Morgunblaðið - 26.11.1996, Side 61

Morgunblaðið - 26.11.1996, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 61 BRÉF TIL BLAÐSINS Störf FÁÍA að íþróttum aldraðra Um öryggi bankareikninga SIGURLIÐIN þrjú í boccia-keppni 11. nóvember sl. Frá Þorsteini Einarssyni: FRÁ ÞVÍ að Morgunblaðið á síðast- liðnu sumri birti fréttir af störfum (FÁÍA) Félags áhugafólks um íþróttaiðkanir aldraðra hér í Reykjavík, hefur ýmislegt verið aðhafst á þessu starfsári félagsins, sem lýkur með aðalfundi 16. nóv- ember. Til „putt-keppni“ var efnt á hin- um ágæta 18-holu velli í Laugardal 5. september. Liðin, sem áttust við, voru skipuð þremur keppendum. Fjórar félagsmiðstöðvar og tvö íþróttafélög sendu lið auk eins sem var skipað heimabúandi einstakl- ingum og tveggja einstaklinga, sem léku með. Ritarar eða dómarar fylgdu hveiju liði en yfirdómari og stjóm- andi var Sigurður Hallsteinsson, starfsmaður Iþrótta- og tómstunda- ráðs Reykjavíkur. Hann hefur á vegum ráðsins annast viðhald „putt-vallanna“ og leiðbeint öldruð- um í iðkun íþróttarinnar. Margt stuðlaði að skemmtilegri keppni: góður völlur, ljúft veður, glatt og áhugasamt aldrað fólk, konur og karlar. Þetta var annað „putt-mót“ aldraðra að hausti og lauk keppni þannig eftir tvær um- ferðir, þ.e. að hitta í 36 holur. Sá keppandi sem fór milli holanna á fæstum höggum, 66, var Dóra Hall- dórsdóttir frá Hraunbæjarstöðinni. Lið íþróttafélags aldraðra í Kópavogi varð sigurvegari og hand- hafi farandbikars. í liðinu voru: Alfreð Kristjánsson, Karl Helgason og Ernst F. Bachmann. Önnur varð sveit Hrafnistu (DAS) í Reykjavík, en hana skipuðu: Loranze Karlsson, Kristófer Snæbjörnsson og Ólafur Gunnlaugsson. Þriðju urðu liðsmenn „Putt- klúbbs“ Ness, þeir: Jón Kristjáns- son, Ágúst Friðþjófsson og Sigur- geir Snæbjörnsson. Haustmót FÁÍA í „boccia“-knatt- leik var haldið 11. nóvember. Lið frá átta félagsmiðstöðum voru til- kynnt til keppni. Aðeins einu liði frá hverri stöð var leyft að keppa. Keppt var um farandbikar, sem stjórn íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík gaf. Handhafi hans var félagsmiðstöðin við Vitatorg (Lind- argötu), en nú vann lið félagsmið- stöðvarinnar á Vesturgötu. Liðið skipuðu: Gunnar Baldvinsson, Ebba Þorgeirsdóttir og Sigurbjörg Eiríks- dóttir. Næst þeim gekk lið félags- miðstöðvarinnar við Vitatorg. í því voru: Einar Gíslason, Helga Sigur- jónsdóttir og Bjarni Stefánsson. Lið félagsmiðstöðvarinar á Aflagranda varð í þriðja sæti, það var skipað: Anne Kristmsson, Fríðu Sigurjóns- dóttur og Ástu Jónsdóttur. Kepp- endur nutu_ ágætrar aðstöðu í íþróttahúsi íþróttafélags fatlaðra. Stjórnandi og yfirdómari var Elísa- bet Bjarnason. í lok ágústmánaðar hélt FÁÍA námskeið fyrir leiðbeinendur um íþróttaiðkanir aldraðra. Nutu nem- endur þess kennslu Kristine Hjorr- inggaard, sem í heimalandi sínu, Danmörku, er þekkt fyrir störf að íþróttaiðkunum aldraðra og annast forstöðu þeirra mála í Alaborg. Þegar hún dvaldi hér kynnti hún að 23.-24. október yrði haldin nám- stefna og mót sem nefndist Ólymp- íulejkar aldraðra. Hún bauð stjórn FÁÍA að senda fulltrúa til þátttöku í hvorutveggja. Var ákveðið að reyna að senda fulltrúa frá stjórn- inni, en slikt væri háð öflun fjár- stuðnings. Eftir að styrkir höfðu fengist frá Osta- og smjörsölunni, Pharmaco, íþróttasambandi ís- lands, heildsölunni Danol, Búnaðar- bankanum, og heilbrigðisráðuneyt- inu varð þátttakan og ferðir ákveðnar. Af fyrirlestrum og sýningum lærðu íslensku fulltrúarnir margt sem þeir af reynslu vissu að mundi koma þeim að gagni í störfum fyr- ir aldraða. Mót hinna öldruðu var athyglivert og lærdómsríkt. Dagana 25.-27. október dvöldu fulltrúarnir í Kaupmannahöfn þar sem þeir sóttu námskeið landssam- bands eftirlaunafólks. Þó að störfin séu unnin í þegn- skaparvinnu, þá eru fjármál FAIA erfið. Félagið hefur frá stofnun notið styrks úr borgarsjóði Reykja- víkur en úr ríkissjóði hafa framlög verið slitrótt og því eru ijármálin áhyggjuefni. Verkefni, auk þeirra sem eru orðin árviss, svo sem að ná til aldraðra, sem búa í eigin húsnæði og geta veitt þeim hentuga aðstöðu til fjölþættrar íþróttaiðkun- ar, bæði inni sem úti, bíða úrlausn- ar. Þá er aðkallandi, til þess að tryggja öldruðum hentugar aðstæð- ur til íþróttaiðkunar hvar sem þeir búa, að koma á landssamtökum með þeim. ÞORSTEINN EINARSSON, Laugarásvegi 47, Reykjavík. Fækkun sýslumanns- embætta í landinu Frá Skarphéðni Hinriki Einarssyni: NÚ ÞEGAR fækkun sýslumanns- embætta í landinu er í deiglunni hlýtur að koma að því að embættið á Keflavíkurflugvelli verði lagt nið- ur. Ég hef séð í blöðum að nefnd, sem skipuð var, leggi til að u.þ.b. einn tugur embætta í landinu verði lagður niður. Þá er mér efst í huga fyrrnefnt embætti. Það dylst eng- um sem skoðar það mál, að það er óþarfi með öllu að reka þar embætti við bæjardyrnar á öðru sýslumannsembætti. Á ríkið að reka tvö sýslumannsembætti svo að kalla hlið við hlið? Það er að- eins einn kílómetri þar á milli. Með því að sameina þessi tvö embætti mætti spara um 120 miljónir króna á ári. Með samræmdri löggæslu á Suðurnesjum og aukinni hagræð- ingu yrði þessi ráðstöfun til að stórauka öryggi fyrir íbúa á þess- um stöðum. Sýslumaðurinn í Gull- bringusýslu gæti þá haft fulltrúa hluta úr degi uppi á velli. Nóg skrifstofuhúsnæði er til á vellinum, t.d. á annarri hæð í gömlu flug- stöðinni og víðar. Lögreglumenn gætu sinnt vöktum frá lögreglu- stöðinni í Reykjanesbæ eins og þeir gera nú frá stöð þeirri sem tilheyrir Keflavíkurflugvelli og er nú langt utan vallargirðingar. Fram til 22. mai 1954 voru öll löggæslumál á Keflavíkurflugvelli rekin frá sýslumannsembættinu í Hafnarfirði. Síðan 1972 hefur sýslumannsembætti í Gullbringu- sýslu verið staðsett í Keflavík, en var áður í Hafnarfirði. í Keflavík var bæjarfógeti. Lögreglan í Hafn- arfirði sá um gæslu í byggðarlög- unum á Suðurnesjum. Húsnæðið sem hýsir embættið á vellinum er eins kílómetra frá hliði 1, sem er opið allan sólarhringinn. Hlið 2 þyrfti aðeins að vera opið á álags- tímum kvölds og morgna. Hús- næði það sem hýsir embætti nú er lélegt. Með einu embætti yrðu þessi mál í betri farvegi. Þá mætti auka löggæslu á Reykjanesbraut frá Keflavík að Kúagerði sem í dag er sama og engin. Frá Kúa- gerði er hún í höndum lögreglu í Hafnarfirði og stendur hún sig vel við þá gæslu. Maður fer ekki svo um Reykjanesbraut að maður mætir ekki lögreglubíl frá Hafnar- fjarðarlögreglu á ferð á Reykja- nesbraut innan Kúagerðis. Þann 22. maí 1954 voru vatna- skil í málefnum Keflavíkurflugvall- ar. íslenskir aðalverktakar voru stofnaðir, lögreglustjóraembætti sett á laggirnar, hermönnum gert að vera innan vallar eftir ki. 22 á kvöldin (curfew). Nú hefur þessari takmörkun verið hætt. íslenskir aðalverktakar hafa ekki lengur einkarétt á framkvæmdum fyrir bandaríska flotann né NATO, og munu þeir með tímanum fara á brott frá varnarsvæðinu. Þeir eiga þar engar byggingar. Flotinn hefur látið þeim í té allar þjónustubygg- ingar ókeypis, með hita, rafmagni, vatni og fleira, og einnig séð um viðhald þeirra bygginga í gegnum árin. Frá þeim tíma að dr. Kristinn Guðmundsson fór með utanríkis- mál 1953 hafa mál þróast á þann veg að bandarískir hermenn eru nú um 70% færri. Hugarfarsbreyt- ing hefur átt sér stað gagnvart dvöl bandarísks hers í landinu. Margir hlutir aðrir mæla með því að sýslumannsembættin á Kefla- víkurflugvelli og í Gullbringusýslu verði sameinuð sem fyrst. Ríkið hefur ekki efni á sóun á almenn- ingsfé með rekstri tveggja embætta hlið við hlið. Nær væri að setja þessar 120 milljónir í heilbrigðis- mál þar sem þeirra er brýn þörf. SKARPHÉÐINN HINRIK EINARSSON, bifreiðastjóri, Vatnsleysuströnd. í tilefni af bréfi Friðjóns og Líneyjar Frá Ingólfi Guðmundssyni: í TILEFNI af grein Friðjóns Árna- sonar og Líneyjar Símonardóttur, um bankareikninga, sem birtist í Bréfi til blaðsins 15. nóvember sl. viljum við koma eftirfarandi upplýs- ingum á framfæri. Rétt er að taka strax fram að starfsfólk bankans hefur mikla sam- úð með þessum ungu hjónum sem urðu fyrir því óhappi að brotist var inn á heimili þeirra og ýmsum verð- mætum stolið. Kvartanir þeirra um að ekki sé hægt að treysta öryggi bankareikninga eru hins vegar byggðar á misskilningi og því viljum við koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. Bankar og sparisjóðir bjóða upp á nokkrar tegundir innlánsreikn- inga. Á alla óbundna sparireikninga er skilyrði að sett sé leyninúmar. Allir sem stofna óbundnar spari- sjóðsbækur hafa val um að setja leyninúmer á bækurnar en með því að hafa leyninúmer tryggja eigendur öryggi bókanna. Hins vegar vilja sumir viðskiptavinir okkar stofna sparisjóðsbækur, svokallaðar hand- hafabækur án leyninúmers. í þessu umrædda tilfelli er einmitt um að ræða þjófnað á slíkri bók. Handhafi sparisjóðsbókar á rétt á að fá greidda innistæðu bókarinnar í öllum útibúum bankans, svo framarlega að hann viti nafn eiganda bókarinn- ar. Þjófnaður á slíkri bók jafngildir því þjófnaði á peningaseðlum. Að sjálfsögðu reynir starfsfólk bankans að gera allt sem hægt er til að hindra að óviðkomandi aðili nái út pening- um á þennan hátt en forsenda þess að hægt sé að koma því við í tilfell- um sem þessum er að tilkynnt hafi verið um þjófnaðinn. Því miður hefur sú þróun átt sér stað undanfarin ár að þjófnaðir úr heimahúsum hafa aukist. Meðal annars af þessum sökum hefur markvisst verið unnið að því innan bankans að benda viðskiptavinum á að setja leyninúmer á bankabækur sínar eða stofna bókarlausa spari- sjóðsreiknigna sem allir hafa leyni- númer. Leyninúmerið þekkir enginn nema eigandi reikningsins og þeir sem hann vill að geti tekið út af bókinni. Innistæður þessara reikn- inga verða því ekki borgaðar út nema að gefið sé upp rétt leyninúmer. INGÓLFUR GUÐMUNDSSON, forstöðumaður markaðssviðs Landsbanka íslands. BONSO SOEHNLE BONSO SOEHNLE SOEHNLE SOEHNLE Bjóðum eftirtaldar nýjar vogir á einstöku verði. Vogirnar verða til sýnis og sölu á lager okkar Sundaborg 3 næstu daga. IÐNAÐARVOGIR: Rafcindavog 5kg x lg. Pallur 27x15sm. Áfastur skjár fyrir neðan pall. Verð kr. 13.445.- án VSK. (kr. 16.739,- nWSK.) Rafeindavog 20kg x lOg. Pallur 33x22sm. Ryðfrí Áfastur skjár fyrir neðan pall. Verð kr. 14.580.- án VSK. (kr. 18.152.- m/VSK.) Rafeindavog 20kg x 5g. Pallur 22x18sm. Áfastur skjár fyrir neðan pall. Verð kr. 15.595,- án VSK. (kr. 19.416,- m/VSK.) Rafeindavog 50kg x 20g. Pallur 52x40sm. Ryðfrír pallur og laus skjár. Verð kr. 47.650.- án VSK. (kr. 59.324,- m/VSK.) Rafeindavog lOOkg x 50g. Pallur 52x40sm Ryðfrír pallur og laus skjár. Verð kr. 51.465,- án VSK. (kr. 64.074,- m/VSK.) Rafeindavog 75kg x 50g og 150kg x lOOg. Pallur 52x40sm. Ryðfrír pallur og laus skjár (IP65 vatnsvöm). CE merking. Verð kr. 98.650.- án VSK. (kr. 122.819,- m/VSK.) FÓLKSVOGIR-BARNAVOGIR: SALTER Barnavog 20kg x 50g. Pallur 48x31 sm. Verð kr. 7.995,- án VSK, (kr. 9.954,- m/VSK.) SOEHNLE Barnavog 20kg x lOg. Pallur 52x26sm. Verð kr. 10.890,- án VSK. (kr. 13.558,- m/VSK.) SOEHNLE Fólksvog 150kg x lOOg. Pallur 30x30sm. Verð kr. 7.625.- án VSK. (kr. 9.493,- m/VSK.) KRÓKVOGIR: SALTER Pundari (Krókvog) 251bs x 80o/.. Vcrð kr. 305.- án VSK. (kr. 380,- m/VSK.) SALTER Mjólkurvog (Krókvog) 25kg x lOOg og 241 x 0,21. Verð kr. 3.995,- án VSK. (kr. 4.974,- m/VSK.) SALTER Krókvog lkg x lOg. Verð kr. 645,- án VSK. (kr. 803.- m/VSK.) Fleiri gerðir krókvoga lOOg, 200g, og 500g á kr. 830,- (kr. 1.033,- m/VSK). Gcrum við og breytum ýmsum eldri gerðum voga, setjum við þær þyngdarnema og endurnýjum aflcstursskjái. Leitið upplýsinga. VOGAÞJÓNUSTA ÓLAFS GÍSLASONAR & CO HF. SUNDABORG 3 SÍMI 5686970-5684800

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.