Morgunblaðið - 26.11.1996, Side 44

Morgunblaðið - 26.11.1996, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ 30 gerdir af sœtum sófum! AÐSEIMDAR GREINAR sœtir sófar HÚSGAGNALAGERINN Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475 AVALLT I FARARBRODDI Míele Neytenda- ■■ kannanir um allan heim hafa staðfest að Miele þvottavélar eru ávallt I fararbroddi. „Ávallt bestir"er okkar loforð. Takk fyrir að velja Miele. Rudolf Miele stjórnarformaöur 8 Verð irá kr. 110.790 st.gr. j Miele EINSTAKAR ÞVOTTAVÉLAR FRA29. NOVEMBER j“ FRAM AÐ JÓLUM /T Fjór- réttaður kvökl- verður vKtAATSfö/ 2.950 kr Parmaskinka með ananassalsa og kryddjurtaotíu Rjúputerrine með ríismm,jíkjum og hestihnetuvinaigrette Reyktur tax með rjómaosti, kotasœlu oggraslauk Ristaður hörþudiskur og kolkrabbi með cous cous, corianderolíu, lime og tómötum* Kjörsveppasúpa „Cappuccitio" (milliréttur á kvöldin) ★ Hamborgarhryggur með rauövínssósu Nautahryggur með villigrjónasoujjle og villisveppasósu Ojnbakað, jyllt lambalœri með rósmarín og hvítlauk á sítrónugrasssósu Villigœsabringa og tjiípa með betjasósu og steinseljurótannauki' ★ Prosinnjóladrumbur „Búche de Noel“ Kryddaður brauðbúðingur„pain d'épices" meðþurrkuðum ávöxtum og möndlum Péche Melba með vanilluís og hindberjasósu *Einungis á kvöldin. ". 'jg — - — ---------—” BORÐAPANTANIR í SÍMA 552 5700 Hvers vegna minmst enginn á kostnaðinn vegna endurnýjunar starfsfólks? ÞANN 2. júlí síðast- liðinn var starfsmönn- um Landmælinga ís- lands tilkynnt að stofnunin yrði flutt til Akraness. Frá þessum degi hefur aðeins ein spurning brunnið á vörum okkar allra: Hvers vegna á að flytja Landmælingar íslands á Akranes? Svarið sem við höfum alltaf fengið er: Þetta er pólitísk ákvörðun byggð á stjómmálalegum for- sendum. Eftir að hafa lesið úttektir, minnis- blöð, blaðagreinar ... eða allt það sem ég hef náð í um stjórnmálalegar forsendur þessar- ar ákvörðunar er ég hvergi nærri um hvert svarið við spurningunni er, en þeim mun vissari um hvað stjórnmálalegar forsendur fela ekki í sér. Við skulum skoða málið. Í Morgunblaðsgrein 19. október síðastliðinn hreykir umhverfisráð- herra sér af því að langur og vand- aður undirbúningur liggi að baki ákvörðun hans. Máii sínu til stuðn- ings nefnir hann ýmsar skýrslur og minnisblöð sem þann grunn sem hann byggir mál sitt á. Þar er fýrst að telja álit nefndar á vegum forsætisráðherra um flutning opinberra stofnana frá 1993. Engin af 8 ríkisstofnunum, sem þar var gerð tillaga um að flytja, hefur verið flutt. Arið 1994 óskaði þáverandi umhverfisráðherra eftir því að Framkvæmdasýsla ríkisins gerði úttekt á kostnaði vegna flutnings Landmælinga íslands til Akraness. Framkvæmdasýslan leitaði til Hagsýslu ríkisins við mat á hvort útgjöld ríkisins til lengri tíma myndu aukast í kjölfar flutnings. Skemmst er frá því að segja að Framkvæmdasýslan var sammála niðurstöðu Hagsýslunnar: „Kostn- aður ríkisins til langs tíma mun aukast ef stofnunin flytur frá Reykjavík.“ I skýrslu Hagsýslunnar segir orðrétt: „Með því að flytja stofnun- ina til Akraness má ætla að stofnunin veikist faglega, rekstrarkostnaður hennar hækki vegna aukins kostnaðar við samskipti og starfs- mannahald.“ Síðar segir: „Einnig er hætta á að vegna fjar- veru frá höfuðborg- inni muni aðrar stofn- anir smám saman taka við þeim verkefn- um sem Landmæling- um.er ætlað að sinna og stofnunin smám saman daga uppi.“ Þetta er sú framtíð- arsýn sem umhverfisráðherra boð- ar með ákvörðun sinni. Ákvörðun um flutning Landmælinga íslands er greinilega ekki tekin með það að markmiði að styrkja stofnunina, hvorki rekstrarlega né faglega. Ákvörðun um flutning Landmælinga íslands er greinilega ekki tekin með það að markmiði að styrkja stofnunina, segir Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, hvorki rekstrarlega né faglega. Hvers vegna tekur langur og vand- aður undirbúningur ekki tillit til þessara ályktana? Eru niðurstöður Framkvæmdasýslunnar og Hag- sýslunnar dæmdar ómerkar eða er eitthvað annað, sem réttlætir flutn- ing og vegur það þungt að það nái að kæfa þessa ókosti? Ein réttlætingin gæti verið sú að Akranes væri hentugri staður fyrir starfsemi Landmælinga ís- lands en Reykjavík vegna þess að aðstæður þar væru betri. í minnis- blaði Hagsýslu ríkisins frá því í mars síðastliðnum er komist að því að svo sé ekki. Þar stendur: „Sér- staklega hagstæðar aðstæður á Akranesi umfram aðra staði eru tæpast rök fyrir flutningi Land- mælinga þangað.“ í framhaldi af þessu er það líka óskiljanlegt af hveiju Guðmundur Bjarnason vísar endalaust í Framkvæmdasýslu rík- isins og Hagsýslu ríkisins því til stuðnings að fjárhagslegar ástæð: ur mæli ekki í mót flutningi. í minnisblaði Framkvæmdasýslunn- ar er sagt í umijöllun um hús- næðisþörf stofnunarinnar að fjár- hagslegar ástæður mæli ekki í mót flutningi. Á aðra kostnaðarliði er ekki minnst. í minnisblaði frá Hag- sýslu ríkisins frá því i mars síðast- liðnum er ekki minnst á ijárhags- legar ástæður einu orði. Hvers vegna talar enginn um að a.m.k. 17 milljónir þurfi til að greiða biðlaun til núverandi starfs- manna Landmælinga íslands sem ekki myndu flytja? Hvers vegna minnist enginn á kostnaðinn vegna endurnýjunar starfsfólks? Hvers vegna reiknar enginn út hver heildarkostnaðurinn við þessa framkvæmd yrði? Það er einfald- lega vegna þess að ráðamenn treysta sér ekki til að horfa framan í kjósendur og segja: Það kostar hundruð milljóna að flytja Land- mælingar íslands til Akraness. Þessa ákvörðun er ekki einu sinni hægt að réttlæta með því að vísa til reynslu af flutningi ríkis- stofnana frá Reykjavík. í minnisblaði Hagsýslunnar frá því í mars stendur: „Flutningur stofnana frá Reykjavík hafði meðal annars þær afleiðingar að enginn starfsmaður hvorugrar stofnunar flutti með stofnun til langframa í ný heimkynni. Sambærileg end- urnýjun á starfsliði Landmælinga íslands við tilflutning hefði óhjá- kvæmilega alvarlegar afleiðingar fyrir getu og hæfni stofnunarinnar til að sinna hlutverki sínu og þró- ast í takt við síbreytilegt um- hverfi, tækni, fagmennsku og markaðskröfur." Nú liggur fyrir að starfsmenn Landmælinga íslands eru ekkert sérlega spenntir fyrir því að flytja með stofnuninni til Ákraness og hvers vegna ekki? Það er einfald- lega vegna þess að góðir skólar, sjúkrahús, fyrirmyndaraðstaða til íþróttaiðkunar og heilsugæsla hafa ekkert með Landmælingar Islands að gera. Við vitum að Akranes hefur upp á margt að bjóða fyrir íjölskyldufólk og þar myndi síður en svo væsa um mig og mína, en það skiptir ekki máli á meðan ég sé hvorki ástæður né skynsamleg rök fyrir því að flytja stofnunina. Ákvarðanir um að flytja rót- grónar stofnanir úr umhverfi sínu verður alltaf að taka á grundvelli þess að þeim sé betur komið ann- ars staðar og að starfsemi stofnun- arinnar hafi hag af flutningi. Hvers vegna í ósköpunum ættum við að flytja Landmælingar íslands til nýrra heimkynna þegar við vitum að kostnaður ríkisins til langs tíma mun aukast ef stofnunin flytur frá Reykjavík - þegar við vitum að það mun óhjákvæmilega hafa al- varlegar afleiðingar fyrir getu og hæfni stofnunarinar til að sinna hlutverki sínu og þróast í takt við síbreytilegt umhverfi, tækni, fag- mennsku og markaðskröfur. Og enn spyr ég: Hvers vegna á að flytja Landmælingar íslands til Akraness? Svarið er . .. þetta er pólitísk ákvörðun, byggð á stjórn- málalegum forsendum. Höfundur er trúnaðarmaður Félags íslcnskrn náttúrufræðinga lijá Landmælingum Islands. BIODROGA Líírænar jurtasnyrtivörur DIODROCjA ÖXYGFN FÖRMULA Nýtt dag- og næturkrem BOPROGA ffiCVSEN fomm BIODROGA ÖXYGÉN FÖRMULA IPDR< 1.995 krónur. Staðgreiðsluafsláttur. Póstkröfusendum. Ingóifsapótck, Kringlunni; Lilja, Stíllholti, Akrancsi; Bankastræti 3, sími 551 3635 StTörnuapótck, Ákureyri; Hilma, Húsavík. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.