Morgunblaðið - 20.12.1997, Síða 24
AUK / SlA K826-38
24 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
UR VERIIMU
MORGUNBLAÐIÐ
Nokia GSM 1611, 22.900 kr*
Nokia GSM 3110, 36.900 kr.*
Nokia GSM 8110, 47.900 kr.*
135 g, 70 klst. biótítni, 2 klst. taltimi
Hátækni
Ármúla 26 • sími 588 5000
Hafðu samband!
nægjulegt
iólatilboð
Innifalið í veröi hvers
síma er stofngjald
ásamt hleöslutæki
í bílkveikjara
og leðurtaska,
samtals aö
verömæti
um 7.400 kr.
151 g, 95 klst. biðtími, 2,7 klst. taltími
250 g, 140 klst. biðtími, 3,5 klst. taltími
Ástand sjávar kringum
allt landið talið gott
HEILDARNIÐURSTÖÐUR sjó-
rannsóknaleiðangurs Hafrann-
sóknastofnunar nú í desember sýna
að hlýsjórinn að sunnan er óvenju-
áhrifaríkur miðað við undanfarin ár
og þar gætir enn lítillar vetrarkæl-
ingar. Auk þess hefur kaldi Austur-
íslandsstraumurinn vikið undan
Norður- og Austurlandi frá því í
ágúst. Þá er ástand sjávar á miðun-
um allt í kringum landið gott.
Hlýi sjórinn að sunnan var bæði
tiltölulega heitur (8-9,5°C) en þó
einkum saltur (allt að 35,2%o) miðað
við meðalárferði. Hans gætti í ríkum
mæli fyrir Vestflörðum með hita
milli 6 og 7°C og seltu yfir 35,0%o
og náði hann inn á vestanverð norð-
urmið allt austur á móts við Siglu-
nes (hiti þar 4-5°C) og jafnvel eitt-
hvað austar en þá með lækkandi
hitastigi og seltu er nálgaðist venju-
legt vetrarástand. Fyrir Austurlandi
var sjávarhiti tiltölulega hár á land-
grunninu (2-4°C) og selta var þar
um 34,8%o en með þunnu ferskara
yfirborðslagi.
Kalda tungan í Austur-íslands-
straumi fyrir Norðaustur- og Aust-
urlandi hefur vikið fyrir hlýja sjónum
síðan í ágúst og var tiltölulega langt
undan með hitastig undir 0° og seltu
um 34,6-34,8%o.
I leiðangrinum var unnið að ýms-
um öðrum verkefnum. Skal þar fyrst
nefna fjölþjóðaverkefni, sem stutt
er af Evrópusambandinu og gengur
undir nafninu VEINS. Markmið þess
er að mæla og fylgjast með breyti-
leika í varma- og efnaflæði milli
Norður-íshafs og Atlantshafs og
smíði reiknilíkans, sem hjálpartækis
til ákvörðunar á hvaða mælingar
kann að vera nauðsynlegt að gera
í framtíðinni svo unnt verði að öðl-
ast betri skilning á og fylgjast með
hlutverki norðurhafa í langtíma veð-
urfarsbreytingum á komandi árum.
Þá var einnig unnið að gagnasöfn-
un vegna annars fjölþjóðaverkefnis,
sem nefnt hefur verið ESOP-II og
er einnig styrkt af Evrópusamband-
inu. Hlutverk þess er m.a. að rann-
saka hita-seltu hringrásina í Norður-
Grænlandshafí og tengsl hennar og
áhrif á hringrás heimshafanna.
Varpað var út 10 rekduflum á
vöidum stöðum fyrir sunnan og vest-
an land. Dufl þessi eru notuð til að
fylgjast með hafstraumum umhverf-
is landið og er fylgst með reki þeirra
með aðstoð gervihnatta. Þetta er
samvinnuverkefni Hafrannsókna-
stofnunarinnar og bandarískra aðila.
Einnig var varpað út tveim veð-
urrekduflum fyrir Veðurstofu ís-
lands. Þá var safnað sýnum til
isotopamælinga fyrir Geislavarnir
ríkisins og að lokum var skipt um
tvo straummæla, sem eru á lang-
tímalögn í lokaða hólfinu á Hom-
banka. Hlutverk þeirra er að fylgj-
ast með flæði atlantssjávar inn á
norðurmið.
Leiðangursmenn voru: Jóhannes
Briem, leiðangursstjóri og hafrann-
sóknarmennimir John Mortensen,
Magnús Danielsen og Bjöm Sigurðs-
son. Jón Ólafsson prófessor var með
í hluta leiðangursins. Skipstjóri var
Ingi Lárasson.
Norðmenn gegn veiðileyfi Stakfells
Setja Smugu-
veiðar fyrir sig
ÓVÍST er, að Stakfellið, sem nú er
gert út frá Færeyjum, fái leyfi til
að veiða við Noreg á næsta ári.
Hefur skipið haft þetta leyfi í sam-
ræmi við samninga milli Færeyinga
og Norðmanna en að sögn Jóhanns
A. Jónssonar, framkvæmdastjóra
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, setja
Norðmenn það fyrir sig, að skipið
veiddi á sínum tíma í Smugunni.
Hraðfrystistöðin seldi Stakfellið
til Færeyja í haust og á sjálf nokk-
urn hlut í útgerðarfyrirtækinu, sem
gerir það út. Að undanfömu hefur
skipið verið við veiðar við Svalbarða
og í rússneskri lögsögu í Barents-
hafi en hefur auk þess haft leyfi til
að veiða ufsa sunnan 62. gráðu við
Noreg.
Furðar sig á
vinnubrögðunum
Jóhann sagði, að nú vildu Norð-
menn afturkalla þetta leyfi og á
þeirri forsendu, að Stakfellið hefði
HÉR Á landi er nú stödd 4 manna
sendinefnd forráðamanna kín-
versks skipasmíðaiðnaðar, m.a.
frá Guang Zhou Huangpu Ship-
yard skipasmiðastöðinni sem m.a.
hefur boðið í smíði nýs hafrann-
sóknaskips fyrir Hafrannsóknar-
stofnun. Af því tilefni mun Ic-
eMac-Fiskvinnsluvélar ehf., sem
er umboðsaðili skipasmíðastöðv-
arinnar hér á landi, bjóða til ráð-
stefnu á Hótel Sögu kl. 14 á laug-
ardag. Á ráðstefnunni mun Gao
Feng, forstjóri China State Ship-
á sínum tíma verið að veiðum í
Smugunni. Þessu hefðu Færeyingar
mótmælt en ekki væri von á, að
botn fengist í þetta fyrr en á næsta
ári.
Þetta mál hefur ekkert snert
hagsmuni útgerðarinnar enn að sögn
Jóhanns og hann sagði það alveg
ókannað hvort fysilegt væri að fara
í ufsann við Noreg miðað við aðra
kosti, sem skipið hefði. Á hinn bóg-
inn væri það furðulegt, að forsaga
skips, sem selt hefði verið, skyldi
ráða því í hvaða verkefni það mætti
fara. Kvaðst hann ekki hafa heyrt
um svona vinnubrögð áður og ekki
vita hvort Norðmenn hefðu nokkra
lagastoð fyrir þeim. Sagði Jóhann,
að þetta sýndi best hvaða brögðum
Norðmenn beittu okkur.
Stakfellið er nú að veiðum innan
rússnesku lögsögunnar en aflinn
hefur almennt verið heldur tregur í
haust. Sagði Jóhann, að hann færi
þó heldur batnandi.
building Corp, fjalla um skipa-
smíðaiðnað í Kína, Dong Zhi
Cheng, framkvæmdastjóri Guang
Zhou skipasmíðastöðvarinnar,
mun fjalla um tæknikunnáttu og
gæði í kínverskum skipasmíðaiðn-
aði, Bolli Magnússon, skipatækni-
fræðingur, mun ræða smíðalýs-
ingar, gæði og verð og Daníel
Friðriksson, skipatæknifræðing-
ur, mun segja frá kynnisferð sem
farin var til Kina sl. september.
Á milli framsöguerinda verða fyr-
irspurnir úr sal.
Ákvörðun LÍÚ um
verkbann
Sjómenn
vilja úr-
skurð Fé-
lagsdóms
SJÓMANNASAMBAND íslands
ákvað í gær að fá úr því skorið fyr-
ir Félagsdómi hvort heimildin fyrir
verkbanni, sem Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna, LÍÚ, aflaði
sér nýlega, væri lögleg. Er það mat
lögfræðinga Sjómannasambands-
ins, að það hafí ekki verið lögum
samkvæmt að telja atkvæði frá öll-
um útvegsmannafélögunum sam-
eiginlega.
LÍÚ aflaði sér heimildarinnar til
að geta svarað boðuðu verkfalli vél-
stjóra með verkbanni á aðra skip-
veija um borð í skipum, sem eru
með aflmeiri vélar en 1.500 kw. í
fréttatilkynningu frá Sjómannasam-
bandinu segir, að hingað til hafi því
verið haldið fram, að sjómannafé-
lögin 37 verði að taka um það
ákvörðun hvert fyrir sig hvort efnt
verði til verkfalls en LIÚ hafí hins
vegar talið sér heimilt með tilvísan
til laga Vinnuveitendasambands ís-
lands að te(ja öll atkvæði í útvegs-
mannafélögunum sameiginlega.
í yfirlýsingu Sjómannasambands-
ins segir, að það hafi grandvallar-
þýðingu fyrir verkalýðshreyfinguna
í heild að fá úr þessu skorið og af
þeim sökum meðal annars hafi ver-
ið ákveðið að vísa málinu til Félags-
dóms.
------♦ ♦ «----
Mæla síld
og loðnu
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að hafrann-
sóknaskipin bæði, Ámi Friðriksson
og Bjami Sæmundsson, fari í nýjan
loðnu- og síldarleiðangor strax eftir
áramót eða 2. janúar.
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, sagði, að til
að skipin fengju gott næði við
mælingarnar fyrir austan, yrði farið
fram á, að svokallaðar tilraunaveið-
ar jneð flotvörpu yrðu ekki stundað-
ar á meðan en vegna þess, að síldin
hefur haldið sig mest við botninn,
hefur ekkert fengist í nótina lengi.
Kynna nýsmíði
fiskiskipa í Kína