Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 43 bæjar, nánar tiltekið í Silfurtúnið. Heimsótti ég þau tvisvar þangað og átti strax samleið með tveim yngstu börnunum, Omma og Unnu. Síðan fluttu þau enn nær okkur, í Garðinn og þá fjölgaði heimsóknunum veru- lega. Þau bjuggu fyrstu árin í bamaskólanum í Garði og þar var algjör paradís fyrir krakka að vera (a.m.k. um helgar), þá höfðum við heilt íþróttahús út af fyrir okkur og fengum útrás fyrir orkuna. Þegar ég var á tíunda ári fæddi móðir mín sitt sjötta bam og á meðan hún lá á sæng dvaldi ég í heila viku hjá Önnu og Jóa. Þetta var í ágúst og dásamlegt að vera til. Þar sem ég var elst minna systkina var það mikil upplifun fyr- ir mig að fylgjast með eldri böm- um Önnu og Jóa, ástum þeirra og tilhugalífi og í minningunni er margt af því ævintýri líkast. Eitt sumarið eftir að ég var orð- in matvinnungur, útvegaði Jói mér fiskvinnu í Garðinum og buðu þau hjón mér að vera hjá sér virka daga. Þetta var skemmtilegur tími eins og allur annar tími hjá þeim. Samband þeirra hjóna var mjög sérstakt, Jói leyndi aldrei ást sinni á Önnu og hún var alltaf jafn vand- ræðaleg þegar hann lét þannig við hana að öðram viðstöddum, en það leyndi sér ekki hvað hún var ánægð með hann. Eftir að ég varð fullorðin fækk- aði samverastundunum með fjöl- skyldunni í Garðinum, en sterk tengsl era og verða milli okkar. Anna Birna og móðir mín voru ávallt góðar vinkonur og héldu tryggð við hvor aðra fram á síðustu stundu. I lok janúar sl. fór ég ásamt fjölskyldu minni á kvöldvöku í samkomuhúsinu í Garði, sem haldin var í tilefni 90 ára afmælis Gerðahrepps og var fyrsti liður- inn í afmælisárinu til heiðurs þeim Önnu Birnu og Jóa. Á því má sjá að þau hafa unnið hug og hjörtu Garðbúa sem og annarra sem urðu þess aðnjótandi að kynnast þeim. Á samkomu þessari voru flest börn þeirra hjóna og barnabörn og fluttu þau frum- samið efni eftir Jóa. Ánna Birna var ekki viðstödd sjálf vegna veik- inda, en ég veit að hún var þar í anda. Eg var mjög stolt þetta kvöld sem ávallt, að vera skyld þessu ágæta fólki. Eg vil þakka fyrir þau forrétt- indi að hafa átt að svo einstaka konu sem Anna Bima frænka mín var og bið góðan Guð að styrkja bömin hennar og aðra afkomendur á þessum erfiðu tímamótum. Hjördís. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur, mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Elsku besti afi. Þú barðist hetjulega gegn veikindum þínum. , Við söknum þín mikið. Við vitum 1 líka að nú ertu á góðum stað og þér líður vel. Okkur þykir mjög vænt um þig. Axel og Sigurlaug. Elsku afi minn, ég vil þakka þér fyrir allar góðu samverastundirnar sem við áttum saman, þegar ég kom vestur á Hellissand í heim- sókn til ykkar ömmu. Eg á eftir að sakna þín mikið, en ég trúi því að þér líði betur núna og við eigum eftir að hittast aftur. Guð blessi þig, elsku afi. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Skáld-Rósa.) I Þín, Guðný Dóra Heiðarsdóttir. KARL JÓHANNSSON + Karl Jóhannsson fæddist í Vest- mannaeyjum 29. nóvember 1906. Hann lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 4. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Kristín Árnadóttir og Jóhann Jónsson frá Brekku í Vest- mannaeyjum. Karl var fimmti í röð alls tólf systkina en af þeim komust níu til fullorðinsára. Af systkinunum er ein systir eftirlifandi, Steingerður, sem dvelst á Dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Eiginkona Karls var Kristjana í dag er borinn til grafar í Vest- mannaeyjum hann Kalli afi minn, 91 árs að aldri og langar mig að minnast hans með nokkrum orð- um. Það má segja að það hafi verið svolítið sérstakt að hann afi bjó alla tíð hjá pabba og mömmu frá því að þau hófu búskap. Fyrstu árin var hann ekki mikið heima við, enda stundaði hann sjóinn, en síðar fékk hann vinnu í landi. Við systkinin ól- umst því upp með afa á Stekkjar- flötinni, þar til við fluttum að heim- an eitt af öðra. Það er ótrúlega skýrt í minning- unni þegar afi var að passa okkur systkinin, í Garðabænum, t.d. á laugardagsmorgnum þegar pabbi og mamma og skrappu í bæjarferð. Það brást ekki að um hádegisbilið var kominn góður matarilmur frá eldhúsinu og í útvarpinu hljómuðu óskalög sjúklinga; þetta stendur mér ennþá ljóslifandi fyrir hugs- kostssjónum. Og hann tók brosandi á móti okkur og var hann þá búinn að útbúa hádegismat fyrir okkur. AJltaf var maturinn jafn girnilegur hjá honum, því hann var öndveg- iskokkur. Það var greinilegt að hér var á ferðinni maður sem var vanur að elda ofan í mannskapinn enda hafði hann verið kokkur á sjónum um margra ára skeið. Menn höfðu það oft á orði hversu ótrúlega hress hann væri og hversu lundin væri létt hjá honum og aldrei heyrði maður hann kvarta yfir hlutskipti sínu í lífinu þótt stundum hafi móti blásið í lífs- ins ólgusjó. Mér hefur alltaf þótt vænt um það að vera skírður í höf- uðið á syni hans, sem hét Gunnar Þór, en hann dó á unga aldri. Það mun sennilega hafa verið ár- ið 1980, sem við Sigurborg fóram í fyrsta sinn á þjóðhátíð í Eyjum og þá var afi einmitt í Eyjum, en hann hefur þá verið 73 ára. Hann vildi endilega labba með okkur um svæðið á laugardagskvöldinu og fram á nótt og var mjög gaman að ganga um tjaldborgina með hon- um, því það virtust allir þekkja hann og alltaf var verið að bjóða okkur inn í tjöldin til að þiggja veitingar og rabba um daginn og veginn eða lífið og tilverana. Þar sá maður að hann átti skemmtilega kvöldstund í hópi góðra vina sinna. Hann afi hafði mjög gaman af göngu og gekk um Garðabæinn þveran og endilangan, meðan hann bjó þar, og átti hann ekki í neinum erfiðleikum með að ganga upp að Vífilsstöðum og til baka á góðum degi. Þegar hann fluttist inn á Hrafnistu í Hafnarfirði, gekk hann um næsta nágrenni og átti hann það til að kíkja í heimsókn til okkar Sigurborgar. Eftir því sem árin færðust yrir styttust gönguferðirn- ar, en þær lögðust aldrei af hjá honum og allt fram á síðasta ár fór hann nær daglega í smágöngutúr. Eitt sem var eftirtektarvert við hann afa var að hann fylgdist ótrú- lega vel með öllu sem var að gerast í kringum hann hin síðari ár og einnig fylgdist hann vel með frétt- Oddsdóttir, f. 15. september 1907, d. 5. desember 1950. Þau eignuðust fjögur börn, þrjú dóu ung en dóttirin Hervör, f. 1934, komst til full- orðinsára. Eiginmað- ur hennar er Geir Oddsson frá Stykkis- hólmi og eiga þau þrjú börn sem eru Kristjana, f. 1955. Gunnar Þór, 1959 og Arna Guðrún, f. 1963. Barnabörnin eru sjö. Utför Karls fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. um og allri þjóðmálaumræðu, þótt hann væri orðinn þetta aldraður. Það var alveg sama hvað rætt var við hann um, hann vissi alveg ná- kvæmlega hvað var að gerast í kringum sig. Hann hafði gaman af því að fara í bíltúr um helgar niður á bryggju í Hafnarfirði og skoða mannlífið þar og fylgjast með smá- bátum sem voru að koma inn til löndunar. Hann lagði sig sérstaklega fram um að fylgjast vel með og fá reglu- lega upplýsingar um bamabömin og hvemig þeim heilsaðist og hvemig þeim vegnaði. Það var gott að heimsækja hann á Hraftiistu og ef bamabörnin vora með í fór, átti hann alltaf eitthvert nammi handa þeim í ísskápnum og gos til að væta kverkamar. Hann hafði nokkram sinnum veikst alvarlega hin síðar ár og var oft tvísýnt með hann, en alltaf stóð hann upp úr þessum veikindum, þótt heilsunni væri farið að hraka veralega. Það var síðan að morgni 4. febr- úar sl. sem hann lést, eftir að hafa lagst til hvíldar í rúmið sitt. Hann hafði farið fram til að borða morg- unmatinn og mun þá hafa sagt að nú væri þetta sennilega að verða búið hjá sér. Stuttu seinna þegar starfsfólk Hrafnistu leit inn til hans, var hann látinn í rúmi sínu. Kæri afi, ég veit að nú ert þú í góðum höndum. Kærar þakkir fyr- ir samverastundirnar. Guð blessi þig- Gunnar Þór. Elsku afi minn, það er erfitt að sætta sig við að þú sért dáinn, margar góðar minningar koma upp í huga minn á þessari stundu. Frá fæðingu ólst ég upp með þér á heimili mömmu og pabba í Akur- gerði, því um svipað leyti og þau komu með mig heim af fæðingar- deildinni, árið 1955, fluttir þú inn til þeirra. Samverastundir okkar urðu því margar frá mínum fyrsta degi. Elsku afi, ég þakka þér fyrir all- ar góðu stundirnar sem við áttum saman og ekki má gleyma góða matnum sem þú eldaðir fyrir okk- ur, fiskurinn og grautarnir þínir, bragðinu gleymi ég aldrei. Þegar mamma og pabbi bragðu sér út varst þú ætíð barnapían okk- ar og það voru góðar stundir, elsku afí minn. Ég fékk alltaf að velja hvað ætti að vera í matinn, hátta- tíminn hafði engin tímamörk, hvorki þá né seinna á unglingsár- um mínum. Einnig var alltaf gott að koma inn í herbergið þitt, sitja þar og kíkja í nammipokann þinn. Árin liðu og ég varð unglingur og þá vai' gott að eiga afa sem gaukaði að mér pening fyrir bíó og skildi það að stundum varð útivist- artíminn að litla leyndarmálinu okkar. Þetta leiddist okkur Guð- rúnu, vinkonu minni, ekki. Árin flugu, þú fórst á Hrafnistu í Hafnarfirði en ég hóf búskap. Þetta varð þó bara til þess að ferð- irnar urðu fleiri í fjörðinn, bíltúr- arnir okkar og kaffispjallið víðs- vegar um bæinn vora skemmtilegir tímar, tímar sem ég á eftir að sakna, afi minn. Ég gleymi aldrei ferðinni sem við fóram á Pollamótið í Vest- mannaeyjum með Geir Óla og írisi Hervöra. Þá fékk ég að sjá Vest- mannaeyjar í öðru ljósi heldur en áður. Eftir kappsaman dag hjá Geir Óla laumuðust við út á lífið. Við heimsóttum skyldmenni okkar og dönsuðum fram á rauða nótt í fallegu sumarveðri úti á túni. Þá lékst þú á als oddi, þetta vora þínir heimahagar. Þú varst hrókur alls fagnaðar og fjörið byrjaði aldrei fyrr en þú komst. Elsku afi minn, ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér og fjölskyldu minni í gegnum árin. Ég veit að nú ert þú kominn í faðm þeirra sem þú misstir sem ungur maður og þér líður vel. Alltaf kem- ur sá tími að kveðja þarf, jafnvel þótt það sé ætíð sárt og ótímabært, en ég veit að þú ferð ekki langt og við hittumst síðar. Afi minn, minning þín mun lifa í hjarta mínu um aldur og ævi. Guð geymi þig, elsku afi. Hjart- ans kveðjur. Jana. Elsku afi er dáinn. Hvert fór hann langafi? sagði Viktor Karl, sonur okkar, er við sögðum honum að þú værir dáinn. Yngri sonur okkar, Unnar Karl, sat hugsi nokkra stund og átti greinilega erfitt með að meðtaka það að langafi væri farinn og kæmi aldrei aftur. Langafi, sem var hluti af okkar daglega lífi. Undanfarna daga hafði heilsa þín verið frekar slæm þó erfitt hafi verið að gera sér fyllilega grein fyrir hversu slæm, því aldrei kvart- aðir þú né lést það í ljós á nokkurn annan hátt. Þegar mamma hringdi þriðjudagskvöldið 3. febrúar og sagði að þú værir kominn með ein- hverja flensu þá þótti mér það ekk- ert stórmál, því undanfarin misseri hafðir þú fengið ýmsa kvilla en ætíð sigrað þá. Miðvikudagurinn 4. febrúar byrjaði eins og hver annar dagur í lífi okkar þar til pabbi kom heim til mín og tilkynnti að þú hefðir kvatt þennan heim fyrr um morguninn, sáttur við Guð og til- verana. Afi minn, ég vil þakka þér íyrir allar indælu stundirnar á Stekkjar- flötinni. Alltaf varst þú mér svo góður og ljúfur. Man ég sérstak- lega þegar þú passaðir mig ef pabbi og mamma þurftu að skreppa frá, það vora ógleyman- legar stundir. Alltaf áttir þú góð- gæti frá Mónu en þar vannst þú frá því ég man eftir mér. Þú leyfðir mér oft að koma með þér í vinnuna en það var heill ævintýraheimur fyrir svo litla stúlku. Einnig fannst þér svo gaman að baka góðu teboll- ui'nar fyrir mig, litla sælkerann á heimilinu. Alltaf varst þú til halds og trausts fyrir okkur, afi minn. Góð- semin, hjarthlýjan og traustið er einkenndi þig er vandfundið í dag. Öll mín æsku- og unglingsár og einnig eftir að ég fór að takast á við lífið, hefja búskap og stofna fjöl- skyldu, hljópst þú undir bagga ef á þurfti að halda. Það var sama hvaða bón var borin upp við þig, þú varst ætíð reiðubúinn að aðstoða. Elsku afi, ég skal hugsa vel um mömmu mína og ég kveð þig með djúpum söknuði. Ama. Það var svo gaman þegar við fór- um í bíltúr til langafa á Hrafnistu í Hafnarfirði að kíkja í skápinn hans og athuga hvort ekki væri til eitt- hvert nammi að narta í og það brást aldrei, alltaf átti langafí eitt- hvað handa okkur. Og sjá þig taka tóbakið í nefið, hvert fór þetta allt saman, hugsuðum við. Elsku afi, við söknum þín, en við vitum að þú ert núna kominn, til Guðs og hittir þar ömmu Kristjönu og hjá Guði líður þér vel. Við skul- um passa ömmu Hervöra og Geir afa. Viktor Karl, Unnar Karl, ír- is Hervör, Geir Óli, Sævald- ur Arnar, Þóra Kristín og Lilja Hrönn. Elsku Kalli. Mín fyrstu kynni aí þér og þinni elskulegu fjölskyldu vora fyrir tæpum 40 áram, þá bjugguð þið í Ákurgerði. Hervör og Geir lánuðu okkur Hlöbba herbergið þitt í nokkra daga. Þar settum við upp trúlofun- arhringina. Þá varst þú úti á sjó. Þegar við byrjuðum að búa í kjall- aranum í Skálholti í Eyjum komst þú í fyrstu heimsóknina. Svo eftir að við byggðum okkar eigið Skál- holt í Grenilundinum í Garðabæ fjölgaði ferðum þínum til okkar, þú varst okkar besti vinur. Bömin okkar eignuðustu Kalla frænda og þau hættu að öfunda vini sína sem áttu flestir afa og sumir fleiri en einn. Oft var gaman hjá okkur, spilað, hlegið og dansað langt fram eftir nóttu. Svo labbaði Hlöbbi með þér heim, nema eina nóttina þegar ég ætlaði að fylgja þér, þá varð ég svo myrkfælin þegar leiðin var hálfnuð að þú fylgdir mér aftur tl baka. Manstu þegar við fórum í laug- ardagsbíltúrinn í sól og blíðu með litlu strákana okkar, lítið tjald, nesti og veiðistangir, tjölduðum við Kleifarvatn og reyndum að veiða en sáum engan fisk nema sardín- urnar á brauðinu. Skemmtileg ferð engu að síður. Mér dettur í hug kvöldið góða þegar við buðum Engla og Öddu í mat til okkar, fórum svo öll til Halla og Stínu í Laugarásnum. Þegar líða tók á kvöldið fór Halli að spila á harmónikku og við öll hin að dansa. Svo þurfti Halli að taka smá pásu og þá vippaðir þú þér til hans, smelltir nikkuólunum yfir axlirnar og spilaðir hvert lagið af öðra eins og þú hefðir aldrei gert annað, endaðir á laginu Góða tungl. Þarna urðum við hissa, þú hafðir aldrei minnst á þessa hæfi- leika þína. Elsku Kalli, nú verður erfitt að fá svör við spumingum okkar, svörin sem þú hafðir alltaf á reið- um höndum. En fyrir öllu er að þú fékkst ósk þína uppfyllta sem var að sofna í rúminu þínu. Elsku Kalli frændi, við Hlöbbi og bömin okkar öll kveðjum þig með hjartans þökk fyrir allt það sem þú varst okkur. Við söknum þín. Við biðjum Guð að blessa Hervöra og Geir og börnin þeirra öll og íjölskyldur þeirra og gefa þeim styrk. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þínir einlægu vinir, Sonja, Hlöðver og börnin. Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á fóstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útranninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.