Morgunblaðið - 20.12.1997, Qupperneq 11
I
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 11
MORGUNBLAÐIÐ_______________________________________
FRÉTTIR
Yfírlýsing
Tók ekki þátt í úthlutun
til atvinnuleikhópa
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Hávari
Sigurjónssyni: „Vegna fréttaflutn-
ings af úrskurði Samkeppnisráðs
um úthlutun LeiklistaiTáðs til at-
vinnuleikhópa vill undimtaður
taka fram eftirfarandi.
Þau tvö ár sem undirritaður
gegndi samtímis starfi leiklistar-
ráðunautar Þjóðleikhússins og for-
mennsku í Leiklistarráði tók und-
irritaður ekki þátt í tillögugerð
framkvæmdastjórnar Leiklistar-
ráðs um úthlutanir styrkja til at-
vinnuleikhópa á vegum mennta-
málaráðuneytisins. Bæði árin tók
Hlín Gunnarsdóttir varamaður
sæti undirritaðs við þetta verkefni.
Þetta kom reyndar margsinnis
fram í umræðu um þetta mál sl.
vor en virðist hafa gleymst í frétta-
flutningi undanfarna daga. Þar
hefur æ ofan í æ verið fjallað um
hlutdeild tveggja fastráðinna
starfsmanna Þjóðleikhússins án
þess að skilið sé á milli starfa
framkvæmdastjórnar Leiklistar-
ráðs almennt og úthlutun til at-
vinnuleikhópa sérstaklega.
Sú skoðun undii-ritaðs að ekki
fari saman að gegna stöðu leiklist-
arráðunautar Þjóðleikhússins og
standa að úthlutun til atvinnuleik-
hópa hefur verið fullkomlega skýr
enda hefur ekki staðið um það
ágreiningur af hálfu undirritaðs.
Urskurður Samkeppnisráðs stað-
festir einungis þessa skoðun.
Undirritaður vísar á bug þeim
ummælum Brynju Benediktsdóttir
í Morgunblaðinu laugardaginn 13.
desember sl. að aðild hans sem
fastráðins starfsmanns Þjóðleik-
hússins að framkvæmdastjórn
LeiklistaiTáðs hafi verið „ólögleg
og siðlaus". Kosning formanns
Leiklistarráðs og skipan fulltrúa í
framkvæmdastjórn hefur verið í
fullkomnu samræmi við gildandi
reglugerð við leiklistarlög. Þar
hefur í öllu verið farið að lögum.
Fullyrðing um „siðleysi" fellur
einnig um sjálfa sig í ljósi þess sem
að ofan greinir.
Þá er rétt að skýrt komi fram
að kosning nýrrar framkvæmda-
stjórnar Leiklistarráðs hinn 6.
desember sl. var ekki í neinum
tengslum við kærumál Brynju
Benediktsdóttur. Fráfarandi
framkvæmdastjórn, sem undirrit-
aður veitti formennsku, hafði lokið
sínum lögbundna þriggja ára
starfstíma og fyrir lá að kjósa nýja
framkvæmdastjórn. Sem var og
gert.“
Hávar Sigurjónssonfv.
formaður Leiklistarráðs.
Ýmis bókatilboð í
Hagkaup allt til jóla
„VERÐ á bókum er alltaf að breyt-
ast, vegna mikillar samkeppni og því
engan veginn hægt að halda því fram
að bækur hjá Bónus séu að meðaltali
15% ódýrari en hjá Hagkaup. Vegna
sífelldrar endurskoðunar á verði og
ýmissa tilboða er ekki hægt að finna
neina slíka tölu svo sanngjarnt sé.
Við verðum með ýmiss konar tilboð
alveg til jóla,“ sagði Jón Björnsson,
innkaupastjóri hjá Hagkaup, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Framkvæmdastjóri Bónus sagði í
viðtali við Morgunblaðið í gær að
15% meðalverðmunur væri á bókum
milli verslananna. „Eg bendi á, að
Hagkaup var til dæmis með tilboð
sem fól í sér að þeir sem keyptu tvær
bækur fengu þá þriðju fría,“ sagði
Jón í Hagkaup. „Það er hvorki meira
né minna en 33% afsláttur og erfitt
að gera betur.“
Hagkaup keyrði verðið niður
Jón sagði að Hagkaup hefði keyrt
niður verð á bókum í því verðhnmi
sem verið hefði síðustu tíu daga.
„Við byrjuðum að bjóða barnabækm-
á 990 krónur, við vorum með þetta
tilboð þar sem þrjár bækur fengust á
verði tveggja og síðast auglýstum við
fjölda titla á 1.990 krónur.“
Jón kvaðst vilja benda á, að Hag-
kaup byði hátt í 500 bókatitla fyrir
jólin, en Bónus væri aðeins með um
70 titla.
Athugasemd frá
leikhússljóra LR
VEGNA fréttar sem birtist í Morg-
unblaðinu í gær um tillögu Þórhild-
ar Þorleifsdóttur, borgarleikhús-
stjóra, um aðskilnað á rekstri Leik-
félags Reykjavíkur og Borgarleik-
hússins vill Þórhildur koma eftir-
farandi athugasemdum á framfæri.
Tillagan um endurskoðunar-
nefnd var lögð framá framhaldsað-
alfundi Leikfélags Reykjavíkur
þann 1. desember sl. og er
svohljóðandi: „Skipuð verður 5
manna nefnd til að endurskoða lög
Leikfélags Reykjavíkur. Einnig
skal hún gera tillögur 'um stofnun
rekstrarfélags, í samvinnu við
Reykjavíkurborg, um rekstur
Borgarleikhússins - að leiklistar-
starfseminni undanskilinni - og
gera tillögur að þeim breytingum
sem þarf að gera á stofnskrá fyrir
Borgarleikhúsið í samræmi við
þær.“
Misskilnings gætti þar sem haft
var eftir Þórhildi að leikfélagið
hefði til þessa gegnt tvíþættu hlut-
verki með þvi að reka annars vegar
leiklistarstarfsemi og hins vegar
leikhús. Þar er að sjálfsögðu átt við
rekstur Leikfélags Reykjavíkur og
rekstur byggingar Borgarleikhúss-
ins.
ecco
CITY
art. 35014
ECCO COMFORT FIBRE SYSTEM®
Kerfi sem Ecco hefur látið sérvinna til
þess að auka þægindi fyrir fætur. Það
hefur eftirtalda eiginleika:
• Góða loftræstingu.
Loftrými virkar eins og örsmáar
loftdælur þegar gengið er og veitir
fersku lofti inn í skóinn.
• Bakteríudrepandi
• Mikið viðnám gegn álagi
• Mýkt.
Efnið lagar sig að fætinum
þegar gengið er.
• Ending.
Þykkt eða eiginleikar efnisins
breytast ekki við notkun.
HÖGGDEYFAR
Allir Ecco skór eru búnir höggdeyfum.
Höggdeyfarnir eru framleiddir úr sér-
stöku efni sem dregur úr höggum, sem
valda álagi á fætur og bak, um 70-80%.
ECCO SKÓR LÉTTA FÓLKI SPORIN!
Þorláksmessuskata
Hjá okkur færðu góða skötu
nig humar — stórar rækjur — graflax —
n lax og sjávarkonfekt
Fiskbúðin Hafbe
Gnoöarvogi 44,
Sími 588 8686 Opið alla helgina M kl. 9-17