Morgunblaðið - 19.12.1996, Qupperneq 80
w
<o>
AS/400 er...
...þar sem grafísk
notendaskil eru
í fyrirrúmi
wgmiÞIjiftife
<33) NÝHERJI
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
tfP VectraP^
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(épCENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Samræmd próf í 4. og 7. bekk grunnskóla
Bestur árangur á
höfuðborgarsvæðinu
NEMENDUR 4. og 7. bekkja í
Reykjavík og nágrenni standa
sterkar að vígi í íslensku og stærð-
fræði en nemendur í öðrum lands-
hlutum, að þvi er niðurstöður úr
samræmdum könnunarprófum
sýna. Alls þreyttu 8.070 nemendur
prófin, sem fóru fram um allt land
5. og 6. nóvember sl.
Ef einstakir landshlutar eru
skoðaðir kemur m.a. í ljós að á
Vestljörðum eru nemendur meðal
Attatíu
sagt upp
störfum
ÖLLUM starfsmönnum frystihúss
Sjólastöðvarinnar í Hafnarfirði,
áttatíu talsins, hefur verið sagt upp
störfum og taka uppsagnirnar gildi
27. desember. Ástæðan er hráefn-
isskortur. Frystihúsið hefur undan-
farin ár nær eingöngu verkað fisk
frá rússneskum togurum og að
sögn Guðmundar Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, er nú
lítið framboð á honum og verð
óhagstætt.
„Við vitum ekki hvað þetta varir
lengi, en vonum að það lagist á
næsta ári með nýjum kvótum. Það
er ekki þannig að við eigum fiskinn
og viljum ekki vinna hann, þetta
er alvöru hráefnisskortur. Kvótar
í Barentsnafi eru meira eða minna
uppurnir. Við höfum kannað fisk-
markaðina en framboðið hefur ekki
verið gott undanfarið.“
Ragnar Árnason, trúnaðarmað-
ur starfsmanna frystihússins, segir
að uppsagnirnar valdi hátt í 50%
tekjuskerðingu hjá flestum þeirra
og enn meiru hjá þeim sem vinna
yfírvinnu.
„Þetta er mjög mikið áfall. Fyrir-
tækið virðist ekki stefna að neinni
vinnslu fyrr en í loðnuvertíð í febr-
úar. Þessi kauptryggingarsamning-
ur sem er í gildi gengur einfaldlega
ekki upp. Það gengur ekki lengur
að fískvinnslufólk sé þriðja flokks
þegnar í þjóðfélaginu með allt önnur
uppsagnarákvæði en aðrir laun-
þegahópar," sagði Ragnar.
þeirra efstu í 4. bekk bæði í stærð-
fræði og íslensku en í 7. bekk er
farið að halla undan fæti. Einnig
má sjá að árangur nemenda á Suð-
urlandi og Austurlandi er betri í
7. bekk en í 4. bekk í báðum grein-
um. Nemendur á Vesturlandi eru
með einna lakastan árangur á land-
inu í íslensku bæði í 4. og 7. bekk.
í ljós kemur að stúlkur standa
betur að vígi en piltar bæði í ís-
lensku og stærðfræði. Séu hóparn-
EFNAHAGS- og viðskiptanefnd
Alþingis gerir ýmsar breytingar á
stjórnarfrumvarpi um lífeyrisrétt-
indi starfsmanna ríkisins en frum-
varpið var afgreitt úr nefndinni til
annarrar umræðu í gærkvöldi.
Samkomulag náðist við samtök
opinberra starfsmanna um breyt-
ingarnar í fyrrinótt.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segir að náðst hafí viðun-
andi niðurstaða. „Það er ljóst að
það hafa verið deildar meiningar
um þetta á þinginu. Þótt ég telji
að það hafi verið mjög óráðlegt að
hagga við þeim niðurstöðum sem
fengist höfðu og byggðust á mjög
yfírvegum útreikningum, þá tel ég,
miðað við allar aðstæður, að þetta
sé viðunandi," segir Ögmundur.
Upphaflega frumvarpið gerði ráð
fyrir að sjóðfélagi gæti frestað töku
lífeyris eftir 65 ára aldur og myndi
ir skoðaðir hver um sig sést að
stúlkur fá hærri einkunn í íslensku
en stærðfræði en stærðfræði er
aftur á móti sterkari hlið drengj-
anna.
Með niðurstöðum úr könnunar-
prófunum fá foreldrar nú í fyrsta
sinn í hendur marktækt mælitæki
til að meta einstaka námsþætti
bama sinna.
■ Nauðsyn/6
þá ávinna sér 0,8% aukin réttindi
á mánuði allt að sjötugsaldri.
Nefndin leggur nú til að þetta hlut-
fall verði lækkað í 0,5% en það
komi svo til endurmats að fimm
árum liðnum. Efnahags- og við-
skiptanefnd fékk tryggingafræð-
inga til að leggja mat á frumvarpið.
Óvissa er um hversu margir
sjóðsfélagar muni flytja sig úr eldra
kerfi í nýtt en athugunin leiddi í
ljós að ef eldri starfsmenn færðu
sig yfir í hina nýju deild sjóðsins
gætu skuldbindingar ríkissjóðs auk-
ist um fjóra til fimm milljarða
króna. Með því að lækka viðbótar-
réttindi úr 0,8% í 0,5% vegna sjóðfé-
laga sem fresta töku lífeyris eftir
Beðið
eftirjóla-
sveininum
BÖRNIN á leikskólanum í
Steinahlíð stóðust ekki mátið
og þyrptust að gluggum skól-
ans í gær, full eftirvæntingar,
enda tveir jólasveinar væntan-
legir í heimsókn.
Eins og aðrir bræður þeirra
komu þeir færandi hendi, bæði
með góðgerðir og jólaskapið í
ríkulegum mæli. Eflaust hafa
Hurðaskellir, sem kom í fyrri-
nótt, og Askasleikir, sem kom
til byggða nóttina þar á undan,
glaðst þegar áköf andlit barn-
anna blöstu við sjónum.
65 ára aldur er talið að ríkissjóður
spari svipaða upphæð, þannig að
kostnaður ríkissjóðs vegna breyt-
inga á sjóðnum í heild á ekki að
aukast.
Lagt er til að 11,5% iðgjald
launagreiðandans verði fast næstu
þijú árin eða til ársins 2000 en í
upphaflega frumvarpinu var gert
ráð fyrir að framlagið yrði 11,5%
fyrsta árið en það væri síðan breyti-
legt miðað við tryggingafræðilega
úttekt á sjóðnum árlega.
Frestur til 1. des. 1997 að velja
á milli A- og B-deildar
Nefndin leggur til þá breytingu
að sjóðfélagar, sem geta valið í
Stj órnsýsludómstóll
í Þýzkalandi
Rangt stað-
ið að úthlut-
un kvótans
STJÓRNSÝSLUDÓMSTÓLL í Ham-
borg í Þýzkalandi hefur fellt þann
úrskurð að ekki hafi verið rétt stað-
ið að úthlutun á aflakvótum til út-
hafsútgerða í Þýzkalandi á þessu ári.
Það var Mecklenburger Hochsee-
fischerei, dótturfyrirtæki Útgerðar-
félags Akureyringa í Rostock, sem
gerði athugasemd við úthlutunina á
þessu ári til úthlutunarstofnunar.
Þegar engin svör bárust við þeim
athugasemdum var málið kært til
umrædds dómstóls.
Ekki liggur ljóst fyrir hver fram-
vinda mála verður eftir þetta. Önnur
þýzk útgerð í meirihlutaeigu Sam-
herja, DFFU í Cuxhaven, er með
mestan kvóta úthafsútgerða þar í
landi.
Guðbrandur_ Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, sagði í samtali við
Morgunblaðið síðdegis í gær, að nið-
urstaða dómstólsins hefði verið á þá
leið að ekki hefði verið rétt að úthlut-
un kvóta staðið. Hann hefði hins
vegar ekki nægilegar upplýsingar til
að segja nokkuð frekar um málið.
Guðmundur Tulinius, fram-
kvæmdastjóri Mecklenburger, sem
var viðstaddur dómsuppkvaðningu,
staðfesti niðurstöðu dómstólsins, en
vildi ekki láta neitt eftir sér hafa.
Þorsteinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samhetja, sagðist
heldur ekki hafa nægar upplýsingar
til að tjá sig um málið.
Samkomulag tókst ekki
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins áttu fulltrúar DFFU og
Mecklenburger, Finnbogi Baldvins-
son og Guðmundur Tulinius, fund
með Giinter Drexelius, forstöðu-
manni þeirrar stofnunar, sem fer með
kvótaúthlutun í Þýzkalandi, eftir að
niðurstaða dómstólsins var ljós. Þar
var farið yfir stöðuna og leitað leiða
til þess að ná samkomulagi milli út-
gerðanna tveggja. Það tókst ekki og
er nú beðið frekari framvindu máls-
ins, en úthlutun kvóta fyrir næsta
ár gæti dregizt fram yfir áramót.
hvorri deild sjóðsins, A- eða B-
deild, þeir vilja vera, verði að taka
afstöðu til þess fyrir 1. desember á
næsta ári en í upphaflega frum-
varpinu voru engin tímamörk sett.
Þá eru stjórn sjóðsins sett ákveð-
in skilyrði og henni gert að móta
fjárfestingarstefnu og ávaxta fé
sjóðsins með hliðsjón af þeim kjör-
um sem best eru boðin á hveijum
tíma með tilliti til ávöxtunar og
áhættu. Tekið er fram í breytingar-
tillögunum að sjóðfélagar og launa-
greiðendur beri ekki ábyrgð á
skuldbindingum A-deildar sjóðsins
nema með iðgjöldum sínum. Nefnd-
in leggur til að þeir félagsmenn í
BSRB, BHM og Kennarasamband-
inu sem eiga ekki aðild að sjóðnum
geti greitt til hans, enda hafi launa-
greiðandi samþykkt það en kveða
á nánar um útfærslu þessa í sam-
þykktum lífeyrissjóðsins.
Sjólastöðin
Morgunblaðið/Ásdís
Samkomulag um breyt-
ingar á lífeyrisfrumvarpi
Aukning lífeyrisréttinda eftir að
65 ára aldri er náð úr 0,8% í 0,5%