Morgunblaðið - 19.12.1996, Page 68

Morgunblaðið - 19.12.1996, Page 68
58 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ BREF TTL BLAÐSINS Dýraglens rHl/efZNK? GBTA ÖSKtfl \/£&E> OU&P/S pEGAP þ&/LKosr/i s~oKeóNoe?' — ' —-- ---n í\J<Í(JV\ Sífc- Grettir KIS-KiS KIS-KIS B4NK BAMK Í’ETTA ER pAVSET- • SEM EG HEF) > I I 1 jjanka Bakika &10RA ÍIBSA BaM** Ol ^SSÍi Ljóska Kringlan 1103 Reykjavík • Sírni 569 1100 • Símbréf 5691329 • Netfang: lauga@mbl.is Vonbrigði með þjónustu í Perlunni Frá Soffíu Gísladóttur og Ingólfi Vilhelmssyni: EFTIR yndislega athöfn og kaffi- hlaðborð fyrr um daginn fórum við ásamt 25 vinum og vandamönnum til kvöldverðar í Perlunni. Fyrstu vonbrigðin urðu þegar vísað var til sætis. í stað háborðs og sætauppröðunar sem miðaði að því að sem flestir gætu setið saman biðu okkar fimm sex manna borð. Þar af leiddi að gestir stóðu í hálf- gerðu umkomuleysi við komuna. Hver átti að sitja hvar, hvar var brúðhjónunum ætlað sæti? Við höfðum samband við þjóninn sem hafði umsjón með okkar borðum og inntum hann eftir því hvernig á þessu stæði. Fátt var um svör og þau sem við fengum voru sögð í hálfkæringi sem jaðraði við dóna- skap. Það var ekki fyrr en eftir að við fórum fram á að tala við yfir- þjón að við fengum örlitla breytingu á uppröðun borða, með semingi þó. Allir voru þó staðráðnir í að láta þetta ekki varpa skugga á kvöldið og gera það besta úr öilu saman og gæða sér á villibráðarhlaðborði sem pántað var fyrir hópinn. Blasti þá við hálfgerð eyðimörk, skálar og föt tóm og tveir af fjórum aðal- réttum búnir. Eftir þetta berang- urslega hlaðborð fórum við þess á leit við þjóninn að fá allavega að sitja saman yfir kaffi. Jú, hann ætlaði að taka frá fyrir okkur „Turninn". Við hugðumst sitja þar í góðu yfirlæti og spjalla saman allur hópurinn! Þegar upp var kom- ið sat þar slæðingur af fólki okkur óviðkomandi, og enn einu sinni var sóttu þjónn og fundið að. Hann væflaðist um dágóða stund en gerði ekkert í málinu. Það var ekki fyrr en þeir sem þarna sátu ákváðu sjálf- ir að fara að við loksins gátum tyllt okkur niður og hugðumst nú panta kaffi og koníak. Nei, ekki gekk það nú, það var allt of mikil fyrirhöfn að taka við pöntun frá svo stórum hóp. Á barinn skyldum við fara og panta sjálf. Rúsínan í pylsuendan- um er þó sú uppákoma sem átti sér stað stuttu áður en við hugðumst halda heim á leið. Við sátum saman brúðhjónin ásamt nokkrum nánum vinum þeg- ar allt í einu birtist hjá okkur fjöl- miðlamanneskja ein ásamt fylgdarl- iði og fer að spyija okkur spjörunum úr. Hvers vegna? Jú, hún hafði ver- ið beðin af veitingastjóra um að skála við okkur í kampavíni sem Perlan vildi bjóða okkur uppá. Við höfðum ekki beðið um þetta og vorum ekki spurð hvort við vildum taka á móti þessu fólki og að okkar mati var þetta hreinn og klár dóna- skapur sem fyllti mælinn. Við munum ekki fara að borða aftur í Perlunni og líklega ekki þeir sem okkur fylgdu. SOFFÍA GÍSLADÓTTIR. INGÓLFUR VILHELMSSON, Langholtsvegi 22, Reykjavík. Kjarabót Jóhannesar í Bónusi Frá Guðrúnu Ágústsdóttur: ÞEGAR fólki dettur í hug að stofna fyrirtæki eða gera eitthvað nýtt í atvinnurekstri tekst því misvel upp. Ef einhvetjum gengur vel þá segja flestir: „Mikið var hann snið- ugur, ég hefði átt að gera þetta“. En ef einhveijum gengur illa segja flestir: „Mikið var hann vitlaus, hvernig datt honum þetta í hug?“ Sem betur fer eru margir sem eru með kjark og þor til að fara aðrar leiðir en fjöldinn. Það eina sem er slæmt í því að ganga illa er að það dregur svo marga með sér í gjaldþrot, ekki bara fyrirtæk- in heldur líka heimilin. Því þyrfti að breyta strax og hver og einn að vera metinn að verðleikum í bankakerfinu. Mér skilst að það sé von til þess að svo verði í fram- tíðinni. Fyrirtæki eru yfirleitt stofnuð með það eitt að leiðarljósi að hagn- ast á þeim og þá þarf auðvitað að velta fyrir sér hvaða vörutegundir séu til og hvað myndi landinn nú vilja kaupa. Einn er sá maður sem ég hef lengi dáðst að fyrir umhyggjusemi fyrir þjóð sinni. Þessi maður er Jóhannes í Bónusi. Hann og fjöl- skylda hans hófu rekstur Bónus- verslunar og heyrði maður miklar hrakspár um verslun hans. Annað hefur komið á daginn eins og sýnt og sannað er. Gróa á Leiti kemur víða við og man ég einnig eftir persónulegum árásum á hendur Jóhannesi. Hvar væri þorri íslendinga í dag án „kjarabóta" Jóhannesar í Bónusi? Fleiri menn eða konur á íslandi ættu að taka Jóhannes í Bónusi sér til fyrirmyndar og þá meina ég að stunda rekstur ekki einungis í hagnaðarskyni. (Öll fyrirtæki verða samt að bera sig.) Núna í jólamánuðinum, desember, segi ég: „Niður með öfundsýkina og Gróu á Leiti", hugsum frekar vel hvert til annars, sérstaklega til manna eins og Jóhannesar í Bónusi og fjölskyldu hans. Hafðu þökk fyrir dugnaðinn og kjarkinn, Jóhannes. GUÐRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR, Ásgarði 161, Reykjavík. Hér situr flugkappinn í fyrri heimstyrjöldinni við hliðina á fallegri franskri stelpu Hann verður að finna ein- Kærir frökenin sig um einn hveija leið til að velga áttunda úr kieinuhring? athygli hennar ... Allt efni sem birtist I Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.