Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 1
120 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 37. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bill Clinton hvikar hvergi í íraksdeilunni Segir Rússa ekki geta hindrað árásir Moskvu, Washington. Reuters. RÚSSAR reyndu í gær að koma í veg fyrir að Bandaríkjamenn og Bretar gerðu árásir á Irak og hvöttu til þess að Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, færi til Bagdad og reyndi að leysa deiluna um vopnaeftirlitið í Irak. Bill Clinton Bandaríkjaforseti lagði hins vegar áherslu á að Bandaríkj- unum bæri skylda til að koma í veg fyrir að írakar gætu framleitt ger- eyðingarvopn og sagði að andstaða Rússa myndi ekki hindra að her- valdi yrði beitt. Jevgení Prímakov, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði að tímabært væri að Kofi Annan færi til Iraks og reyndi að semja við þarlenda ráða- menn. „Rússar telja að ekki sé hægt að tala um að sáttaumleitanir hafi mistekist fyrr en Kofi Annan hefur sjálfur farið til íraks,“ sagði Príma- kov eftir fund með William Cohen, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, í Moskvu. Franska utanríkisráðuneytið tók undir þetta og sagði að Kofi Annan ætti að hafa „frjálsar hendur“ um að leysa deiluna og gaf til kynna að framkvæmdastjórinn ætti ekki að vera bundinn af afstöðu Banda- ríkjastjómar. Annan sagði að til greina kæmi að hann færi til Iraks. Rússar hafa lagt fast að honum að reyna að höggva á hnútinn en erfitt yrði fyrir hann að fara til Iraks án þess að geta lagt fram skýrar tillögur frá öryggisráðinu, sem er klofið í mál- inu. Tílslökun hafnað Bandaríkjastjórn hefur hafnað tillögu Rússa um að deilan verði leyst með því að Sameinuðu þjóð- irnar fái takmarkaðan aðgang að svokölluðum „forsetahöllum“, þar sem talið er að írakar hafi falið ger- eyðingarvopn. Rússar vilja að skip- uð verði sérstök nefnd til að annast leitina í stað vopnaeftirlitsnefndar- innar, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa falið að leita að gereyðingar- vopnum í írák og sjá til þess að þau verði eyðilögð. Bill Clinton sagði að Bandaríkin gætu ekki brugðist þeirri skyldu að koma í veg fyrir að írakar gætu framleitt gereyðingarvopn en kvaðst enn vona að hægt yrði að leysa deiluna með friðsamlegum hætti. Það væri undir Irökum kom- ið hvort deilan yrði leyst. Forsetinn sagði að andstaða Rússa við árásir á írak myndi ekki koma í veg fyrir að deilan yrði leidd til lykta með hernaði en bætti við að það ætti ekki að skaða sam- skipti Bandaríkjanna og Rúss- lands. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, sagði að það væri góðs viti að Saddam Hussein íraksforseti væri farinn að tala um leiðir til að heimila vopnaleit Sameinuðu þjóð- anna. ■ Árás frestað?/20 Föngum sleppt á Kúbu STJÓRN Kúbu greindi frá því í gær að um 300 fangar yrðu látn- ir lausir í framhaldi af heimsókn páfa til iandsins í síðasta mánuði, þ.á m. nokkrir pólitískir fangar. Nítján fangar voru leystir úr haldi í gær, þeirra á meðal Hect- or Palacios, sem heilsar hér ná- granna sínum. Palacios var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir andóf gegn kommúnista- stjórninni en kvaðst í gær stað- ráðinn í að halda áfram barátt- unni fyrir Iýðræði á Kúbu. Þjóðernissinnaðir hindúar á Indlandi vonast eftir meirihluta á þingi Spáð lang- mestu fyigi Nýju Delhi. Reuters, The Daily Telegraph. ALME NNAR þingkosningar hefj- ast á Indlandi á mánudag og benda skoðanakannanir til að hinn þjóð- emissinnaði hindúaflokkur, Bharati- ya Janata, fái langmest fylgi. Næst- ur honum komi Kongressflokkurinn. Hefur kosningabaráttan verið mjög hörð og nokkuð um ofbeldisverk, einkum í norðausturhluta landsins. Kjördagamir verða alls fimm og sá síðasti 7. mars. Stóru flokkarnir tveir vora með mikla útifundi í gær en samkvæmt skoðanakönnunum fær Bharatiya Janata um 250 þingsæti af 545 í neðri deildinni en Kongressflokkur- inn um 155. Sá fyrmefndi fær eftir þessu ekki hreinan meirihluta og dagblaðið Asian Age sagði í gær að flestir flokkanna, sem stóðu að síð- ustu stjórn, væru reiðubúnir að styðja Kongressflokkinn í því skyni að koma í veg fyrir að Janataflokk- urinn kæmist til valda. Síðustu skoð- anakannanir segja að þessir flokkar ásamt Kongressflokknum fái 257 þingsæti í kosningunum. Lal Krishan Advani, leiðtogi Janata, sagði á fréttamannafundi í gær að þjóðemissinnaðir hindúar eygðu nú meirihluta á þingi og hann skoraði á Kongressflokkinn að við- urkenna að hin ítalska Sonia Gandhi, ekkja Rajivs Gandhi, fyrr- Reuters EINN af stuðningsmönnum Bharatiya Janata-flokksins með mynd af forsætisráðherraefninu, Atal Behari Vajpayee. Skoðanakannanir sýna að flokkurinn getur gert sér nokkrar vonir um meirihluta á þingi. verandi forsætisráðherra, væri for- sætisráðherraefni flokksins. Sigri Janata verður Atal Behari Vajpayee forsætisráðherra. Sonia, sem hefur blásið nýju lífi í Kongressflokkinn, hefur verið mjög ötul í kosningabaráttunni og í gær sagði hún á fundi að ringulreiðin í stjórnmálum landsins væri að stefna því inn í „svartnætti stjómleysis- ins“. Uppgangur Bharatiya Janata- flokksins veldur mörgum áhyggjum en meginmarkmið hans er að verja fóðurlandið, trúna og menningar- arfinn. Hefur hann á að skipa millj- ón manna her sjálfboðaliða sem safnast saman á laun í litlum hópum til að æfa forna stríðsmannalist, syngja þjóðlega söngva og biðjast fyrir. Heilsað að fasistasið Mörgum finnast morgunæfingar Janata-flokksmanna í senn hlægi- legar og ógnvænlegar. Heilsa þeir að fasistasið að því undanskildu að þeir kreppa alla fingur nema vísi- fingur inn í lófann. Múslimar, sem eru 14% af 960 milljónum Indverja, kvíða framtíðinni og óttast að kom- ist Janata til valda muni ýmis sérlög fyrir múslima, t.d. varðandi hjóna- band, skilnað og erfðir verða af- numin. Talsmenn Janata segja líka að múslimum hafi verið sýnd und- anlátssemi í allt of langan tíma og flokkurinn ætlar að banna slátrun nautgripa sem eru heilagir í hindúasið. „Múslimar geta étið eitt- hvað annað,“ sagði framkvæmda- stjóri Janata-flokksins. Reuters Sinn Fein berst gegn brottvísun Belfast. Reuters. SVO kann að fara að Sinn Fein, stjórnmálaflokki írska lýðveldishersins (IRA), verði vísað frá viðræðum um frið á Norður-írlandi, en í gær til- kynnti lögreglan þar að IRA hefði staðið að tveim morðum sem framin voru í Belfast fyrr í vikunni. Formaður Sinn Fein, Mitchel McLaugh- lin, sagði að flokkurinn myndi hverfa frá viðræðun- um mótþróalaust en varaði við því að brottrekstur gæti haft ófyrirsjáanlegar afleið- ingar fyrir friðarviðræðurn- ar. Samkvæmt skilmálum samningaviðræðnanna, sem bresk og írsk stjómvöld taka þátt í auk átta stjómmála- flokka mótmælenda og kaþ- ólikka, er hægt að vísa burt flokki ef skæraliðar sem tengjast honum verða uppvís- ir að hermdarverkum. Sinn Fein hefur lýst því yfir að vopnahléð sem IRA lýsti yfir í júlí sl. sé enn í gildi. IRA grunað um morðin Mo Mowlam, N-írlands- málaráðherra bresku stjórn- arinnar, greindi frá því í gær að lögreglustjóri á N-írlandi hefði sagt sér að hann teldi IRA hafa átt þátt í morðun- um í Belfast á mánudag og þriðjudag. Sagði Mowlam að kanna þyrfti málið til hins ýtrasta í samráði við írsk stjórnvöld og aðra þátttak- endur í viðræðunum. Gæta þyrfti þess að farið yrði að þeim reglum sem giltu um framgang viðræðnanna. Stjórnmálamenn mótmæl- enda, sem eru fylgjandi áframhaldandi breskum yfir- ráðum á N-írlandi, krefjast þess að Sinn Fein verði vísað frá þátttöku í friðarviðræðun- um vegna morðanna í Belfast. Þetta er einhver alvarlegasti ágreiningur sem komið hefur upp milli norður-írsku flokk- anna frá því fundir hófust fyr- ir ríflega einu og hálfu ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.