Morgunblaðið - 26.11.1996, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Á KALDADAL - eiu myndanna á sýningu Björns Blöndal.
Lj ó smy ndasýning
Tærleiki og
fallegur hljómur
BJÖRN Blöndal Ijósmyndari sýn-
ir nú 14 ljósmyndir á veitinga-
staðnum Á næstu grösum. Mynd-
irnar eru allar teknar sama dag-
NÝTT útgáfufyrirtæki, Bókafor-
lagið Dægradvöl ehf., hefur verið
stofnað í Reykjavík og sendir það
frá sér þrjár bækur: Málsvörn
mannorðsmorðingja eftir Gunnar
Smára Egilsson, Vini & kunningja
eftir Þráin Bertelsson og Bessá-
staðabækurnar, dagbókarbrot for-
seta lýðveldisins, sem Gunnar
Smári bjó til prentunar.
Á næstunni mun Dægradvöl
hleypa af stokkunum nýju menn-
ingartímariti, Fjölni, í samvinnu
við litlu og meðalstóru útgáfufyr-
inn á ferð ljósmyndarans frá
Reykjavík, á Þingvöll og um
Kaldadal í Borgarfjörð. Sýningin
mun standa fram undir jól.
irtækin Smekkleysu sm. og Bjart.
„Á næsta ári ráðgerir Dægra-
dvöl að gefa út Dægradvöl eftir
Benedikt Gröndal yngri í þeim
búningi er hæfir því magnaða
verki. Sú útgáfa verður fyrsta
bindið í ritröð eldri verka er saman
munu draga fram samhengi í ís-
lenskri menningu sem hingað til
hefur ekki verið haldið á lofti,"
segir í kynningu. Eigandi Bókafor-
lagsins Dægradvalar er Alda Lóa
Leifsdóttir. Starfsmaður er Gunnar
Smári Egilsson.
TONUST
Bústaðakirkja
KAMMERTÓNLEIKAR
Sigrún og Sigurlaug Eðvaldsdætur,
Guðmundur Kristmundsson og Rich-
ard Talkowsky fluttu kvartetta eftir
Haydn, Mozart og Beethoven. Sunnu-
dagurinn 24. nóvember, 1996.
KAMMERMÚ SÍKKLÚBBUR-
INN hefur starfað með miklum
blóma í 40 ár. Á hans vegum hafa
fjölmargir erlendir og innlendir
tónlistarmenn komið fram og lík-
lega er efnisskrá aiira tónleikanna
töluverð að vöxtum og um margt
fróðleg. í efnisskrá tónleikanna
er sagt frá fyrstu kammertónleik-
um sem haldnir voru hér á landi,
þann 5. desember 1922, fyrir 74
árum. Fyrsta viðfangsefnið var
„Lævirkjakvartettinn" eftir Haydn
og þessi fyrsti strengjakvartett,
sem íslendingar heyrðu leikinn á
tónleikum, var upphafsviðfangs-
efni þriðju tónleika Kammermús-
íkklúbbsins í vetur.
Lævirkjakvartettinn er sérlega
fögur tónlist og er hann einn af
sex svo nefndum Tost kvartettum,
en þessi Johann Tost var fiðluleik-
ari við Esterházy hljómsveitina frá
1783 til 1788. Hann datt í lukku-
pottinn og giftist ríkri ekkju og
gerðist kaupsýslumaður og mun
hafa keypt þessa kvartetta af
Haydn og auk þess tvær sinfón-
íur, nr. 88 og 89. Nafnið „Lævirk-
inn“ er tilkomið vegna þess að
tónlínur fyrstu fiðlu eru oft á
syngjandi háu tónsviði, á meðan
lágraddirnar eru mun jarðbundn-
ari á lærga tónsviði. Þetta er áber-
andi í upphafi og þegar fiðlan
„kom inn“, lék Sigrún með miklu
„vibrato", sem á að minna á söng
lævirkjans. Það sem auk þess ein-
kenndi leik kvartettsins, var sér-
lega hreinn flutningur, sem var
blessunarlega laus við grófan lág-
raddaleik, sem einkennir allt of
oft leik sellista og lágfiðluleikara.
Lævirkjakvartettinn var sem sagt
mjög fallega leikinn og söng fyrsta
fiðlan hjá Sigrúnu eins og lævirki
og undirraddirnar hjá Sigurlaugu,
Guðmundi og Talkowsky voru þýð-
ar og fullar aðdáunar á fögrum
söng lævirkjans.
Mozart var næst á dagskrá og
það var A-dúr kvartettinn, K 464.
Þessi kvartett er sérlega tematísk-
ur og í fyrsta kaflanum t.d. er nær
eingöngu unnið úr upphafsstefinu
og í lokakaflanum er mikið unnið
úr tónhugmynd, sem er eins og
spegilmynd af upphafi aðalstefsins
í fyrsta kaflanum. Hægi kaflinn
er í tilbrigðaformi og var hann
sérlega fallega fluttur.
Lokaviðfangséfnið var sá þriðji
af Razumovsky kvartettum Beet-
hovens, glæsilegt verk, sem endar
á fugato þætti. Það er ofmælt að
kalla kaflann fúgu, þó hann hefj-
ist á framsögu, og sama stefskipan
komi fyrir aftur sem ítrekun og
þá með fylgistefi, á svipaðan hátt
og á sér stað í tvöfaldri fúgu. Rit-
háttur kaflans í heild er alls ekki
kontrapuntískur, en glæsilegur og
var leikinn af miklum og háslegn-
um hraða.
Flutningur félaganna, Sigrúnar,
Sigurlaugar, Guðmundar og
Talkowskys, var sérlega hreinn
og fallega hljómandi og þar gat
oft að heyra ekta pianissimo og
sérlega þýðan leik hjá lágfiðlu og
sellói. Líklega er að rísa upp sá
tími, að hér á landi verði starfandi
margir góðir strengjakvartettar
og er það vonum seinna, í þeirri
miklu grósku sem einkennt hefur
íslenskt tónlistarlíf síðasta áratug-
inn. Sigrún Eðvaldsdóttir er frá-
bær fiðluieikari, sem ætti að fá
tækifæri til þess að vinna sem
kammermúsíkant. Strengjakvart-
ett hennar að þessu sinni er sprott-
inn upp úr þeim þreyfingum, sem
strengjaleikarar hafa stundað
undanfarið í þeirri von að þörf sé
fyrir strengjakvartett. Enn hefur
ekki tekist að skjóta þeim stoðum
undir slíka starfsemi, að væniegt
væri sem fullt starf, eins og gerist
meðal menningarþjóða.
Jón Ásgeirsson
Dægradvöl, nýtt forlag
Samtök fjárfesta
almennra hlutabréfa- og sparifjáreigenda H n w | ■ ■
iviaipn Fundarstaður: Blái salur Verslunarskóla íslands Fundartími: 28. nóvember 1996 kl. 17:15
Dagskrá:
17:15 Skattaleg meðferð fjármagnstekna og áhrif nýrra laga um fjármagnstekjuskatt á sparnað og ákvarðanir fjárfesta. Ólafur Nilsson, löggiltur endurskoðandi.
17:30 Þróun hlutabréfamarkaðar og væntingar fjárfesta í Ijósi staðreynda og spádóma. Björn Jónsson, forstöðumaður Hlutabréfasjóðsins hf.
17:45 Alþjóðlegur fjármagnsmarkaður og tækifæri. Notkun upplýsingakerfa í þágu fjárfesta og fjármálastofnana. Hreiðar Már Sigurðsson, sjóðsstjóri verðbréfasjóða Kaupþings.
18:00 Samkeppnisstaða innlánsstofnana gagnvart öðrum fjárfestingarkostum sparifjáreigenda. Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON.
18:15 Hlutverk tryggingafélaga á fjármagnsmarkaði. Samvinna, samruni, samkeppni. Axel Gíslason, forstjóri VÍS.
18:30 Ræðumenn sitja fyrir svörum. Benedikt Jóhannesson, forstjóri Talnakönnunar, stýrir.
18:45 Aðalfundastörf skv. lögum félagsins. Þorvarður Elíasson, formaður Samtakanna.
■ ■
. endalaus gæði
WMN 862 Vél með rafeindastýringu sem
u ““ skynjar misvægi í hleðslu og
Þuottavel
VERÐ
Kr.
49.900
stgr.
stjórnar vinduhraða. Tekur inn
á sig heitt og kalt vatn.
Vinduhraði er 500/800 sn.mín.
Afköst: 5 kg.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
Umboösmenn um land allt.