Morgunblaðið - 30.11.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1997 37
FRÉTTIR
. Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson
BÚIÐ er að taka fyrstu skóflustunguna að nýju veiðihúsi við Langá á Mýrum, en það gerði
Einar bóndi á Jarðlangsstöðum. Honum til halds og trausts var Jóhannes Guðmundsson bóndi
á Anabrekku og formaður veiðifélagsins til margra ára.
Hræringar
í leigumálum
STANGAVEIÐIFÉLAG Reykja-
víkur verður með stóraukinn
fjölda valkosta og stangardaga
er verðskrá félagsins kemur út á
næstu vikum. Hefur félagið bætt
við sig veiðisvæðum bæði í leigu
og umboðssölu og enn munu ekki
öll kurl vera komin til grafar.
Fyrst er að nefna, að SVFR
hefur tekið í umboðssölu stóran
hluta veiðitímans í Laxá í Kjós
sem erlendir aðilar hafa á leigu,
en umboðsmaður þeirra hér á
landi er Ásgeir Heiðar. Ásgeir er
eftir sem áður með opnunina, út-
lendingatímann, sem stendur frá
mánaðamótum júní/júlí til miðs
ágústs, en eftir það mun SVFR
sjá um sölu veiðidaga. Laxá í
Kjós hefur verið vaxandi að gæð-
um. Þannig veiddust um 1.200
laxar í ánni síðasta sumar saman-
borið við rúmlega 700 í fyrra.
Þykir Laxá öðrum ám fremur
hafa grætt vel á uppkaupum laxa-
netanna undir Akraljalli.
Þá er ljóst að SVFR átti hæsta
boðið í helming veiðiréttarins í
Fáskrúð í Dölum. Hermt er að
félagið hafi boðið 1.350 þúsund
krónur og hreppt pakkann. Er um
að ræða tvær stangir, en helming-
inn á móti leigir Stangaveiðifélag
Akraness. Þarna veiddust nokkuð
á annað hundrað laxar síðasta
sumar. Dalaárnar allar hafa verið
í nokkurri lægð síðustu sumur en
sem endranær ríkir bjartsýni um
að betri tíð sé í vændum með blóm
í haga.
Áður hefur verið greint frá
leigusamningi SVFR um veiðirétt-
inn í Krossá á Skarðsströnd í
Dölum. Eftir því sem komist verð-
ur næst mun fleira vera í farvatn-
inu en ekki þó orðið umræðu-
hæft. Þá má bæta við þetta að
allar líkur eru á því að SVFR bjóði
félagsmönnum sínum vorveiði í
Soginu fyrir landi Bíldsfells og
Ásgarðs. Mikíl og vaxandi bleikju-
veiði hefur verið í Soginu síðustu
sumur. Um er að ræða staðbund-
inn stofn að stórum hluta og því
ljóst að þarna gæti borið vel í
veiði. Félagið hefur til afnota góð
veiðihús á þessum slóðum.
Blanda hreinsast
Síðustu sumur hefur orðið mik-
ilsverð breyting á Blöndu. Með
gerð Blöndulóna hefur mikið af
jökulleirnum síast úr vatninu og
hefur áin verið til mikilla muna
hreinni og allt að því tær á stund-
um. Þetta er mikil breyting frá
því sem áður var, er áin byltist
fram dökkbrún og ófrýnileg. Í þá
daga var eina leiðin að veiða lax
í ánni að húkk’ann með tröllsleg-
um græjum og gerðu menn það
óspart og fóru ekki leynt með þó
veiðiskapurinn bryti í bága við
landslög. í dag er ástandið annað
og menn eru jafnvel oftlega að
veiða laxinn á flugu.
í gögnum sem liggja fyrir má
lesa svokallað „sjóndýpi" eða
„sjónrýni“ í Blöndu, en það hefur
verið mælt reglulega eftir að virkj-
unartilstandið á heiðum frammi
hófst. í gögnum frá sumrinu 1996
kemur t.d. fram að sjóndýpi í
Blöndu allt frá 25. maí og fram
vfir miðjan ágúst var 140 senti-
metrar. Eftir það minnkar sjón-
dýpið er menn byrja að hleypa
fram hjá Blöndulóni. Sjóndýpið á
veiðitíma minnkar stöðugt, er
aldrei minna en 30 sentimetrar,
sem hefði trúlega þótt silfurtært
miðað við ástandið fyrir tíma
virkjunar.
Listamanna-
ball í Þjóð-
leikhúskjall-
aranum
FJÖLNIR, tímarit handa íslending-
um, mun standa fyrir listamanna-
balli í Þjóðleikhúskjallaranum á full-
veldisdaginn 1. desember í samvinnu
við Listaklúbb Leikhúskjallarans.
Samkoman hefst klukkan níu um
kvöldið og stendur fram yfir mið-
nætti.
Polkahljómsveitin Hringir mun
leika fyrir dansi, minni íslands, karla
og kvenna verða mælt fram og sung-
in, einnig minni iistamanna, gagn-
rýnenda, menntamálaráðherra og
menningarmálanefndar. M.a. mun
Mikael Torfason fara með minni
æskufólks og Jón Viðar Jónsson með
minni leikara. Boðið verður upp á
listræn skemmtiatriði af ýmsu tagi
og áhorfendaverðlaun sýningarinnar
Myndlist ’97 verða afhent, að því
er kemur fram í fréttatilkynningu.
Aðgangseyrir að ballinu er 700
kr. en 400 kr. fyrir félaga í Lista-
klúbbi Leikhúskjallarans. Gestir eru
beðnir að mæta í samkvæmisklæðn-
aði.
Fræðslumynd
um leitarhunda
FRÆÐSLU- og heimildarmynd um
leitarhunda er komin á myndband
ásamt bækling um efni hennar.
Bæklingurinn, sem er með út-
skýringarmyndum, fjallar m.a. um
sögu hundsins, þroska, þjálfun og
veiðihvöt sem nýtt er við Ieita hér
á landi. Einnig eru upplýsingar um
tilurð og hegðun lyktar, vinds og
veðurfars og efni um hinn almenna
hundaeiganda sem og björgunar-
sveitir.
Útgefandi er Kvikmyndafélagið
Pamela.
Opið hús í
Mörkinni 6
í TILEFNI af 70 ára afmæli Ferða-
félags íslands verður opið hús í
Mörkinni 6 sunnudaginn 30. nóvem-
ber kl.15-17. Forseti félagsins,
Haukur Jóhannesson, mun ávarpa
gesti, leikin verður létt tónlist og
boðið upp á afmæliskaffi. Allir vinir
og velunnarar félagsins eru vel-
komnir.
Á undan, kl. 14.00, verður ganga
frá Mörkinni 6 upp í Elliðaárdal.
Kl. 17 hefst myndasýning. Sverre
A. Larsen, framkvæmdastjóri
Norska ferðafélagsins, sýnir lit-
skyggnur frá ljaUahéruðum í Noregi.
Sögusýning FÍ, Á ferð í 70 ár,
verður opin frá kl. 14-18 á sunnu-
dag. Þar er á myndrænan hátt greint
frá upphafi og starfsemi félagsins,
og sýndir ýmsir munir sem tengjast
Ferðafélaginu. Steinþór Sigurðsson
listmálari hannaði sýninguna.
filodazd
SOKKABUXUR SEM MÓTA LÍKAMANN
ÞÚFBNNUR
MLHSENN
SLIM UP
Útsölustaðir. HagkaupSkcifen,HagkaupKringlan, Aí\ /)nn
Hagkaup Akureyri, Fjarðarkaup og í flestum apócekum. ■” Udl
Ný sending - ótrúlegt verð
m.a. 6 stk. Afghan heilsilki ca. 130 x 190
á aðeins 74.900 stk.
Pakistan Bochara, ca 125x185 29.800 stk.
Ekta handmálaðir býsanskir íkonar -
verð frá 2.900
HÖTÉÍy
REYKJAVIK
SIGTÚNI
Idag 30. nóvfrá 14-19
mánud. 1. des. frákl. 13-19
þriðjud. 2. des. frá kl. 13-19
miðv.d. 3. des. frá kl. 13-19 (síðasti dagur).
QBCS) RAÐGREIÐSLUR