Morgunblaðið - 22.04.1997, Page 40

Morgunblaðið - 22.04.1997, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Ómskoðun á meðgöngu FYRIR nær 13 árum var byijað að bjóða þunguðum kon- um ómskoðun við 18-19 vikna með- göngulengd. Starf- semin hófst á kvenna- deild Landspítalans og landsbyggðin fylgdi eftir á næstu 2-3 árum. Almennar leið- beiningar til lækna og ljósmæðra um tilgang og framkvæmd óm- skoðunar voru birtar í árslok 1986. Áður höfðu námskeið verið haldin á Landspítalan- um til að kenna frumatriði ómskoð- unar hjá þunguðum konum. Nú er ómskoðun á meðgöngu gerð á 15 stöðum á landinu af 11 sérfræðing- um í fæðinga- og kvensjúkdóma- fræði, 7 ljósmæðrum, 3 skurðlækn- um og 6 eða 7 heimilislæknum. Um V4 af öllum skoðunum eru gerðir á ómdeild kvennadeildar Landspítalans, þar sem starfs- mannaheimildir til að annast tæpar 10 þúsund skoðanir á ári eru hálf staða læknis, um ein og hálf staða ljósmóður og hálf staða ritara. Hjón frá Dalvík rita tímabæra grein í Morgunblaðið 2. apríl síð- astliðinn og varpa þar fram áleitn- um spurningum sem upp komu eftir að þau höfðu eignast dreng með alvarlegan mænugalla. Gall- inn hefði sennilega átt að sjást við 18-19 vikna ómskoðun en fannst ekki. Þeim var sagt að fæðing barna með miðtaugakerfisgalla væri landsbyggðarvandamál. Þau spyija hvort tækjakostur sé slæm- ur utan Reykjavíkur, hvort sér- fræðingar séu betur þjálfaðir í Reykjavík og hversvegna móðir í áhættuhópi verði að fara til Reykjavíkur á stærstu ómdeildina. Athuganir á greiningu alvar- legra fósturgalla hafa sýnt að á síðustu 12 árum greindust alvar- legir gallar við 18-19 vikna skoðun aðeins í litlum mæli utan Reykja- víkur. Þetta á sérstaklega við um miðtaugakerfis-, hjarta- og melt- ingarfæragalla, en einnig aðra. Greining við 18-19 vikur er mikil- væg. Þá tekst að sjá flesta stærri líffæragalla og enn er unnt að bjóða foreldrum fóstureyðingu til að koma í veg fyrir að fóstur sem ekki á lífsvon eða verður alvarlega fatlað fæðist, eða þá að undirbúa fæðingu barnsins í því skyni að veita því rétta meðferð frá upp- hafi. Ástæður þess að alvarlegir gallar finnast ekki nægilega oft utan Reykjavíkur er ekki unnt að rekja til verri tækja- kosts. Hann hefur á flestum stöðum, nema á Akureyri, verið nær jafngóður og í Reykja- vík. Vandamálin utan Reykjavíkur hafa tengst verri þjálfun þeirra sem skoðunina framkvæma, of fáum konum sem verið er að skoða á hveijum stað og skorti á skipu- lagi við uppbyggingu þjónustunnar. Of margir með ónóga ReynirTómas þekkingu og þjálfun Geirsson að eru ag skoða of fáar konur. Þar sem flest fóstur eru heilbrigð gerist oftast ekkert í langan tíma, en slys verða óhjá- kvæmilega alls staðar fyrr eða síð- ar, einnig í Reykjavík. Málið snýst um að minnka líkur á að alvarleg- ur galli fari fram hjá þeim sem skoðar. Hvað er þá til ráða? Ekki er unnt að hafa bestu sérfræðiþekk- ingu tiltæka á öllum 15 stöðum á landinu. Óhjákvæmilegt er að hafa einn stað á landinu þar sem mesta þekkingin er og nota hana við skoð- Grein hjónanna frá Dal- werzalitr í glugga SÓLBEKKIR Þola fyrirliggjandi vatn SENDUM I PÓSTKRÖFU Þ. ÞORGRÍM5SON & CO I Ármúla 29 • Reykjavík • Simi 553 8640 Glœsileg hnífapör í miklu úrvali SILFURBUÐIN Kringlunni á-12 • Sími 568 9066 - Þarfeerðu gjöfina - vík, segir Reynir Tóm- as Geirsson, hlýtur að vera heilbrigðisyfirvöld- um og þingmönnum al- varleg ábending. un þeirra sem eru í áhættuhópum og þar sem grunur vaknar um fóst- urgalla. Jafnvel ómdeild kvenna- deildar Landspítalans, bakhjarl hinna staðanna á landinu, þarf bak- hjarl í formi samvinnu við sérdeild- ir í nágrannalöndunum. Hinsvegar þarf að koma ómskoðun í landinu þannig fýrir, í ljósi batnandi sam- gangna og af augljósum hagræð- isástæðum, að skoðunarstaðir séu tiltölulega fáir. Aðalskoðunarstað- urinn með mesta greiningargetu og viðeigandi erfðagreiningu og erfð- aráðgjöf á að vera kvennadeild Landspítalans, en góð sérþekking þarf einnig að vera tiltæk á Akur- eyri. Þeir sem skoða ættu að fá til þess sérstaka vottun frá heilbrigðis- yfirvöldum eftir tilhlýðilegt nám og sýna fram á að þeir haldi þekking- unni við. Reynt hefur verið af hálfu kvennadeildar Landspítalans og Landlæknisembættisins að hvetja þá sem við þetta starfa til að afla sér góðrar fræðilegrar kunnáttu og starfsþjálfunar. Staðall um það hef- ur verið saminn að erlendri fýrir- mynd. Staðreyndin er samt sú að margir af þeim sem skoða hafa ekki uppfyllt þennan staðal. Aðrir hafa smám saman náð því sem til þarf, en sumir aldrei. Hver sem er á ekki að geta sest við tækið, sett al'mælistil JSI3 Ath: þ( tta tillioð gildir aöcins lyrir þá scm kattpa kort í Irjálsu kerlíú (Iaf'una 15. - 2ö. apríl '!I7 það í gang, skoðað og gefíð út svar um að allt virðist í lagi, jafnvel ekki þó hann hafl lokið prófi í sér- grein læknisfræði eða ljósmóður- fræði. Til að halda fæmi þarf að skoða með réttum og skipulegum vinnubrögðum, þekkja það sem er eðlilegt og hvað getur verið af- brigðilegt og gera ekki færri en 2-300 skoðanir á ári. Á íslandi getur víða verið erfítt að ná þessu marki utan Reykjavíkur. Mönnum þarf því að vera Ijóst hvar takmörk- in liggja og hver ábyrgð þeirra er. Velja þarf um það hvort þjónusta eigi að vera á mörgum smærri stöð- um þar sem lítið umfang þjón- ustunnar gerði líklegra að fóstur- gallar fyndust ekki eða hafa færri og stærri staði. í síðara tilvikinu yrði fólk að ferðast nokkra vega- lengd til að fá vandaðri og sérhæfð- ari þjónustu. Fjarlækningar, þar sem bein tenging er við ómdeild kvennadeildar frá iandsbyggðar- tæki, gætu komið að gagni. Enn er þó ekki búið að þróa tæknina né tryggja mannafla og tækjakost í slíkt. Unnt er að fá vísbendingu um tilvist miðtaugakerfísgalla og nokk- urra helstu litningagalla með svo- kölluðu þrí-prófí. Þá er tekið blóð- sýni við um 15 vikna meðgöngu til að mæla 3 efni í blóði móður. Eitt efnanna nefnist alfa-fósturprótín. Við mænugalla lekur það frá fóstri út í legvatnið og berst þaðan í móðurblóð. Ef hátt magn mælist í móður getur það verið vegna mænugalla. Þá þarf ómskoðun á tilvísunarstað eins og kvennadeild- inni. Prófíð minnkar líkur á að misst sé af miðtaugakerfísgöllum við 18 vikna ómskoðunina. Með því að athuga magn allra þriggja efnanna með tilliti til aldurs móður er einnig hægt að fínna tímanlega um 73 fóstra með alvarlega litningagalla. Löngu er tímabært að taka þetta próf í notkun hér á landi hjá öllum þunguðum konum. Þrí-próf verður hinsvegar ekki túlkað rétt án ná- kvæmrar vitneskju um meðgöngu- lengd snemma í þungun. Því þarf jafnframt að auka við ómskoðunar- þjónustuna. Til viðbótar þarf úrlest- ur og túlkun prófsins að vera í höndum kunnáttufólks á einum stað og læknisfræðileg erfðaráðgjöf að vera fáanleg og af háum staðli þegar prófið er afbrigðilegt. Grein hjónanna frá Dalvík hlýtur að vera heilbrigðisyfírvöldum og þingmönnum alvarleg ábending um að sjá til þess að fé verði veitt til að gera umbætur á ómskoðun fyrir þungaðar konur með upp- byggingu færri og faglega sterkari skoðunarstaða og byija alls staðar á landinu á þrí-prófi á þessu ári. Fósturgreininga- og erfðafræði- deild á kvennadeild Landspítalans þarf að verða til upp úr gömlu „sónardeildinni", með nauðsynleg- um mannafla og tækjum og í betra húsnæði en nú er. Tugþúsundir karla og kvenna sem hafa komið á sónardeildina vita hversu erfiðar aðstæður eru þar. Fósturgreining á landsbyggðinni batnar seint nema vel sé staðið að rekstri aðal- fósturgreiningadeildar landsins. Höfundur er dr. med., prófessor og forstöðulæknir kvennadeildar Landspítalans. Óslcalisti brúðhjónanna Gjafaþjónusta fyrir brúðkaupið /Q) SILFURBÚÐIN NJL/ Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066 - Þar fœröu gjöfina -_ Miðborg með framtíð? Miðborgarsamtök Reykjavíkur vilja efla stöðu miðborgarinnar MIÐBORGARSAM- TÖK Reykjavíkur eru heildarsamtök hags- munaaðila í miðborg Reykjavíkur og hafa samtökin það að markmiði að efla mið- borgina sem helsta og virkasta verslunar-, við- skipta- og þjónustu- svæði landsins. Sú þró- un sem hefur átt sér stað í miðborg Reykja- víkur á undanfömum áram og sérstaklega í Kvosinni, er vel þekkt erlendis. Uppbygging verslunarsvæða í út- hverfum dregur til sín góðar verslanir á kostnað miðborgar- innar og hún drabbast niður. Þessari þróun þarf að snúa við og stuðla þess í stað að uppbyggingu öflugrar verslunar á svæðinu. Huga þarf að því að hæfíleg blanda af verslunum, þjónustufyrirtækjum og veitingahús- um skapar litríkt mannlíf í miðborg- inni hvort sem er á daginn, kvöldin eða um helgar. Aðlaðandi útivistar- umhverfi eins og Tjömin og Hljóm- skálagarðurinn draga að fólk, en bjóða þarf upp á þægilegt aðgengi gangandi sem akandi til og frá mið- borginni. Tryggja þarf stöðugleika Stöðugleiki þarf að ríkja í skipu- lagsmálum, umferðarmálum, sam- göngumálum, bílastæðamálum og öðra sem hefur áhrif á afkomu og rekstur fýrirtækja og fasteigna í miðborginni. Framkvæmdir og sam- þykktir borgaryfírvalda í skipulags- málum hafa sumar verið samhengis- lausar gagnvart öðram þáttum í gild- andi deiliskipulagi. og endurskoða Móta þarf ákveðna stefnu í málum miðbæj- arins. Guðmundur G. Kristinsson nefnir hér nokkrar hugmyndir þar að lútandi. þarf því deiliskipulagið upp á nýtt í samvinnu við hagsmunaaðila. Eitt besta dæmið um þetta er lokun á Hafnarstrætis sem nýlega var sam- þykkt í borgarráði. Vinna þarf nýtt deiliskipulag og setja upp heildar- stefnumótun sem taki til sem flestra þátta, s.s. umferðar gangandi og akandi, bflastæða, samgangna að og frá miðborginni, samsetningar fyrir- tækjaeininga, tengingar Kvosarinnar við Bankastræti og Laugaveg, endur- gerðar efri hlutar Laugavegs, aukins gróðurs í miðborginni, endurskoðun- ar á fasteignamati, endurgerðar Lækjartorgs, útivistarsvæða, íbúa- byggða og fleira mætti telja til. I bflastæðamálum miðborgarinnar er rekin skattastefna sem innheimtir á þriðja hundrað milljónir króna á ári. Bjóða þarf upp á frí stæði á stærri bílastæðum á laugardögum og ókeypis í bflastæði eftir kl. 16 á virk- um dögum. Starfsmenn í bflastæða- umhverfínu þurfa að starfa sam- kvæmt þjónustustefnu, en ekki sem harðir rakkarar á bílastæðasektum. Endurfjármagna og lengja þarf fram- kvæmdalán til bflastæðahúsa til að geta lækkað gjaldtökuna og fínna ódýr eða ókeypis bílastæði fýrir þá sem stunda vinnu í miðborginni (t.d. uppi á Faxaskála). Til greina gæti komið að Miðborgarsamtök Reykja- víkur taki að sér rekstur stöðumæla, bflastæða og bflastæðahúsa. í Kvosinnni þarf að lækka fasteign agjöld og bjóða upp á framkvæmda- styrki og/eða hagstæð langtímalán til verslana sem vilja skapa sér þar framtíðar- aðstöðu. Leggja þarf grann að lifandi mann- lífsstarfsemi í öllu stærra húsnæði í mið- borginni eins og Hafn- arhúsinu og gömlu Morgunblaðshöllinni við Ingólfstorg og breyta neðstu hæðinni á þess- um húsum í opin versl- unaramhverfí. Byggja þarf upp litla verslunar- kjarna vítt og breitt um miðborgarsvæðið með reglulegu millibili frá Hlemmi og niður að Ing- ólfstorgi. Leggja þarf ríka áherslu á að laða að lifandi og virka starfsemi í Tryggvagötu, Hafnarstræti, Hverfisgötu og aðrar götur í miðborginni. Hraðleiðir og minni mengun Bjóða þarf upp á hraðleiðir stærri almenningsvagna að og frá miðborg- inni og minni vagna sem fari með stuttu millibili á milli Hlemms og Ingólfstorgs með viðkomu á öllum stærri bílastæðum og bflastæðahús- um. Miðborgarsamtök Reykjavíkur gætu tekið að sér rekstur á þessum miðborgarvögnum og í framtíðinni ætti að stefna að því að nota raf- drifna vagna til að minnka mengun. Gera þarf miðborgina aðgengilega fyrir einkabíla, en mikill meirihluti þeirra sem eiga þar viðskipti, koma á einkabflum. Umferðarflæði þarf að vera gott að og frá miðborginni og bjóða upp á næg bflstæði. Gera þarf Hverfísgötu að tvíakstursgötu í báðar áttir og skapa þægilega aðkomu að Laugavegi, Skólavörðustíg og öðram götum í efri hluta miðborgarinnar. Huga þarf vel að tengingu Kvosar- innar við efri hluta miðborgarínnar (Bankastræti, Laugaveg, Hverfis- götu og Skólavörðustíg). Setja þarf upp upplýsingaspjöld sem víðast um miðborgina, þar sem komi fram hvar viðkomandi er stadd- ur með tilliti til helstu staðhátta. Fjölga þarf raslafötum, símaklefum, almenningssalemum, aðstöðu fyrir barnafólk og gera þarf veralegt átak til betri hreinsunar í miðborginni. Samstarf hagsmunaaðila um að efla ferðamennsku og verslun Nýleg kynning á verkefni nokk- urra aðila ásamt Miðborgarsamtök- um Reylg'avíkur varðandi verslun- arferðir efnaðra Bandaríkjamanna til landsins, er gott dæmi um sameinað átak til eflingar á ferðamennsku og verslun. Leggja þarf grann að frek- ara samstarfi í þessum efnum og vinna ákveðna stefnumótun um markmið og leiðir til næstu áratuga. Þetta er aðeins brot af þeim hug- myndum sem Miðborgarsamtök Reykjavíkur hafa um bætt ástand í umhverfi miðborgarinnar og samtök- in lýsa eftir heildarstefnumótun borg- arinnar í helstu hagsmunamálum miðborgarinnar. Allir sem koma að umhverfí miðborgar Reykjavíkur þurfa að taka höndum saman til að efla hana og með samstöðu skapa styrkinn til að byggja þar upp öflugt menningar-, verslunar-, veitinga- og viðskiptasvæði. Miðborgarsamtökin gera kröfu til þess að borgaryfirvöld á hveijum tíma, vinni samkvæmt heilstæðri stefnu í góðri samvinnu við hagsmunaaðila, með það að markmiði að tryggja miðborginni þann sess sem henni ber í verslun- ar-, viðskipta- og menningarsögu landsins til lengri tíma. Höfundur er formaður Miðborgarsamtaka Reykjavíkur. Guðmundur G. Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.