Morgunblaðið - 10.03.1998, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998
FRÉTTIR
ÞÚ ÁTT að nota súluritið til að sýna hvað við græddum stórt, Sverrir minn, ekki laxa-mælinn ...
Skiptar skoðanir um
nýtingu Geldinganess
VIÐ umræður í borgarstjóm
Reykjavíkur síðastliðinn fimmtudag
komu fram skiptar skoðanir borgar-
fulltrúa um nýtingu á Geldinganesi
þar sem skipulagt hefur verið hafn-
ar- og atvinnusvæði. Eru undirbún-
ingsframkvæmdir þegar hafnar.
Sjálfstæðismenn í borgarstjóm hafa
lagt til að hætt verði við fram-
kvæmdir en fúlitrúar R-listans telja
það fráleitt.
Samþykkt var í borgarráði sl.
þriðjudag tillaga Reykjavíkurlist-
ans þess efnis að hafnarstjóm verði
falið að kanna þá möguleika sem
sameining Reykjavíkur og Kjalar-
neshrepps gefur fyrir framtíðarþró-
un Reykjavíkurhafnar. A sama
fundi var tillögu sjálfstæðismanna
um að þegar verði stöðvaðar fram-
kvæmdir í Geldinganesi vísað til
umsagnar hafnarstjóra og skipu-
lagsstjóra og tillögu þeirra um að
fram fari athugun á þörf fyrir fram-
tíðarhafnarsvæði var vísað til hafn-
arstjóra. Borgarfulltrúar tóku þessi
mál til umræðu á borgarstjómar-
fundinum á fimmtudag.
Ámi Þór Sigurðsson, borgarfull-
trúi R-listans, benti á þýðingu hafn-
arinnar fyrir allt atvinnulíf borgar-
búa og sagði mikilvægt að hún hefði
stækkunarmöguleika. Sagði hann
þó rétt að skoða hvort sameining
við Kjalarnes gæti haft áhrif á
framtíðarþróun Reykjavíkurhafnar.
Ámi Sigfússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, lýsti þeim hug-
myndum sjálfstæðismanna að hætta
við hafnarframkvæmdir á Geldinga-
nesi en nýta það áhugaverða bygg-
ingarland sem þar væri fyrir íbúða-
byggð enda hefði það lengi verið
stefna sjálfstæðismanna að byggja
borgina við sundið en hafa ekki
íbúðabyggð upp til heiða. Hann
minnti á að enn væra allt að 70%
stækkunarmöguleikar á Sundahöfn.
Hann sagði þá Pétur Friðriksson,
oddvita Kjalnesinga, og Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson, borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, hafa kannað með
viðræðum við starfsmenn Reykja-
víkurhafnar og Siglingamálastofn-
unar möguleika á hafnaraðstöðu við
Álfsnes ef þörf væri á nýrri höfn. Sú
athugun sýndi að möguleikar væm
fyrir hendi þar. Sagði hann hins
vegar þessa þörf á nýrri höfn ekki
ljósa.
Borgarfulltrúinn sagði líka nauð-
synlegt að skilgreina betur hvaða
starfsemi væri hafnsækin og þyrfti
að vera nálægt höfn. Hann benti
einnig á að á svæðinu frá Grandar-
tanga og til Helguvíkur væra 8
hafnir og sagði rétt að skoða í sam-
hengi þróun og uppbyggingu hafna
á þessu svæði.
Skylda að gæta hagsmuna
Reykjavíkumafnar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri sagði það fráleita tiliögu að
ætla að hætta við hafnarfram-
kvæmdir í Geldinganesi án þess að
hafa kannað nokkra aðra möguleika
og spurði hvar ætti þá að bjóða að-
stöðu fyrir atvinnusvæði. Hún benti
á að í Alfsnesi, sem væri álíka stórt
og Kópavogur, væri framtíðarbygg-
ingarland við strönd sem væri ekki
síður skemmtilegt en Geldinganes.
Hún sagði ekki hafa farið fram á sér-
staka skoðun á hugsanlegri hafnar-
aðstöðu í Álfsnesi hjá Reykjavíkur-
höfn eða Siglingamálastofnun. Borg-
arstjóri sagði það skyldu borgar-
stjórnar að gæta fyrst og fremst
hagsmuna Reykvíkinga og skoða
yrði framtíðarþróun Reykjavíkur-
hafnar í Ijósi þess.
Ámi Þór Sigurðsson benti einnig
á að lega nýrrar Sundabrautar gæti
þrengt að framtíðarmöguleikum
Sundahafnar.
Ný öldrunar-
deild opnuð
SJÚKRAHtíS Reykjavíkur opn-
aði formlega nýja deild á öldrun-
arsviði á föstudag. Deildin er á
Landakoti og kemur til með að
hýsa heilabilunareiningu Sjúkra-
húss Reykjavíkur.
Sjúkrahúsið rekur nú tvær
sjúkradeildir fyrir sjúklinga með
skert minni og heilabilun með
samtals 36 rúm, auk þess sem
þar starfar hópur starfsmanna
að því að meta, greina og með-
höndla einstaklinga sem búa við
minnisskerðingu og heilabilun.
Myndin er frá opnun nýju deild-
arinnar.
MORGUNBLAÐIÐ
Námskynning í Háskóla íslands
Um 200 mis-
munandi náms-
leiðir kynntar
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
SUNNUDAGINN 15.
mars næstkomandi
verður haldin víðtæk
kynning á námsframboði
hérlendis. Kynningin fer
fram í byggingum Há-
skóla íslands austan Suð-
urgötu og stendur yfir frá
klukkan 11-18.
Ásta Kristrán Ragnars-
dóttir, forstöðumaður og
námsráðgjafi við Háskóla
Islands, hefur unnið að
skipulagningu námskynn-
ingarinnar.
„Við eram þessa dag-
ana að ljúka undirbúningi
fyrir þetta stóra og viða-
mikla verkefni. Að þessu
sinni era það um 200 mis-
munandi námsleiðir sem
verða kynntar." Ásta
Kristrán segir að kynning
sem þessi stuðli að eflingu
menntunar hér á landi og hún
segir að með þessu sé verið að
vekja athygli á þeim námsleiðum
sem fólki standi til boða.
„Þessi námskynning er sam-
vinnuverkefni skóla og þjónustu-
aðila námsmanna og Háskóli ís-
lands hefur átt frumkvæði að
námskynningum sem þessum
undanfarin tíu ár.“
- Eru þessar námskynningar
ekki haldnar annaðhvert ár?
„Jú núorðið. Þær vora haldnar
árlega til að byrja með. Bæði era
námskynningar sem þessar mjög
dýrar og hinsvegar geta skólar
með þessu móti haft opið hús hjá
sér og kynnt starfsemina á
heimavettvangi það árið sem
ekki er um sameiginlega kynn-
ingu að ræða.
Það sem er merkilegt við
svona námskynningu er að ekki
er verið að beina athygli og sjón-
um fólks að skólunum sem hús-
um og stofnunum heldur hvað
fer fram innan menntakerfisins."
Ásta Kristrán segir að þó
kynning sem þessi kosti mikið sé
alls ekki um að ræða neinn íburð.
„Kynningamar eru haldnar í há-
skólanum og skólastofumar
nýttar til að stúka af mismunandi
svið. Að undanfómu hafa verið
búnir til kynningarkjamar þar
sem allt skylt nám er á sömu
torfunni ef svo má að orði kom-
ast. Þetta þýðir að allt sem teng-
ist list, handverki og sköpun er á
einum stað hvort sem það er í
iðnskóla eða listaskóla.
Þá er allt á sama stað sem
tengist raunvísindum hvort sem
það er frá háskólanum eða
bændaskólunum og allt sem
tengist heilbrigðisgreinum hvort
sem það er í fjölbrautaskóla eða
háskóla er saman.
Á ýmsum sviðum verður
óhefðbundið nám
kynnt. Á heilbrigðis-
sviði verður til dæmis
hægt að kynnast
skyndihjálp og slysa-
vömum Rauða kross-
ins svo og sjúkraflutningum. „I
fyrsta skipti notum við nú
íþróttahús háskólans og kynnum
þar heilbrigðisgreinarnar."
- Er kynningin aðallega miðuð
við þá sem eru að velta fyrir sér
háskólanámi?
„Nei alls ekki. Þessi kynning
er ætluð öllum aldurshópum. Það
er hægt að kynna sér endur- og
símenntunarmöguleika og slíkar
kynningar verða allar á sama
svæði. Þá verður hægt að afla
sér fróðleiks um fjarkennslu á
►Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
er fædd í Reykjavík árið 1952.
Hún lauk BÁ-námi í frönsku,
sálarfræði og uppeldisfræði frá
Háskóla íslands og árið 1981
lauk hún framhaldsnámi í náms-
ráðgjöf frá háskólanum í Þránd-
heimi. Að loknu námi var hún
ráðin fyrsti námsráðgjafinn við
Háskóla Islands og hefur starf-
að á þessu sviði síðan auk þess
sem hún hefur skipulagt nám-
skynningar frá árinu 1982.
Eiginmaður hennar er Val-
geir Guðjónsson og eiga þau
þrjú böm.
sama stað og við fórum líka út
fyrir landsteinana og kynnum
fólki námsmöguleika á erlendri
grand. í fyrsta skipti era tveir
erlendir háskólar með kynningu
á starfsemi sinni. Þetta era
Rockford College í Bandaríkjun-
um og skólinn University of Al-
berta í Kanada.“
Ásta Kristrán segir að fulltrá-
ar frá menntamálaráðuneyti
muni kynna nýja menntastefnu
og forsætisráðuneytið kynna
upplýsingasamfélagið.
„Við leggjum okkur fram um
að höfða til fólks á öllum aldri.
Við eram í samstarfí við Hitt
húsið og fulltráar frá þeim verða
með sýnishorn af því sem þar er
boðið upp á.“
-Hafa þessar kynningar verið
vel sóttar?
„Eftirspurnin hefur stöðugt
aukist og í fyrra þegar engin slík
kynning var í boði var mikið ver-
ið að spyrja um næstu kynningu.
Fólk er farið að reikna með
þessu og nú er svo komið að þús-
undir mæta þegar við bjóðum
upp á kynningu sem þessa.“ Ásta
segir að það séu alls ekki einung-
is námsmenn sem koma og
kynna sér hvað er í
boði, foreldrar og aðr-
ir aðstandendur koma
gjarnan líka svo og
fólk á öllum aldri.
- Eru forkröfur að
mismunandi námsleiðum auð-
kenndar með einhverjum hætti?
„I blaðauka sem fylgir Morg-
unblaðinu á morgun, miðvikudag,
eru kynntar þær merkingar sem
verða við allar námsleiðir og sýna
hvaða inntökusldlyrða krafist er.“
Ásta Kristrán segir að oft þurfi
fólk að hafa mikið fyrir að afla sér
upplýsinga um það nám sem
stendur til boða á mismunandi
stöðum. „Þama gefst fólki tæki-
færi á að skoða flest það sem í
boði er á sama stað á einum degi.“
Ætlað
öllum aldurs-
hópum