Morgunblaðið - 30.11.1997, Blaðsíða 48
^48 SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
/fth sja
TtNNJSSK/RTFlbi/ÞþiTTf'
Tommi og Jenni
Ljóska
Smáfólk
ímyndaðu þér að skauta! Þar eru Hvað ertu að lesa? „Hvernig á að aka svellslípivél“
_jl peningarnir, Magga ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík ® Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Að standa í
báða fætur á
Austurlandi
Frá Valdimar Kristinssyni:
FYRIR nokkru voru veitt verðlaun
fyrir lífræna ræktun á Héraði.
Bóndinn í Vallarnesi þakkaði fyrir
sig og sagði af því tilefni að þjóð-
in yrði að fara að gera upp við
sig hvort hún ætlaði „að stíga í
álfótinn eða kálfótinn“. Þetta þótti
fyndið enda laglega orðað.
Þarna hefur líklega óvart verið
komist að kjarna málsins, þar eð
þeir sem stíga fast í annan fótinn
geta riðað til falls. Svo gæti einn-
ig farið um margar byggðir á ís-
landi. Samkvæmt nýlegu yfirliti
er alvarleg fólksfækkun á tíu
svæðum á landinu og þar af eru
tvö svæði sem taka yfir dijúgan
hluta Austurlands. Eigi breyting
að verða á þarf mikil atvinnuupp-
bygging að eiga sér stað. En
reynslan sýnir að hún dugir ekki
ein.
Fólkið þarf að vera nægjanlega
margt til að standa undir íjöi-
breytilegum atvinnutækifærum og
margvíslegri þjónustu nútímasam-
félags.
Austurland er ekki vel undir
þetta búið, þar sem aðeins 9 þús.
manns búa á svæðinu frá Hellis-
heiði eystri að Berufirði. Það er
eins og hverfi í Reykjavík eða
hálfur Kópavogur. Raunar er að-
eins eitt hérað utan Suðvestur-
lands sem fullnægir þjónustukröf-
um fólks, það er Eyjafjörður með
Akureyri. Má þó varía minna vera
enda þótt íbúar séu á þriðja tug
þúsunda.
Búast má við að trjáræktin eigi
eftir að gera mikið fyrir Fljótsdals-
hérað, og ekki skaðar að lífræn
ræktun fýlgi í kjölfarið, en betur
má ef duga skal til að snúa vörn
í sókn austfirskum byggðum til
bjargar. Hvort sem mönnum líkar
betur eða verr er ekki hægt að
koma auga á neitt annað nægjan-
lega stórt, sem stuðlað getur að
nauðsynlegum umskiptum, en ál-
ver og olíuhreinsun, sem einmitt
kunna að bjóðast á næstunni.
Engan tíma má missa því margt
bendir til að um gæti verið að
ræða síðasta tækifærið til að
styrkja byggð með áhrifamiklum
hætti utan Faxaflóa. Er þá einnig
hugsað til þess að öflugt Austur-
land gæti orðið samstíga Norður-
landi, og þá einkum Eyjafirði, í'
samkeppni við „Borgríkið“ syðra.
(Sjá einnig bréf til Mbl. 11. nóv.
sl.)
Haft er eftir Halldóri Asgríms-
syni í Mbl. 25. nóv. sl., að Fram-
sóknarflokkurinn hafi vanmetið
mikilvægi sterkra byggðakjarna.
Stórfelld uppbygging á Austur-
landi fellur einmitt vel að róttæku
endurmati byggðastefnunnar. Yf-
irlýsing Finns Ingólfssonar í sama
blaði, um olíuhreinsunarstöð í
Skagafírði, eru hins vegar leifar
af gömlu stefnunni. Þar að auki
er fráleitt að beina stórum olíu-
flutningaskipum inn á hafsvæði
þar sem hætta á hafís er marg-
föld á við siglingu að Austurlandi.
Vilji heimsbyggðin frémur
framleiða léttmálma annars staðar
en hér á landi með ailt að tíu sinn-
um meiri mengun, er það enn eitt
dæmið um hvernig „vinir“ jafnt
sem óvinir valta yfir hina fáu og
smáu. Þá segja sumir að ekki séu
önnur ráð eftir en að selja raforku
um sæstreng til útlanda. í fyllingu
tímans getur vel verið að það
gæti orðið dijúg tekjulind fyrir
þjóðarbúið, en nokkrir vélgæslu-
menn orkuvera munu ekki koma
Austurlandi á flug. Þá er þess
fremur að vænta að flýta þurfi
lóðaúthlutun á Kjalarnesi vegna
borttfluttra Austfirðinga, sem sjá
hag sínum betur borgið í „Borgrík-
inu við Faxaflóa".
VALDIMAR KRISTINSSON,
Reynimel 65, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475*
Brúðhjón
Allur boröbúnaður Glæsileg gjafavara - Brúðarhjóna listar
, VERSLUNIN
Latigavegi 52, s. 562 4244.