Morgunblaðið - 20.12.1997, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞÁ getur nú landsbyggðarlýðurinn endanlega hysjað upp um sig brækurnar
og komið sérburt . . .
Lögfræðiaðstoð laganema
Sifja- og erfða-
mál algengust
Birgir Tjörvi Pétursson
HVERT fimmtu-
dagskvöld býður
Orator, félag laga-
nema, upp á ókeypis lög-
fræðiaðstoð gegnum síma.
Það eru laganemar á
fjórða og fimmta án í lög-
fræði við Háskóla Islands
sem standa að þessari
þjónustu. Birgir Tjörvi
Pétursson er fram-
kvæmdastjóri lögfræðiað-
stoðarinnar ásamt Sigurði
Kára Kristjánssyni.
-Hvað er langt síðan
laganemar fóru að bjóða
almenningi ókeypis lög-
fræðiaðstoð?
„Frá árinu 1931 og fram
til ársins 1935 buðu laga-
nemar efnalitlu fólki upp
á lögfræðiaðstoð,“ segir
Birgir Tjörvi. „Þessi þjón-
usta var síðan lögð niður en árið
1981 var ákveðið að taka upp á
því á ný að gefa almenningi kost
á endurgjaldslausri ráðgjöf. Hún
hefur síðan verið starfrækt yfir
vetrarmánuðina einu sinni í
viku, þ.e.a.s. á fimmtudagskvöld-
um frá klukkan 19.30 til klukkan
22.“
Birgir Tjörvi segir laganema
mjög áhugasama um að sinna
lögfræðiþjónustunni. „Ráðgjöfin
er góð þjálfun íyrir laganema
sem eru að ljúka námi en henni
sinna nemendur fjórða og
fimmta árs í lögfræði. Við leggj-
um áherslu á að vera nokkur á
vakt þessi fimmtudagskvöld,
helst þrjú til fjögur sem fórum
síðan saman yfir þau mál sem til
okkar berast og gefum skjól-
stæðingum okkar ráðleggingar."
-Getið þið ieyst úr málum
þeirra sem til ykkar leita?
„Stundum eru málin það skýr
að okkur tekst að gera það. Oft
eru þau líka mjög flókin og þá
ekki alltaf á okkar færi að leysa
þau í einföldu símaviðtali. Til
þess þyrftum við að hafa öll
gögn í höndunum. Við getum á
hinn bóginn leiðbeint fólki með
hvert það getur leitað með mál
sín.“
- Hvers konar mál er algeng-
ast að sé ieitað með til ykkar?
„Við fáum fyrirspumir um mál
sem snerta ýmis svið mannlífs-
ins en það er algengast að fólk
leiti upplýsinga hjá okkur vegna
sifja- og erfðamála. Þetta eru þá
mál sem varða til dæmis hjú-
skap, forræði eða arf.“
Birgir Tjörvi bendir á að þar
sem umrædd mál séu oftar en
ekki tilfinningalegs eðlis séu þau
flókin. Hann segir nemendur
forðast að gefa endanleg svör við
flóknum ágreiningsefnum þar
sem málsatvik eru oft flókin og
atburðarásin hefur
tekið langan tíma. „Við
reynum að skýra út
hvaða reglur gilda og
hvemig þær hafa verið
túlkaðar og geti hugs-
anlega átt við í viðkomandi máli.
Eitt höfuðmarkmið okkar hefur
verið að hjálpa fólki að taka
fyrstu skrefin í að leita réttar
síns og það virðist takast í flest-
um tilfellum.“
-Er þessari þjónustu ykkar
vel tekið?
„Já, það er alveg óhætt að
segja það. Það er misjafnt
hversu margir hringja inn á
hveiju fimmtudagskvöldi en frá
því við setjumst niður klukkan
19.30 og fram til klukkan 22
hringir síminn látlaust. Eg er
►Birgir Tjörvi Pétursson er
fæddur í Reykjavík hinn 11.
maí árið 1972. Hann lauk
stúdentsprófi frá Verslunar-
skóla íslands árið 1992 og
stundar nú nám við lagadeild
Háskóla íslands. Birgir 'Tjörvi
er annar af tveimur fram-
kvæmdastjórum Lögfræðiað-
stoðar Orators sem veitir fólki
ókeypis lögfræðiþjónustu á
fimmtudagskvöldum.
þess fullviss að færri komast að
en vilja. Það er engin spuming
að það er rík þörf fyrir þjónustu
sem þessa.“
- Hafa þeir sem til ykkar leita
ekki efni á að leita tii lögfræð-
ings?
„Það kemur fyrir að fólk ber
því við að hafa ekki efni á lög-
fræðiaðstoð. Við eigum á hinn
bóginn mjög erfitt með að meta
það í gegnum síma hvort sú er
raunin.“
Birgir Tjörvi segir að fyrst og
fremst leiti einstaklingar með
mál sin til þeirra og af báðum
kynjum. Fyrirtæki hafa greiðari
aðgang að lögfræðiþjónustu
heldur en einstaklingar og leita
því síður til okkar.
„Lögfræðiaðstoðin getur
sparað fólki heilmikla peninga ef
málið er einfalt.
Séum við ekki í þeirri aðstöðu
að geta leyst mál fyrir þá sem
hringja til okkar þá vísum við
þeim áfram til lögmanna. Þegar
fólk á í samskiptum við stjóm-
völd höfum við oft getað bent á
umboðsmann Alþingis sem tek-
ur við kvörtunum án endur-
gjalds. Þá hvílir einnig leiðbein-
ingaskylda á stjómvöldum og
höfum við þá reynt að greiða úr
því hvert viðkomandi á að snúa
sér.
Sé málið milli
tveggja einstaklinga
er oft eina úrræðið að
leita til lögmanna."
Birgir Tjörvi bendir
á að ef lögfræðinemar geti ekki
leyst úr málum komi fyrir að
þeir biðji fólk að hafa samband
síðar þegar búið er að athuga
betur mál viðkomandi. „Við lát-
um ekki senda okkur gögn en
það getur komið upp sú staða að
við tökum okkur tíma til að
kynna okkur betur mál. Eins og
ég sagði em laganemar mjög
áhugasamir um að sinna lög-
fræðiaðstoðinni og eru tilbúnir
að leggja töluvert á sig. Þetta er
því gagnkvæmt því við önnum
vart eftirspurn."
„Anna
vart
eftirspurn"
»