Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Ekkert ást- arsamband Franska lögreglan með Fiat Uno til skoðunar Washington. Reuters. ROBYN Dickey, siðameistari bandaríska vamarmálaráðuneytis- ins, vísar harðlega á bug þeirri frétt breska blaðsins Daily Tele- graph að hún hafí átt í ástarsam- bandi við Bill Clinton forseta á ní- unda áratugnum. Sagði hún frétt- ina vera „haugalygi" og Michael McCurry, talsmaður Hvíta hússins, kallaði höfund hennar, blaðamann- inn Ambrose Evans-Pritchard, fréttaskáld. „Ég hef aldrei átt náið eða óvið- eigandi samband við Bill Clinton. Fréttir um slíkt samband eru hreinar lygar. Hefði einhver frétta- maður haft við mig samband áður en fréttin var birt hefði ég tjáð honum að þessi glæfralegi orðróm- ur er rangur og sérlega illgjam," sagði í yfírlýsingu Dickey. Samkvæmt fregn Daily Tele- <graph var Dickey flutt úr starfi í Hvíta húsinu og færð yfir í vamar- málaráðuneytið eftir að hafa verið nefnd sem fyrrverandi ástkona for- setans við vitnaleiðslur í máli Paula Jones, sem sakar Clinton um kyn- ferðislega áreitni. Að sögn blaðsins vitnaði fyrrverandi öryggisvörður um ástarsamband Dickey og Clint- ons. Ken Bacon, talsmaður varnar- málaráðuneytisins, sagði frétt blaðsins „ranga og fáránlega“. París, London. Reuters. FRANSKA lögreglan sagði í gær, að hún væri að skoða hvíta Fiat Uno-bifreið, sem hugsanlega hefði komið við sögu er Diana prinsessa Iét lífið í bflslysi. Eftir ónefndum heimildamönnum inn- an lögreglunnar er þó haft, að bfllinn tengist ekki slysinu. Breskir fjölmiðlar hafa farið háðulegum orðum um þá yfirlýs- ingu Mohamed A1 Fayeds, föður Dodi A1 Fayeds, sem lést ásamt Dfönu, að ekki hefði verið um slys að ræða, heldur samsæri. Talsmaður frösnku lögregl- unnar sagði, að lögfræðingar Mo- hamed Al-Fayeds hefðu beðið hana að skoða tiltekna Fiat Uno- bifreið og væri nú verið að því. Sagði hann, að vitað væri um eig- anda bflsins en gaf ekkert frekar upp um það. Skemmd eftir árekstur Franska lögreglan hefur mán- uðum saman leitað að hvítum Fi- at Uno en talið er hugsanlegt, að Mercedes Benz-bifreið Di'önu og Dodis hafi rekist utan í hans rétt áður en bflstjórinn missti stjórn á Benzinum. Segja lögfræðingar A1 Fayeds, að bifreiðin, sem þeir hafa bent á, beri þess merki að hafa lent utan í öðrum bfl þótt nú sé búið að gera að mestu við skemmdimar. Georges Kiejman, einn lögfræð- inga A1 Fayeds, hefur skýrt frá því, að „einn af eigendum bflsins“ hafi verið blaðamaður. Reuters- fréttastofan hefur það hins vegar eftir ónefndum heimildarmönn- um, sem tengjast rannsókninni á dauða Díönu, að umræddur Fiat Uno tengist ekki slysinu. A1 Fayed gaf í skyn á fímmtu- dag í viðtali við dagblaðið The Mirror, að um samsæri hefði ver- ið að ræða er þau Díana og Dodi létust en nefndi þó ekki þá, sem hann taldi ábyrga fyrir því. Hann sagði hins vegar, að margir hátt- settir menn hefðu fagnað láti þeirra. í öðmm hluta viðtalsins, sem blaðið birti í gær, sagði hann, að Karl prins, Filipus drottningarmaður og bróðir Díönu hefðu ekki virt sig viðlits eftir lát prinsessunnar. The Daily Mail sagði í gær, að samsæriskenning A1 Fayeds væri „sjúklegir hugarórar" og The Sun sagði, að annaðhvort skyldi hann standa við stóm orðin og sanna sitt mál eða þegja ella. Daily Telegraph sagði, að A1 Fa- yed notaði samsæriskenninguna til að „herða á stríði sínu við breska stjórnkerfið og konungs- íjölskylduna". A1 Fayed heftir lengi sóst eftir breskum ríkis- borgararétti en ekki fengið. „Veit hann ekki hvað hann er að gera drengjunum?" var fyrir- sögn greinar í The Daily Mail eftir Richard Kay, sem skrifar sérstaklega um konungsfjöl- skylduna, og átti þá við syni Dionu og Karls, William og Harry. Hefur Kay það eftir ein- um í konungsfjölskyldunni, að fengi A1 Fayed breskan ríkis- borgararétt, myndi hann sækja um ríkisborgararétt í Egypta- land en A1 Fayed er egypskur. Talsmaður Buckingham-haliar vildi ekkert segja um yfirlýsing- ar A1 Fayeds í gær en í fyrradag sagði hann, að ummæli hans væm tillitsleysi við konungsfjöl- skylduna. Spencer jarl, bróðir Díönu, birti einnig yfirlýsingu á fimmtudag þar sem hann vísaði ummælum A1 Fayeds á bug og bað þess, að systir sín fengi að hvfla í friði. Höfuðborg Sierra Leone á valdi vestur-afrísks friðargæsluliðs Milljónir manna í hættu SKORTUR á matvælum í Norður-Kóreu er svo alvarleg- ur að milljónir manna kunna að svelta þar í hel áður en langt um iíður, sagði starfs- maður sænskra hjálparsam- taka í gær. Stefan Holmström dvaldi í N-Kóreu í viku og sagði Reuters að vannærð börn væru algeng sjón í land- inu, ekki síst á bamaheimilum. Hungursneyð hefur ríkt í N- Kóreu síðan mikil flóð eyðilögðu uppskeru 1995 og 1996 og vegna þurrka á síð- asta ári. Harmar fjöldamorð ALMUDENA Mazarrasa, fulltrúi Mannréttindastofnun- ar Sameinuðu þjóðanna í Kól- umbíu, kvaðst í gær harma meint fjöldamorð vopnaðrar hreyfingar hægrimanna í suð- urhluta landsins. Hreyfingin hefur verið sökuð um að hafa myrt að minnsta kosti 48 manns í nokkrum bæjum á svæðinu síðustu tvær vikur. Cabaj í framboð TIBOR Cabaj, félagi í Slóvakísku lýðræðishreyfing- unni, flokki Vladimirs Meci- ars, forsætisráðherra, greindi frá því í gær að hann hyggðist bjóða sig fram í annarri um- ferð forsetakosninga í landinu er fer fram 5. mars. Fyrsta umferðin fór fram íyrr 1 þess- um mánuði án þess að afger- andi úrslit fengjust, og verða umferðir haldnar uns úrslit fást. Leiðsögu- manni sleppt DÓMSTÓLL í Frakklandi til- kynnti í gær að leiðsögumaður er fór fyrir ferðamannahópi er lenti í snjóflóði í síðasta mán- uði, skyldi látinn laus úr varð- haldi uns réttað yrði í máli hans. Níu unglingar og tveir fullorðnir fórust í snjóflóðinu er varð í frönsku Ölpunum 23. janúar og hefur leiðsögumað- urinn verið í varðhaldi síðan. Sameiningu aflýst RISARNIR í hópi alþjóðlegra endurskoðunarskrifstofa, KPMG Peat Marwick og Emst & Young, tilkynntu í gær að fyrirtækin hefðu ákveðið að aflýsa fyrirhugaðri sameiningu. Með henni hefði orðið til heimsins stærsta end- urskoðunarfyrirtæki. Minna kynlíf eftir giftingu SAMKVÆMT nýrri könnun sem gerð var á vegum verju- framleiðandans Durex og birt var í írska blaðinu Examiner í gær, daginn fyrir Valentínus- ardaginn, dag elskenda, að pör sem gengið hefðu í það heilaga hefðu að meðaltali 40 sinnum sjaldnar kynmök á ári en pör í óvígðri sambúð. ÞÚSUNDIR manna hafa flúið átökin í Freetown síðustu daga og sumir farið sjóveg til Conakry, höfuðborgar Guineu. Er það 12 tíma sigling. Herstj órnin flúin burt Freetown. Reuters. VESTUR-AFRÍSKA friðargæsluliðið, ECOMOG, í Sierra Leone var búið að ná mestallri höfuðborg- inni, Freetown, á sitt vald í gær og herstjómin á flótta. Lentu tvær fallbyssuþyrlur í Monróvíu í Líb- eríu með 51 embættismann herstjórnarinnar og voru þeir handteknir við komuna. „Við ráðum nú 80% borgarinnar," sagði Timothy Shelpidi hershöfðíngi og einn af yfirmönnum friðar- gæsluliðsins í aðalstöðvum þess í Monróvíu í gær. Sagði hann, að ráðhúsið í Freetown og þinghúsið væru á þeirra valdi og hersljómin á flótta. Ekkert er vitað um leiðtoga hennar, Johnny Paul Koroma, eða nánustu aðstoðarmenn hans en talsmaður her- stjómarinnar sagði í viðtali við BBC, breska ríkis- útvarpið, í gær, að ekki yrði gefist upp fyrir friðar- gæsluliðinu. Tvær fallbyssuþyrlur með 51 embættismann herstjórnarinnai- lentu í Monróvíu í gær og voru þeir handteknii- strax. Voru fréttir um, að herþot- ur friðargæsluliðsins hefðu neytt flugmenn þyrln- anna til að lenda en þær höfðu ekki verið staðfest- ar. Treysta tökin á Freetown Shelpidi sagði, að fyrsta verkefni friðargæslu- ' liðsins væri að treysta tök sín á Freetown og gera hjálparstofnunum kleift að aðstoða þúsundir manna, sem eru á flótta og á vergangi vegna átak- anna. Ecomog hefur umboð til að koma aftur til valda kjömum forseta, Ahmad Tejan Kabbah, sem herstjórnin steypti í maí í fyrra. Ekki er alveg ljóst hvernig ástandið er í öðrum hlutum landsins en herflokkar hollir Kabbah höfðu þó yfírhöndina í átökum við liðsmenn Koroma í suður- og austurhlutanum. Engar matarbirgðir Talið er, að mörg hundruð manna hafi fallið í átökunum síðustu daga og þúsundir manna eru á flótta. Eru allar matar- og lyfjabirgðir hjálpar- stofnana uppurnar eða þeim hefur verið rænt. Fréttaritari BBC, sem var staddur í Freetown þegar ECOMOG-herinn kom þangað, segir, að íbúar borgarinnar hafi fagnað honum vel en haft er eftir þeim, að margir liðsmenn herstjórnarinn- ar hafi afklæðst einkennisbúningnum þegar þeir sáu hvert stefndi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.