Morgunblaðið - 01.05.1997, Síða 30
p
30 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Tilkynning um aimennt
hlutafjárútboð
og skráningu á
Verðbréfaþingi íslands
Marel hf
kt.620483-0369
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík
Fjárhæð útboðsins er 40.000.000 krónur að nafnverði.
Um að ræða nýtt hlutafé.
Útboðsgengi til forkaupsrétthafa er 13,75.
Forkaupsréttur miðast við eign í félaginu 12. mars sl.
Gengi hlutabréfanna verður 15,25 í almennri sölu í byrjun
en getur breyst á sölutímabilinu.
Upplýsingar um útboðsgengi fást hjá söluaðilum.
Sölutímabil: 2. maí 1997 til 30. júní 1997.
Forkaupsréttartímabil ertil 16. maí 1997
Búnaðarbankinn Verðbréf sölutryggir helming útboðsins,
20.000.000 krónur að nafnvirði.
Eldra hlutafé Marel hf. er skráð á Verðbréfaþingi íslands.
Tilgangur útboðsins er að fjármagna kaup Marels hf. á
Carnitech A/S af Sabroe A/S í Danmörku.
Útboðið er opið og eru bréfin seld gegn staðgreiðslu.
Nálgast má útboðs- og skráningarlýsingu hjá
Búnaðarbankanum Verðbréf sem jafnframt
er söluaðili hlutabréfanna.
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
Hafnarstræti 5,155 Reykjavík Sími: 525 6050 Fax: 525 6099
LISTIR
Ráðstefna
um Þórð
Þorláksson
RAÐSTEFNA verður í Skálholti
3.-4. maí í tilefni af þrjúhundruð-
ustu ártíð Þórðar Þorlákssonar bisk-
ups.
Sigurður Sigurðarson vígslubisk-
up setur ráðstefnuna laugardaginn
3. maí kl. 13.30. Þóra Kristjánsdótt-
ir segir frá myndum og munum úr
Þjóðminjasafni sem verða til sýnis í
Skálholti ráðstefnudagana. Loftur
Guttormsson, Gísli Gunnarsson og
Hjalti Hugason flytja erindi um Þórð
Þorláksson og samtíð hans. Sumar-
liði ísleifsson, Össur Skarphéðinsson
og Jón Ólafur ísberg ræða um land
og náttúru í verkum Þórðar Þorláks-
sonar. Ingólfur Guðnason segir frá
garðrækt í Skálholti á fyrri öldum.
Tíðasöngur. 17. aldar kvöldverður
verður snæddur. Sama kvöld kl.
20.30 verða tónleikar í Skálholts-
kirkju. Flutt verða einleiksverk eftir
nokkur af helstu tónskáldum 17.
aldar. Einnig verða flutt lög úr
kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á
Söndum (1560-1627) sem skrifuð
var árið 1693 í Vatnsfirði af séra
Hjalta Þorsteinssyni (1665-1754).
Flytjendur eru Haukur Guðlaugsson,
orgel, Elín Gunnlaugsdóttir, söngur,
Helga Ingólfsdóttir, semball og
clavichordium og Hilmar Örn Agn-
arsson, regal.
Sunnudaginn 4. maí kl. 10 ræða
Guðrún Ingólfsdóttir, Már Jónsson
og Sigurður Pétursson um skáldskap
og fræðistörf Þórðar Þorlákssonar.
Smári Ólason talar um viðbótina við
Grallarann eftir Þórð Þorláksson. 17.
aldar aldar messa verður kl. 14.
Ráðstefnan er öllum opin og að-
gangur er ókeypis.
VERK Sigrúnar Eldjárn, Biðstaðan, 1997.
Sigrún á Sjónarhóli
SÝNING á nýjum olíumálverk-
um eftir Sigrúnu Eldjárn verður
opnuð á Sjónarhóli næstkomandi
laugardag kl. 15. A sýningunni
koma fram kunnuglegir hlutir í
persónulegum myndtáknabanka
Iistakonunnar, svo sem himin-
blámi, þúfur, veggir, rúnaletur,
latneskt forngraffití og fólk, þar
á meðal peysufatakonur, að því
er segir í kynningu.
Segir þar ennfremur: „Mynd-
irnar spegla áþreifanlegt og
óáþreifanlegt umhverfi Sigrún-
ar í Reykjavík og Róm en þar
dvaldi hún í maímánuði 1996.
„Ég reikaði þar um götur og
torg og drakk í mig allt sem
ég sá í þessri öldnu borg þar
sem sagan andar,“ segir lista-
konan. „Maður kemst ekki hjá
að skynja nið aldanna og finna
fyrir einhverjum óútskýranleg-
um tengslum. Þarna er listasag-
an og latínan og fleira sem á
undan er gengið.“ Snjáðum
gulum og rauðbrúnum jarðlit-
um af húsveggjum Rómar og
latneskum áletrunum höggnum
í stein er teflt á móti bláma
íslands með þúfum, fjöllum,
himni og hafi ásamt rúnum og
tréristum.
Mannfólkið, 286 einangraðar
sálir, stendur í röðum rétt eins
og bókstafir. Það bíður og
hugsar málið. Hvað er það að
gera hér? Á hverju stendur
það? Ef til vill á gömlum merg.
Þessi nýju olíumálverk Sigr-
únar Eldjárn segja ekki beinlín-
is sögur. I þeim birtast þó ýmis
minni sem menn geta túlkað á
sinn hátt. Verkin eru máluð á
striga en málverkið nær alveg
út í rammann sem þar með
verður óijúfanlegur hluti
verksins."
Sýningin stendur til 25. maí.
Sjónarhóll er opinn fimmtu-
daga til sunnudaga frá kl.
14-18.
EITT verka Önnu Líndal á
sýningunni Hluti úr lífi.
Anna Lín-
dal: „Hluti
úr lífi“
HLUTI úr lífi er yfirskrift 7. einka-
sýningar Önnu Líndal sem opnuð
verður í Galleríi Ingólfsstræti 8 í
dag, fimmtudaginn 1. maí.
I kynningu segir: „Hver er konan
á bak við málningargrímuna? Er
hún eitthvað „hreinni" eða „raun-
verulegri" kona en sú sem hjúpar
sig vörum frá Guerlain eða Calvin
Klein“ eða er konan sem aldrei
hugsar um útlitið kannske meiri
kona en hinar? Meiri manneskja,
minni brúða, eða er kannske ekki
til manneskja sem ekki hugsar um
útlit sitt? Ljósmyndaverkið „ódauð-
leg fegurð“ lýsir viðurkenndri að-
ferð til að ná fram „náttúrulegri"
fegurð á vestrænan mælikvarða.
Fegurðarímyndin fjallar kannske
ekkert um konur heldur sýnir hún
okkur vestrænt gildismat sem er
knúið áfram af gróðavon hins síð-
kapítalíska neyslusamfélags „feg-
urðariðnaðarins“.“
Sýningin stendur til 25. maí.