Morgunblaðið - 10.03.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998 41
Af snjóflóðum á
fréttastofu Bylgjunnar
SÁ ER línur þessar ritar hlustaði
á fréttir Bylgjunnar klukkan 8:00
þriðjudaginn 3. mars s.L Þar sagði
frá mikilli ógn er steðjaði að Vest-
firðingum. Ogn þessi var snjóflóð,
skelfilega breitt, sem féll á Hvilftar-
strönd í Önundarfirði, „en svo vel
vildi til að enginn var á ferð þegar
það féll“ (tilv. í umrædda frétt). En
Gissur Sigurðsson fréttamaður sá að
þetta gekk illa upp því að í lok frétt-
arinnar segir hann að „þrátt fyrir að
talsvert hafi snjóað á Vestfjörðum í
gær og að víða sé þæfings færð er
ekki mikill snjór í fjöllum og Veður-
stofan hefur ekkert gefið út um
snjóflóðahættu á svæðinu" (tilv. í
umrædda frétt). Klukkan 12:00,
sama dag, var undirritaður aftur í
nánd viðtækisins og heyrði fréttir af
Vestfjörðum. Nú voru fréttirnar
farnar að stigmagnast og enn var
Gissur við stjórnina: „Samfelld snjó-
flóðavakt hefur verið tekin upp á
norðanverðum Vestfjörðum" (tilv. í
umrædda frétt), og framhaldið var
að hinum ýmsu aðilum á svæðinu
var gert að hafa samráð við lögreglu
til að mega fara um snjóflóðasvæðin!
Ég var á vakt á lögreglustöðinni og
hafði ekki fengið nein fyrirmæli um
að slíkt ástand væri á mínu svæði,
eða að ég sæi nein merki um hættu-
ástand, það var svolítill snjór jú, of-
ankoma verið mjög lítil.
Hvað liggur að baki slíkum frétt-
um, fréttum sem hafa engin sannindi
að baki? Ekki hafði Gissur fyrir því
að hringja í sýslumanninn á Isafirði,
sem er yfirmaður almannavama, eða
lögregluna á svæðinu sem er hægri
hönd sýslumannsins í þessu sem öðru
er að almannaheill snýr. Nógu oft
hringja fréttamenn til lögreglunnar,
stundum oft á dag, til að spyrja
frétta. Gissur er því alls ekki ókunn-
ur viðmóti lögreglunnar á Isafirði
gagnvart fréttamönnum. Fullyrði ég
að fréttamenn fá óvíða jafn kurteisis-
legt viðmót og aðstoð, sem hér hjá
lögreglunni á Isafirði. Mér rann í
skap eftir að hafa hlustað á þennan
þvætting frá fréttastofu Bylgjunnar,
fannst þessi fréttamennska jaðra við
að segja að fólk hefði komist lifandi
yfir Miklubrautina í Reykjavík, þrátt
fyrir að mikil umferð hafi verið þar
klukkan 12:00 á hádegi.
Ég hringdi því í umrædda frétta-
stofu. Eftir stórkostlegar yfirlýsing-
ar tveggja fréttamanna þar, um
undimtaðan og Vestfirðinga al-
mennt skilaði samtalið sér ekki neitt
í þá áttina að hægt væri að fá svör
við því á hvaða forsendum þessar
fréttir voru byggðar.
Staðreyndir málsins eru þær að
þegar fyrstu snjókornin falla í fjöllin
á Islandi hvert haust, fara athugun-
armenn snjóalaga, hvers byggðar-
lags fyrir sig, upp í fjöll og fylgjast
með hegðun snævarins, hve mikill
hann er, hvernig hann skefur í
skafla og fleiri athuganir. Þetta gera
þeir þar til hlánað hefur úr þessum
sömu fjöllum að vori. Gissur, þetta
er samfelld snjóflóðavakt. Frá há-
degi á sunnudag hinn 1. mars vai
hvasst og éljagangur á norðanverð-
um Vestfjörðum. Lítið hafði hins
vegar snjóað, já Gissur, það snjóaði
lítið og það var satt sem þú sagðir í
hádegisfréttum á þriðjudeginum, að
mest af þeim snjó sem þá hafði fennt
í fjöllin, hafði fokið burt.
Við Vestfirðingar erum orðnir
þreyttir á stöðugum óhróðri úrtölu-
manna um landið okkar hér vestra.
Ef við reynum að svara fyrir okkur,
þó ekki sé nema til að leiðrétta rang-
indi eru svörin á þá lund að við séum
heilalausir, heyrnarlausir og sí-
vælandi. Þetta eru svör sem að mínu
mati eru fram færð af því einu að þið
eruð rökþrota, með slæman málstað
og viljið ekki viðurkenna það. Við
búum í landi þar sem náttúran sýnir
sig í hinum ýmsu myndum og tekur
sinn toll af lífi okkar, sama hvar við
erum stödd. Vestfirðingar hafa
borgað sinn toll sem aðrir og gera
vafalaust áfram, væla ekki yfir því
frekar en aðrir landsmenn. Hitt er
að illur þykir okkur rógurinn, nóg er
af samt. Minna slík vinnubrögð mig
gjarnan á aðför þá er fjölmiðlar
gerðu á áttunda áratugnum að
áhrifamanni í Reykjavík og Davíð
Oddsson gerði um leikritið „Kusk á
hvítflibbann". Lokaorð ritstjórans í
leikritinu era minnisstæð, þegar
engar sölufréttir voru til staðar þá
skipaði hann sínum manni að skrifa
grein undir fyrirsögninni: „Er
salmonella í kjúklingum"? án þess
að hafa neitt fyrir sér um slíkan
sannleik, fréttin varð bara til í huga
Við Vestfírðingar, segir
Onundur Jónsson,
erum orðnir þreyttir
á stöðufflim óhróðri
úrtölumanna.
hans og hann sagði: „Þetta kemur
fólki til að hugsa.“
Það era þessir menn sem frétta-
menn mega ekki gleyma, þeir mega
ekki skálda, flytja rangt
mál. Komi það fyrir
eiga þeir að fara heim
og skrifa þar skáldsög-
ur. Sá er munur á
fréttamanni og skáldi,
minnist þess.
Gissur, og fleiri
fréttamenn, hafið þið
kynnt ykkur hvemig
náttúran hagar sér?
Hvenær er hætta á
snjóflóðum, hvenær er
skipum hætt vegna ís-
ingar eða hvassviðris,
hvenær fara munir að
fjúka og hvar og
hvenær gýs næst? Ver-
ið þið allir velkomnir
hingað vestur þegar einhver snjór
er, eða hvenær sem er, og ég skal
sjá til þess að þið verðið leiddir í all-
an sannleikann um okkar lands-
hluta. Látið okkur ekki
hlusta eða lesa fréttir
sem era rangar af því .
að fréttamaðurinn er
svo fákunnandi að helst
minnir á sögur frá
fomum sögumönnum
sem sögðu helvíti vera ~
á íslandi, á Suðurlandi,
í Heklu.
Ég hefi átt nokkuð
gott samstarf við
fréttamenn í starfi
mínu og vona að svo
verði áfram. En fréttir,
sem leiða til óþarfa ótta
eða særa sannleiksvit-
und fólks, eru best
geymdar í huga við-
komandi, óskrifaðar, ófluttar.
Höfundur er yfirlögregluþjónn á
ísaTirði.
AIIhm mILI |1M iZUfM
vViu0 (nm ioa toiva^
Fermingartilboð!
ga
B wawun > þ<wiaa
Ú :
■
r~—
iliYtlYtUliÍliUíiililiilHÍ
i i i t i i i / » » i »i i i » n » i \
i < i • » « • « # < • • • •
/ ............ i
/ i
/ I ! I I I I t I
. I
wm
Nú eru þessar öflugu Power Macintosh 6500/250 á ótrúlega góðu fermingartilboSi.
Tölvurnar eru með 250 MHz PowerPC 603e örgjörva, 32 Mb vinnsluminni, 4 Gb harðdiski,
3D-hröSunarkorti, 24-hraða geisladrifi, L2-flýtiminni, innbyggðu ZlP-drifi, 33.600 baud mótaldi
og 4 mánaða Internet-áskrift hjá Margmiðlun.
Tilboð 1: m/15" Multiple Display-skjá:
Tilboð 2: m/17" 720-skjá:
Umboð Akureyri:
Haftækni
CD
■ÉMMH:
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, simi: 511 5111
Netfang: sala@apple.is Veffang: http://www.apple.is
Önundur
Jðnsson