Morgunblaðið - 26.11.1996, Page 46

Morgunblaðið - 26.11.1996, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 HESTAR MORGUNBLAÐIÐ Mótahald á þremur hjólum Mótahald og keppnisfyrírkomulag hesta- manna hefur í áraraðir þótt fyrirferðarmikið o g lítið áhugavert fyrir aðra en þá sem skipa hinn harða kjama. Oft hefur verið reynt ■ *>■ að bæta úr en illa gengið.Valdimar Krist- insson veltir hér upp hugmyndum sem fram hafa komið í umræðum manna um þennan vanda. SAMEININGARMÁL voru fyrir- ferðarmest á nýafstöðnu ársþingi Landssambands hestamannafélaga en lítillega var komið inn á mikil- vægt mál sem verið hefur að þvæl- ast fyrir hestamönnum á annan áratug. Hér er átt við endurskoðun mótahalds hestamanna en fljótlega upp úr 1980 voru hestamenn farn- ir að gera sér grein fyrir því að þótt hinum harða kjarna þeirra þætti óskaplega gaman á hesta- mótum væri hættuleg þróun i gangi, sem kæmi meðal annars fram í minnkandi aðsókn að mótun- um. Oftsinnis hafa verið skipaðar nefndir eða umræðuhópar í því augnamiði að endurskipuleggja mótahaldið. Þá sjaldan þessar nefndir hafa á annað borð haft kjark og hugmyndaflug til að Jeggja til róttækar breytingar á mótaskipulaginu hafa þær verið kveðnar niður á valdameiri vett- vangi eins og til dæmis ársþingum. Hinsvegar hefur mest púður farið í að breyta keppnisreglum sem flestar hveijar hafa einungis tekið mið af hagsmunum keppenda og dómara enda hafa þessir aðilar oft verið fjölmennasti hópurinn á sum- um mótanna. Grasrótin tekur til sinna ráða Frá þessum tíma virðast menn hafa sætt sig við hægfara grunn- rista þróun þar sem ekki hefur verið tekið á vandamálunum sem skyldi, að því er best verður séð. Á síðustu tveimur keppnistímabilum virðist hinsvegar sem grasrótin sé farin að gera meira en tala um hlutina því á síðustu tveimur árum hefur mátt fínna þó nokkur tilvik þar sem farið er í kringum gild- andi reglur. Með öðrum orðum að menn leita að glufum í reglum og nýta sér þær til hins ýtrasta að því Borgartúni 28 “S 562 2901 og 562 2900 KM 90: Verð frá kr. 29.830 stgr. m/hakkavél. Aðrar gerðir kosta frá kr. 26.885 stgr. KitchenAid heimilisvélin fæst í 5 gerðum og mörgum litum. Hún er landsþekkt fyrir að vera lágvær, níðsterk og endast kynslóðir. Fjöldi aukahluta er fáanlegur. ÍSLENSK HANDBÓK FYLGIR. KitchenAid - mest selda heimilisvélin á íslandi í 50 ár! 2 REYKJAVÍKURSVÆÐI: Byggt og búið, Kringlunni, Húsasmiðjan, Skútuvogi, Rafvörur hf., Ármúla 5, H.G. y Guðjónsson, Suðurveri, Rafbúðin, Álfaskeiði 31, Hafnarf., Miðvangur, Hafnarfirði, Pfaft, Grensásvegi 13. ■j VESTURLAND: Rafþj. Sigurdórs, Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi, Blómsturvellir, Hellissandi, Versl. Hamrar, Grundarfirði, Versl. E. Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR: Kf. Króksfjarðar, Króksf., Skandi, 2 Tálknafirði, Kf. Dýrfirðinga, Þingeyri, Laufið, Bolungarvík, Húsagagnaloftið, ísafirði, Straumur, ísafirði, Kf. /fj Steingrímsfjarðar, Hólmavík. N0RÐURLAND: Kf. Hrútfirðinga, Borðeyri, Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga, Kf. J Húnvetninga, Blönduósi, Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki, KEA, Akureyri og útibú, Kf. Þingeyinga, Húsavik, Kf. W Langnesinga, Þórshöfn, Versl. Sel/Skútustöðum. AUSTURLAND: Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði, Kf. Héraðsbúa, DJ Seyðisfirði, Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum, Rafalda, Neskaupstað, Kf. Héraðsbúa, Reyðarfirði, Kf. Fáskrúðsfjarðar, 5 Fáskrúðsfirði, Kf. A-Skaftafellinga, Djúpavogi, Kf. A-Skaftfellinga, Höfn. SUÐURLAND: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli, J" Kf. Rangæinga, Rauðalæk, Versl. Mosfell, Hellu, Reynistaður, Vestmannaeyjum, Kf. Árnesinga, Selfossi, Kf. J Árnesinga, Vík. SUÐURNES: Rafborg, Grindavík, Samkaup, Keflavík, Stapafell, Keflavík. KitchenAid - kóróna eidhússins! iU Einar Farestveit&Co. hf. KitchenAid DRAUMAVÉL HEIMILISINS! GÆÐINGAKEPPNIN nýtur aukinna vinsælda erlendis og má ætla að útlendingar væru tilbúnir að skipta á henni og fjór- gangi og fimmgangi. Á skeiðmeistaramótum er keppt í A-flokki og er meðfylgjandi mynd tekin á slíku móti sem haldið var í Weistrach í Austurríki 1991. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson MYNDI gæðingakeppni ekki taka sig vel út á íslandsmótum framtíðarinnar í stað fjórgangs og fimmgangs? Meðfylgjandi mynd er tekin að loknum úrslitum í fjórgangi þar sem miklir gæðingar skipa efstu sætin. er best verður séð. Er hér meðal annars átt við eignarhaldsákvæði í gæðingakeppni og kynbótasýn- ingum. Ef litið er yfír fyrirkomulagið í dag er þar í fyrsta lagi að nefna hið tvöfalda keppnisfyrirkomulag, gæðingakeppnin annarsvegar og íþróttakeppnin hinsvegar. Hvert félag heldur tvö félagsmót og á gæðingavængnum eru svo fjórð- ungsmót og landsmót. Á íþrótta- vængnum eru haldin íslandsmót, Suðurlandsmót, bikarmót Norður- lands svo eitthvað sé nefnt. Síðan bætast við ýmis opin mót sem síaukinn áhugi virðist vera fyrir. Kvennaflokkar óraunhæfir Á þessum tíma sem um ræðir eru allir sammála um að mótafjöld- inn hafí verið of mikill og sé enn í dag. Þátttaka er yfirleitt góð á flestum mótum, sem er í góðu sam- ræmi við aukinn áhuga fyrir hesta- mennskunni, þannig að spyija má hvort mótafjöldinn sé í raun of mikill? Vandinn snýst kannski meira um það hvernig megi auka almennan áhuga fyrir mótunum. Undanfarin ár hefur í auknum mæli verið boðið upp á minniháttar mót fyrir mismunandi styrkleika eða getu knapa. Byijað var með sérstökum kvennaflokkum sem í raun virðist engin þörf á því hesta- mennskan er eina íþróttin þar sem konur hafa í fullu tré við karlkyn- ið. En seinna hafa komið til sög- unnar kynblandaðir styrkleika- flokkar og verður ekki betur séð en það sé einmitt það sem grasrót- in kallar á. Eðli mannsins að keppa Ein af neikvæðu afleiðingum núgildandi mótafyrirkomulags er sú að menn skiptast skýrt í tvo hópa. Það eru þeir sem keppa af fullum krafti og þeir sem segjast ekki hafa áhuga fyrir keppni al- mennt séð en vilji bara ríða út sér til yndisauka. Fullyrða má að þeir sem skipa síðari hópinn hafi ekki fundið sér vettvang við hæfi til að keppa í meiri eða minni mæli. Ekki er hægt að afneita því að eðli mannsins er að keppa eða öllu held- ur að verða betri. Af því má ráða að heilbrigt sé að hestamenn fái mat á því sem þeir séu að gera með hesti sínum. í samræðum við einn góðan hestamann sem ekki tekur þátt í keppni en stundar ferðalög á hestum og útreiðar í rík- um mæli kom fram að þessi ágæti maður viðurkenndi að þar væru menn „að keppa á fullu“ þótt allt sé í gamni gert. Og það er einmitt mergurinn málsins, ekkert stuðlar eins markvisst að framförum í reið- mennsku og þjálfun fyrir keppni. Það er einmitt í sjálfum undirbún- ingnum sem hlutirnar gerast en þegar honum er lokið vili hestamað- urinn fá mat á því sem hann og hesturinn hafa verið að gera yfir veturinn. Hinn almenni „keppandi" Þar með er komið að mótafyrir- komulaginu. Núverandi kerfi býður ekki upp á mikla möguleika fyrir útreiðarmanninn sem oft er kallað- ur hinn almenni hestamaður. Hann getur jú keppt en yfirleitt bara við, meðai annarra, þrautreynda keppn- ismenn, oft kallaðir atvinnumenn. En það væri nú ekki til að bæta ástandið að bæta við tveimur til þremur flokkum í núverandi fjöl- setna mótaflóru hestamótanna. Ætla mætti því að iausnin gæti legið í því að fækka núverandi mótum og fjölga aftur með nýju og betra fyrirkomulagi. Og nú er komið að viðkvæmu máli. Komið hafa fram hugmyndir um að sam- eina hina svokölluðu íþróttakeppni og gæðingakeppnina og það hefur komið róti á kviku margra hesta- manna. Sýnt hefur verið fram á með góðum rökum að þessi tvö keppnisform hafa nálgast hvort annað hægt og sígandi. Margir eru þeir sem vilja vernda gæðinga- keppnina og þeir eru líka til, oft sömu mennimir, sem vilja halda nákvæmniskröfum íþróttakeppn- innar við iýði. Málið virðist óleysan- legt en er það raunin? Eitt keppnisfyrirkomulag Nú reynir á að gefa hugmynda- fluginu lausan tauminn því þar leynast lausnirnar, oft ótrúlega nærri. Gæti hún til dæmis legið í því að hvert félag héldi aðeins eitt félagsmót? Á þessu móti væri hægt að bjóða upp á töltkeppni, fimmgang (A- flokk gæðinga), fjórgang (B-flokk gæðinga), gæðingaskeið, 150 og 250 metra skeið, annað eða hvort- tveggja og nýja og betri fimikeppni sem sniðin væri eftir hæfileikum og getu íslenska hestsins. Þarna gæti fjórgangskeppnin (B-flokkur- inn) og fimmgangurinn (A-flokkur- inn) verið óbreytt eða lítið breytt frá gæðingakeppnisforminu. Full- nægt væri hinni íþróttalegu ná- kvæmni knapans í hinum greinun- um, tölti, gæðingaskeiði og fimi- keppninni. Keppendur veldu sér greinar eftir getu og smekk en ekki væri skylda að bjóða upp á allar greinar. Mótum myndi fækka um tæpan helming á einu bretti og með þessu skapaðist svigrúm fyrir opin mót í tveimur til þremur styrkleikaflokkum fullorðinna auk yngri flokkanna eins og verið hefur. Gæðingakeppnin vinsæl erlendis Með stöðugt aukinni útbreiðslu íslenska hestsins er nú svo komið að þróun keppnisgreina og mótafyr- irkomulags á íslandi er ekki lengur einkamál íslendinga. -Ljóst og leynt er stefnt að samræmingu keppnis- reglna í þeim löndum sem íslenski hesturinn hefur náð fótfestu og því nauðsynlegt að líta á hvað þar er að gerast. Erlendis hefur átt sér stað athyglisverð þróun á þá leið að áhugi fyrir gæðingakeppni hefur aukist verulega. Sömuleiðis eru menn að stækka hringvelli sem upphaflega voru tvö hundruð metr- ar, úr tvö hundruð og fimmtíu metr- um í þijú hundruð. Hestamenn ytra gera sér sífellt betur grein fyrir því að íslenski hesturinn þarf rými. í Þýskalandi var riðið á vaðið á sínum tíma með fijálsri röðun gangteg- unda í því sem kallað er íþrótta- keppni hérlendis. Af þessu má ráða að góður jarðvegur sé fyrir hendi á meginlandinu. Eignarhaldsákvæðið dautt Hér eru settar fram grófar hug- myndir sem kunna að vera brökleg- ar til að byggja á, því eitt er víst, breytinga er þörf. Mótafyrirkomu- lagið þarf að þjóna hestamönnum en ekki öfugt. Öll kerfi verða að þróast í takt við tímann og það hefur kerfi hestamanna svo sannar- lega ekki gert nægjanlega. Svona í lokin má ítreka þá full- reyndu staðreynö að eignarhalds- ákvæði gæðingakeppnisreglnanna er löngu úrelt orðið og löngu ljóst að keppandinn hlýtur að vera par- ið, það er knapi og hestur. Hestur- inn keppir aldrei einn og sér og knapi því síður. Fer vel á að enda greinina á því margsannaða mál- tæki að veldur hver á heldur. Landsmót kappsamlega kynnt FRAMKVÆMDANEFND lands- móts 1998 vinnur ötullega að kynn- ingu mótsins með ýmsum hætti. Gefinn hefur verið út litprentaður bæklingur á þýsku og ensku sem hefur að geyma allar helstu upplýs- ingar um mótið sem nýtast útlend- ingum við undirbúning ferðar til íslands. Bæklingnum hefur verið dreift víða og meðal annars á Vest- urnorrænu ráðstefnunni sem haldin var á Akureyri í byijun september. Fyrirhuguð er útgáfa bæklings og veggspjalds í vor sem dreift verð- ur á Equitana-sýningunni sem hald- in verður í Þýskalandi í byijun mars nk. í fréttatilkynningu frá framkvæmdanefndinni segir að fjöldi fyrirspurna hafi þegar borist um mótið og ljóst sé að mikill áhugi sé fyrir því erlendis enda líti marg- ir á það sem hápunkt hestamennsku sinnar að fara á landsmót á íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.