Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Má stöðva verkfall með lagasetningii? Stjórnarskráin tryggir ekki verkfallsrétt og því myndu dómstólar að sögn Páls Þórhallssonar seint fetta fíngur út í slíka lagasetningu. ísland er hins vegar aðili að alþjóðasáttmálum sem vernda verkfallsrétt launþega. Á þeim vettvangi hafa ís- lendingar verið gagnrýndir fyrir að gæta ekki hófs þegar þrengt er að verkfallsréttinum með lögum. VERKFALLI sjómanna var frestað áður en frum- varp ríkisstjórnarinnar um stöðvun verkfalls sjó- manna kom til umræðu á Alþingi. Það er athyglisverð spurning hvort ríkisvaldið hafí ótakmarkaðar heimildir til þess að stöðva verkfoll með lagasetningu og ef svo er ekki hverjar séu þá takmarkanirnar. Ekki er að finna í íslensku stjóm- arskránni neitt ákvæði sem vemdar verkfallsréttinn eins og í stjómar- skrám sumra annarra ríkja, til dæm- is Frakklands. Erfitt er að halda því fram að óskráð stjómskipunarregla um verkfallsrétt hafi gildi hér á landi því stjómarskráin var endurskoðuð árið 1995 án þess að ástæða þætti til að mæla fyrir um slíkan rétt. Verk- fallsrétturinn er því eingöngu tryggður með almennum lögum, nánar tiltekið lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Þennan rétt getur Alþingi getur því að meg- instefnu þrengt eða afnumið með lögum. Stjómarskráin bindur ekki hendur þess hvað það varðar. Alþjóðasamningar Island er hins vegar aðili að al- þjóðasamningum þar sem viðkom- andi ríki skuldbinda sig til að virða verkfallsréttinn. Þar er um að ræða 4. mgr. 6. gr. Félagsmálasáttmála Evrópu og 1. mgr. 8. gr. Alþjóða- samnings um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi auk sam- þykkta Alþjóðavinnumálastofnunar- innar (ILO) nr. 87 og 98. Verkfalls- rétturinn er ekki alger samkvæmt þessum sáttmálum heldur má tak- marka hann ef nauðsyn krefur. Þeir aðilar sem hafa eftirlit með fram- kvæmd þessara sáttmála hafa túlkað í úrlausnum sínum og álitsgerðum nánar hvaða skilyrði þurfi að vera uppfyllt til þess að takmörkun teljist nauðsynleg. Ræður sú framkvæmd auðvitað mestu um rétta skýringu á ofangreindum sáttmálum. Skýra verði takmark- anir þröngt Lítum í dæmaskyni á afstöðu óháðu sérfræðinganefndarinnar sem fylgist með framkvæmd fé- lagsmálasáttmála Evrópu. Hún gagnrýndi á sínum tíma Islendinga fyrir að banna öll verkfóll í 11 mán- uði með lögum nr. 14/1988. Ekki væri hægt að réttlæta algert bann við verkfóllum með vísan til undan- tekningarheimilda í 31. gr. sáttmál- ans (Niðurstöður XII-1, bls. 135-7). Nefndin hefur einnig litið svo á að stöðvun verkfalls, sem þegar er hafið, með lagasetningu sé mjög al- varleg íhlutun í rétt launþega. Því verði að túlka þröngt heimildir til slíkrar íhlutunar. Sá tími sem verk- fall er bannað verður að vera eins skammur og hægt er. Ef ríki ber fyrir sig efnahagslega nauðsyn hvflir það á því að sýna fram á að sú nauðsyn hafi verið verið hendi. Nefndin hefur ekki fallist á þau rök Norðmanna svo dæmi sé tekið að mikilvægi olíuframleiðslunnar rétt- iæti sérstakar takmarkanir á verk- fallsrétti þein-a sém vinna við hana. Einnig skiptir máli hvort lög eru sett strax og verkfall hefst eða hvort stjórnvöldu bíði átekta eins lengi og hægt er. Ef lög eru sett strax er erfiðara fyrir stjórn- völd að sýna fram á að um knýj- andi efnahagslega nauðsyn hafi verið að ræða, því yfirleitt tekur það einhvern tíma þangað til áhrifa verkfalls á efnahagslega af- komu gætir. Taka má sem dæmi að Norðmenn settu á sínum tíma lög sem stöðvuðu verkfall hjúkr- unarfræðinga. Nefndin taldi þau lög ekki standast vegna þess að þótt um óhagræði fyrir sjúklinga sem biðu aðgerðar hefði verið ræða þá hefði verkfallið ekki kom- ið niður á bráðaaðgerðum. Auk þess hafi lögin verið sett í byrjun verkfalls án þess að tími gæfist fyrir stjórnvöld til að meta afleið- ingar þess (Niðurstöður XII-1, bls. 137-138). Heijólfsmálið Svipuð sjónai-mið koma fram í niðurstöðu félagafrelsisnefndar Al- þjóðavinnumálastofnunarinnar sem fjallaði um kæru Alþýðusam- bands Islands vegna setningar laga nr. 15/1993 um bann við verkfalli og verkbanni á ms. Herjólfi (sjá skýrslu félagsmálaráðherra til Al- þingis um Alþjóðavinnumálaþingið í Genf 1995). Nefndin fann að því að gerðardómur sem settur var á fót með lögunum hefði ekki fylli- lega frjálsar hendur um ákvörðun kjara auk þess lögin þóttu of víð- tæk þar sem þau náðu til verka- lýðsfélags sem var ekki í verkfalli. Varðandi sjálfan verkfallsréttinn tók nefndin tillit til þess að sjö vik- ur höfðu liðið frá því verkfall hófst og reynt hafði verið til þrautar að ná sáttum án árangurs. Deilan hafi því verið komin í sjálfheldu. Laga- setningin sem slík var því ekki gagnrýnd. Það er ástæðulaust að fara út í það að meta fnimvarp sem dregið hefur verið til baka í ljósi þessarar alþjóðlegu framkvæmdar. Það er engan veginn einfalt að segja hver niðurstaðan yrði af slíkri skoðun. Benda má á það sem er augljóst að metið yrði hversu alvarlegar efna- hagslegar afleiðingar hafi blasað við, hvort beðið hafi verið nógu lengi eftir að verkfall hófst, hvort deilan hafi verið komin í sjálfheldu og hvort takmörkunin hafi gengið eins skammt og unnt var. íslenskir dómstólar Af formlegum ástæðum er það ákaflega ólíklegt að íslenskir dóm- stólar myndu fetta fingur út í laga- setningu á verkfall sjómanna ef á reyndi. Þótt hlutverk þeiira í stjórnskipuninni sé meðal annars það að gæta að því hvort lög stríði gegn grundvallarréttindum manna verður ekki horft fram hjá því að það er ekkert ákvæði í stjórnar- skránni sem tryggir verkfallsrétt- inn. Akvæði um félagafrelsi, tján- ingarfrelsi og almennar meginregl- ur um samnings- og athafnafrelsi veita heldur ekki næga stoð fyrir dómstóla til að endurskoða lög af þessu tagi. Island er í þeim flokki ríkja þar Sérfilboð!! Luóvik Krist|ansson: Véstlendingar l-lll Upphaflegt vero: 8.940, rtilboð: 1.990 (allar bækurnar) P(o~ Gi 3 J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.