Morgunblaðið - 10.03.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998 1 7
LANDIÐ
Eldur í
mjólkur-
húsi
MJÓLKURKÝR og kálfur
drápust úr reykeitrun eftir að
eldur kom upp í mjólkurhúsi á
bænum Grænuhlíð í Austur-
Húnavatnssýslu á sunnudags-
morgun.
Dagný Guðmundsdóttir, hús-
freyja í Grænuhlíð, segir að lík-
lega hafi kviknað í út frá raf-
magni. Heimilisfólkið hafi orð-
ið eldsins vart klukkan átta að
morgni og kallað til slökkvilið-
ið.
„Allt það sem var í mjólkur-
húsinu er ónýtt,“ segir hún.
„Þá fylltist fjósið, sem er tengt
mjólkurhúsinu, af reyk. 20
gripir sem voru í fjósinu eru
allir mjög slappir og dýralækn-
ir sem hefur skoðað dýrin telur
allt eins líklegt að fleiri drepist
á næstunni," sagði Dagný.
Arekstur
á Fagradal
FLUTNINGABÍLL og fólks-
bíll rákust saman á Fagradal
skömmu fyrir kl. 9 í gærmorg-
un. Ökumaður fólksbílsins var
fluttur á heilsugæslustöðina á
Egilsstöðum, marinn og skor-
inn, að sögn læknis, en fékk að
fara heim síðdegis.
Að sögn lögreglu á Eskifirði
gekk á með éijum og skafrenn-
ingi í gærmorgun og skyggni
því afar slæmt þegar bílamir
mættust og skullu saman.
Fólksbíllinn er talinn ónýtur
og flutningabíllinn mikið
skemmdur.
Hallg’rímur
í Hólmum
70 ára
Björk, Mývatnssveit
HALLGRÍMUR Jónasson,
Hólmum í Mývatnssveit, átti
70 ára afrnæli 7. mars. Þann
dag bauð hann og eiginkona
hans, Hjördís Albertsdóttir,
frændum og vinum til veglegs
kvöldverðar á heimili þeirra.
Veitt var af mikilli rausn og
myndarskap og áttu viðstaddir
mjög ánægjuleg kvöldstund
sem var fjölmenn.
Hallgrímm• og Hjördís eiga
fimm böm sem öll eru á lífi.
Hallgrímur hefur ekki gengið
heill til skógar síðustu ár. For-
eldrar hans vom Jónas Hall-
grímsson bóndi í Vogum og
Guðfinna Stefánsdóttír frá
Öndólfsstöðum. Hinir fjöl-
mörgur frændur, vinir og
kunningjar Hadda í Hólmum
senda honum góðar óskir um
góða heilsu og bjarta framtíð.
Klakahlaup í Þjórsá
/
Ain var öll
á iði eins og
hraunelfa
Selfossi - Mikið ísskrið eða klaka-
hlaup varð í Þjórsá skömmu eftir
hádegi síðastliðinn föstudag.
Hlaupið hófst 1 ánni á móts við
bæinn Egilsstaði og hljóp hiður
ána um fimm kílómetra. Áður en
hlaupið varð hafði hækkað veru-
lega í ánni og vatn stóð hátt í
henni í gilinu undir Þjórsárbrú.
Ólafur Siguijónsson, bóndi í
Forsæti, varð vitni að hlaupinu
þar sem hann sat við eldhús-
gluggann á bænum og horfði út.
„Þetta var ótrúlega há flóðbylgja
sem kom niður ána. Jakahrönglið
var á fullri ferð, jakamir þeytt-
ust upp og áin var öll á iði, þetta
var eins og hraunelfa,“ sagði
Ólafur. Við þessar aðstæður,
langvarandi kulda og mikla ís-
myndun á ánni, sagði hann ís-
skriðið aðal hættuna frá ánni. Þá
gætu myndast þær aðstæður að
ísinn stíflaði rennslið og áin færi
upp úr farveginum og vestur lág-
iendið neðan við félagsheimilið
Þjórsárver.
Greinilegt er að mikið hefur
gengið á í klakahlaupinu á föstu-
dag. fsinn á ánni er mjög úfinn
og Ijóst að mikil ferð hefur verið
á hlaupinu. Það hefur rifið upp
ísinn og mtt honum á undan sér
þar til það stöðvaðist fram undan
bænum Forsæti. Ólafur Sigur-
jónsson áætlar að hraði hlaupsins
hafi verið um 50 kílómetrar á
klukkustund.
„Þetta var ótrúleg sjón og al-
veg eins og á myndunum frá
Núpsvötnum í flóðinu þar þegar
jakamir byltust fram,“ sagði
Ólafur.
Vamargarður bjargaði
Vatnsbylgja hefur verið á und-
an hlaupinu sem sést vel á vest-
urbakkanum þar sem vatnsflóð-
ið hefur þeytt upp snjósköfl-
um og ís. Klakahrönglið þrýst-
ist upp að árbakkan-
um framundan bæn-
um ftflósyndi þar sem það stöðv-
aðist á varnargarði sem gerð-
ur var fyrir 20 árum. Sú fyrir-
staða kom greinilega í veg fyr-
ir að hrönglið hlypi upp á tún-
ið og heim að bænum.
Annar varnargarður sem ligg-
ur út í ána til varnar land-
rofi var mikil fyrirstaða en klak-
arnir þeyttust yfir þann garð.
Ógnvekjandi staðreynd
Bjarki Reynisson, bóndi í
Mjósyndi og oddviti Villinga-
holtshrepps, sagði nauðsynlegt
að fá varnargarð með ánni þar
sem mesta hættan væri á því að
hún færi uppúr farveginum, á
um 2,5 km kafla. Einnig þyrfti að
byggja upp veginn með ánni, frá
Þjórsárveri að Egilsstaðahverfí.
„Það er ógnvekjandi að hafa
þetta yfir sér. Núna hefur verið
góð tíð í vetur og bara við þenn-
an stutta frostakafla kemur þetta
fyrir. Þetta segir manni að svona
hlaup vofa yfir á hveijum vetri,“
sagði Bjarki. Hann minnti á að
1977 hefði áin verið búin að
hlaða undir sig miklum ís og
flæddi yfir bakkana. Þá voru
uppi áform um að flytja fólk og
bústofn í burtu.
Þegar staðið er á hlaðinu í
Mjósyndi blasir íshrönglið í ánni
við í um 100 metra íjarlægð og
sú hugsun er áleitin að ekki þurfi
mikið tU að lyfta ísnum yfir lág-
an varnargarðinn frá 1977.
íjöldi fólks hefur lagt leið sína
að ánni til að skoða ummerki
hlaupsins.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
KLAKARNIR hrönnuðust upp í hlaupinu.
íeimmsisBKi bjóða öryggis- og eftirlitsbúnað frá
SANYO á betra verði en áður hefur þekkst.
Búnaðurinn er einfaldur og þægilegur í uppsetningu
er að bæta við myndavélum eða
ipptökutæki, allt eftir þörfum.
Hafðu samband og við gerum þér tilboð Heimilistæki hf
sem er sniðið að þínum þörfum. SÆTÚNl 8 SÍMl 5691500
www.ht.is