Morgunblaðið - 10.03.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.03.1998, Blaðsíða 26
M'ORGUNBLAWJ) 26 ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998 ERLENT Deila stjórnvalda í Indónesíu við Alþjóðagjaideyrissjóðinn Frestur á greiðslu frá IMF bitnar á gjaldeyrisbirgðunum Jakarta. Reuters. Hneykslast á græn- ingjum Bonn. Reuters. ÞYSKIR jafnaðarmenn brugð- ust í gær ókvæða við sam- þykktum flokksþings græn- ingja en almennt er búist við, að þeir taki höndum saman um stjórnarmyndun eftir næstu kosningar fái þeir til þess meirihluta. Á ílokksþingi sínu um helg- ina samþykktu græningjar að þrefalda skatta á bensíni, vinna að úrsögn úr NATO, skera niður þýska herinn og gera neyslu marijúana lög- lega. Helmut Kohl, kanslari Þýskalands og leiðtogi kristi- legra demókrata, sagði, að ljóst væri, að kæmust græn- ingjar í ríkisstjóm myndi það enda með skelfíngu. Jafnaðar- mönnum var líka brugðið og vísa þeir samþykktum græn- ingja út í hafsauga. Ljóst er að þessar tillögur eru vatn á myllu stjómarflokkanna. REYNT var í gær að bera klæði á vopnin í deilu indónesískra stjóm- valda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF). Osætti sjóðsins við umbóta- stefnu stjórnvalda olli því að næstu greiðslu efnahagsaðstoðar við landið hefur verið frestað. Sögðu frétta- skýrendur að frestunin kynni að leiða til vandræða vegna ónógra gjaldeyrisbirgða nkissjóðs. Til stóð að framkvæmdastjóm IMF kæmi saman 15. mars til þess að taka ákvörðun um næstu greiðslu en greint var frá því á fóstudag að ekkert yrði ákveðið í málinu fyrr en í næsta mánuði. Tilkynnt var um frestunina eftir að sjóðurinn hafði kvartað yfir því að Indónesar drægju lappirnar í efnahagsumbót- um og þess vegna urðu margir til þess að líta svo á að fresturinn væri til marks um óþolinmæði IMF. Ali Alatas, utanríkisráðherra Indónesíu, sagði í gær að Suharto forseti ætlaði hvergi að hvika frá efnahagsumbótaáætlun í samræmi við tillögur IMF, sem settar voru sem skilyrði fym- 43 milljarða dala efnahagsaðstoð. Nú er að Ijúka ráð- stefnu Þjóðarráðgjafarsamkomunn- ar í Indónesíu og í dag verður Su- harto kjörinn forseti til fimm ára, sjöunda kjörtímabilið í röð. Reynt að draga úr spennu Fulltrúi IMF í Jakarta gerði einnig sitt til þess að draga úr spennu vegna deilunnar. Sagðist hann vona að brátt lyki viðræðum við indónesísk stjórnvöld um greiðslu þriggja milljarða dala af að- stoðinni, sem gerð var áætlun um vegna efnahagskreppu sem skall á í Indónesíu í fyrra. Efnahagssérfræðingar sögðu í gær að staða ríkiskassans í Indónesíu væri mjög slæm og frest- un á greiðslu frá IMF og á framlagi frá Alþjóðabankanum og Asíska þróunarbankanum, sem fylgja átti með, gæti reynt mjög á gjaldeyris- forða ríkisins. Suharto sagði á sunnudag að skil- yrðin sem IMF hefði sett um efna- hagsumbætur stönguðust á við indónesísku stjórnarskrána. IMF færi fram á að komið yrði á opnu hagkerfi „sem er ekki í samræmi við grein 33“ í stjórnarskránni, að því er Suharto sagði. Þróunarmálaráð- herra, Ginandjar Kartasamita, tók dýpra í árinni og sagði að stofnanir á borð við IMF ættu ekki að niður- lægja Indónesíu. „Við fögnum því að alþjóðastofn- anir á borð við IMF og Alþjóða- bankann komi Indónesíu til hjálpar. En ef það þýðir að þær geti komið fram vilja sínum eða niðurlægt okk- ur værum við betur komin án hjálp- ar þeirra," sagði Kartasamita. Ókyrrð á mörkuðum Fréttirnar af frestun á greiðslu framlagsins frá IMF og orðum Su- hartos og Kartasamitas ollu titringi á fjármálamörkuðum í SA-Asíu í gær. Efnahagsráðgjafi stjómvalda í Malasíu sagði við Reuters: „Við skul- um horfast í augu við það að ástand- ið er mjög alvarlegt í Indónesíu." Indónesíska rúpían féll í verði gagnvart Bandaríkjadollar í gær- morgun og var skráð lægst 12.250 en rétti nokkuð úr kútnum og við lokun var hún komin í um 11.000, í kjölfar þess að indónesíski seðla- bankinn hækkaði skammtímavexti. Styrkari staða hjá stjórnmálaflokki indverskra hindúa Rasmussen um EMU-aðild Danmerkur Auknar líkur á að BJP myndi stjórn Nýju Delhí. Reuters. FLEST bendir nú til þess að Bharatiya Janata (BJP), flokki þjóðemissinnaðra hindúa, verði falið að mynda næstu stjórn Ind- lands. Kongressflokkurinn hefur viðurkennt að dregið hafi úr líkun- um á því að hann geti myndað stjóm með Samfylkingunni, banda- lagi fímmtán flokka. Nokkrir af flokkum Samfylking- arinnar hafa hafnað stjómarsam- starfi við Kongressflokkinn. „Svo virðist sem við höfum ekki mikla möguleika núna. Við ætlum þó að halda áfram tilraunum okkar til að mynda stjórn,“ sagði talsmaður Kongressflokksins. Bharatiya Janata hefur fengið 253 þingsæti og vantar 19 sæti til að geta myndað meirihlutastjóm. Kon- gressflokkurinn hefur fengið 166 þingmenn og reynt að mynda stjórn með Samfylkingunni, sem hefur 96 þingsæti. Svæðisbundnir smáflokk- ar og óháðir þingmenn geta ráðið úrslitum um hvers konar stjóm verður mynduð og stjórnmála- skýrendur segja að það viti á póli- tískan glundroða í landinu. Kommúnistaflokkur Indlands, einn af stærstu flokkunum í Sam- fylkingunni, hefur ekki reynt að koma í veg fyrir að Bharatiya Janata fái tækifæri til að mynda stjóm en kveðst ætla að greiða at- kvæði gegn henni á þinginu. Tveir vinstriflokkar í Samfylkingunni ákváðu á laugardag að hafna stjóm- arsamstarfi við Kongressflokkinn, sem hætti stuðningi við minnihluta- stjóm Samfylkingarinnar í nóvem- ber og það varð til þess að boða þurfti til nýrra kosninga. Kosningamar hófust 16. febrúar og 537 þingmenn af 545 hafa þegar verið kjömir. Talningu atkvæða í tveimur kjördæmum í Kasmír er ekki lokið. Kosið verður í tveimur kjördæmum síðar í mánuðinum og tveimur í júní. Forsetinn tilnefnir síðan tvo þingmenn. Verður Gandhi leiðtogi Kongressflokksins? Sitaram Kesri, forseti Kongress- flokksins, tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið segja af sér og skoraði á Soniu Gandhi, ekkju Rajivs Gand- his fyrrverandi forsætisráðherra, að taka við leiðtogastöðunni. Reuters SITARAM Kesri, fráfarandi forseti Kongressflokksins á Indlandi, við mynd af Soniu Gandhi eftir að hann tilkynnti að hann hefði ákveðið að segja af sér og hvatti hana til taka við Ieiðtogastöðunni. Búist hafði verið við afsögn Kesris, sem er 78 ára. Ekki var vit- að í gær hvort Sonia Gandhi tæki áskoruninni. Einn af forkólfum flokksins, Sharad Pawar, sagði að fast yrði lagt að henni að gerast leiðtogi flokksins á fundi forystu- manna hans í dag. T Falleg oggagnleg fermingargjöf Ensk-íslensk orðabók 34.000 ensk uppflettiorð íslensk-ensk orðabók 35.000 íslensk uppflettiorð 2.200 blaðsíður Saman í fallegri gjafaöskju á aðeins kr. 3.990 Gagnleg og glæsileg fermingargjöf, sem nýtist vel í nútíð og fxamtíð Fæst hjá öllum hóksölum Orðabókaútgáfan Ekki kosið um EMU næstu árin Kaupmannahöfn. Reuters. POUL Nymp Rasmussen, forsæt- isráðherra Danmerkur, sagðist í gær ekki sjá það gerast að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild landsins að Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu, EMU, innan næstu þriggja til fjögurra ára. Flokkarnir sem standa að minni- hlutastjórn Rasmussens njóta sam- kvæmt skoðanakönnunum fyrir þingkosningarnar á morgun, mið- vikudag, minna fylgis en mið- og hægriflokkarnir, en ólíkt Jafnaðar- mannaflokki Rasmussens eru þeir fylgjandi EMU-aðild Danmerkur. Rasmussen lýsti því jafnframt yfir í gær að stjórnarflokkamir myndu ekki þola að hróflað yrði við undanþágunum sem Danir sömdu um frá skuldbindingum Ma- astricht-sáttmálans, en undanþág- an frá þátttöku í EMU er ein þeirra. Undanþágurnar eign almennings „Þessar fjórar undanþágur eru eign dansks almennings. Það er hann og aðeins hann sem ákveður hvað verður um þær,“ sagði forsæt- isráðherrann. Aðspurður, hvort hann myndi íhuga að láta fara fram þjóðarat- kvæðagreiðslu um EMU ef hann yrði endurkjörinn, sagði hann: „Ég sé ekki fyrir mér að það komist á dagskrá á næstu þremur til fjórum árum.“ Uffe Ellemann-Jensen, leiðtogi stjórnarandstöðunnar og sá maður sem stjórnmálaskýrendur telja að sé líklegastur til að taka við stjórn- artaumunum eftir kosningarnar, gangi spár um kosningasigur hægriflokkanna eftir, sagði í liðinni viku að kæmist hann til valda mjmdi hann reyna sitt bezta til að sannfæra Dani um að þeim væri fyrir beztu að afnema allar undan- þágurnar. I gær lýsti Ellemann-Jensen því yfir, að ynni hann kosningaslaginn á morgun myndi hann sjá til þess að efnahagur Danmerkur uppfyllti áfram skilyrðin fyrir aðild að EMU. „Ég get fullvissað ykkur um að við munum standa vörð um EMU-skil- yrðin,“ tjáði hann fréttamönnum. „Við munum leggja okkur fram um að halda okkur jafnvel enn betur við skilyrðin en þau ríki sem taka þátt í EMU.“ Ræða saman um NATO og ESB VACLAV Havel, forseti Tékklands, kom í gær í þriggja daga opinbera heimsókn til Varsjár, þar sem hinn pólski starfsbróðir hans Aleksander Kwasniewski (t.h.) tók á móti honum. Efst á dagskrá viðræðna forsetanna er áformuð aðild beggja landa að Atlantshafs- bandalaginu (NATO) og Evrópu- sambandinu (ESB), en samninga- viðræður um aðild Tékklands, Póllands, Ungveijalands, Slóvenfu og Eistlands, auk Kýp- ur, hefjast í lok þessa mánaðar. L í I i í í I L : I l. L S L L P i I ■ Reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.