Morgunblaðið - 19.12.1996, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
'slr nru <1 n r*ílfíc_
í UNIFORMIÐ. Það er allt útlit fyrir að það þurfi að siga hernum á þetta uppreisnarlið . .
BHM segir úrskurð héraðsdóms um yfirvinnugreiðslur
á ferðalögum hafa fordæmisgildi
Akvörðun ráðuneytis
kemur á óvart
FORMAÐUR Bandalags háskóla-
manna segir það koma sér á óvart
að fjármálaráðuneytið hyggst ekki
greiða starfsfólki ráðuneyta og rík-
isstofnana fyrir yfirvinnu á ferðum
utanlands, í kjölfar úrskurðar hér-
aðsdóms um að starfsmaður Holl-
ustuverndar ríkisins skuli fá greiðsl-
ur fyrir yfirvinnu í vinnuferð. BHM
líti svo á að um launaskerðingu sé
að ræða.
Marta Hjálmarsdóttir formaður
BHM segir ráðuneytið verða að
gera sér grein fyrir því að greiða
verði fólki fyrir störf sín, sé það
sent til útlanda og neyðist til að
ferðast af þeim sökum.
„Lengi hefur að vísu verið tregða
hjá ráðuneytinu á að greiða fyrir
yfirvinnu í utanlandsferðum og horft
í því sambandi til dagpeninga sem
eiga að duga fyrir hótelkostnaði og
fæði. En fyrir nokkru ákvað ráðu-
neytið að minnka dagpeninga á þeim
degi sem starfsmaður fer heim.
Þegar við mótmæltum þessari
ákvörðun og vísuðum til þess að
þögult samkomulag hefði verið í
gildi um að fólk sætti sig við að fá
ekki yfirvinnukaup í sumum tilvik-
um, vegna þessara dagpeninga-
greiðslna, sagði ráðuneytið að að
sjálfsögðu myndi það greiða unna
yfirvinnu. Fólk þyrfti hins vegar
að semja um það við sína yfirmenn
áður en það færi utan. Ef hins veg-
ar á að taka fyrir þessar greiðslur
einnig, er um tvöfaldan mínus að
ræða,“ segir Marta.
Hún segir það mikið undrunar-
efni að ríkisvaldið virðist aldrei líta
svo á að niðurstöður dómkerfisins
séu fordæmisgefandi, falli dómar
ríkinu í óhag.
„Það er stöðugt verið að fara í
mál vegna sömu atriða, aftur og
aftur, því að ríkið miðar ekki við
niðurstöður þær sem fást í dómum.
Í okkar huga hefur niðurstaða hér-
aðsdóms augljóst fordæmisgildi. Ef
fólki er ætlað að vinna yfirvinnu í
ferðum sínum erlendis, er það að
sjálfsögðu greiðsluskylt eins og öll
önnur viðvik fyrir vinnuveitenda,
og fólk á að gera kröfu um að fá
greiðslur fyrir,“ segir Marta.
„Dómurinn var afdráttarlaus að
þessu leyti og í samræmi við skiln-
ing okkar á kjarasamningum við
stjórnvöld. Sitji ríkið fast við sinn
keip, geri ég ráð fyrir að félög fólks
sem eru mikið á ferðalögum fyrir
vinnuveitendur sína, geri viðsemj-
endum sínum ljóst hver þeirra við-
horf eru og að þessi mál þurfi að
vera á hreinu."
Morgunblaðið/Sigurgeir Jðnasson
JOHANN Jóhannsson ásamt starfsmönnum sínum I sundmaga-
vinnslunni. Frá vinstri: Jóhann Jóhannsson, sonur hans Hannes,
Magnús Jónsson, Gunnlaugur Erlendsson og Hafþór Hannesson.
Gert klárt
fyrir þorrann
á jólaföstu
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
JÓHANN Jóhannsson í Vest-
mannacyjum, sem verkar sund-
maga og súrsar þá, hefur haft í
nógu að snúast undanfarið í verk-
un sinni. Jóhann hefur undanfarin
tvö ár framleitt súrsaða sundmaga
og hafa þeir fengið góðar viðtökur
og þykja sjálfsagðir í þorratrogið
hjá mörgum. Undanfarið hefur
verið unnið af kappi við verkun
sundmaganna hjá Jóhanni til að
þeir verði klárir er þorrinn geng-
ur í garð.
Morgunblaðið leit við í vinnslu-
salnum hjá Jóhanni dag einn á
jólaföstunni. Þar var þá unnið við
að hreinsa sundmagana. Þeir eru
síðan verkaðir eftir ákveðnu ferli,
soðnir og súrsaðir. Jóhann sagði
að eftirspurn eftir sundmögunum
væri að aukast og hann annaði
vart orðið eftirspurn. Verslanir í
Vestmannaeyjum og á Reykjavík-
ursvæðinu væru þegar búnar að
panta og eflaust ætti eftirspurn
eftir að aukast þegar þorrinn
gengi í garð.
Hann sagðist vera að ganga f rá
síðustu kílóunum þessa dagana þvi
verkunin í súrnum tæki nokkrar
vikur og yrði þessi síðasta ílögn
hans ekki klár fyrr en komið væri
fram á þorrann.
Ferðaklúbbur Jafningjafræðslunnar
Gaman að ferð-
ast án vímuefna
Ijanúar á þessu ári
stofnaði Félag fram-
haldsskólanema jafn-
ingjafræðslu sem hefur
haft þann tilgang að fræða
framhaldsskólanema
landsins um skaðsemi
áfengis- og fíkniefna-
neyslu. í framhaldi af þess-
ari starfsemi jafningja-
fræðslunnar var í apríl síð-
astliðnum stofnaður
Ferðaklúbburinn Flakk í
samvinnu við Ferðaskrif-
stofuna Samvinnuferðir-
Landsýn. Aldursmark fé-
lagsmanna er 16-25 ár.
- Hver er tilgangurinn
með Ferðakiúbbnum
Flakk?
Tilgangurinn er sá að
sýna fólki fram á að það
er hægt að skemmta sér
og fara í ferðalög án þess að
áfengi eða aðrir vímugjafar séu
hafðir um hönd en það er algjör-
lega bannað að neyta þessara efna
í ferðum með okkur.
- Hvernig ferðir hafið þið boðið
upp á?
Við höfum einbeitt okkur að
svokölluðum „adrenalínsferðum"
þar sem menn geta upplifað
ákveðna spennu án þess að neyta
vímuefna. Boðið hefur verið upp
á fallhlifarstökk, við höfum einnig
farið í bátsferðir niður Jökulsá
eystri í Skagafirðinum og í kajak-
ferðir. Þar að auki höfum við boð-
ið upp á ferðir til að skoða ýmsa
staði. Við höfum meðal annars
farið í kynnisferð á herstöðina á
Keflavíkurflugvelli. I samvinnu
við Unglist fengum við að skoða
fangelsin í Reykjavík. Við fórum
líka í gönguferð á Laugaveginum,
þ.e. á milli Þórsmerkur og Land-
mannalauga og svo höfum við
farið í hestaferðir.
- Ferðaklúbburinn hefur einnig
efnt til utanlandsferða, ekki satt?
Jú, við höfum boðið upp á mjög
ódýrar utanlandsferðir fyrir okkar
meðlimi. Fyrirkomulagið hefur
verið þannig að þeir sem hafa
farið með okkur í innaniandsferðir
hafa sjálfkrafa orðið meðlimir í
Ferðaklúbbnum Flakk. Þeir hafa
þá fengið afhent kort og við hverja
ferð innanlands hafa menn svo
fengið stimpil í kortið. Þeir sem
hafa fengið ákveðinn stimpla-
íjölda geta komist í utanlandsferð-
ir með klúbbnum á ótrúlegu verði.
Við höfum til dæmis farið í viku-
ferð til Benidorm fyrir nítján þús-
und krónur og fjögurra daga ferð
til London fyrir fimmtán þúsund
krónur. Helgarferð til Dublin fyrir
tæpar fjórtán þúsund krónur og á
döfinni er dagsferð til Dublin á
sex þúsund og átta hundruð krón-
ur.
- Hvað þurfa menn marga
stimpla til að komast í ------------------
utanlandsferð með Félagar orðnir
y’kkur? á áttunda
Til að komast í ferð-
irnar til Benidorm og
London þurfti þijá
stimpla. í dagsferðina til Dublin
Vignir S. Halldórsson
► Vignir S. Halldórsson er
starfsmaður Flakkferða sem er
ferðaklúbbur Jafningjafræðslu
framhaldsskólanema. Hann er
fæddur 1. janúar 1976 í Reykja-
vík. Vignir er nemandi í Fjöl-
brautarskólanum í Breiðholti.
Hann hefur hefur Iokið húsa-
smíðanámi þaðan og stefnir að
stúdentsprófi. Vignir hefur
starfað með Félagi framhalds
skólanema síðastliðin tvö ár.
hundrað
að skemmta sér án áfengis og
vímuefna.
- Hafa ekki orðið nein brögð
að því að menn hafi viljað neyta
vímuefna í ferðum ykkar þrátt
fyrir boð og bönn?
Þeir sem fara í ferðir með okk-
ur, hvort sem það er innanlands
eða utan, skrifa undir plagg þar
sem þeir lofa því að neyta ekki
vímuefna. í plagginu kemur fram
að hægt sé að krefjast endur-
greiðsiu að fuilu sé brugðið út af
þessu. Sem betur fer hafa menn
gert sér grein fyrir þessu skilyrði
og ekki hafa orðið nein brögð að
því að við höfum þurft að nota
þessi viðurlög.
- Hvernig er samstarfi ykkar
og Samvinnuferða-Landsýnar
háttað?
Samstarfið hefur verið mjög
gott. Við höfum aðgang að fjöl-
breyttri þjónustu þeirra. Þess
vegna höfum við getað boðið upp
á jafn góða hluti og raun ber vitni.
Samvinnuferðir-Landsýn leggja
fram einn starfsmann sem hefur
aðsetur í Hinu Húsinu í Aðal-
stræti. Menn skrá sig í ferðir hjá
okkur í Hinu Húsinu og greiða
þar ferðir sem farnar eru innan-
lands en utanlandsferðirnar eru
greiddar á skrifstofum Samvinnu-
ferða-Landsýnar.
- Hvað er framundan hjá ykk-
ur?
-------- í lok janúar munu
Flakkferðir og Jafnin-
gjafræðslan kynna þá
dagskrá sem er fram-
undan á næstu önn.
Kynningin mun fara
Ráðhúsinu. í innanlands-
þarf engan stimpil því við lítum á
hana sem kynnisferð.
-Hvernig fjármagna félagar
dvölina erlendis?
Við höfum skipulagt ferðirnar
þannig að inni í verðinu eru flug-
ferðirnar, flugvallarskattur, ferðir
til og frá flugvelli, gisting með
morgunverði, fararstjórn og jafn-
vel skoðunarferðir svo fólk á ekki
að þurfa að eyða svo miklu auka-
lega.
- Hvernig hefur ferðaklúbbur-
inn Flakk svo gengið?
Ótrúlega vel, félagar eru orðnir
á áttunda hundrað. Fólk sem farið
hefur með okkur í ferðir hefur
komist að því að það er gaman
fram í
ferðum er ætlunin að Flakkferðir
bjóði upp á snjósleðferðir upp á
jökul og dorgferð í gegnum ís. í
athugun er þyrluferð upp á Esjuna
og að síðan verði skíðað niður fjall-
ið. í athugun er einnig skíðanám-
skeið í Kerlingarfjöllum. Vegna
vinsælda kynnisferðanna á her-
stöðina á Keflavíkurflugvelli verð-
ur líklega boðið upp á ferð þang-
að. Um páskana verður svo boðið
upp á utanlandsferð. í henni verð-
ur líklega innifalin ferð á tónleika
með einhverri frægri rokkhljóm-
sveit. Þeir sem koma á kynning-
una í ráðhúsinu fá stimpil og þurfa
því ekki nema annan til að kom-
ast í þá glæsilegu ferð!