Morgunblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997 13
Iðnaðarráðherra vill viðamikla könn-
un á viðhorfi Eyfirðinga til stóriðju
Rannsóknir við Dysnes
hafa kostað 18 millj.
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð-
herra vill að gerð verði viðamikil
könnun meðal Eyfirðinga um við-
horf þeirra til hugsanlegrar stóriðju
í firðinum. Ekki sé forsvaranlegt
að veija fé í kostnaðarsamar rann-
sóknir ef óvissa ríkir um vilja
heimamanna til stóriðju. Þetta kom
fram á hádegisfundi á Fiðlaranum
í gær þar sem leitað var svara við
því hvort stóðiðja væri hluti af
framtíðarsýn Eyfirðinga.
Iðnaðarráðherra telur Eyjafjörð
ákjósanlegan stað fyrir stóriðju og
er Dysnes í Amameshreppi þar hag-
kvæmasti kosturinn að hans mati.
Þar hafa á síðasta rúma áratug far-
ið fram umfangsmiklar rannsóknir
á ýmsum sviðum og miklu fé ogtíma
til þeirra varið. Á tímabilinu 1990
til 1994 varði ríkið 18 milljónum
króna til umhverfisrannsókna og
lóðaathugana á Dysnesi en þó liggur
enn ekkert fyrir hvort möguleiki er
á að þar rísi stóriðja.
Finnur sagði það sitt mat að
Árskógsströnd væri lakari kostur
undir stóriðju en Dysnes og sagði
að ríkið myndi ekki leggja út í
kostnaðarsamar rannsóknir víðar í
Eyjafirði, en áætlað væri að um 15
milljónir króna kostaði að gera
nauðsynlegar rannsóknir á Ár-
skógsströnd. Ef vilji heimamanna
væri ótvíræður yrðu sveitarfélögin
að koma sterkar inn í málið og taka
þátt í kostnaði á móti ríkinu. Kæmi
síðar í Ijós að heimamenn væru
ekki tilbúnir að taka við stóriðju í
sinni heimabyggð yrðu sveitarfélög-
in að greiða ríkinu til baka þann
kostnað sem lagt hefði verið í vegna
rannsókna.
Myndi ijúfa stöðnun
Ingi Bjömsson, framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar, komst að
þeirri niðurstöðu að stóriðja hefði
afgerandi áhrif á mannafla og
vinnumarkað í Eyjafirði, en myndi
ekki raska um of því atvinnu-
mynstri sem fyrir væri og myndi
ijúfa þá stöðnun sem verið hefði á
því sviði undanfarin ár. Fram kom
í máli hans að ef 200 þúsund tonna
álver risi á svæðinu mætti gera ráð
fyrir að íbúum myndi fjölga um
2.600. Þá taldi hann ekki ástæðu
til að óttast alvarlega félagslega
röskun í kjölfar stóriðju.
Sinubruni úr böndunum
Morgunblaðið/Kristján
PLÖNTUR skenundust í sinubruna við bæinn Hlé-
berg í Eyjafjarðarsveit eftir hádegi í gær. Verið
var að brenna hálm af akri þegar vindátt breytt-
ist skyndilega en við það fór allt úr böndunum og
einn maður sem var a ð brenna sinuna réð ekki
við neitt. Kallað var eftir aðstoð Slökkviliðs Akur-
eyrar og gekk vel að slökkva eldinn eftir að hjálp
barst.
Viðurkennir bótaskyldu
TRYGGINGARFÉLAG græn-
lenska togarans Nataarnaq, Polar
Insurance, hefur viðurkennt bóta-
skyldu og samþykkt að greiða
áætlaðan viðgerðarkostnað vegna
tjóns sem varð á slippkantinum
við Slippstöðina á Akureyri um
miðjan febrúar sl., samtals 13,2
milljónir króna.
Fylling grófst undan stálþili á
20-30 metra kafla og við það rann
fylling innan við þilið út í sjó með
þeim afleiðingum að þekja bryggj-
unnar féll niður. Talið er að atvikið
hafi átt sér stað er verið var að
prufukeyra vél og skrúfubúnað
grænlenska togarans við slippkant-
inn.
Guðmundur Sigurbjömsson,
hafnarstjóri Hafnasamlags Norður-
lands, segir stefnt að því að ráðast
í viðgerð á slippkantinum hið fyrsta.
Hann sagði að starfsmenn hafnar-
innar myndu sjá um framkvæmd
verksins en fá til liðs við sig aðila
í gegnum tilboð, til að sjá um
ákveðna verkþætti.
Metþátttaka
á Hængsmóti
HÆNGSMÓTIÐ, hið árlega
íþróttamót fatlaðra sem Lionsklúb
burinn Hængur stendur að, verður
sett í íþróttahöllinni á Akureyri í
dag kl. 16. Yfir 230 keppendur frá
14 félögum víðs vegar af landinu
eru skráðir til leiks og er þetta
stærsta og fjölmennasta Hængs-
mótið til þessa.
Keppt er í fjórum greinum, bocc-
ía, bæði einstaklings- og sveita-
keppni, bogfimi, borðtennis og lyft-
ingum. Keppni hefst að lokinni setn-
ingarathöfn í dag og verður fram-
haldið á morgun og á laugardag.
Mótinu lýkur svo með lokahófi í
íþróttahöllinni á laugardagskvöld.
Vegna hinnar miklu þátttöku fer
keppni í bogfimi fram í íþróttahús-
inu á Hrafnagili á laugardag.
Hreinsa rusl
í bænum
MEMENDUR í þriðja bekk Mennta-
skólans á Akureyri ætla að hreinsa
rusl í bænum dagana 2. og 3. maí.
Auk þess sem þetta framtak
þriðju bekkinga er í þágu umhveris-
mála og fegrunar bæjarins, hafa
þeir safnað áheitum hjá fyrirtækj-
um á Akureyri síðustu daga sem
renna mun í ferðsjóð þeirra.
Tónlistarmark-
aðnum að ljúka
MIKIL aðsókn hefur verið að stóra
tónlistarmarkaðnum á Akureyri, en
honum lýkur um helgina.
Á markaðnum eru yfir 10 þúsund
titlar af geisladiskum, myndbönd-
um, kassettum og tölvuleikjum á
markaðsverði. Markaðurinn er til
húsa í Hafnarstræti 95. Sérstök
lokatilboð verða í gangi um helgina.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL: Kyrrðar-
og bænastund í Grenivíkurkirkju
sunnudaginn 4. maí kl. 21.
Messað verður í Kaupvangs-
kirkju í Eyjafjarðarsveit kl. 13.30
á sunnudag, 4. maí og á Kristnes-
spítala kl. 15 sama dag.
Vortónleikar
blásaradeildar
NEMENDUR blásaradeildar Tón-
listarskólans á Akureyri flytja fjöl-
breytta dagskrá á tónleikum i Gler-
árkirkju á laugardag, 3. maí kl. 16.
Fram koma fjórar hljómsveitir.
Jón Halldór Finnsson stjórnar eldri
sveit, en hún er skipuð nemendum
á blásturs- og slagverkshljóðfæri
sem lengst eru komnir i námi.
Sveinn Sigurbjörnsson stjórnar
yngri sveit, en blokkflautusveit
skólans og hópurinn Blokkó eru
undir stjórn Jacqueline FitzGibbon.
Aðalfundur
Sögufélags
AÐALFUNDUR Sögufélags Ey-
firðinga verður haldinn í lestrarsal
Amtsbókasafnsins 2. maí, kl. 20.30.
Gengið er inn að vestan.
Að loknum venjulegum aðalfund-
arstörfum flytur Unnur Karlsdóttir
sagnfræðingur erindi.
Jón sýnir á
Kaffi Karólínu
JÓN Laxdal Halldórsson opnar sýn-
ingu á Kaffi Karólínu 3. mai.
Jón hefur fengist við svonefnt
„collage" eða klippimyndir og jafn-
an leitað fanga í prentuðu máli,
dagblöðum, bókum og því um líku.
Á sýningunni nú eru mest handunn-
ir dúkar.
Tónleikar í MA
DANSKA tríóið Bazar heldur tón-
leika í Hólum, sal Menntaskólans á
Akureyri í kvöld, fimmtudaginn 1.
maí kl. 21.00.
„Súper" framhald!
Síöustu 5 kilóin fjúka.
Meira aöhald og erfiöari tímar.
mmmim
HGUSTU & HHHFNS
SKEIFAN 7 III REVKJAVÍK S. 533-3355
njóta sín
betur í
sólinni!
sandala og sumarkjóla er að
ganga í garð. Húerrétti
tímlnn tll að gera slg klára
fyrlr sumarið og fara á
árangursríkt og skemmtilegt
fitubrennslunámskeið hjá
Stúdíói Ágústu og Hrafns.
HJóttu þín í sumar!
VátW
8-vikna frfcubrennslu-
námskeið:
• Þjálfun 3-5x I viku
• Fræðslu- og kynningarfundur
• FltumæBngar og vlgtun
• Uppskrlftabókin „Léltír réttir“
150 frttoærar uppskrittir
• Nýr upplýsingabseklingur:
„í forml tíl framtíðar"
• Mjög mitóð aöhakl
• Vinntngar dregnirút
f hverri viku
• Fritt 3ja mán. kort fyrir
5 heppnar og samviskusamar
Kvöldhópar
Daghópur
Morgunhópur
Framhaldshópur
Bamagæsla
Hefst 5. maí
Blóm: Blómaval
Sundbolir: Útlllf