Morgunblaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 20
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997 21
20 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
4
MORGUNBLAÐIÐ
við Umferðamiðstöðina
Simi 551 9800
NEYTENDUR
Rykið dustað af grillinu
Snúa steinunum svo
steikin brenni ekki
MARGIR eru farnir að dusta rykið
af grillinu eftir veturinn og reyndar
eru ýmsir farnir að grilla úti allan
ársins hring.
Ingvar Örn Ingvarsson starfsmað-
ur hjá Skeljungsbúðinni segir að
ÖRN Garðarsson
matreiðslumeistari
og veitingamaður á
Hótel Borg gefur
hér lesendum upp-
skrift að ljúffengum
mexíkóskum
lambakjötsrétti á
grillið.
Lamb Yuccutan
2 kg lambavöðvar
skornir í steikur
Marinering:
2 tsk. chiliduft
2 tsk. kanill
2 tsk. grófur hvítur
_____________P'Par
6 tsk. salt
8 msk. olía
taka þurfi grindur og steina úr grilli
og skafa fítu af botni og sópa upp
ryki og ryði þegar grillið er tekið
fram eftir veturinn. „Steinunum á
að snúa við séu þeir úr keramíki.
Það er gert til að brenna af fituna.
Ef um hraunmola er að ræða þarf
að skipta um þá því það hefur ekki
gefist vel að sjóða hraunmolana1',
segir Ingvar.
Koparbursti á grillgrindina
Það er um að gera að bursta
grindurnar vel og þvo þær jafnvel
úr mildu sápuvatni ef þær eru illa
farnar." Ingvar bendir fólki á að
nola ætíð koparbursta þar sem hár-
in í honum eyðileggja ekki emel-
eringuna. Þá þarf stundum að þrífa
glerið á grillinu og til er sérstakur
grillhreinsir víða sem nota má til að
þrífa grillið með að innan og utan.
Stundum segir Ingvar að þurfi
að herða skrúfur og bolta og jafnvel
smytja takkana sem stýra hitanum.
„Þeir eru oft mjög stífir eftir vetur-
inn og þá má t.d. nota saumavélaol-
íu.“
Fóðruð yfirbreiðsla
- Ef grillið hefur staðið úti yfir
veturinn og er illa farið?
„Það er mjög gott fyrirbyggjandi
ráð að halda grillinu þurru og nota
fóðraða yfirbreiðslu. Þá sér varla á
grillinu eftir veturinn. Það verður
hinsvegar grátt og ljótt sé það úti
án yfirbreiðslu. Þá getur fólk keypt
hitaþolið svart lakk til að sprauta
grillið með og það virðist duga nokk-
uð vel. Síðan þarf að bera olíu á
viðarborðin."
- Hvernig er með þrif á grilli yfír
sumarið?
- „Koparburstinn kemur alltaf að
Lambakj ötsr éttur
á grillið
4 tsk.
appelsínubörkur
2 tsk. sítrónubörkur
2 bollar rosp
4 msk. saxaður
laukur
Öllu blandað
saman og steikurn-
ar eru síðan látnar
liggja í þessari mar-
ineringu yfir nótt.
Kjötið er grillað og
Örn segir að passa
þurfi vel að hafa
hitann mikinn fyrst
Örn Garðarsson. en lækka hann svo.
Lambakjötsréttur-
inn er borinn fram með krydd-
------ gijónum, salati, maís, sýrðum
______ tjóma og Enchilada sósu en hún
_______ er fáanleg í stórmörkuðum. ■
Morgunblaðið/Sverrir
ALGENG sjón á sumrin.
gagni og sé hann notaður reglulega
er ekki nauðsynlegt að vera að þvo
grindurnar því þá vill maturinn líka
festast við þær. Ýmsir mæla með
því að laukur sé skorinn í tvennt,
helmingnum stungið á gaffal og
honum rennt þannig yfir grindurn-
ar.“
- Ef það kviknar oft í steikinni.
Hvað er þá til ráða?
„Það er mikilvægt að snúa stein-
unum við reglulega og brenna þann-
ig fituna af steinunum. Sé það gert
reglulega yfir sumarið er ólíklegt
að fólk lendi í þeim hremmingum
að steikin standi í ljósum logum.
Ef svo óheppilega vill til hafa sumir
úðabrúsa við grillið."
- Hvað með viðarspæni og kol
sem fólk er að setja á gasgrillin?
„Til eru bakkar sem eru ætlaðir
undir raka viðarspæni, kol eða blóð-
berg til að setja með steinunum í
gasgrillið til að fá sérstakan keim
af steikninni. Mörgum finnst þetta
laða fram alveg sérstakt bragð af
matnum og fikra sig áfram með
ýmis íslensk krydd á þennan hátt.“
I
I
i
I
«
i
\
i
1
i
NEYTENDUR
Lesendur spyrja
Fríkortspunktar af
öllum Visakortum
*
Islandsbanka?
LESANDI hafði samband og vildi
fá vitneskju um hvort ekki væri
öruggt að hann fengi fríkorts-
punkta með notkun allra tegunda
Visakorta svo framarlega sem þau
væru gefin út af íslandsbanka?
Honum hafði verið tjáð að hann
þyrfti að hafa vildarferðakort Flug-
leiða og Visa þegar hann borgaði
nokkra farseðla til útlanda fyrir
skömmu til að eiga kost á frípunkt-
um bankans. Hann var með svokall-
að Visa viðskiptakort útgefið af
íslandsbanka.
Svar: „Þetta er ekki rétt,“ segir
Sigurveig Jónsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi íslandsbanka. ,jÞað er alveg
sama hvaða kort frá Islandsbanka
fólk notar í viðskiptum, það fær
punkta frá bankanum."
hlYTT
Rúmdýnur
fyrir þá sem
hafa ofnæmi
NÝLEGA hóf Epal sölu á norskum
Box rúmdýnum sem eiga meðal
annars að henta þeim sem eru með
ofnæmi fyrir rykmaurum.
Að sögn Eyjólfs Pálssonar hjá
Epal deyja rykmaurar við 58°C hita
og í þessu tilfelli má taka verið af
dýnunni og þvo það við 60°C.
„Þetta gerir það að verkum að ryk-
maurarnir drepast í þvotti." Lífstíð-
arábyrgð er á gormunum í dýnun-
um en þær eru fáanlegar í mörgum
stærðum. Eyjólfur segir dýnurnar
vera á hagstæðu verði.
Morgunblaðið/Ásdís
Morgunblaðið/Ásdís
Stuðningshlífar
VÖRUR frá Medisport Internation-
al Ltd. eru nú fáanlegar hér á landi.
í fréttatilkynningu frá Bergfelli
ehf. segir að um tvær gerðir af
stuðningshlífum sé að ræða, Neopr-
ene línan sem er ætlað að veita
varma og stuðning og létta á verkj-
um og draga úr bólgum og stirð-
leika. Hin línan, Cotton Elastic,
veitir meiddum vöðvum og liðamót-
um stuðning og fyrirbyggir að göm-
ul meiðsl taki sig upp. Einnig eru
fáanleg frá Medisport kæligel, hita-
krem, hitapakkar og íþróttadrykkir.
Vörurnar fást í Skipholts apóteki
og innflutning og dreifingu annast
Bergfell ehf.
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
í GALTALÆ KjARSKÓGl
TILBOÐ
óskast í skemmtiatriði,
dansleiki og önnur
dagskráratriði á einni
stærstu fjölskylduhátíð
verslunarmannahelgarinnar
1997.
Tilboðum skal skilað fyrir 1. maí nk.
í símbréfi (s. 551 9908) eða pósti merkt
Bindindismótinu í Galtarlækjarskógi,
Eiríksgötu 5,101 Reykjavík.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er,
að hluta eða öllu levti, eða hafna öllum.
GOLF
Volkswagen
Oruggur á alla vpgu!
AFRÁBÆRU
NU ER VOLKSWAGEN GOLF FAANLEGUR A HAGSTÆÐARA VERÐIEN NOKKRU SINNIFYRR,
FJARSTYRÐAR SAMLÆSINGAR
HÆÐARSTILLANLEGT BÍLSTJÓRASÆTI
RAFSTÝRÐIR ÚTISPEGIAR
AFL- OG VELTISTÝRI
SAMLITIR STUÐARAR, HLIÐARUSTAR OG ÚTISPEGLAR
ÞJÓFAVÖRN í SAMIÆSINGUM
HITIÍ ÚTISPEGLUM
EINHVER ALLRA VINSÆLASTI BILL SEM FRAMLEIDDUR HEFUR VERIÐ
yœm
... y %* iS w
*i|