Morgunblaðið - 28.01.1997, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Kröfugerð landssambanda ASÍ á hendur ríkinu
Fjölþrepa skattkerfi
og tekjutenging lækkuð
FORMENN landssambandanna innan Alþýðu-
sambands íslands hafa náð samkomulagi um
drög að kröfugerð á hendur ríkinu í tengslum
við gerð næstu kjarasamninga. Kröfugerðin
verður lögð fyrir formenn iandssambandanna í
endanlegum búningi í dag. Guðmundur Gunn-
arsson, formaður Rafiðnaðarsambands íslands,
vonast til þess að kröfur á hendur ríkinu verði
ekki undir fímm milljarðar króna.
„Við í Rafiðnaðarsambandinu höfum lagt á
það áherslu í okkar kröfugerð að launahækkan-
ir verði í sjálfu sér tiltölulega litlar og efnahags-
breytingum verði stillt þannig í hóf að hægt
verði að hækka hér kaupmátt án þess að koll-
keyra efnahagskerfið. 8-10% kaupmáttaraukn-
ing á næstu þremur árum er of lág að okkar
mati. Okkar hagfræðingar telja að hægt sé að
fara fram á 15-16% kaupmáttaraukningu á
næstu þremur árum og við höfum haft uppi
kröfu um það. Þessi kröfugerð er liður í því og
myndi færa launþegum hana að því tilskildu
að tilfærslur í launakerfinu yrðu á raunsæjum
nótum. Forsenda þessa er þó að lægstu launa-
taxtar verði færðir upp að greiddum launum,“
sagði Guðmundur.
Fj'ölþrepa tekjuskattur
í kröfugerðinni er m.a. rætt um fjölþrepa
tekjuskatt og lækkun tekjutengingar barnabóta
og vaxtabóta. Gerð er krafa um að elli- og
örorkulífeyrir og atvinnuleysisbætur fylgi launa-
breytingum og að verkalýðshreyfingin yfirtaki
atvinnuleysistryggingar líkt og tíðkast á
Norðurlöndunum. Gerð er krafa um að ríkissjóð-
ur tryggi félagsmönnum í almennu félögunum
sömu lífeyrisréttindi og ríkisstarfsmönnum.
í heilbrigðismálum er farið fram á að gjald-
taka verði lækkuð sem og lyfjakostnaður. Einn-
ig verði ferða- og dvalarkostnaður hækkaður
til þeirra sem leita utan af landi til lækninga.
Rökin eru þau að sá kostnaður hafi stóraukist
með fækkun heilsugæslustöðva og minni þjón-
ustu.
Einnig er fjallað um menntamál, einkum hvað
lýtur að starfsmenntamálum, og húsnæðismál
hvað viðvíkur félagslega húsnæðiskerfinu. Kraf-
ist er lækkunar vaxta og að í stað vaxtabóta
verði teknar upp húsnæðisbætur. Krafist er
lækkunar á GATT tollum og að sett verði á
verðlagsráð landbúnaðarafurða.
„Við rafiðnaðarmenn höfum bent ítrekað á
það að við teljum okkur ekki geta sest að samn-
ingaborði fyrr en þessum málum gagnvart rík-
inu er lokið. Þessu höfum við haldið fram frá því
í haust. Nú heyrist mér að sú staða sé komin
upp að allir séu orðnir sammála um þetta við-
horf,“ sagði Guðmundur.
MIKILL vatnsleki varð í verslun Pennans við Hallarmúla eftir
að heitavatnsrör í loftræstikerfi hússins fór í sundur.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Vöruval kaupir
Bjömsbúð á ísafirði
ísafirði. Morgunblaðið.
Penninn í Hallarmúla
Miklar
skemmdir
urðu vegna
vatnsleka
og raka
TALIÐ er að milljónatjón hafi orðið
í verslun Pennans við Hallarmúla í
Reykjavík af völdum gufu og heits
vatns sem lak niður á báðar hæðir
hússins eftir að heitavatnsrör í loft-
ræstikerfi fór í sundur aðfaranótt
mánudagsins, að sögn Ingimars
Jónssonar forstöðumanns smásölu-
sviðs Pennans. Hann bætir því við
að enn sem komið er sé ekki hægt
að meta tjónið nákvæmlega, en
verið sé að vinna að því í samráði
við tryggingafélag Pennans, Sjóvá-
Almennar. „Töluverðar skemmdir
urðu á þeim vörum sem voru inni
í búðinni vegna gufunnar sem
myndaðist af heita vatninu, einkum
á blöðum, bókum og ritföngum,"
segir hann, en lítið tjón varð á vör-
um í húsgagnadeildinni.
Tilkynning um vatnslekann
barst til Slökkviliðs Reykjavíkur
um kl. 6 á mánudagsmorgun eftir
að viðvörunarkerfið hjá Securitas
sem vaktar verslunina fór af stað.
Þegar slökkviliðsmenn komu á
staðinn var um 5 sm djúpt vatn á
báðum hæðum og var unnið að því
í nokkra tíma að þrífa það upp
með svokölluðum vatnssugum og
þurrkblásurum.
Að sögn Ingimars verður hús-
gagnadeild verslunarinnar opnuð í
dag, þriðjudag, en ekki er búið að
ákveða hvenær ritfangadeildin
verður opnuð. „Þangað til viljum
við benda viðskiptavinum okkar á
aðrar verslanir Pennans sem eru í
Austurstræti, í Kringlunni og í
Hafnarfirði," sagði hann að síðustu.
------» ♦ ♦----
Alþingi kemur
saman í dag
ALÞINGI kemur saman að nýju í
dag eftir jólafrí. Meðal þess sem
tekið verður til umræðu er frum-
varp til laga um varnir gegn snjó-
flóðum og skriðuföllum. Þá verður
umræða utan dagskrár um fyrir-
hugað álver á Grundartanga. Máls-
hefjandi er Kristín Ástgeirsdóttir,
þingkona Kvennalista. Þingfundur
hefst klukkan 13:30.
GENGIÐ var frá kaupum Vöruvals
hf. á rekstri verelunar Björns Guð-
mundssonar á ísafirði, eða Björns-
búð eins og hún er kölluð í daglegu
tali, sl. föstudag. Með kaupunum
eru eigendur Vöruvals að tryggja
stöðu sína gagnvart aðalkeppni-
nautinum, Samkaupum, sem hóf
rekstur matvöruverslunar í húsnæði
Kaupfélags ísfirðinga í desember
síðastliðnum. Að sögn Benedikts
Kristjánssonar, framkvæmdastjóra
Vöruvals, eru kaupin liður í aukinni
samkeppni, sérstaklega hvað varðar
lengri afgreiðslutíma matvöruversl-
ana á svæðinu. Björnsbúð hefur
verið í eigu sömu fjölskyldu í 103
ár en versluajn var stofnuð árið
1894 af Bimi Guðmundssyni, gull-
smið á ísafirði.
„Við teljum að það sé hagkvæm-
ara fyrir okkur að mæta aukinni
samkeppni, meðal annars hvað
varðar afgreiðslutíma, með þvi að
fara með hluta af rekstri Vöruvals
á Eyrina. Ég hef verið þeirrar skoð-
unar að það sé ekki nauðsynlegt
að opnunartími verslana á ísafirði
fylgi opnunartíma verslana í
Reykjavík en það hefur legið fyrir
að ég yrði einhvem veginn að
mæta þeirra samkeppni sem hér
er til staðar og ég tel að kaupin á
rekstri Björnsbúðar séu skynsam-
legasta leiðin í því sambandi," sagði
Benedikt Kristjánsson í samtali við
blaðið.
Afgreiðslutími hinnar nýju versl-
unar, sem að sögn Benedikts mun
áfram ber nafnið Bjömsbúð, verður
kl. 9-21 mánudaga til föstudaga,
9-18 á laugardögum og kl. 13-16
á sunnudögum.
„Því er ekki að neita að við erum
svolítið út úr hér á Skeiði. Mitt mat
er það að ef ég færi út í að lengja
afgreiðslutímann þar, þyrfti ég að
gera það í samráði við aðra verslun-
areigendur í húsinu en almenn skyn-
semi segir mér að það sé mjög kostn-
aðarsamt og að öllu leyti óhag-
kvæmara en kaupin á Bjömsbúð."
Verslun Björns Guðmundssonar
mun verða opnuð undir stjórn nýs
eiganda á laugardag, 1. febrúar,
en þann dag verður verslunin
Vöruval á ísafírði 10 ára. Verslun-
arstjóri Björnsbúðar hefur verið
ráðinn Finnur Magnússon.
AÐSÓKN að Tónskóla Grafarvogs,
sem er tilraunaverkefni Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur og fjögurra
grunnskóla í Grafarvogi, hefur verið
langt umfram þá þjónustu sem skól-
inn getur veitt. Alls sóttu 150 nem-
endur í haust um að komast í píanó-
nám en einungis 21 nemandi komst
að. Um 50 nemendur eru í forskóla
Tónskóla Grafarvogs.
Að sögn Jóns Hjaltasonar, annars
forstöðumanns skólans, er tilgangur-
inn að auka tónlistarkennslu í grunn-
skóium í hverfinu, að samræma
vinnudag í heildstæðum grunnskóla
Brottvísun i
Hanes-
hjóna líkleg
EKKl er búist við að hjónin Connie
Jean og Donald Hanes fari af landi '
brott á næstu dögum. Bandarísk
yfirvöld munu að líkindum leggja
fram formlega ósk um framsal þeirra
í þessari viku, en allt eins er líklegt '
að íslensk yfirvöld vísi þeim úr landi,
að sögn Stefáns Eiríkssonar, lög-
fræðings í dómsmálaráðuneytinu.
Hann segir að það skipti litlu
fýrir Hanes-hjónin hvor kosturinn
verður tekinn, því þau muni verða
send aftur til Bandaríkjanna.
Mótrök lögð fram í dag
Hanes-hjónin munu koma fyrir
Útlendingaeftirlitið í dag og leggja
þar fram mótrök sín gegn því að '
vera vísað úr landi. Jóhann Jóhanns-
son, yfirmaður Útlendingaeftirlits-
ins, segir að þau rök verði metin
og ákvörðun tekin í kjölfarið um
hvort og hvenær til brottvísunar
kemur.
Þegar fólki er vísað úr landi get-
ur það kosið að fara annað en til 1
síns heima, en þar sem vegabréf
Hanes-hjónanna voru ógilt af
bandarískum yfirvöldum eiga þau
þann kost einan að snúa aftur til
heimalands síns, þar sem lögregla
tæki á móti þeim. Brottvísun myndi
því hafa sömu áhrif og framsal.
„Ég reikna með að ákvörðun um
brottvísun verði tekin í þessari
viku,“ sagði Stefán. „Þegar brottvís-
un er ákveðin hefur fólk 15 daga
frest til að kæra niðurstöðuna til
dómsmálaráðuneytisins, svo ekki er
búist við að Hanes-hjónin fari af
landi brott á næstu dögum. Hins
vegar gætu þau sjálf ákveðið að
fara fyrr heim.“
------♦ ♦ ♦-----
Hætt við
göngustíg á
Arnarnesi
SKIPULAGSNEFND Garðabæjar
hefur ákveðið að hætta við lagningu
göngustígs meðfram ijörunni á Arn-
arnesi vegna andstöðu íbúanna.
Áform um opinberar byggingar á
Amameshæð standa óbreytt.
Varðandi byggð á Arnarneshæð
vísar Skipulagsnefnd til samnings
frá 1961 þar sem segir að landeig-
endur láti af hendi endurgjaldslaust
land sem samkvæmt skipulagsupp-
drætti sé ætlað undir skóla, dag-
heimili, götur, leikvelli og opin
svæði. Því sé bæjaryfirvöldum heim-
ilt að ráðstafa landinu.
Kristjana Milla Thorsteinsson,
einn íbúanna sem mótmæit hafa,
segist undrandi á niðurstöðu Skipu-
lagsnefndar. „Við höfum verið að
útvega okkur gögn á síðustu dögum
og höfum komist að því að sam-
kvæmt skipulagsuppdrætti sem í
gildi var 1963, þegar við keyptum
lóðirnar, var ekki gert ráð fyrir
neinni byggð á Arnarneshæð.“
og síðast en ekki síst að lækka skóla-
gjöldin. Skólagjöld fyrir einkatíma í
píanónámi eru 20.000 krónur yfír
skólaárið, sem að sögn Jóns er 40%
af gjöldum í hefðbundnum tónlistar-
skóla. Forskólagjaldið er hins vegar
10.000 krónur.
Hann segir að nú sé hópur nem-
enda í tónlistarnámi orðinn mun
breiðari en áður, þar sem foreldrar
margra nemendanna hafi ekki haft
bolmagn til að notfæra sér kennslu
hefðbundinna tónlistarskóla.
■ Sjöfalt fleiri/28
Tilraunaverkefni í tónlistarnámi
Skólagjöld langt undir
venjulegu verði