Morgunblaðið - 20.12.1997, Page 68

Morgunblaðið - 20.12.1997, Page 68
68 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM LAUGARDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA Svipul sæmd Mynd Johns Hustons um undir- málsmenn, úrræðaleysi og ein- manaleika er í hópi þeirra bestu frá hendi hins snjalla leikstjóra, en jafnframt ein sú fáséðasta. Ástæðan sjálfsagt heldur dapur- legt efnið. Aðalpersónumar eru tveir bardagamenn hringsins. Sá eldri (Stacy Keach), sem er tekinn að fitna, átti sína góðu daga, en er kominn í ræsið. Sá yngri (Jeff Bridges) stefnir hraðbyiá á sömu slóðir þótt hann hafí ljóslifandi dæmi um afleiðingamar fyrir aug- um. Huston tók myndina í róna- hverfi Stockton, niðurnítt um- hverfíð, skítug hótelherbergin og volkaðir íbúamir setja rétta hnignunarblæinn á myndina. Flesta aukaleikai’ana réð hann á staðnum. Gamla boxara, róna og daglaunamenn. Takið eftir öldrað- um, þeldökkum ram sem segir Tully (Keach) ft-á raunum sínum. Huston nasaði hann uppi úti á laukakri. Þegar hann hafði lesið rulluna fyrir leikstjórann spurði Huston hvort hann gæti lært hana utanað. „Ég er búinn að því“, svaraði karlinn. „hún var les- in fyrir mig. Ég var að þykjast, ég kann ekki að lesa“. Hann var ráð- inn á staðnum. Bestur allra er þó Stacey, Keach (Brando stóð hlut- verkið til boða en Huston gekk ekki á eftir honum) sem gamli bardagamaðurinn sem glímir nú við flöskuna en eygir von í Bridges, sem á enn einn stórleik- inn. Lánleysið fellur þeim að síð- um. Kris Kristofferson er ekki mikill leikari en hann hefur samið nokkur gullfalleg lög og texta. Eftirminnilegasta atriði Svipullar sæmdar er upphafsatriðið. Tully hefur verið að lina þjáningar sínar undir sænginni inná sjúskuðu hót> elherbergi og er að reyna að kom- ast í form til að horfast í augu við nýbyrjaðan daginn. Undir at- burðarásinni er leikið lagið Help Me Make It Through The Night Þessi fallega melódía og hrópandi bænin í textanum segir allt sem segja þarf um ástand persónunn- ar og gefur myndinni tóninn. ■kirkVz Saga Klass ‘■ Y" ' i Stöð 2 ►13.10 Laugardags- myndirnar ganga í garð með Prúðuleikurunum (The Muppet Movie), (‘79)) kkVi, þeirri fyrstu og bestu um brúðurnar vinsælu. Bæri- legt bamagaman með fjölda gesta- leikara í bland við Kermit, Svínku og hvað þær hétu nú allar. Leik- stjórinn, James Frawley, gerði nokkrar forvitnilegar myndir en féll fljótt í gleymsku. Sjónvarpið ►20.50 Bandaríska Eddie Murphy myndin Prins í konuleit Coming to America), (‘88)), er fyrsta og skársta mynd grínarans eftir fyrstu stórsmel/ina þrjá. Murphy fer með hlutverk auð- ugs prins frá ónefndu Afríkuríki sem kemur til Bandaríkjanna og þykist vera fátæklingur til að ganga í augun á stóru ástinni sinni. Auk þess fer þessi forkostulegi en óvandfýsni gleðigjafi með mýgrút ólíkra smáhlutverka. Með aðstoð förðunarmeistara bregður hann sér m.a. í gervi gamals Gyðings. Gerí aðrir strákar frá Harlem betur. Leikstjórí er John Landis og fyrr- um sjónvarpsstjarnan Arsenio Hall fer með annað aðalhlutverkanna. SV ogAI gefa kkV.íí Mynd- bandahandbók heimilanna. Sýn ►21.00 Um myndina Blóð- taka 2 (Rambo: First Blood Part II:), (‘85), var fjallað á þessum vettvangi fyrir tveim vikum, hún virðist því lífseig eins og DIANA prins- essa sjálf en með hlutverk hennar í kvikmyndinni fer bresk klám- myndaleik- :í kona. söguhetjan. Stendur fyrrí myndinni langt að baki. Að þessu sinni er Ví- etnam vettvangur ofurmennisins. kk Stöð 2 ^21.10 Hin sígilda Jóla- saga eftir Charles Dickens er til staðar að þesssu sinni í nýjum bún- ingi sem Kanadamaðurinn George Kaczender gerði 1995 og heitir Skrugga (Ebbie). Landi hans, leik- konan Susan Lucci, fer með hlut- verk nánasarinnar sem fær fyrrum viðskiptafélaga sinn afturgenginn í heimsókn. Reynir hann með aðstoð hjálparkokka sinna að vekja mann- legar tilfinningai' hjá nirflinum. Not- endur IMDb era sáttir við Skrögg gamla á háum hælum og gefa 7,8 í meðaleinkunn. Það er því ástæða til að ætla að Skröggur hressi uppá jólahaldið í ár eins og svo oft áður. Sjónvarpið ►22.55 Trúnaðar- mál (Confídential Report), (‘55) er hvalreki á fjörur kvikmyndaunn- enda því hér er komin frekar fáséð mynd eftir Orson Welles - reyndar betur þekkt undir nafninu Mr. Arkadian. Nokkuð leyndardómsfull spennumynd sem telst ekki ein af meirí háttar myndum hins mistæka meistara en á góða spretti. Welles leikur auðjöfurinn Arkadian sem segist þjást af minnisleysi og ræður m ann til að kanna fortíð sína. En allir þeir sem þekktu Hr. Arkadi- ÍL an enda í líkhús- ■■A inu. Welles fram- leiddi sjálfur (af Hljómsveitin SAGA KLASS og söngvararnir Sigrún Eva Ármannsdóttir og Reynir Guðmundsson sjá um kraftmikla og góöa danstónlist frá kl. 23.30. André Bachmann og félagar með lauflétta stemningu og líflega tónlist á MÍMISBAR nokkrum vanefnum) þessa fransk/ spænsku mynd, auk þess að leik- stýra, skrifa handritið og fara með aðalhlutverkið. Fékk til liðs við sig trausta skapgerðarleikura eins og Sir Michael Redgrave, Mischa Auer, Akim Tamiroff, Katinu Pax- inou og Peter Van Eyck. Forvitni- leg, einkum í sögulegu samhengi, það glittir í gullið þó meistaranum sé tekið að fatast flugið. ★★Vá Stöð 2 ►23.00 Svipul sæmdfFat City), (‘72) Sjá umfjöllun í ramma. Stöð 2 ► 00.40 Bein ógnun (Clear and Present Danger), (‘94) er þriðja kvikmyndin sem gerð er með Harrí- son Ford í hlutverki leyniþjónustu- mannsins Jacks Ryans. Myndirnar eru byggðar á mctsölubókum Toms Clancy. Verkefni Ryans er að þessu sinni í ævintýralegrí kantinum, hann fæst við eiturlyfjabaróna í Kólombíu. Góð, ★★★ skemmtun. Með Willem Dafoe. Leikstjórain spræk hjá Philip Noyce. Stöð 2 ►03.00 Ef áskrifendur Tvistsins hafa ekki séð Kika, (‘93), inynd Pedros Almodóvars um förð- unardömuna Kiku (Veronica Forque) og umgengnisvandamál hennar við móður sína, systur og sambýlismann (Peter Coyote), ættu þeir a.m.k. að setja á upptöku. Mannlífíð h ans Almodóvars er engu öðru líkt og persónumar fjölskrúð- ugar sem endranær. Með Victoriu Abríl. Sæbjörn Valdimarsson Klámmyndaleik- kona sem Díana ► DAGBLAÐIÐ New York Post greindi nýlega frá því að bresk klámmyndaleikkona muni leika Díönu prinsessu í kvikmynd sem gerð verður um ævi hennar. Leikkonan heitir Christina Hance og lék hún í hinni frægu klámmynd „Our Wild- est Orgies" auk þess sem hún lék í mynd- bandi sem átti að vera af ástarleik Díönu prinsessu og fyrrum elskhuga hennar, James Hewitt, og bresku blöðin gerðu allt vitlaust út af. Það er breski kvik- myndagerðarmaðurinn David Puttnam sem stendur fyrir gerð myndarinnar sem á að vera um „prinsessu fólksins“, en ekki eru all- ir sáttir við leikkonuvalið. „Ef þeir þurfa að gera kvikmynd um Díönu á annað borð væri þá ekki meira viðeigandi að nota alvöru leikkonu," spurði breski aðalsmaðurinn James Lally blaðið. Framleiðandinn Puttnam vísaði allri gagnrýni á bug og sagði myndina verða til heiðurs Díönu. Miðasala og borðapantanir daglega á Hótel Islandi kl. 13-17, simi 568-7111. ín saga! Viðar Jónsson m skgmmtirjjestum tií kl. 03 Danskur jólamatur kr. 1.490 Lambalæri bearnaise kr. 790 Munið Þorláksmessuskötuna <». CataCím II (Hamra6org 11, sími 554 2166

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.