsvarstekjur í sögu
bæjarfélagsins, að sögn bæjar-
stjórans.
Dýrt að kynda
En fólkið flytur í burtu þrátt
fyrir gott atvinnuástand, háar
meðaltekjur og góða þjónustu.
Guðjón segist ekki hafa skýringu
á því, aðra en gildi um lands-
byggðina almennt. Hann segir
að fólk beri því gjarnan við að
ódýrara sé að lifa á höfuðborgar-
svæðinu og nefni þá sérstaklega
mikinn húshitunarkostnað í Eyj-
um auk þess sem ódýrt sé að
kaupa í matinn í Bónusi.
Bæjarveitur Vestmannaeyja
eru í hópi dýrustu hitaveitna
Iandsins. „Veitan er ný og skuld-
ar mikið,“ segir Friðrik Friðriks-
son veitustjóri þegar hann er
spurður um skýringu á því hvers
vegna heita vatnið er svona dýrt
í Eyjum. Hitaveitan skuldar um
600 milljónir kr. en ársveltan er
aðeins 150 milljónir. Það er því
langtímaverkefni að grynnka á
skuldunum. Vatn hitaveitunnar
er hitað upp með rafmagni, af-
gangsorku, að stærstum hluta
en einnig er notuð orka frá sorp-
brennslustöð.
Að sögn Guðjóns bæjarstjóra
hafa bæjaryfirvöld leitað til ríkis-
valdsins um aðstoð við að lækka
húshitunarkostnaðinn. Segir
hann að nefnd sem iðnaðarráð-
herra skipaði um jöfnun húshit-
unarkostnaðar muni skila áliti
fyrir áramót. Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja hefur lagt sín mál
fyrir og telur Guðjón að ákveðinn
skilningur sé ríkjandi á vanda-
málum Eyjamanna.
Mikilvægt að
lækka skuldir
Friðrik Friðriksson segir að
létta verði skuldum af fyrirtæk-
inu ef möguleiki eigi að vera að
lækka gjaldskrána, afborganir
af skuldum séu afgerandi þáttur
í greiðslum hennar. Auknar
niðurgreiðslur myndu einnig
koma notendum til góða. Gert
hefur verið ráð fyrir því að veitan
greiði tiltölulega hratt niður
skuldir sínar. „Á þessi kynslóð
að borga allan stofnkostnaðinn
við hitaveituna?" segir Friðrik og
veltir því fyrir sér hvort ekki sé
rétt að lengja afskriftatímann og
greiða lánin niður á lengri tíma.
Með því móti sé mögulegt að
lækka gjaldskrána.
Samskiptin við RARIK og
Landsvirkjun eru einnig til um-
ræðu. Friðrik segir hugsanlegt
að spara einhvern milliliðakostn-
að með því að kaupa rafmagnið
beint frá Landsvirkjun. Hins veg-
ar segir hann að það yrði rothögg
fyrir Hitaveituna og Eyjamenn
ef mikil skerðing yrðu á af-
greiðslu rafmagns á afgangs-
orkutaxta en í það stefnir á
næstu árum vegna orkusölu-
samninga Landsvirkjunar við er-
lend stóriðjufyrirtæki. Segir Frið-
rik að ekki gangi að kynda bæinn
upp með svartolíu í lengri tíma.
60 gráðu heitur sjór
undir eyjunum
„Það er meginmarkmið okkar
að ná niður húshitunarkostnaði í
Eyjum,“ segir Friðrik. Rannsókn-
ir sýna að 60 gráða heitur sjór
er undir eyjunum. Friðrik segir
að hægt sé að nýta þá orku með
varmadælum en til þessa hafi
rekstur þeirra verið svo dýr að
ekki væri talið hagkvæmt að
nýta hana. Telur hann þó að þetta
gæti gengið ef hægt yrði að
kaupa ótryggt rafmagn til að
reka dælurnar, en það hafí ekki
fengist í gegn. Vill Friðrik að
þetta verði athugað nánar.