Morgunblaðið - 26.11.1996, Qupperneq 69

Morgunblaðið - 26.11.1996, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 69 STÆRSTA TJALDIÐ MEÐ SIMI 553 - 2075 FRUMSÝNING: HETJUDÁÐ , DENZEL MEG WASHINGTON RYAN ★ ★ ★ Taka 2 tU [dolbyP ' digitai IHX ENGU LlKT -------- COURAGE UNDER FIRE hktjldAu Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára. Dramatísk, vðnduð og spennandi stórmynd sem tekur á viðkvæmum málum sem snúast um réttlæti, sannleika og heiður. Denzel Washington og Meg Ryan eru frábær i krefjandi hlutverkum sinum og má búast við Óskarstilnefningum næsta vor fyrir frammistöðu þeirra í þessari ógleymanlegu mynd. Aðalhlutverk: Denzel Washington, Meg Ryan og Lou Diamond Phillips. Leikstjóri: Edward Zwick (Glory, Legends of the Fall) Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10. b.í. i4ára. ÚR MYNDINNI „Star Trek: First Contact." Metaðsókn á Star Trek mynd ÁTTUNDA Star Trek myndin, „Star Trek: First Contact", sló nýtt met í aðsókn þegar hún fór á topp listans yfír aðsóknarmestu myndir í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Greiddur aðgangseyrir á myndina nam 2.013 milljónum króna og er það mesta peningainnkoma í 17 ára sögu kvikmyndaraðarinnar. Fyrra metið átti myndin „Generations" en 1.525 milljónir voru greiddar í aðgangseyri fyrstu sýningarhelgi þeirrar myndar. Vinsælasta Star Trek myndin frá upphafi er „The Voyage Home“ frá árinu 1986 en alls þénaði hún 109,7 milljónir Bandaríkjadala, 7.234 milljónir króna, á sýningartíma sínum. Topp- mynd síðustu viku, „Space Jam“ féll niður í annað sæti listans með 1.096 milljónir króna í aðgangseyri og „Ransom" með Mel Gibson í aðalhlutverki situr nú f því þriðja með 904,2 milljónir króna. Ný í fjórða sæti er jólamynd Arnolds Schwarzeneggers, „Jingle All The Way“ en 805,2 milljónir króna þén- aði hún. Þrátt fyrir að myndin fengi afleita dóma hjá gagnrýnendum, eins og títt er um gamanmyndir þessa þrýstna leikara, er þetta best sótta gamanmynd hans frá upp- hafi, á frumsýningarhelgi, en „Kindergarten Cop“ þénaði 739,2 milljónir króna fyrstu sýningarhelgi sína. FRUMSYNING: HETJUDAÐ SAKLAUSFEGURÐ S Aw- “Jcflm ft Dramatísk, vönduð og spennandi stórmynd sem tekur á viðkvæmum málum sem snúast um réttlæti, sannleika og heiður. Denzel Washington og Meg Ryan eru frábær í krefjandi hlutverkum sinum og má búast við Óskarstilnefningum næsta vor fyrir frammistöðu þeirra í þessari ógleymanlegu mynd. Aðalhlutverk: Denzel Washington, Meg Ryan og Lou Diamond Phillips. Leikstjóri: Edward Zwick (Glory, Legends of the Fall) Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10. b.í. i4ára. Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15. Qzvyneth ‘PaCtrozu w mmm Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15. atafellan - . D e in í KR 50° Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10. B. i. 14 ára. GENE HACKMAN HUGH GRANT Arnold Schwarzenegger ‘ S « i___________ £r'J’£L Wiö&i Svana- |> r i n scs s;i n Skemmtilega hrátt Nýjar plötur AÐSÓKN laríkjunum BiOAÐSOKN Bandaríkjunum BÍÓAÐSÓKN í Bandaríkjunum I BÍÓAC í Bandaríl Tltill Síðasta vika Alls IJ * (-■) Star Trek: Flrst Contact 2.013,0 m.kr. 30,5 m.$ 30,5 m.$ 2. njSpaceJam 1.095,6 m.kr. 16,6 m.$ 48,6 m.$ I 3. (2.) Ransom 904,2 m.kr. 13,7 m.$ 86,5 m.$ 4. (-.) Jingle All The Way 825,0 m.kr. 12,5 m.$ 12,5 m.$ • 5. (3.) Mirror HasTwo Faces 541,2 m.kr. 8,2 m.$ 24,5 m.$ 6. (4.) Set It Off 224,4 m.kr. 3,4 m.$ 25,6 m.$ 7. (5.) Romeo & Juliet 211,4 m.kr. 3,2 m.$ 34,7 m.$ 8. (-.) English Patient 178,2 mkr. 2,7 m.$ 3,2 m.$ 9. (6.) Sleepers 92,4 m.kr. 1,4 m.$ 49,2 m.$ 10. (8.) First Wives Club 41,9 m.kr. 0,6 m.$ 100,6 m.$ Nokkuð er um liðið síðan Rúnar Þór Pétursson sendi síðast frá sér breiðskífu. Fyrir skemmstu kom svo út plata sem lengi hefur verið í smíðum, ekki síst vegna þess að Rúnar Þór segist horfa til stærri markaðssvæða. RÚNAR Þór Pétursson segir ýms- ar skýringar á því að hann hafi ekki gefið út plötu þetta langan tíma, en hann hefur þó verið á fullu að spila víða um land, leikur um hveija helgi og hefur gert í átta ár. Rúnar segist vera kominn í samstarf við Axel Einarsson í Stöðinni sem byggist á þvi að hann sé meðal annars að vinna plötu fýrir markað á hinum Norð- urlöndunum. „Það tók því sinn tíma að taka plötuna upp, ég var hálft ár að velja á hana lög og undirbúa upptökur og svo tók hátt í ár að taka hana upp,“ segir hann. Rúnar Þór segist ekki síst hafa viljað hvíla áheyrendur; „menn eru yfírleitt að gefa allt of mikið út og oft er eins og þeir séu að gefa út sama lagið. Eg vildi ekki lenda í sama farvegi, ákvað að taka mér árs frí en það varð lengra vegna þess að ég gaf mér svo góðan tíma til að vinna nýju plötuna." Á plötunni eru ný lög utan eitt, sem var fyrsta lagið sem Rúnar Þór samdi á ævinni, þegar hann var í hljómsveit á fjórtánda árinu. „Mér fannst það þyrfti að vera eitthvert frumsamið lag á fyrsta skólaballinu og við Örn Jónsson sömdum þetta lag. Það er á plöt- unni óbreytt frá því sem var, ein- falt lag og einfaídur texti,“ segir Rúnar Þór. Önnur lög á plötunni eru eftir Rúnar Þór einan, en texta alla á Heimir Már, utan eitt sem Jónas Friðgeir á texta við og í öðru á Ö.G.P. textann. Rúnar Þór segist hafa tekið upp fímmtán lög og valið úr tíu á plöt- una, „ég vildi ekki setja fleiri á hana þótt þau hafí verið tilbúin, Rúnar Þór Pétursson. því þau pössuðu ekki inn í þá mynd sem platan gefur. Ég hefði svo sem getað sett þau inn, en þau hefðu bara spillt fyrir hinum lög- unum og uppbyggingu á plötunni, sem er hægur stígandi upp í þriðja síðasta lag og lýkur síðan á laginu Ungar hendur." Eins og getið er tók platan nýja lengri tíma í vinnslu en fyrri plöt- ur Rúnars Þórs, enda segist hann hafa tekið sér þann tíma sem þurfti, en það hafí viljað brenna við að hann hafí verið að flýta sér. „Núna fór ég alla leið, það var miklu meira lagt í þessa plötu en ég hef nokkurn tímann gert, ekki síst það að ég vann í mjög góðu hljóðveri hjá honum Axel og svo að Tómas Tómasson sá um að hljóðblanda plötuna sem hann gerði frábærlega vel að vanda.“ Ýmsir leggja Rúnari Þór lið á plötunni, þar á meðal Þorsteinn Magnússon, Eiður Arnarson, Jóy hann Hjörleifsson, Jóhann Birgis- son og Þórir Úlfarsson, aukinheld- ur sem hljómsveit Rúnars Þórs kemur mjög við sögu, þeir félagar hans Sigurður Árnason bassaleik- ari og Jónas Bjömsson trommu- leikari. Rúnar segist munu bæta við sig mannskap á útgáfutónleik- um plötunnar, en annars muni þeir kynna plötuna þrír. „Það verð- ur skemmtilega hrátt fyrir vikið, en við þekkjum þessi lög út og inn, höfum verið að spila þau áður en við tókum þau upp.“ Þessir tveir hafa starfað með Rúnari Þór nokkur undanfarin ár og spilað með honum um hveija helgi. Hann segist ekkert vera að þreytast á því að spila, þó það geti verið andlaust á köflum, þetta sé besta vinna sem hægt sé að hugsa sér. „Það er líka ekki um margt annað að ræða fyrir tónlistar- menn, það lifír enginn af plötusölu hér á landi,“ segir hann ákveðinn og bætir við að eitt helsta vandamál útgáfu hér á landi sé hvað hún sé tilvilj- unarkennt kynnt í út- varpi, það sé mikill áhugi fyrir ýmiss konar útgáfu þegar fólk kemst á annað borð á snoðir um hana. „Alvanalegt er að fólk kemur til mín á böllum og spyr hvort ekki sé hægt að fá þetta eða hitt lagið á plötu, þó viðkomandi plata sé löngu komin út,“ segir hann og bætir við að meðal annars vegna þessa sé hann að leitast við að stækka markaðinn með því að leita til útgefenda á hinum Norðurlönd- unum. „Ég tek upp lögin á nýja disknum með ensku og síðan nokkur lög til viðbótar og síðan verður farið í útgefendur með hana og með gömlu plöturnar líka, því það er úr hundrað laga safni að velja af tilbúnum upptök- um,“ segir Rúnar Þór og bætir við að Heimir Már bróðir hans verði virkjaður til verksins, ekki sé eftir neinu að bíða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.