Morgunblaðið - 10.03.1998, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998 27
Lykilvitni
í White-
water-
máli látið
JAMES McDougal, sem
dæmdur hafði verið í þriggja
ára fangelsi vegna aðildar sinn-
ar að White-
water-málinu,
lést á sunnu-
dag á sjúkra-
húsi fangelsis-
ins í Fort
Worth í
Texas. Var
hann 57 ára
að aldri en
McDougal virtist miklu
eldri vegna langvarandi hjarta-
og æðasjúkdóma. McDougal
fékk vægari dóm en ella vegna
þess, að hann féllst á að vinna
með saksóknaranum í
Whitewater-málinu, Kenneth
Starr, en hann hefur einkum
rannsakað hlut forsetahjón-
anna, Bills og Hillary Clintons,
í því. Andlát McDougals er því
augljóslega nokkurt áfall fyrir
Starr.
Tdbaksfyrir-
tæki bæti
skaðann
SAMKVÆMT skoðanakönnun
meðal reykingamanna í Bret-
landi vill mikill meirihluti
þeirra, að tóbaksfyrirtækin taki
þátt í að venja þá af ósiðnum, til
dæmis með því fjármagna sér-
staka meðferð í því skyni og
annað, sem að gagni getur
komið. Mörgum fannst líka
eðlilegt, að þau legðu eitthvað
af mörkum til heilbrigðiskerfis-
ins en áætlaður kostnaður þess
vegna reykingasjúkdóma er
rúmlega 200 milljarðar ísl. kr.
árlega. Þriðjungur reykinga-
mannanna vildi takmarka reyk-
ingar á opinberum stöðum enn
frekar, fjórðungurinn vildi
hækka verð á tóbaki og fimmti
hver vildi banna tóbaksauglýs-
ingar. Skoðanakönnunin þykir
sýna, að reykingamenn vilji al-
mennt vera lausir við tóbakið.
Sauðaþjófar
felldir
RÚSSNESKIR hermenn felldu
á dögunum níu menn, þar á
meðal einn Irana, sem tekið
höfðu gísla og rænt búpeningi í
rússneska sjálfstjórnarhéraðinu
Dagestan. Ætluðu þeir að fara
með skepnurnar, 400 talsins, til
Tsjetsjníu. Sex voru handtekn-
ir. Voru mennirnir 20 og höfðu
um stund á valdi sínu fjóra
hjarðmenn og einn lögreglu-
þjón. Var Iraninn, Abdulla
Ibragimov, fyrir liðinu en vitað
er, að ýmsir herskáir múslimar
frá Miðausturlöndum hafa kom-
ið sér fyrir í Tsjetsjníu.
Drottning
vill spara
ELÍSABET Bretadrottning
hefur lagt til, að reglur um ör-
yggi konungsfjölskyldunnar
verði endurskoðaðar og vill
með því sýna, að hún sé stað-
ráðin í að koma til móts við
kröfur um sparnað og aðhalds-
semi. Kostnaðurinn við örygg-
isgæsluna er nú 1,6 milljarðar
ísl. kr. árlega en líklegt er, að
dregið verði úr gæslu við
„minniháttar" meðlimi fjöl-
skyldunnar. Er þá til dæmis átt
við dætur Andrésar, hertoga af
York, og fyrrverandi eiginkonu
hans, Söruh.
ERLENT
Virtustu bókmenntaverðlaunin í fsrael
Landnemar ósáttir við Oz
Jerúsalem. Reuters.
ÍSRAELSKI rithöfundurinn Amos
Oz var í gær atyrtur af ísraelskum
landnema sem er ósáttur við að Oz
hljóti ein virtustu bókmenntaverð-
laun sem veitt eru í Israel. Zvi
Hendel er einn leiðtoga landnema á
herteknu svæðunum og segir hann
að Oz ætti ekki að fá verðlaunin
vegna blaðagreinar sem hann hafi
ritað 1989 þar sem hann hafi kallað
öfgasinnaða gyðinga „gyðinglega
Hizbollah“ og skírskotað þar til
samtaka múslíma í Líbanon sem
berjast gegn Israelum.
„Hversu góður rithöfundur sem
maður kann að vera er ekki rétt að
hann hljóti ísraelsk verðlaun hafí
hann beint spjótum sínum að virð-
ingarverðum hópi í samfélaginu,
sönnum frumkvöðlum ... og ausið
þá óhróðri," sagði Hendel í viðtali
við ísraelska útvarpið í gær.
Oz sagði í greininni að öfgasinn-
aðir gyðingalandnemar væru „van-
skapaður, skilningsvana og grimm-
ur söfnuður sem spratt fyrir
nokkrum árum upp úr fjarlægum
afkima gyðingdómsins og er ógn
við allt sem okkur er kært og heil-
agt“. I yfirlýsingu í gær sagði Oz
að greinin hefði á sínum tíma
beinst gegn öfgasinnuðustu land-
nemunum „og tilraunum þeirra til
að ná völdum yfir einkennum ríkis-
ins“.
Meðal þeirra sem komu Oz til
varnar í gær var menntamálaráð-
herra Israels, Yitzhak Levy, for-
maður Israelska trúarflokksins.
Sagði hann að mótmæli við um-
rædda blaðagrein ættu ekki að
beinast að verðlaunaveitingunni.
Amos Oz