Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRÉTTUM
TAKTUPÁTTÍMR.BEAN
HAPPAÞRENNULElKNUM
Komdu i Snæland og leigðu Bean
-hrikalegustu stö rstysamiutttna, og skllaðu iu HggiNMi
Vinningar i
Happaþrennuleik
UTANLANDSFERÐ
FYRIR2TIL LUNDÚNA
með Samvinnuferðum-Landsýn.
50 MIÐAR FYRIR 2
A MYNDINA BORROWERS
sem sýnd verður í Háskóiabíó.
100 GULIR M&M
OG M&M BOLUR
nammiö sem Bean elsl
i Bean elskar a|AC
SNÆLAND
VIDEO
★ ★ ★
Furugrund • Laugavegi
■liiisii Hafnarfirði • Mosfellsbæ
Sinatra með
krabbamein?
Björgun-
arafreks
minnst
► SIGURÐUR Þ. Árnason, fyrr-
verandi skipherra á varðskipinu
Oðni, og þrír skipverjar hans,
sem tóku þátt í björgun 18 skip-
verja á breska togaranum Notts
'County 5. febrúar 1968, hittust á
heimili Sigurðar fyrir skemmstu
til að minnast þess að 30 ár voru
liðin frá björguninni.
Settur var út gúmbátur með
utanborðsmótor til að bjarga
bresku sjómönnunum úr skipinu
Notts County sem hafði strand-
að á Arnarnesi og fóru Sigurjón
Hannesson, 1. stýrimaður, og
Pálmi Hlöðversson, 2. stýrimað-
ur, í bátinn. Valdimar Jónsson
var loftskeytamaður um borð í
Óðni.
Sigurður sagði að tíu ár væru
síðan þeir félagar hefðu hist
formlega siðast, þá til að minn-
ast þess að 20 ár voru liðin frá
björguninni. „Það er gaman að
hitta gamla vinnufélaga, sér-
Morgunblaðið/Þorkell
BJÖRGUNARAFREKSINS minnst á heimili Sigurðar. F.v.: Pálmi
Hlöðversson, eiginkona hans Jóna Guðmunda Helgadóttir, Sigurður Þ.
Árnason, eiginkona hans Edda Jónsdóttir, Valdimar Jónsson,
eiginkona hans Jóna Margrét Guðmundsdóttir, Björg Jónsdóttir
eiginkona Sigurðar Þ. Árnasonar og Sigurður.
staklega þegar þetta eru menn
sem hafa sýnt þrekvirki eins og
þeir Sigurjón og Pálmi gerðu.
En auðvitað tók öll áhöfnin þátt
í björguninni. Atburðirnir riíjast
upp þegar félagarnir hittast og
þetta er reynsla sem fylgir
manni í gröfína," sagði Sigurð-
ur.
Sigurður var skipherra í 33 ár
en hætti til sjés 1989.
Hátíða-
höld í
Síngapúr
► FRANK Sinatra er kominn aftur
heim til sín í Beverly Hills eftir að
hafa verið tvo daga í rannsóknum á
Cedars-Sinai sjúkrahúsinu.
„Hann fór heim í morgun," sagði
Susan Reynolds, talskona hans, á
fímmtudag. Hún neitaði að gefa
upp hvers konar rannsóknir
hann hefði farið í og sagði að
hann vildi fá að hafa einkalíf sitt í
friði.
New York Post hafði eftir ónafn-
greindum heimildarmönnum á miðvikudag
að Sinatra væri með sársaukafullt blöðru-
krabbamein og það „færi versnandi".
Hann var fluttur á sjúkrahús á þriðjudag í sjúkrabíl
og var Barbara, eiginkona hans, í fylgd með hon-
um.
Vinir Sinatra sem hafa hitt hann nýlega segja að
hann hafí átt erfitt með gang en engu að síður hafí
verið efnt til spilamennsku heima hjá honum í
hverri viku. Frammámaður í Hollywood lét hafa
eftir sér að hann væri á upphafsstigum Alzheimer-
sjúkdómsins.
SINATRA og Shirley MacLaine á tónleikum í
Radio City Music Hall í New York árið 1992. Þá
voru þau samanlagt 135 ára.
Sinatra, sem er 82 ára, fékk „Iéttvægt hjartaá-
fall“ í janúar árið 1997 og var fluttur með hraði á
sjúkrahús. Var það í þriðja skipti á tveimur mánuð-
um. I hinum tilvikunum hafði hann verið lagður inn
vegna „klemmdrar taugar“.
► THAIPU S AM-hátíðin
er haldin um þessar
mundir í Síngapúr til
heiðurs hindúiska guð-
inum Murugan.
Hér sést hindúatrúar-
maður bera mjólk á
höfðinu, með tein í
gegnum kinnarnar og
tunguna og með ávexti
hangandi á krókum
framan á sér. Þessi út-
gangur á manninum er
hluti af seremóní-
unni, en svona
undirbúa
hindúar sig
undir ski-úð-
göngu sem far-
in er í tilefni
dagsins.