Morgunblaðið - 01.05.1997, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Vatn og brauð!
RÚSSNESKIR hermenn snæða
hádegisverð í hinum illrædmu
betrunarbúðum hersins í Múlíno,
400 km austur af Moskvu. í
búðunum eru vistaðir hermenn
sem gerst hafa brotlegir við aga-
reglur og er vistin í Múlíno og
sambærilegum búðum jafnað við
nauðungarvinnu í þrælkunarbúð-
um.
Forseti Tadsí-
kistan særist í
spr engj utilræði
Dúshanbe. Reuter.
IMOMALI Rakhmonov, forseti
Tadsíkistans, slapp naumlega þeg-
ar honum var sýnt banatilræði í
gær, en tveir menn biðu bana í
árásinni og 49 særðust.
Handsprengju var kastað að
Rakhmonov þegar hann steig út
úr bifreið sinni í bænum Khudjand
í Lenínabad-héraði. Hann særðist
á báðum fótum en gat þó staðið
upp til að halda ræðu í leikhúsi í
bænum skömmu síðar.
Forsetinn hafði verið við athöfn
í tilefni þess að 65 ár eru liðin frá
stofnun háskóla í bænum og var
á leiðinni í leikhúsið þegar árásin
var gerð.
Fréttafulltrúi forsetans, Zafar
Zaidov, sagði að tveir menn, 17
ára námsmaður og þrítugur kenn-
ari, hefðu beðið bana í tilræðinu.
„Forsetinn sagði, eftir að gert var
að sárum hans, að hryðjuverka-
hreyfing hefði staðið fyrir árá-
sinni,“ sagði fréttafulltrúinn.
Gæti tengst fangauppreisn
Zaidov sagði að 21 eins árs
maður, Firdavs Dústbobojev, bæri
ábyrgð á tilræðinu og hefði verið
handtekinn nánast samstundis.
Hann hefði skipulagt mótmæli
gegn stjóm landsins í bænum fyrir
ári.
Borgarastyrjöld hefur geisað í
Tadsíkistan í fjögur ár og kostað
tugi þúsunda manna lífið. Vopnað-
ir hópar stjórnarandstæðinga
flakka enn um sovétlýðveldið fyrr-
verandi og friðarviðræður hafa leg-
ið niðri síðustu vikur.
Samtök íslamskra stjómarand-
stæðinga, sem hafa barist gegn
stjómarhemum, sögðust ekki hafa
átt nokkurn þátt í banatilræðinu.
Talsmaður samtakanna og
stjómarerindrekar í Dúshanbe
sögðu að árásin gæti tengst ólgu
vegna fangauppreisnar í héraðinu
í liðnum mánuði. Talið er að fang-
ar, sem tóku þátt í mótmælunum
gegn stjóminni í fýrra, hafi staðið
fyrir uppreisninni. Öryggissveitir
réðust inn í fangelsið til að kveða
hana niður og urðu 20 föngum að
bana.
Há fjöll skilja Lenínabad frá
öðrum landshlutum og héraðið
hefur sloppið að mestu við átökin
sem hafa geisað í landinu.
Vilja bæta innri markaðinn
fyrir tilkomu evrósins
Brussel. Morgrunblaðið
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Evrópusambandsins kynnti í
gær hugmyndir sínar um
lokaátak í samræmingu innri
markaðar ESB fýrir tilkomu
evrósins í ársbyijun 1999.
Áætlun framkvæmdastjórnar-
innar hefur það að leiðarljósi
að fjarlægja þær hindranir
sem enn eru til staðar innan innri markaðarins,
gera regluverk hans áhrifaríkara og tryggja
skilvirkni hans fyrir íbúa aðildarríkjanna.
Þá tilkynnti framkvæmdastjórnin jafnframt
að hún hyggðist birta reglulega stigatöflu þar
sem sjá mætti hversu vel aðildarríkjunum gengi
að innleiða reglur innri markaðarins. Þessar
aðgerðir munu einnig ná til hinna þriggja EES-
landa, íslands, Noregs og Liechtenstein.
Meðal þess sem framkvæmdastjórnin leggur
áherslu á í tillögum sínum nú er að útiloka frek-
ari tafir á gildistöku þeirra reglna sem gilda
eiga á innri markaðnum, bæta eftirlit og auki
skilvirkni í afgreiðslu kærumála.
Þá hyggst framkvæmdastjórnin leggja til enn
frekari samræmingu á ýmsum sviðum svo sem
á sviði skattamála m.a. með
frekari samræmingu virðis-
aukaskatts og fjármagns-
tekjuskatts sem og frekari
samræmingu í tollgæslu.
Einnig vill framkvæmda-
stjómin bæta upplýsingaflæði
um reglur innri markaðarins
með því að gera allar þær regl-
ur sem lúta að fýrirtækjum aðgengilegar á alnet-
inu.
Hvað varðar hagsmuni almennings leggur
framkvæmdastjómin til að lokið verði við afnám
alls landamæraeftirlits á innri landamærum ESB
fyrir 1999 og að allar takmarkanir á ferða- og
búsetufrelsi íbúa aðildarríkjanna innan ESB
verði afnumdar.
Knappur tími til stefnu
Hvort hægt verður að hrinda svo viðamiklum
tillögum í framkvæmd á jafnskömmum tíma og
framkvæmdastjómin hefur nú lagt til er hins
vegar annað mál. Á blaðamannafundi í Brussel
í gær sagðist Mario Monti, sem fer með málefni
innri markaðarins innan framkvæmdastjórnar
ESB, ekki geta neitað því að mörg þessara
mála hefðu staðið í einstökum aðildarríkjum til
þessa en hann kvaðst engu að síður bjartsýnn
á að hægt yrði að hrinda þeim í framkvæmd
nú. Bæði kæmi þar til sú gríðarlega áhersla sem
aðildarríki ESB leggðu á innri markaðinn, auk
þess sem það yrði, pólitískt séð, sífellt vandræða-
legra fyrir þau aðildarríki sem hingað til hefðu
staðið á bremsunni að gera það áfram.
Monti lagði áherslu á að þessar aðgerðir
væru nauðsynlegar ef innri markaðurinn ætti
að skila þeim árangri sem honum væri ætlað
að skila. „Þessar tillögur framkvæmdastjórnar-
innar eru metnaðargjarnar. Það mun þurfa tals-
verðan pólitískan vilja af hálfu stofnana og
aðildarríkja sambandsins, ekki aðeins til að
styðja þessar tillögur heldur einnig til að hrinda
þeim í framkvæmd á þeim stutta tíma sem til
stefnu er.“
Næsta skref framkvæmdastjórnarinnar verð-
ur nú að ræða þessar tillögur við hlutaðeigandi
aðila, þar á meðal Evrópuþingið og ráðherraráð-
ið og er ætlunin að leggja þær í endanlegri
mynd fyrir ráðherraráðið á leiðtogafundinum í
Amsterdam í júní.
EVRÓPA^
Framkvæmdasljórn ESB leggur fram fjárlagatillögur fyrir 1998
Aukið aðhald
í anda EMU
Brussel.Morgunblaðið
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins (ESB) lagði í gær
fram drög að fjárlögum fyrir næsta
ár. Þau fela í sér að heildarútgjöld
framkvæmdastjórnarinnar verði
rúmlega 91 milljarður ECU, eða
sem samsvarar tæplega 7.400 millj-
örðum íslenskra króna. Þetta sam-
svarar um 2,4% aukningu miðað
við yfirstandandi ár en er engu að
síður talsvert undir því þaki sem
sett var á útgjöld framkvæmda-
stjórnarinnar á leiðtogafundinum í
Edinborg árið 1992.
Áætlað er að heildarútgjöldin
nú verði um 5,8 milljörðum ECU
eða röskum 470 milljörðum ís-
lenskra króna undir þessu þaki.
Hyggst framkvæmdastjórnin með
þessum hætti leggja sitt af mörk-
um til aðhalds aðildarríkjanna að
ríkisútgjöldum vegna tilkomu
Efnahags- og myntbandalags Evr-
ópu (EMU).
Erkki Liikanen, sem sem fer með
fjármál framkvæmdastjórnarinnar,
sagði á blaðamannafundi í Brussel
í gær að samhliða þessum aðhalds-
aðgerðum hyggðist framkvæmda-
stjórnin grípa til endurskipulagn-
ingar í skrifstofuhaldi sínu til að
gera það hagkvæmara. Hygðist hún
m.a. færa fjárráð út í einstakar
deildir og verðleggja alla þjónustu
innanhúss til að auka kostnaðarvit-
und starfsmanna.
Útjöld til landbúnaðarmála
nær helmingur heildarútgjalda
Sem fýrr er landbúnaðarstefna
ESB fyrirferðarmest í tillögum
framkvæmdastjómarinnar. Heild-
arútgöld til þessa málaflokks eru
áætluð rösklega 3.300 milljarðar
króna, eða sem samsvarar um 45%
af heildarútgjöldum framkvæmda-
stjómarinnar. Útgjöld til þessa mála-
flokks munu þó aukast hlutfallslega
minna en til annara málaflokka, eða
um 0,5%. Raunar dragast útgjöld til
markaðsaðgerða lítillega saman en
önnur útgjöld aukast á móti.
Útgjöld til styrkjakerfis ESB
aukast um 6,3% samkvæmt tillög-
unum og munu þau nema röskum
2.700 milljörðum króna. Útgjöld
Fiskveiðasjóðs ESB verða hins veg-
ar skorin niður um rúm 5%.
Þess má geta að stjórnunarkostn-
aður framkvæmdastjórnarinnar
mun standa í stað og nema 4,7%
af heildarútgjöldum. Þetta er jafn-
framt eini hluti fjárlaga yfirstand-
andi árs sem skorinn var niður í
meðferð Evrópuþingsins og ráð-
herraráðsins, en þessir tveir aðilar
eiga lokaorðið um fjárlög fram-
kvæmdastjómarinnar.
STUTT
Sagður
geta boðið
sig fram
STJÓRNARANDSTÆÐING-
AR í Serbíu mótmæltu í gær
þeirri staðhæfíngu Ratkos
Markovic, aðstoðarforsætis-
ráðherra lands-
ins, að Slobod-
an Milosevic
forseti gæti
gefið kost á sér
í kosningunum,
sem eiga að
fara fram fyrir
lok ársins, þótt
stjómarskráin
kveði á um að
enginn geti gegnt embættinu
lengur en í tvö kjörtímabil.
Þetta er annað kjörtímabil
Milosevic en Markovic sagði
að forsetinn gæti gefið kost
á sér aftur þar sem hann hefði
boðað til kosninga árið 1992,
þremur ámm áður en fyrra
kjörtímabilinu lauk. Forystu-
menn stjómarandstöðunnar
sögðu þetta ranga túlkun á
stjómarskránni.
Milosevic
Sprenging í
herskipi
EINN maður beið bana og
fjögurra er saknað eftir
sprengingu í frönsku her-
skipi, sem sökk í Ermarsundi
nálægt bænum Cherbourg í
gær. Fimm menn særðust al-
varlega í sprengingunni og
voru fluttir með þyrlum á
hersjúkrahús. 16 skipveijar
og sex vopnasérfræðingar
vora í skipinu, sem var á
æfingu. Ekki var vitað um
orsök sprengingarinnar.
Ný aðferð við
lyfjagjöf
BANDARÍSKIR vísindamenn
sögðust í gær hafa þróað betri
aðferð til að koma lyfjum í
líkamann og hún byggist á
örsmáum pokum eða smá-
blöðram, sem líkjast framum.
Þessar smáblöðrar eiga að
geta komist í gegnum frumu-
himnurnar til að koma lyfjun-
um þangað sem þeirra er þörf.
Einn vísindamannanna sagði
að e.t.v. yrði hægt að beita
þessari aðferð til að bæta
lyfjagjafir við krabbameini.
Gajdusek í
fangelsi
DANIEL Carleton Gajdusek
nóbelsverðlaunahafi var
dæmdur í átján mánaða fang-
elsi á þriðjudag fyrir kynferð-
islega misnotkun á dreng,
sem hann tók með sér til
Bandaríkjanna eftir að hafa
stundað rannsóknir í Míkró-
nesíu.
Gajdusek, sem er 74 ára,
er í fangelsi í Maryland. Scott
Rolle, ríkissaksóknari, sagði
að vísindamaðurinn hefði tek-
ið tugi unglinga með sér frá
Míkrónesíu, eyjaklasa í
Kyrrahafi. „Hann misnotaði
ekki alla drengina, aðeins
nokkra þeirra," sagði Rolle.
Gajdusek hlaut nóbelsverð-
launin í lífeðlis- og læknis-
fræði árið 1976 fyrir rann-
sóknir sínar á kúariðu og
Creutzfeldt-Jakob sjúkdómn-
um.
I
>
i
i
1