Morgunblaðið - 10.03.1998, Side 22
22 PRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Franskt íslenskt eldhús þróar nýjar fískafurðir
Ýmsar nýjungar væntanlegar
Njrjir
markaðir
að skapast
Laxabitar með spínatfyllingu og dillfyllingu er ný afurð hjá
Fransk íslensku eldhúsi.
FRANSKT íslenskt eldhús hf. á
Akranesi kynnti í vikunni stefnu fyr-
irtækisins vegna nýrra mark-
aðstækifæra og breyttra aðstæðna á
markaði unninna fiskafurða. Fyrir-
tækið mun sérhæfa sig í framleiðslu
tilbúinna frosinna rétta, sem mat-
reiddir eru úr íslensku hráefni, en að
frönskum hætti.
Á kynningarfundinum kom fram
að vaxandi kröfur neytenda um til-
búna rétti, stuttan eldunartíma,
langan geymslutíma, en jafnframt
ferskt hráefni, sköpuðu ný tækifæri
fyrir fyrirtækið. Franskt íslenskt
eldhús hefur undanfarið þróað nýjar
tegundir unninna fiskafurða sem
seldar eru í gegnum Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna í Hollandi, Þýska-
landi og Skandinavíu. Verið er að
fara inn á Frakklandsmarkað en vör-
umar eru nú seldar fyrir um 80-90
milljónir króna á ári.
Nýtt íslenskt sælkerayfirbragð
Þráinn Þorvaldsson fram-
kvæmdastjóri Fransks íslensks eld-
húss sagði að fyrirtækið stæði fram-
arlega í þessari þróun miðað við aðr-
ar þjóðir og það væri að vinna
ákveðið brautryðjendastarf. „ís-
lenskar fískafurðir hafa hingað til
ekki verið þekktar fyrir ákveðið sæl-
kerayfirbragð. Við ætlum okkur að
breyta því með samvinnu við
franska kokka og ætlum að skapa
tiltrú á okkur íslendingum sem
framleiðendum tilbúinna sælkera-
rétta.“ Með aðgangi að öruggu fjár-
magni, samnýtingu véla á móti fisk-
vinnslu Haraldar Böðvarsonar og
aðgang að öflugu alþjóðlegu dreifi-
kerfi SH stefnir fyrirtækið að því að
verða fyrstir á markaðinn með vörur
sem henta nútímasamfélagi.
Nýtt
Gerlaus
brauð
MYLLAN-Brauð hf. hefur um
skeið framleitt gerlaust brauð sem
hefur verið selt í brauðbúðum Myll-
unnar. Framvegis mun það fást im>
pakkað í helstu stórmörkuðum. í
fréttatilkynningu frá Myllunni segir
að um sé að ræða gróft brauð sem
innihaldi m.a. hveitiklíð, hörfræ og
sólkjamafræ. Brauðið fær lyftingu
með lyftidufti og hentar það því
þeim sem eru með geróþol. Brauðið
er sagt ríkt af bætiefnum og trefj-
um. Það er óskorið og vegur um 585
grömm.
Sænskt rúgbrauð
Þá er komið á markað sænskt
rúgbrauð frá Myllunni-Brauði hf.
Rafrænn
afsláttur!
V/SA
MENSWEAR
veitir öllum sem W/&W greiðameð
VISA kreditkorti 5% rafrænan afslátt
Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt
©
FRIÐINDAKLUBBURINN
www.fridindi.is • www.visa.is
Bónus eignast hlut
í Mj ólkur samlagi
Norðfírðinga
FYRIR skömmu var hlutafé í Mjólk-
ursamlagi Norðfirðinga aukið um 10
milijónir. Bónus keypti 40% hluta-
fjárins en síðan voru það ýmsir á
Neskaupstað sem keyptu hlut í sam-
laginu.
„Stjóm Mjólkursamlags Norðfirð-
inga sótti um úreldingu og í fram-
haldi af því barst okkur kauptilboð
frá Kaupfélagi Héraðsbúa," segir
Magnús Jóhannsson, stjómarmaður
í Mjólkursamlagi Norðfirðinga.
„Þegar kauptilboðið lá fyrir var
haldinn auka aðalfundur í félaginu
þar sem til umræðu var að auka
hlutafé eða taka tilboðinu. Niður-
staðan var sú að ákveðið var að auka
hlutaféð um 10 milljónir og það tókst
innan ákveðins tíma. Bónus keypti
hlut fyrir fjórar milljónir og síðan
Það er framleitt eftir sænskri upp-
skrift og í fréttatilkynningu frá
fyrirtækinu segir að brauðið inni-
haldi m.a. sólblómafræ og hörfræ.
Það er óskorið og vegur um 585
grömm.
vora það ýmsir í bæjarfélaginu sem
keyptu hlut. Alls era nú á annað
hundrað hluthafar í félaginu."
Magnús segir að á undanfómum
áram hafi mikil vöraþróun átt sér
stað í mjólkursamlaginu. „Um þess-
ar mundir stendur yfir þróunarvinna
á nýjungum og væntanleg er t.d. á
markað svokölluð ABC-mjólk. Við
gerðum okkur grein fyrir að rekstur-
inn yrði þungur og fjölga þyrfti
framleiðsluvöram. Það hefur verið
dýrt að koma nýjum vörum á mark-
að, eins og t.d. tilbúna vöffludeiginu
sem er á fernum. En við sjáum fram
á að hægt sé að reka þetta fyrirtæki
með viðunandi afkomu.“
Súrmjólkín lfkar vel
Jóhannes Jónsson, kaupmaður í
Bónus, segir að forsvarsmönnum hjá
Bónusi hafi verið umhugað um að
starfsemin héldist áfram því við-
skiptavinum hefur líkað vel við þá
einu mjólkurafúrð sem seld er undir
merki Bónus og er súrmjólk með mis-
munandi bragðtegundum.
Þegar Jóhannes er spurður hvort
eignarhlutdeild þeirra í samlaginu
þýði aukin viðskipti við fyrirtækið
segir hann það auðvitað stefnuna.
„Eins og staðan er núna getur sam-
lagið einungis framleitt úr takmörk-
uðu mjólkurmagni. Ef aukinn kvóti
kæmi til væri hægt að framleiða
ýmsar fleiri tegundfr af mjólkuraf-
urðum þar.“
Ostur er auðugur afkalki. En það eru fleiri tilefni til að borða ost!
Ostur er þægilegur ogfljótlegur kostur og úrval bragðgóðra,
íslenskra osta afarfjölbreytt.
Camembert
sígildur • alltaf vinsæll
D'ímón
Lúxus-Yrja
mjúkt bragð • þroskast vel
Ostakökur
Ijúffengar • Jrískandi
fyrirtaks veisluostur
Rjómaostar
7 tegundir
Camembert
Skólaostur
Ostakökur
Lúxus-Yrja
m I wgKBt' ■ ■ wmmmm'
■ ■ \:-