Morgunblaðið - 22.04.1997, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1997
MENIMTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmyndari Jón Svavarsson.
FJÖLMENNI var á málþingi leikskólakennara og skoðanaskipti voru fjörleg.
DR. BERNARD Spodek sagði
að engin ein lausn væri til á
því hvernig góður leikskóli
ætti að vera. Skipulagið færi
eftir þeim markmiðum sem
væru með starfinu og menn-
ingu á hveijum stað.
Málþing Félags íslenskra leikskólakennara
Markvisst starf á leik-
skólunum en sveigjanlegt
Víða var komið við í umræðum á fjölmennu
málþingi leikskólakennara fyrir nokkru þar sem
rætt var um innra starf leikskólans. Hildur
Einarsdóttir fylgdist með umræðum og komst
meðal annars að því að víðast hvar á leikskólum
fer fram reglulegt mat á starfseminni.
FYRSTA erindið á málþinginu,
sem haldið var í Rúgbrauðsgerð-
inni, var flutt af Þórhöllu Guð-
mundsdóttur leikskólasérkennara.
Hún fjallaði um heildtæka skóla-
stefnu og hvernig hægt er að
mæta þörfum allra barna hvort
sem þau væru fötluð, ófötluð, hvít,
svört, stór eða lítil eins og hún
orðaði það.
í heildtækri skólastefnu fælist
að hver nemandi væri metinn út
frá hæfileikum sínum en ekki því
sem hann gæti ekki. „Litið er á
margbreytileikann sem sjálfsagð-
an hlut og það er kostur að börn
séu ólík. Leikskóli fyrir alla gefur
börnum tækifæri til að vinna sam-
an og kynnast þörfum hvers og
eins, taka tiliit hvert til annars og
fá tækifæri til að vera með jafn-
öldrum sem búa í hverfinu og þróa
vináttu,“ sagði Þórhalla.
Reglubundið mat
Viðhorf leikskólakennara til eig-
in starfa var yfirskrift erindis
Kristínar Dýrfjörð leikskólastjóra.
Hún gerði að umtalsefni könnun
sem hún gerði á því hvort form-
legt, meðvitað mat fari fram á
starfsemi í leikskólum. Sagði hún
að komið hefði í ljós að tæp 80%
þeirra sem spurðir voru segðu að
á sínum vinnustað færi fram reglu-
legt mat á starfseminni. Algengast
væri að starfsfólk settist niður og
ræddi um starfið en einungis rétt
rúm 24% leikskólakennara til-
greindu tæki sem hjálp við mat.
Sagði hún að algengt væri, ekki
aðeins á íslandi, að leikskólakenn-
arar upplifðu starf sitt í gegnum
frásagnir og sögur úr starfinu.
Taldi hún þó æskilegt að matið
færi fram með skipulegri hætti og
spunnust af þessu nokkrar umræð-
ur.
í könnun sinni athugaði Kristín
einnig hvernig samskipt-
um við foreldra væri
háttað. í Ijós hefði komið
að leikskólakennarar
töldu árangursríkast að
koma upplýsingum á
framfæri við foreldra í
formlegum viðtölum.
Spyija mætti þó hvort ekki væri
skynsamlegt að nýta betur ög
markvissar þau tækifæri sem gæf-
ust þegar verið væri að koma með
börnin eða sækja þau til að rabba
og gefa upplýsingar.
Sagði hún það sitt mat að leik-
skólakennarar yrðu að gera starf
sitt sýnilegra fyrir foreldra. Liður
í því væri að auka formlega skrán-
ingu og úrvinnslu um þroska og
framgang hvers barns í leikskólan-
um. Einnig væri æskilegt að vinna
einstaklingsáætlanir byggðar á al-
mennum athugunum fyrir hvert
barn en ekki einungis fyrir þau sem
nytu sérkennslu. Einstaklingsáætl-
anir þyrftu ekki að vera mjög
flóknar.
Aukin samvinna
við foreldra
Þórkatla Aðalsteinsdóttir sál-
fræðingur ræddi um geðtengsl
barna í leikskólum. Hún byijaði á
því að ræða um viðmót leikskóla-
kennara og annarra fullorðinna
gagnvart börnunum. Hún lagði
áherslu á að hinir fullorðnu svör-
uðu skýrt og heiðarlega. Veittu
jákvæða athygli. Hefðu til að bera
næmi gagnvart einstaklingnum og
legðu sig fram um að kynnast
hveiju og einu barni. Þeir veittu
öryggi með nærveru sinni og það
gerðu þeir best með að vera sjálfir
öryggir, rólegir og andlega sterkir.
Hún ræddi um samskipti heimila
og leikskóla. Sagði að foreldrarnir
væru mikilvægastir í lífi barnsins
og við þá mynduðu börnin fyrstu
geðtengslin. Taldi hún að leik-
skólakennarar ættu í auknum
mæli að leita eftir þekkingu þeirra
og foreldrasamvinna ætti að vera
meiri í leikskólunum.
Þórkatla fór inn á
inikilvægt hlutverk leik-
skólans í myndun geð-
tengsla og sagði að
starfsmenn þar væru
fyrsta fullorðna fólkið
fyrir utan foreldrana
sem þau nytu leiðsagnar frá. „Ef
vel tekst til byggja þau á þessum
tengslum seinna meir á ævinni.
Barnið hefur þörf fyrir bæði
tengslin, því verða þessir aðilar að
vinna saman,“ ítrekaði hún.
Því næst ræddi hún um þann
vanda sem sveigjanlegur vistunar-
tími gæti skapað fyrir börn, sér-
staklega þau sem eru allan daginn
í leikskólanum. Fælist vandinn í
því að barnahópurinn færi sístækk-
andi sem kallaði á ósveigjanlegra
skipulag. Á leikskólanum væri oft
ótrúlega flókið skipulag til að hlut-
irnir gengju upp. Væri það sitt
álit að þetta virkaði tætingslega á
barnið og reyndist því erfitt. „Ég
tel að sú krafa að kerfið gangi upp
geti komið niður á því hvernig
börnin tengjast hvert öðru og
hvernig þið sem vinnið á leikskól-
unum tengist börnunum,“ sagði
Þórkatla.
Hún ræddi einnig um viðhorf til
drengja í leikskólum og hvernig
væri hlúð að þeim þar sem kven-
fólk væri eingöngu við stjómvöl-
inn. „Mótum við kvenfólkið þá
kannski eins og okkur finnst að
þeir eigi að vera en ekki eins og
þeir eru?“ spurði hún.
Leiskóli barnanna
vegna
Skipulag leikskólans var umtals-
efni Guðrúnar Samúelsdóttur leik-
skólastjóra. Hún taldi gott skipu-
lag nauðsynlegt en skipuleggja
þyrfti þannig að börnin nytu ör-
yggis og festu jafnframt því sem
þau öðluðust aukinn þroska, nýja
færni og þekkingu. Því ekki mætti
gleyma að leikskólinn væri fyrst
og fremst til barnanna vegna. Hún
kvað það ekki skipta öllu
máli hvaða leið væri val-
in, heldur að starfsfólkið
væri trútt þeim markmið-
um sem það hefði sett
sér.
Markmiðin sem leik-
skólakennarar setja sér í
starfi og hvemig unnið er með þau
var innihald erindis Bryndísar
Garðarsdóttur leikskólakennara.
Hún greindi frá niðurstöðum úr
lokaverkefni sínu til and. polit.
prófs í leikskólafræðum við Há-
skólann í Þrándheimi.
Hún sagði meðal annars að af
þeim sex leikskólakennurum sem
hún ræddi við hefðu aðeins tveir
sagt að starfsfólk hefði unnið sam-
eiginlega að markmiðssetningu
fyrir leikskólann. Hjá hinum liti
þetta út fyrir að vera nokkuð tilvilj-
unarkennt. „í þeim leikskólum þar
sem unnið var að sameiginlegum
starfsgrundvelli tók ég sérstaklega
eftir því hvað starfsfólkið var með-
vitað um hlutverk sitt, að allir virt-
ust vinna að sömu markmiðum.
Það var samhengi og skipulag í
starfinu án þess að það væri of
venjubundið eða skipulagt. Þægi-
legt andrúmsloft var á deildinni
og bæði fullorðnir og börn virtust
vera ömgg með sig. í þeim leik-
skólum þar sem markmiðin voru
óljós var starfið ómarkvissara og
starfsfólkið virtist hafa ólíkar
áherslur," sagði hún.
Engin ein lausn
Bryndís sagði að það sem hefði
þó komið mest á óvart væri að
ekki var samhengi á milli þess
hversu margir leikskólakennarar
unnu á viðkomandi deild og því
hversu markvisst starfið var. „í
þeim leikskólum þar sem heildars-
amræmi ríkti í starfinu, og mér
fannst markvissara, var eingöngu
starfandi einn leikskólakennari á
deild. Eftir því sem leikskólakenn-
ararnir voru fleiri virtist vera erfið-
ara að samræma starfið. Þetta
þýðir ekki að leikskólakennarar
geti ekki unnið saman heldur hafa
þeir ekki rætt nógu vel sín á milli
um grudvallarvallar- markmið og
leiðir í leikskólastarfínu,“ sagði
Bryndís.
Lokaerindið á málþinginu flutti
Dr. Bernard Spodek, prófessor við
Háskólann í Illinois. Fjallaði hann
um hvernig skipuleggja mætti
umhverfið til að auka gæði upp-
eldisstarfsins og „auðvelda" vinnu
leikskólakennara. Hann
benti á að í bandarískum
leikskólum væri lögð
áhersla á að til væri
mikið úrval af leikföng-
um fyrir börnin svo þau
ættu víðtækt val. I jap-
önskum leikskólum
væru leikföngin hins vegar fá til
að kenna börnunum að deila með
sér hlutunum. Það væri engin ein
lausn á því hvernig góður leikskóli
ætti að vera. Skipulagið færi eftir
þeim markmiðum sem væru með
starfinu og menningú á hveijum
stað.
Leikskólinn
tekur á móti
öllum börnum
á forsendum
hvers og eins
Krafan um
skipulag get-
ur komið nið-
ur á innbyrðis
tengslum
Norskum
nemendum
leiðist
UM 60% nemenda í Noregi leiðist í
skólanum og finnst námið of ein-
hæft. Er þetta oft orsök hegðunar-
vandamála, að sögn fræðimanna.
Thomas Nordahl og Mari-Anne
Sorlie við Rannsóknarstofnun upp-
eldis, velferðar og öldrunarmála í
Noregi, NOVA, hafa kannað ástand
mála í grunnskólum og framhalds-
skólum. Um 1.100 nemendur tóku
þátt í rannsókninni ásamt kennurum
og foreldrum nemenda.
Meira en helmingur nemenda seg-
ist oft hverfa á vit dagdrauma í
kennslustundum eða beina athygl-
inni að öðru en náminu. 20% segjast
vera einmana eða niðurdregin í frí-
mínútum. Kennarar álíta að á milli
10 og 20% nemenda eigi við ein-
hvers konar hegðunarvanda að
stríða, 64% þeirra séu drengir. Ljóst
er af svörunum að kennarar og nem-
endur eru mjög ósammála um hvað
sé hegðunarvandi.
Þeim sem aðlagast
er hyglað
„Skólinn virðist hygla þeim sem
gengur vel að laga sig að aðstæðum,
traustu og hlýðnu nemendenum,"
segir Nordahl. „Með þessu heldur
skólinn við og hyglar ákveðinni
formfestu og samskiptareglum sem
að miklu leyti henta stúlkunum."
Hann telur að drengirnir fái ekki
útrás fyrir líkamlega hreyfingarþörf
sína og þess vegna geti þeir orðið
út undan í kennslu. „Þeir mótmæla
og þá vekja þeir athygli kennarans
á neikvæðan hátt sem skilgreinir
þetta sem hegðunarvanda.“
Nordahl telur að skólinn verði að
leggja meiri áherslu á þátttöku nem-
endanna í ákvörðunum. Nýta beri
betur áhuga nemendanna sjálfra og
forgangsröðun þeirra.
Tiiraunir á
menntaskólastigi
í Noregi eru nú gerðar tilraunir
með menntaskóla þar sem nemendur
hafa meiri ákvörðunarrétt varðandi
kennslutilhögun og námsefni. Lýsa
þeir mikilli ánægju með þetta fyrir-
komulag, segja m.a. að kennararnir
séu mun áhugasamari en í hefð-
bundnu skólunum.
Kennarastofan hefðbundna er úr
sögunni, sameiginleg hvíldarstofa er
fyrir nemendur og kennara í frímín-
útum og skólastjóri er valinn af öll-
um hópnum á tveggja ára fresti.
„Þetta er mikill kostur fyrir nemend-
urna. Ef okkur finnst að skólastjór-
inn sé orðinn dasaður og hann ráði
ekki við starfið getum við kosið nýj-
an,“ segir einn nemendanna.
-----♦ ♦ ♦
Ný kennsluforrit
• NÁMSGAGNASTOFNUN hefur
gefið út ný kennsluforrit bæði fyrir
PC-tölvur og Machintosh. Leikver
heitir kennsluforrit í móðurmáli fyr-
ir PC-tölvur eftir Birgi Edwald,
Hildigunni Halldórsdóttur og Sop-
hie Kofoed Hansen. í þessu forriti
eru þjálfuð hugtök, form, fjöldi, sam-
lagning, mengi, bókstafir, mynstur
o.fl. Sé hljóðkort í tölvunni er talað
til nemandans. Forritið hentar eink-
um börnum frá 5 ára aldri. Tækni-
legar kröfur: Windows 3.1, hljóð-
kort, 8 Mb vinnsluminni.
• Málfræðigreining er þjálfunar-
forrit í ýmsum grunnþáttum mál-
fræðinnar og er til bæði fyrir Mac-
og PC-tölvur. Forritið er þyngdar-
greint þannig að það hentar nemend-
um allt frá 10 ára til fyrstu áfanga
í framhaldsskóla. Forritið eykur
þjálfun í formlegri málfræði, veitir
nemendum tækifæri til að nema á
eigin hraða og auðveldar kennurum
að fá yfirlit yfir málfræðikunnáttu
nemenda. Höfundur er Sigurður
Davíðsson. Tæknilegar kröfur:
Macintosh-tölvur: Forritið þarf kerfi
7.0 eða nýrr, 4 Mb í vinnsluminni
og u.þ.b. 1,2 Mb laust pláss á harða
diskinum. PC-tölvur: Windows 3.1.
eða nýrra og 4 Mb laust pláss á
harða diskinum.