Morgunblaðið - 26.11.1996, Side 20

Morgunblaðið - 26.11.1996, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ rS 3SHnoAfHwnfl 20 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 NEYTENDUR Nýtt Morgunblaðið/Júlíus Kjúkling-ur í karrý NÓATÚN hefur hafið innflutning á kjúklingi í karrýsósu. Um er að ræða danska vöru og kemur kjúkl- ingurinn í 300 gramma pakkningum og kostar 189 krónur. Kjúklinginn má hita upp í örbylgjuofni eða venju- legum ofni. Morgunblaðið/Júlíus 99% fitulaus kalkúnaskinka NÓATÚN hefur hafið sölu á 99% fitulausri kalkúnaskinku sem kemur frá Bandaríkjunum. Skinkan kemur í 200 gramma pakknigum og kostar hún 369 krónur. Blað allra landsmanna! - kjarni málsins! Flateyringar byrjaðir að kæsa skötu fyrir Þorláksmessu Nýtt Hnoðmörinn hrærður saman við skötuna SUMUM finnst jólaundirbúningurinn ekki fullkominn nema þeir fái skötu á Þorláksmessu. Lionsmenn í Önund- arfirði hafa notað verkun á skötu sem ijaröflunarleið til að styrkja góð mál- efni. Um þessar mundir eru þeir á fullu við að standsetja hús í bænum undir starfsemina. Að sögn Guðna A. Guðnasonar er skata herramanns- matur og margur sem hlakkar til að setjast að snæðingi á Þoriáksmessu og njóta hennar. „Fyrst er skatan börðuð, þ.e. börð- in eru skorin frá. Þvínæst er skatan sett í kös og látin liggja í henni í tíu daga. Hún er síðan þvegin og látin liggja á rá í tvo daga. Að því loknu er hún roðrifin. Það veltur á hitastigi hversu lengi hún liggur í kös. Æskilegt hitastig er 10-12 gráður á Celsíus. Skatan er fljótari að verkast eftir því sem hún er heit- ari. Þó má ekki vera of heitt, þann- ig að hún fari að soðna. Síðan er skatan soðin stutt og borðuð með góðu mörfloti og brennivíni." Þá hafa sumir þann háttinn á að sjóða skötuna uppúr hangikjötssoðinu á Þorláksmessu. Bræða hnoðmör í gufu Guðni segir að það sé mjög gott að bræða hnoð- mörinn í gufu, þannig að hann brenni ekki. Þegar búa á til hnoðmör er nýrnamör og netja úr kind hnoðað saman í trogi. Eftir að búið er að hakka og hnoða er búin til úr þessu tafla. Hún er síðan brædd í potti og hrærð saman við skötuna. Best er að þurrka töfluna vel fyrst í hjalli, passa að ekkert vatn komist að, því þá verður hnoðmörinn fúll. Hægt er að borða stöppuna heita, Morgunblaðið/Egill Egilsson GUÐNI A. Guðnason með þorláksmessuskötuna. BÖRÐIN skorin frá. en einnig er hægt að skera hana niður og borða kalda. Hvað varðar „ilminn" af skötunni, þá er skatan best þegar hún er orðin vel kæst. Menn hafa oft haldið því fram að skatan lykti eins og migið hafi verið á hana. Að sögn Guðna er skatan ekki verri vegna lyktarinnar og hann tekur skýrt fram að lyktin stafi af verkuninni og engu öðru! Morgunblaðið/Kristinn EGGERT Magnússon, fram- kvæmdastjóri Kéxverksmiðj- unnar Fróns. Nýtt kex frá Fróni KEXVERKSMIÐJAN Frón hefur sett íjórar nýjar kextegundir á markað. Meðal nýjunganna er tekex sem ekki hefur verið framleitt hjá Fróni í liðlega 40 ár. Hinar kextegundirnar eru tvær gerðir af jólasmákökum sem heita prakkarakökur, smákökur með kanil og engifer, og skopparakökur, smá- kökur með súkkulaðidropum og höfrum. Kexverksmiðjan Frón hefur einnig hafið framleiðslu á hafrakexi sem inniheldur minni sykur en annað kex frá fyrirtækinu. Nýju tegundirnar eru allar komn- ar í verslanir og fyrir jólin verður Kexverksmiðjan Frón í samstarfi við aðra íslenska framleiðendur um vörukynningar í verslunum. Jólabækurnar í Bónus BÓNUS hefur hafið sölu á nýút- komnum bókum. Gefinn er 15% af- sláttur af leiðbeinandi söluverði bók- anna og síðan verða vikuleg aukatil- boð á einhvetjum jólabókum. Það er bókin Z ástarsaga eftir Vigdísi Grímsdóttur sem er á tilboði fram á fimmtudag. Veittur er 30% afsláttur af verði hennar. Lágmúla 9 • Símí 581 3730 Litlu matreiðslubækurnar Jólaskórnir komnir 4 gerðir af uppreimuðum síelpuskóm í s(. 28-37. Smáskór í bláu húsi við Fákafen. Mexíkósk og ítölsk matseld, pasta og kínversk matreiðsla NÝLEGA komu út fjórar litlar mat- reiðslubækur hjá Skjaldborg. Ein bókanna fjallar um mexíkóska mats- eld, næsta um ítalska matseld, þá er ein um kínverska matreiðslu og að lokum pastabók. Fleiri bækur í sama flokki koma á markaðinn á næsta ári. Uppskriftirnar í bókunum eru þýddar en aðlagaðar íslenskum eldhúsum og í bókunum er lögð áhersla á að hafa uppskriftirnar ein- faldar og fljótlegar. Bækurnar kosta 970 krónur. Burritos Þessa uppskrift er að finna í mexí- kósku matreiðslubókinni. ___________6 hveititortillur________ 1 laukur, saxaður Setjið blönduna með skeið í miðju hverrar tortillu sem þarf að vera volg og mjúk. Setjið salatblað, ost, tómatsneið og graslauk ofan á. Btjótið jaðrana átortillunni inn þannig að úr verði ferhyrndur pakki. Gætið þess vel að böggullinn sé tryggilega lokaður. Raðið bögglunum í eldfast mót, setjið lok yfir og bakið í forhituðum ofni við 180°C í u.þ.b. 20 mínútur. Ausið heitri tacosósunni yfir, skreytið með sýrðum ijóma og söx- uðu kóríander. ■ 1 msk olía okkar eru sniðin að venna á öllum aldri. við að byggja viðhalda góðri r>ir imifi 460 g (dós) niðursoðið baungmauk 6 salatblöð, rifin 1 20 g rifinn ostur 2 tómatar, sneiddir 2 msk saxaður graslaukur 1 skammtur tacosósa 1 40 ml sýrður rjómi söxuð kórlanderlauf Kaupi fólk ekki tilbúnartortillur eða tacosósu er að finna uppskrift að hvörutveggja í bókinni. Vefjið tortillurnar í álpappír og hitið í ofni til að mýkja þær. Sjóðið laukinn í olíunni, mjúkan én ekki brúnan. Bætið baununum við og gegnhitið. Brúðhjón Allur boróbiinaður Glæsilcg gjdfavara Br líðarlijöna lislar 5V)//V\\\i\V VERSLUNIN Laugetvegi 52, s. 562 4244.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.