Morgunblaðið - 20.12.1997, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fmgraför Carlosar
fundust á
París. Reuters.
SÉRFRÆÐINGUR lögreglunnar í
París bar um það vitni í réttarhöld-
unum yfir „Sjakalanum Carlosi" í
gær að fingraför hans hefðu fund-
izt í íbúð í borginni sem tveir fransk-
ir leyniþjónustumenn og uppljóstr-
ari þeirra voru myrtir í árið 1975.
Vitnisburður sérfræðingsins kom
fram á sjötta degi réttarhalda vegna
þrefaldrar morðákæru á hendur
hinum goðsagnakennda hermdar-
verkamanni Carlosi. Sagði sérfræð-
ingurinn að enginn vafi léki á því
að fingraför sem fundizt hefðu á
viskífiösku og glösum í íbúðinni
væru Carlosar.
vettvangi
Carlos, sem kallaður hefur verið
„Sjakalinn" en heitir í raun Illich
Ramirez Sanchez og er frá Venez-
úela, er ákærður fyrir morð á
tveimur óvopnuðum leyniþjónustu-
mönnum og líbönskum uppljóstr-
ara þeirra í einni af reglubundnum
heimsóknum sínum til uppljóstrar-
ans.
Carlos, sem fram að þessu hefur
talað mikið við réttarhöldin, sagði
ekkert í gær og reyndi ekki að ve-
fengja að fingraförin væru hans.
Verjandi hans, Isabelle Coutant-
Peyre, sagði fingraförin hafa getað
verið tekin „hvar sem er“.
•V
SKÓR FYRIR KARLMENN
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
Domus Medica - Kri
Galway
Hague kvongast
Gíslunum
í Texas
sleppt
VOPNAÐUR maður, sem tók
80 ung börn í gíslingu á barna-
heimili í Texas, sleppti tveimur
síðustu gíslunum í fyrrinótt og
gafst upp án þess að til átaka
kæmi.
Vopnaðir lögreglumenn
höfðu setið um barnaheimilið
í 30 klukkustundir þegar mað-
urinn lagði frá sér skamm-
byssu sína og gekk út úr
barnaheimilinu. Skömmu áður
hafði hann sleppt fimm ára
syni sínum og sjö ára stjúpsyni.
Drengina sakaði ekki.
„Maðurinn var þreyttur og
börnin voru farin að þreytast
og ég hygg að hann hafi tekið
að hugsa um velferð barn-
anna,“ sagði lögreglustjóri
Plano, útborgar Dallas í Tex-
as. Maðurinn var færður í
fangelsi og ákærður strax fyr-
ir mannrán.
Ættingjar mannsins og
drengjanna grétu af gleði og
féllust í faðma þegar gíslatök-
unni lauk. Maðurinn er á saka-
skrá en ættingjar hans sögðu
að hann hefði aldrei ætlað að
gera börnunum mein og tekið
þau í gíslingu í örvinglun eftir
að hafa deilt harkalega við
fyrrverandi eiginkonu sína,
sem starfaði á barnaheimilinu.
WILLIAM Hague, leiðtogi
breska íhaldsflokksins, gekk í
gær að eiga unnustu sína, Ffion
Jenkins, í þinghúsinu í London.
Jenkins, sem er 29 ára Wales-
búi, er sögð gædd miklum per-
sónutöfrum og breskir íhalds-
menn vonast til þess að brúð-
kaupið og umfjöllun fjölmiðla
um það bæti ímynd flokksfor-
mannsins, sem nýtur miklu
minni vinsælda en Tony Blair
forsætisráðherra ef marka má
skoðanakannanir.
Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag
Þrír Króatar látnir lausir
Haag. Reuters.
STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓLL
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Haag
gaf í gær út tilskipun um að þrír
Bosníu-Króatar, sem dómstóllinn
hefur haft í haldi frá í október
vegna gruns um aðild að stríðs-
glæpum, skyldu látnir lausir án
tafar.
Yfirsaksóknari, Louise Arbour,
greindi frá því að ákærur á hendur
Kraftmeiri, nú með 1400W mótor.
Fislétt, aðeins 6.5 kg.
Biðstöðufesting fyrir rör og slöngu.
Og hinn frábæri Nilfisk AirCare®
síunarbúnaður með HEPA H13 síu.
Komdu og skoðaöu nýju
Nilfisk GM-400 ryksugumar
/ponix
HATÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Marinko Katava, Pero Skopljak og
Ivan Santic, yrðu felldar niður
vegna skorts á sönnunargögnum.
Þessir þrír voru í hópi tíu Bosníu-
Króata sem gáfu sig fram við dóm-
stólinn í október eftir að Banda-
ríkjamenn höfðu beitt Króata
diplómatískum þrýstingi. Höfðu
allir verið ákærðir vegna fjölda-
morða á múslímum í Mið-Bosníu
1993.
Anto Furundzija, Bosníu-Króati
sem var handtekinn i Bosníu á
fimmtudag, neitaði í gær sakargift-
um frammi fyrir dómstólnum í
Haag. Furundzija var handtekinn
ásamt öðrum Bosníu-Króata,
Vlatko Kupreskic, og er þeim gefið
að sök að hafa tekið þátt í fjölda-
morðunum 1993.
Kupreskic særðist í átökum við
hollensku gæsluliðana sem hand-
tóku hann og er búist við að hann
komi fyrir dómstólinn síðar.
pels
Litir: Brúnn og svartur.
Verð kr. 12.980
Æðislegur velúrtrefill fylgir
nú hverjum keyptum
síðum pels á meðan
birgðir endast.
Fallegir litir.
Falleg gjöf handa
elskunni þinni!
f \ TÍSKUVÖRUVERSLUN
Straumar
Laugavegi 55; sfmi 561 8414
LISTAVERK I JOLAGJOF
Hvergi meira úrval af íslenskri myndlist
Opið til kl. 22.00 — Gallerí Fold, Rauðarárstíg, sími 551 0400 og Kringlunni, sími 568 0400