Morgunblaðið - 30.11.1997, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMINGAR
SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1997 43
ELSA
JÓHANNESDÓTTIR
+ Elsa Jóhannes-
dóttir var fædd
í Reykjavík 11. ág-
úst 1937. Hún lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 23. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Jóhannes Helgason,
kaupmaður í
Reykjavík, og
Eirný Guðlaugs-
dóttir húsfreyja.
Elsa var elst af fjór-
um systkinum og
eru tvö þeirra nú á
lífi.
Hinn 28. apríl 1957 gekk hún
að eiga eftirlifandi eiginmann
sinn, Hilmar Magnússon, fædd-
an 10. október 1934. Börn
þeirra eru: 1) Jó-
hanna, gift Jóni
Friðriki Egilssyni.
Börn þeirra eru
Hilmar Egill, Elsa
og Marta. 2) Örn,
kvæntur Margréti
Aðalsteinsdóttur.
Börn þeirra eru
Erna Margrét og
Kristinn Om. 3)
Sævar, kvæntur
Hrund Sigurhans-
dóttur. Börn þeirra
eru Harpa og
Sindri.
Útför Elsu fer
fram frá Fossvogskirkju á
morgun, mánudaginn 1. desem-
ber, og hefst athöfnin klukkan
13.30.
börn, Jóhönnu, Örn og. Sævar,
barnabörnin eru 7 og þau mjög
hænd að ömmu og afa.
Áhugamálin breyttust úr sauma-
klúbb í ferða- og gönguklúbb. Og
farnar voru ferðir bæði innan lands
og utan.
Hugurinn hvarflar til fjögurra
utanlandsferða sem hópurinn fór í
saman og gamla æskufjörið átti til
að gera vart við sig hjá miðaldra
hjónunum.
Elsku Elsa, það er svo margt sem
sækir á hugann, söngur þinn og
dillandi hlátur sem var svo smit-
andi.
Það er ótrúlegt, nú hefur á tæp-
um þremur árum fækkað um ijóra
í vinahópnum.
Elsku Hilmar, Jóhanna, Örn,
Sævar, tengdabörn og barnabörn,
við æskuvinirnir biðjum Guð að
styrkja ykkur í ykkar miklu sorg.
Blessuð sé minning vinkonu okk-
ar, Elsu Jóhannesdóttur.
Fyrir hönd æskuvinanna,
Hjördís Kröyer.
Sá sem lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna
þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson.)
Elsku Elsa. Þessar ljóðlínur mun
ég hafa að leiðarljósi. Minningarnar
eru sannarlega margar og góðar
allt frá þeirri stundu er ég kom
fyrst inn í fjölskylduna, en fjöl-
skyldan skipaði einmitt svo stóran
sess í lífi þínu og þú lagðir mikið
upp úr því að við hittumst og ætt-
um góðar stundir saman.
Elsa mín, þakka þér fyrir allar
þær góðu stundir sem ég hef átt
með þér og þakka þér fyrir að
hafa verið börnunum mínum svo
góð amma.
Hrund.
Elsku Elsa amma. Þú varst mjög
góð við okkur, áttir alltaf eitthvað
handa okkur og bakaðir svo góðar
kökur. Þegar við vorum veik komst
þú og vildir vera hjá okkur. Þú
hugsaðir vel um okkur og vildir að
ekkert kæmi fyrir okkur. Við sökn-
um þín sárt og ætlum að senda þér
þetta ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum.
Lítill drengur lófa strýkur
létt um vota móðurkinn,
- augun spyija eins og myrkvuð
ótta og grun í fyrsta sinn:
Hvar er amma, hvar er amma,
hún sem gaf mér brosið sitt
yndislega og alltaf skildi
ófullkomna hjalið mitt?
Lítill sveinn á leyndardómum
lífs og dauða kann ei skil:
hann vill bara eins og áður
ömmu sinnar komast til,
hann vill fá að hjúfra sig að
hennar bijósti sætt og rótt.
Amma er dáin - amma finnur
augasteininn sinn í nótt.
Lítiil drengur leggst á koddann
- lokar sinni þreyttu brá
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir - amma kyssir
undurblítt á kollinn hans.
Breiðist ást af öðrum heimi
yfir beð hins litla manns.
Svona hugsum við um þig.
Harpa og Sindri.
Og þvi varð allt svo hljótt við helfregn þina
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þin alla daga sína.
(Tómas Guðm.)
Það er erfið stund, þegar svona
snöggt og ótímabært fráfall verð-
ur, að setjast niður og rifja upp
minningar um kæra æskuvinkonu,
Elsu Jóhannesdóttur, eftir tæpra
58 ára vináttu, sem hefur haldist
órofin frá 1939, að við hittumst
fyrst, hún 2ja og ég 3ja og hálfs.
Minningarnar sækja á, frá æskuár-
unum á Njálsgötunni bæði við leik
og störf, en Elsa þurfti að hjálpa
til í búðinni hjá pabba sínum. Hún
varð að hætta fyrr í skóla en hún
hefði kosið. Á unglingsárunum var
margt brallað. Stundum þurftum
við að passa tvíburana, systur
hennar, og svo litla bróður. Þá má
ekki gleyma ferðum okkar austur
í sumarbústað við Fellskot í Bisk-
upstungum, en þar áttum við Elsa
góðar stundir, en mamma hennar
var ættuð þaðan.
Örlögin réðu því að við kynnt-
umst tveim vinum úr KK 8-hópn-
um, en þeir eru æskuvinir. Ekki
leið á löngu þar til allir voru búnir
að festa ráð sitt og féll hópurinn
ótrúlega vel saman.
Lífshlaupið skiptist í kafla,
stofnun heimilis, húsbyggingar,
bömin fæðast, vaxa úr grasi, flytja
að heiman og gefa okkur barna-
böm. En vináttuböndin rofnuðu
aldrei. Elsa og Hilmar eignuðust 3
Á sunnudagsmorgun vorum við
vaktar og sagt frá því að amma
væri dáin. Þá var okkur hugsað til
allra góðu stundanna sem við áttum
saman og þær voru ekki fáar. Oft
fengum við að fara með þér og afa
út á land. Við fórum einu sinni
austur á Einarsstaði með ykkur afa
og Hilmari og Ernu. Þar fórstu
með okkur í sund og í beijamó, á
eftir borðuðum við berin með sykri
og ijóma. Alltaf varstu að baka
handa okkur og gefa okkur eitt-
hvað gott að borða svo við yrðum
stórar.
Við fórum líka oft með ömmu
austur í sumarbústaðinn hennar
sem heitir Fellsbrekka. Einu sinni
fórum við þijár saman og ætluðum
að hafa það huggulegt en við gát-
um ekki kveikt upp í eldavélinni
af því það var engin olía á vélinni,
það var sennilega stysta ferðin
okkar upp í sveit.
Þegar við fórum að fara sjálfar
í strætó fórum við oft til ömmu í
Rauðó. Þá bakaði amma fyrir okk-
ur eitthvað gott og stundum tókum
við videóspólu sem við horfðum á
saman. En við gerðum líka margt
fleira saman en að horfa á sjón-
varpið. Amma kenndi okkur að
pijóna vettlinga og hún keypti
fyrsta pijónadótið okkar. Ef við
vorum veikar fórum við ýmist til
hennar eða hún til okkar, það var
alltaf gott að vera hjá ömmu ef
við vorum veikar.
Eitt er okkur þó minnisstæðast
og það er ferðin okkar til Mallorca
í sumar. Þar var gaman að vera,
t.d. fórum við einu sinni þijár sam-
an niður í bæ og leigðum okkur
vespu og fórum á henni út um allt.
Þar lágum við saman í sólbaði, fór-
um út að versla og borða eða löbb-
uðum um ströndina og skoðum eitt-
hvað skemmtilegt.
í þeirri ferð áttir þú sextíu ára
afmæli og við héldum upp á það
með því að fara út á flottan veit-
HERMANN
SIG URÐSSON
+ Hermann Sig-
urðsson fæddist
í Reylgavík 27. maí
1923. Hann lést á
Landspítalanum 13.
október síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík 21.
október.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm i nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfír láttu vaka
þinn engil, svo ég sr.fi rótt.
■Þýð. S. Egilsson.)
Kæri vinur, þeg ti við fréttum
andlát þitt, setti okkur hljóð. Þótt
aldrei sé hægt að segja
hver næstur er, kemur
þetta manni alltaf jafn
mikið á óvart. Ekki er
nema tæpt ár síðan
Bogga konan þín var
kölluð í burt. Eftir að
við tengdumst ykkur,
þegar sonur ykkar
Hermann og dóttir
okkar tóku saman, hef-
ur kunningsskapur
okkar haldist. Þegar
við fórum saman til
Skotlands árið 1985 og
ferðuðumst þar saman
í tvær vikur, tel ég að
þar höfum við eignast mjög góða
vini sem við sjáum á bak allt of
snemma. Á ferðalaginu keyrði Her-
mann og Bogga sat frammi í með
vegakortið, og allt gekk eins og í
sögu. Síðustu nóttina fengum við
bara eitt herbergi sem við deildum
saman og sagðir þú í þinni kátínu
að ekki vissir þú hvernig hún mundi
enda.
Ég veit, Hermann minn, að þú
áttir erfítt eftir að Bogga fór, en
nú veit ég að þið eruð saman og
takið lagið eins og þið gerðuð á
ferðalaginu okkar. Guð geymi ykk-
ur, hafið þökk fyrir allt og allt.
Aðstandendum sendum við sam-
úðarkveðjur.
Hafið, bláa hafið, hugann dregur.
Hvað er bak við ystu sjónarrönd?
Þangað liggur beinn og breiður vegur.
Bíða mín þar æskudraumalönd.
Beggja skauta byr
bauðst mér aldrei fyrr.
Bruna þú nú, bátur minn.
Svífðu seglum þöndum,
svífðu burt frá ströndum.
Fyrir stafni haf og himinninn.
(Örn Arnarson.)
Jóhann og Auðbjörg.
ingastað. Þú hélst að enginn á hót-
elinu vissi að þú ættir afmæli en
þegar við komum til baka af veit-
ingastaðnum biðu allir eftir þér og
gáfu þér risastóran blómavönd.
Síðan settumst við öll saman við
langborð og skáluðum fyrir þér í
kampavíni. Þá varst þú mjög glöð
og hlessa og allir voru glaðir.
Elsku amma okkar, það var svo
gott að hafa fengið að vera með
þér þennan tíma. Okkur þótti svo
vænt um þig og eigum eftir að
sakna þín rosalega mikið.
Elsa og Marta.
Elsku amma, nú ert þú farin.
Ég vil þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum. Alltaf
var svo gott að koma til þín, þú
sýndir mér alltaf þolinmæði þó ég
léti stundum illa. Þú varst mér aldr-
ei annað en góð og þegar eitthvað
var að sást þú bara það góða og
skammaðist aldrei heldur sýndir
mér bara ást og kærleika. Þú varst
allt sem ég gat óskað og miklu
meira en það. Fyrir þetta vil ég
þakka þér og vona að þú hvílist vel.
Hilmar Egill.
Elsku amma, ég mun aldrei
gleyma þér. Þó þú sért ekki lengur
hjá okkur standa eftir margar góð-
ar minningar um yndislega mann-
eskju. Þessar minningar munu ylja
mér alla mína ævi. Ég mun ekki
gleyma heimsóknum í Rauðagerði
70. Og ekki undraðist ég þó að ný
bökuð kaka skyldi vera á borðinu
því að þú varst frábær bakari. Og
nú er búið að binda enda á veik-
indi og þjáningar og ég mun sárt
sakna þín. Hér vil ég skrifa þér
ljóð eftir Evu Hjálmsdóttur.
í faðmi hennar ömmu
þar best fékk ég blund,
sem blóm undir skógarrunni
um hljóða næturstund.
Við hennar söng ég undi
sem ljúfan lindar klið,
er líður hægt um grundu
og blómin sofna við.
Og söknuður mig sækir
og sorgarblandin þrá.
Hvort á ég ættarlandið
aftur fá að sjá?
Því þar er elsku amma
í aftanroðans glóð,
og þar er mér hver minning
svo mæt og hlý og góð.
Megi guð vera með þér.
Þín
Erna Margrét
Arnardóttir. <
Amma mín, nú ertu farin frá
okkur, ég vona að þér líði mun
betur núna.
Elsku Amma mín, ég mun alltaf
geyma þig í hjarta mínu. Ég vil
færa þér litlu bænina okkar.
Ó Jesú bróðir besti
og bamavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á bamæskuna mína.
Þinn,
Kristinn Orn. .*•
Mig langar að minnast tengda-
móður minnar í örfáum orðum.Það
var snemma árs 1981 að ég hitti
Elsu í fyrsta sinn. Við vorum þá
nýbyijuð að vera saman, ég og
sonur hennar Örn. Það var á heim-
ili Elsu og Hilmars í Rauðagerði.
Hún kom færandi hendi hendi með
ís inn í herbergi, hún var að skoða
nýju tengdadótturina. Mín fyrstu
viðbrögð voru hvað mér þótti hún
ung, glæsileg kona, þá rúmlega 40
ára. Elsa var yndisleg kona og fékk
ég að kynnast henni mun betur
núna síðustu mánuðina því ég bjó
hjá henni meðan við hjónin erum
að byggja. Mér fannst hún hafa *
endalausa orku því hún var ekkert
að tvínóna við það sem hún tók sér
fyrir hendur. Stundum þegar ég
var að gera eitthvað fannst henni
ég vera alltof lengi að slóra við
hlutina og oftar en ekki dreif hún
þetta af með mér. Mér fannst voða
gaman í fari Elsu hvernig hún
reyndi að særa mann ekki, eins og
t.d. þegar við vorum að.fara í af-
mæli til Jóku og hún var veik heima
og vildi fá að sjá okkur Öm og
tengdapabba uppábúin áður en við <.
færum. Henni fannst bolurinn sem
Örn var í ekki fallegur og spurði
hann hvort hann ætti enga hreina
skyrtu til að fara í. En nú skilja
leiðir um stund. Elsku Hilmar, Örn
minn, Jóhanna, Sævar, ömmubörn-
in sjö og aðrir ástvinir, Guð gefí
okkur styrk í missi okkar. Blessuð
sé minning Elsu Jóhannesdóttur.
Þín tendadóttir,
Margrét Aðalsteinsdóttir.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endur-
gjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfí
(5691115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast send-
ið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfí-
legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfílega línulengd, - eða
2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða
ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar em birtar afmæl-
isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út-
prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í
daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA SIGRÍÐUR ALBERTSDÓTTIR,
Austurbrún 6,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni mánudaginn 1. desember kl. 13.30,
Jónína Waltersdóttir,
Ágúst Waltersson, Jóhanna Kristjánsdóttir,
Walter Tryggvason, Alma Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabamabörn.