Morgunblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 77
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997 77
MYNDBOND/KVIKMYNDIR/UTVARP-SJONVARP
FOSTUDAGSMYNDIR I SJOIMVARPIIMU
Sjónvarpið ►20.30 Örvæntingar-
full barátta ástfangins manns við
aukakíló í þeim tilgangi að ganga
betur i augun á þeirri heittelskuðu
er sagan bak við frönsku gaman-
myndina Aukakflóin (Les kilos en
trop, 1994). Enginn vitnisburður
fínnst um þessa mynd en leikstjórinn
heitir Gilles Béhat og aðalleikaramir
Marc Jolivet, Isabelle Renauld og
Alexandra Vandemoot.
Sjónvarpið ►22.50 Þá sjaldan
Robert Redford fer aftur fýrir
myndavélina og leikstýrir er útkom-
an ævinlega vönduð; meiri spuming
er hvort neisti af verkinu. Önnur
mynd Redfords er Baunaakurs-
stríðið í Milagro (The Milagro Be-
anfíeld War, 1988) neistaði ekki eins
og sú fyrsta, Ordinary People, en
nokkra skemmtun má þó hafa af
viðureign krammaskuðsmanns við
stórkapítal. Undirfurðulegur húmor
nær of sjaldan upp á yfirborðið.
Aðalhlutverk Rubén Blades, Sonia
Braga og Melanie Griffith. ★ ★ 'h
Stöð2 ►13.00 og 1.25 Ástiren-
skrar konu og indversks leikara
passa vel inn í algeng hugðarefni
James Ivory leikstjóra og samstarfs-
manna hans, þ.e. samband ólíkra
menningarheima, en þetta íjallar
Dagar í Bombay (Bombay Talkie,
1970) um. Myndin sjálf er ekki jafn
forvitnileg og viðfangefnið; hún er
dálítið gufuleg, eins og stundum vill
verða hjá Ivory og félögum. Aðal-
hlutverk: Shashi Kapoor og Jennifer
Kendal. ★★
Stöð 2 ►20.55 - Sjá umfjöllun í
ramma.
Stöð 2 ►23.50 Litla Vegas (Little
Vegas, 1990) er óvenjuleg bandarísk
mynd sem gerist í kyndugu hjólhýsa-
þorpi úti í eyðimörk. Anthony John
Denison leikur mann sem leitar þar
skjóls frá vafasamri fjölskyldu sinni
en skjólið reynist jafn varasamt þeg-
ar mafíósar seilast eftir þorpinu.
Leikstjórinn Perry Lang er sjálfur
meðal leikenda, sem og öllu frægari
starfsbróðir hans, John Sayles.
★ ★1/2
Sýn ^21.00 Fyrsta myndin um
stríðskappann Rambó, Blóðtaka
(First Blood, 1982) er sú besta. Syl-
vester Stallone tekur þar smábæjar-
löggur og fleiri aula til bæna fýrir
að vera að abbast upp á sig. Ted
Kotcheff leikstjóri heldur vel dampi
og Stallone lætur ekki deigan síga.
Ofbeldishasar af betra tagi en í guð-
anna bænum: Ekki biðja um trúverð-
ugleika. ★ ★ 'h
Sýn ►23.25 Kevin Anderson á
flótta undan réttvísinni er ekki hólp-
inn þegar hann fær far hjá Rosanna
Arquette og John Lithgow í spennu-
myndinni Orlagarík ökuferð (The
WrongMan, 1993), bráðlunkinni
smámynd, sem er bæði vel samin,
leikin - Lithgow fer á kostum - og
leikstýrt af Jim McBride. ★ ★ ★
Árni Þórarinsson
David Niven, John Mills og Cantinflas í heimsreisunni miklu.
Stjörnuferd
FJÓRFÖLD Oscarsverðlaunamynd
og naut geysiiegra vinsælda á sjötta
áratugnum, með viðamiklum svið-
setningum, flölbreyttum og litríkum
tökustöðum, og aragrúa frægra leik-
ara. Þetta er Umhverfis jörðina ó
80 dögum (Around The World In
80 Days, 1956, Stöð 2 ►20.55),
sannkölluð stórmynd síns tíma en
eitthvað hefur hún nú minnkað í
áranna rás. Saga Jules Verne um
snarpa heimsreisu hins breska sént-
ilmanns Fíleasar Fogg og einka-
þjónsins hans Passepartout til að
vinna veðmál virkar ekki eins snörp
og stórfengleg núna og hún gerði
fyrr á áram. En David Niven og
Cantinflas eru sem sniðnir i aðal-
hlutverkin og ævinlega er gaman
að sjá allar stjömurnar í aukahlut-
verkunum, hvorki fleiri né færri en
44. Saklaus afþreying upp á gamla
móðinn. Leikstjóri Michael Ander-
son. ★ ★★
HUndaleyFI
pianobar • diskotek
HAFNARSTRÆTI 7
TWO DOGS KYNNING
THE SPIRIT OP
TWO DOGS
Fruit Brew
föstudagskvöldlð 2. maí.
Dansað til 03.00 alla helgina.
Aldurstakmark 20 ár.
MYIMPBOMD
Ein góð fyrir bömin
Fræknar stúlkur
í fjársjóðsleit
(Gold Diggers: The Secret ofBear
Mountain)__________________
Fjölskyldumynd
★ ★'/2
Framleiðandi: Mardn Bregman, Rolf
Dehyle, Michael S. Bregman. Leik-
stjóri: James Dobson. Handritshöf-
undur: Barry Glasser. Kvikmynda-
takæ Ross Berryman. Tónlisfc Joel
McNelly. Aðalhlutverk: Christina
Ricci, Anna Chlumsky, Polly Draper,
David Keith. 89 mín. Bandaríkin. CIC
myndbönd 1997. Útgáfudagun 22.
apríi. Myndin er öllum leyfð.
dularfullt fyall og vel falinn fjársjóð.
Þetta er afbragðs vel gerð ijjöl-
skyldumynd, og er laus við hina óþol-
andi eiginleika John Hughes mynda,
þar sem fullorðna fólkið er heimskt
og vondu karlamir eru sífellt að meið-
ast á einhvem ótrúlegan máta. Per-
sónumar eru raunsæislegri en gengur
og gerist í myndum þessarar tegund-
ar og þá sérstaklega illmennið, en það
er hinn drykkfelldi stjúpfaðir Jody,
sem leikinn er af David Keith. Ricci
og sérstaklega Chlumsky standa sig
vel í hlutverki stúlknanna. Myndin
hefur að geyma nægilega mikið af
ævintýralegum atriðum, sem ættu að
halda athygli yngstu áhorfendanna.
Ottó Geir Borg
otar»m< »kx:
MYNDIN segir frá Beth, sem hefur
alla sína ævi átt heima í Los Angeles,
en til þess að móðir hennar fái frið
wmmmmmmm^m til að skrifa, fíytja
þær til smábæjar
úti á landi. í fyrstu
telur Beth þetta
krummaskuð vera
fyrir neðan sína
virðingu, en svo
kynnist hún Jody,
sem er algert
náttúmbam og
minnir helst á Ge-
orgínu í „Fimm“ bókunum. Með þeim
tekst mikil vinátta og verða þær trún-
aðarvinkonur. Jody treystir Beth fyrir
leyndarmáli, sem hefiir að geyma
Vinnið gegn fíla-
penslum og bólum
gun'A
m ;8f
f "
-f! • -- &
■ ‘4
silicol skin
sflicol sk\r>
VjðMrkennci lausn við húðvarKlamálmn
Endurteknar rannsóknir hafa staðfest árangur Silicol skin
í baráttunni gegn fílapenslum, bólum og feitri húð.
íslenskar leiðbeiningar fylgja. Fæst í flestum apótekum.
Gerir lífið skemmtilegra!
Nýtt Séð & heyrt er komið út.
<.