Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 64
Sparaðu
líma,
sparaðu
penlnga
felÍNAÐARBANKINN
p' traustur banki
|Wi>r0miuWal»iíi>
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mannfjöldi minntist skáldsins
TALIÐ er að nálægt 2.500 manns
hafi verið saman komin á samveru-
stund á Ingólfstorgi síðdegis í gær
<il að heiðra minningu Halldórs
1 Laxness. Bandalag íslenskra lista-
manna og Rithöfundasamband ís-
lands efndu til samverustundarinn-
ar. Orð skáldsins hljómuðu í hálf-
tíma langri dagskrá þar sem leikar-
ar lásu úr verkum Halldórs og
sungin voru lög við Jjóð skáldsins.
Fjöldi fólks kom einnig saman til
samverustunda sem haldnar voru af
sama tilefni á Akureyri, Egilsstöð-
um og á ísafirði í gær.
Morgunblaðið/Ásdís
BORN héldu á logandi kertum og tóku þátt í kórsöng á samverustund sem listamenn efndu til í minningu
HaUdórs Laxness á Ingólfstorgi í Reykjavik í gær.
Leita að smygli
með dragnót
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
heimilaði í gær sýslumanninum í
Keflavík að gera út bát til drag-
nótaveiða fyrir innan Garðskaga,
frá Gerðum í Garði og út á Garð-
skagaflös, en það er svæði sem lok-
að er fyrir dragnótaveiðum. Til-
gangurinn er að leita að smyglvarn-
ingi sem grunur leikur á að kastað
hafi verið frá borði skips sem var að
koma frá útlöndum. Báturinn hóf
leitina í gær.
Skrifstofustjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu, Jón B. Jónasson,
sagði að beiðni hefði komið frá
sýslumanninum í Kefla k um leyfi
til að kanna umrætt svæði, til að
slæða eitthvað upp sem kynni að
hafa verið hent fyrir borð og til
þess væri hentugast að nota
dragnót. Ráðuneytið hefði heimilað
þetta og tilkynnt réttum aðilum.
Án árangurs
Reykjaborg RE-25 hóf leit að
smyglinu í gær en ekki er vitað til
þess að neitt hafi fundist. Jón B. Jón-
asson tekur fram að sá fiskur sem
skipið fær dragist frá kvóta hans.
Sýslumaðurinn í Keflavík, Jón
Eysteinsson, vildi ekki segja neitt
um málið á því stigi sem það var,
þegar Morgunblaðið hafði samband
við hann í gærkvöld.
Veiðileyfagjald hef-
ur gefið góða raun
VEIÐILEYFAGJALD kynni að
reynast hagkvæmari skattlagning
en þær aðferðir sem ríkissjóður
notar nú til tekjuöflunar, að mati
Jeffrey Sachs, hagfræðings við
Harvard. Hann segir að slík skatt-
lagning kunni því að skapa svigrúm
til skattalækkana á heildina litið.
Þessi aðferð hafi og gefið góða raun
annars staðar og því segir hann
ekki rétt að útiloka veiðileyfagjald,
nema að vel athuguðu máli.
Sachs leggur þó áherslu á að
hann sé ekki sérfróður um aðstæð-
ur hér á landi og því kunni að vera
að slíkt gjald henti ekki.
Sachs ræddi m.a. á ráðstefnu Fé-
lags viðskipta- og hagfræðinga í
gær um þá kenningu sína að hag-
kerfi sem um of væru háð vöruvið-
skiptum tengdum náttúruauðlind-
um væri hætt við að staðna og þau
lönd næðu sjaldnast að komast í hóp
auðugri þjóða heims. Hann segir ís-
land þó vera á góðri leið með að
auka fjölbreytileika í hagkerfinu.
■ Ekki rétt/33
Pétur Sigurðsson
fyrrv. forstjóri Land-
lielgTsgæslunnar látinn
PÉTUR Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri
Landhelgisgæslunnar,
lést 9. febrúar sl. á
hjúkrunarheimilinu Eir
á áttugasta og sjöunda
aldursári. Pétur var for-
stjóri Landhelgisgæsl-
unnar frá því hún var
gerð að sjálfstæðri
stofnun árið 1952 og
gegndi því starfi til árs-
ins 1981, þegar hann lét
af störfum fyrir aldurs
sakir. Hann var því for-
stjóri Gæslunnar þegar
landhelgin var færð út í
•'—12 sjómílur 1958, 50 sjó-
mílur 1972 og 200 sjó-
mflur árið 1975. Útfor
hans fór fram í kyrrþey frá Dóm-
kirkjunni í gær.
Pétur fæddist 10. júní 1911 í Páls-
bæ á Seltjamamesi. Foreldrar hans
vom hjónin Sigurður Pétursson
skipstjóri og Ingibjörg Ólafsdóttir
húsmóðir.
Pétur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1931. Þá stundaði hann nám við
Soofficerskolen í Kaupmannahöfn og
var sjóliðsforingi í danska sjóhem-
"•am 1931-1937, samhliða sémámi í
sjómælingum við Det kongelige
Spkort-Arkiv og í skipamælingum
við Det danske Skibstilsyn
1936-1937. Á þeim áram sigldi hann
á mörgum þekktum dönskum her-
skipum.
A árunum 1938-1952 starfaði Pét-
ur að sjómælingum hér við land á
—~jýegum Vita- og hafnarmálaskrifstof-
unnar. Hann var stýrimaður á varð-
skipum við sjómælinga-
störf á hverju ári
1938-1945 og skipstjóri
á sjómælingaskipinu Tý
1946-1952. Þá starfaði
hann einnig að skipa-
mælingum fyrir Skipa-
skoðun ríkisins og sér-
verkefnum fyrir Skipa-
útgerð ríkisins. Hann
kenndi m.a. sjó-
mennsku og skipagerð
við Stýrimannaskólann
í Reykjavík og var
einnig prófdómari þar
um skeið.
Pétur var bæjarfull-
trúi í Reykjavík fyrir
Sj álfstæðisflokkinn
1950-1954 og sat þá
jafnframt í hafnarstjóm Reykjavík-
ur, hann var formaður Stýrimanna-
félags íslands 1944-1946 og í stjórn
Farmanna- og fiskimannasambands
Islands um skeið. Hann var í stjórn
Skaflagríms hf. 1955-1972, í stjórn
Eimskipafélags Islands hf. frá
1953-1991 og forstöðumaður Al-
mannavarna ríkisins 1968-1981. Pét-
ur ritstýrði Leiðsögubók fyrir sjó-
menn við ísland I-III, 1949-1951.
Pétur var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu 1967,
stórriddarakrossi 1973 og stórridd-
arakrossi með stjörnu 1980. Honum
hlotnaðist einnig kommandörkross
fyrsta stigs Dannebrogsorðunnar,
Vasaorðunnar, St. Olavsorðunnar
og frönsku orðunnar Merite Mar-
itime.
Eftirlifandi eiginkona Péturs er
Ebba Paludan-Muller og eignuðust
þau tvo syni, Ólaf og Sigurð.
Pétur
Sigurðsson
15% hærra iðgjald greitt til Samviimulífeyrissjóðs en til LV
14 þús. kr. hærri
eftirlaun úr LV
FÉLAGI í Lífeyrissjóði verslunar-
manna fengi rúmlega 14 þúsund krón-
um hærri eftirlaun á mánuði miðað
við 67 ára aldur en félagi í Samvinnu-
lífeyrissjóðnum, eins og reglugerðum
sjóðanna er nú háttað. Eftirlaun úr líf-
eyrissjóðnum Framsýn yrðu einnig
rúmlega 7.500 kr. hærri en eftirlaun
úr Samvinnulífeyrissjóðnum, þrátt
fyrir að iðgjöld til Samvinnulífeyris-
sjóðsins séu 15% hærri en iðgjöld til
hinna sjóðanna tveggja. Miðað er við
100 þúsund kr. mánaðarlaun og 40 ára
inngreiðslutíma.
Til Samvinnulífeyrissjóðsins era
greidd 11,5% af öllum launum og
greiðir vinnuveitandinn 7% og laun-
þeginn 4,5%. Iðgjöld til hinna sjóð-
anna tveggja eru 10% af öllum laun-
um, eins og yfirleitt er á almennum
vinnumarkaði, og greiðir vinnuveit-
andi 6% og launþegi 4%.
Fram hefur komið að starfsmönn-
um landflutninga Samskipa er gert
að greiða til Samvinnulífeyrissjóðs-
ins af sínum vinnuveitanda, en þeir
era félagsmenn í VR og hafa greitt
til Lífeyrissjóðs verslunarmanna til
þessa. Hefur þeim verið tjáð að það
jafngildi uppsögn hjá fyrirtætónu
skrifi þeir ekki undir ráðningar-
samning þar sem þeir skuldbinda sig
til að fara úr Lífeyrissjóði verslunar-
manna yfir í Samvinnulífeyrissjóð-
inn. Þá hefur fjármálaráðuneytið ný-
lega kveðið upp úrskurð um að fé-
lagsmenn í verkamannafélaginu
Dagsbrún, sem starfa hjá Samskip-
um, skuli greiða til Samvinnulífeyris-
sjóðsins, en ektó til Lífeyrissjóðsins
Framsýnar og er í skoðun að skjóta
þeim úrskurði aftur til ráðuneytisins
eða til dómstóla.
■ Meiri iðgjöld/32
Utfor Halldórs Laxness
Kristskirkju í dag
gerð frá
ÚTFÖR Halldórs Kiljans Laxness
hefst með sálumessu í Kristskirkju
í Landakoti klukkan 13.30 í dag.
Bálfor fer fram frá Fossvogskirkju
og duft skáldsins verður lagt í jörð
í kyrrþey á Mosfelli í Mosfellsdal.
Prestar við athöfnina í Krists-
kirkju verða séra Jakob Rolland,
prestur kaþólska safnaðarins, og
séra Gunnar Kristjánsson, prófastur
á Reynivöllum í Kjós. Inn í athöfnina
verður fléttað íslenskri tónlist en
einnig flutt hefðbundin tónlist við
gregoríanska sálumessu. Organistar
við athöfnina verða Douglas A
Brotchie og Hörður Áskelsson.
Fjölskyldu skáldsins og gestum
hennar, opinberum gestum og sendi-
mönnum erlendra ríkja era ætluð
ákveðin sæti í kirkjunni. Að öðru
leyti er tórkjan opin almenningi.
Lögreglan í Reykjavík mun
standa heiðursvörð við kirkjudyr,
annast öryggisgæslu og stjórn um-
ferðar um svæðið við Kristskirkju
meðan á útförinni stendur.
Athöfninni verður útvarpað og
sjónvarpað í beinni útsendingu.
Éinnig verður hátölurum komið
fyrir utan dyra við kirkjuna. Gefst
fóltó kostur á að fylgjast með útfór-
inni á sjónvarpsskjám í safnaðar-
heimili kaþólska safnaðarins á Há-
vallagötu 16.1 Hlégarði verður íbú-
um Mosfellsbæjar gert kleift að
fylgjast með útsendingu Rítóssjón-
varpsins á sýningartjaldi.
■ Halldór Kiljan Laxness/10-11