Morgunblaðið - 10.03.1998, Síða 40
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Af náttúru
og ónáttúru
Æ! ENN og aftur
hafa fulltrúar lögvernd-
uðu læknavísindanna
blásið í herlúðra og
sameinast um að ganga
milli bols og höfuðs á
náttúrulækningum.
Hjálækningar, skottu-
lækningar og kukl eru
^iöfnin sem valin eru
öllu þvi sem ekki hefur
hlotið blessun heilbrigð-
isráðuneytis. Sama
ráðuneytis og á dögun-
um greiddi mér orða-
laust skaðabætur vegna
slæmra mistaka starfs-
manns þess úr lyfja-
fræðigeiranum.
Ungur lyfjafræðinemi tekur sér
svo penna í hönd til, að því er virð-
ist, að eyða röksemdum mínum um
náttúruleg og ónáttúruleg efni.
Hann heldur því fram að öll lyf séu
náttúruleg því þau séu unnin úr efn-
um sem séu náttúruleg. En einmitt
þar er ásteytingarsteinninn, á orð-
flnum „unnin úr því sem er náttúru-
legt“, samanber plastið. Olían sem
er uppistaðan í plasti er náttúruleg
en blönduð öði-um efnum og send
gegnum framleiðsluferli í verk-
smiðjum mannanna. Þar verður hún
að óskapnaði sem tekur náttúruna
áratugi að brjóta niður. Þarna er
munurinn milli náttúruefna og
verksmiðjuframleiddra í hnotskurn.
Tökum t.d. lífrænt ræktaða gulrót
og berum saman við aðra sem notið
hefur verksmiðjuframleidds áburð-
^ar, kynbætt með samræktun (cross-
breeding) nokkurra
tegunda og úðuð skor-
dýraeitri allan vaxtar-
tímann. Lífrænt rækt-
aða gulrótin er minni,
kræklóttari og litir
hennar eru daufari en
hún er mörgum sinnum
hollari. I henni er að
finna hrein og ómenguð
næringarefni. I hinni
eru að vísu næringar-
efni en svo blönduð
óhollustu og í svo skert-
um hlutfóllum að alls-
endis óvíst er að með
öllu hættulaust sé að
borða hana.
Sama gerist með lyf unnin úr
jurtum. Hið virka efni er einangrað
á rannsóknarstofu og gefið sjúk-
lingum í útreiknuðum meðal-
skömmtum. Oftar en ekki hefur
hins vegar komið í ljós á síðustu ár-
um að eitt efni getur bókstaflega
verið hættulegt án þess að samfara
því sé annað tekið inn. Hvað með
pensilínið sem við vitum nú að
nauðsynlegt er að neyta AB-gerla
jafnframt til að tryggja að eðlileg
bakteríuflóra líkamans lifi kúrinn
af? Hvað með insúlínið sem menn-
irnir blanda á rannsóknarstofum
og hefur margvíslegar aukaverkan-
ir fyrir þá sykursjúku sem verða að
nota það dagiega, meðal þeirra má
nefna augnbotnsskemmdir sem
með tíð og tíma geta orsakað
blindu hjá sumum. Vegna þessa er
nú verið að gera tilraunir með að
ná innsúlíni úr svínum til að lyfíð
Ragnar Þjóðólfsson
verði náttúrulegra og eðlilegra og
þar af leiðandi hollara líkama
mannsins. Fyrir svo utan það að
meðalskammtarnir henta ekki öll-
um. Einstaklingsbundið er hve stór
skammtur af lyfi þarf að vera til að
gera gott eða illt.
Eg er fylgjandi því að menn
neyti eins hollrar fæðu og völ er á í
nútímanum. Þegar vinur minn
Royden Brown stofnaði fyrirtæki
sitt CC Pollen, sem framleiðir
High Desert býflugnaafurðir, á
sínum tíma hafði hann einmitt það
sama í huga. Hann leitaði lengi að
stað í Bandaríkjunum þar sem loft-
mengun var ekki mælanleg, þang-
að sem áhrif úðunar skordýraeit-
urs úr flugvélum náðu ekki og um-
fram allt þar sem jarðvegur væri
frjór og næringarríkur og mætti
Hættur sem leynast í
náttúrunni, segír Ragn-
ar Þjóðólfsson, eru
barnaleikur hjá því
þegar mannshöndin
hefur náð að krukka
með tækni sinni í nátt-
úrufyrirbæri.
bæta með lífrænum áburði. Þar
setti hann upp býflugnabóndabæ
sinn og þar ræktar hann blóm sem
flugurnar hans safna hollum safa
og næringarríkum frjókornum frá.
Hann eyddi einnig ómældum tíma
og peningum í rannsóknir á hvern-
ig ætti að vinna kornin til að
tryggja að þau töpuðu ekki nær-
ingarefnum og þróaði eigin
vinnslu- og geymsluaðferð sem við-
urkennd er fyrir að skila frábærum
árangri og fyrirtæki hans á einka-
leyfí á. Þetta allt var gert til að
tryggja að efnin bærust neytend-
um í senn hrein og ómenguð.
Blómafrjókorn og drottningar-
hunang eru hollur matur sem ég tel
að ætti að vera á borðum sérhvers
manns. Munurinn á þessum efnum
og vítamíntöflum er sá sami og á
nautavöðva af skepnu sem troðinn
var út af hoi-mónum og sýklalyfjum
allt sitt líf og svo af skepnu sem beit
gras í haga, sem eingöngu var bor-
inn á lífrænn áburður. Dýr sem
aldrei fékk sýklalyf því heilbrigt
umhverfi tryggði heilbrigði skepn-
unnar.
Lyfjafræðineminn bendir einnig
á að mörg eiturefni þekkist í nátt-
úrunni og þar leynist mörg hættan.
Þetta vita allir en þær hættur sem
leynast í náttúrunni eru oftast
barnaleikur hjá því sem verður til
eftir að mannshöndin hefur náð að
krukka með tækni sinni í náttúru-
fyrirbæri. Miltisbrandur (B. ant-
hracis) er einmitt eitt besta dæmi
um það sem hægt er að hugsa sér
og er ég honum þakklátur fyrir að
nefna hann til sögunnar. Miltis-
brandur er hættulegur sjúkdómur
og mikill skaðvaldur en það af-
brigði hans sem að sögn Banda-
ríkjamanna er að fínna í efna-
vopnabúri Saddam Husseins er
þróað og unnið af bandarískum vís-
indamönnum í bandarískum rann-
sóknarstofum og sú vinna hófst í
Víetnamstríðinu. Nákvæmlega það
sama gildir um fíkniefnin sem
lyfjafræðineminn tínir til máli sínu
til stuðnings. Kókalaufið er hvorki
jafnsterkt né jafnhættulegt og
kókaínduft það sem eiturlyfjabar-
ónar vinna og selja á götum vestur-
landa.
Nemandinn hefur einnig af því
miklar áhyggjur að menn eins og
ég, sem flytja inn náttúruefni, fái
að tjá sig í íslenskum blöðum án
þess að þeim sé gert að titla sig
innflytjendur. Hefur lyfjafræði-
neminn kynnt sér stjórnarskrána
Athugasemdir við ritstj drnargrein í
Morgunblaðinu um kennaramenntun
RITSTJÓRNAR-
GREIN Morgunblaðs-
ins sunnudaginn 1.
mars sl. fjallar um
menntamál. Astæðan er
að nýlega voru birtar
niðurstöður svonefndr-
ar TIMMS-könnunar á
j^iámsárangri nemenda i
framhaldsskólum í
stærðfræði og náttúru-
fræði. í lok leiðarans
fjallar höfundur um
menntun kennara og
þörf íyrir umbætur á
sviði kennaramenntun-
ar, nánar tiltekið í
Kennaraháskóla Is-
lands. Niðurlag leiðarans er
svohljóðandi: „Er ekki mikilvægara
að kennarar kunni almennilega skil
á sérgrein sinni, á þeim hlut sem
þeir eiga að kenna en þeim
vafasömu vísindum sem uppeldis-
og kennslufræðin eru?“
Hér setur leiðarahöfundur fram
«yið öllu leyti órökstudda fullyrðingu
um fræði sem eiga sér langa þróun-
arsögu, eins og reyndar fjölmörg
önnur svið. Uppeldis- og kennslu-
fræði þjóna sama hlutverki fyrir
kennara og verkfræði fyrir þann
sem hyggst t.d. byggja brú eða
læknisfræði fyrir þann sem fæst við
lækningar. Uppeldis- og kennslu-
fræði snúast um að þekkja og skilja
þær samfélagslegu og einstaklings-
bundnu forsendur sem árangursríkt
skólastarf verður að hvíla á. Þau
fjalla m.a. um það hvernig má á
markvissan hátt skipuleggja og
Xsetja fram þekkingu, sem fengin er
með rannsóknum á ólíkum fræða-
sviðum, í námsefni þannig að
kennslan höfði til áhuga nemenda
og efli skilning þeirra. Þau fást líka
við það hvernig er unnt að beita
fjölbreytilegum aðferðum til að
mæta þörfum ólíkra nemenda og
hvetja þá til dáða. Með öðrum orð-
jfem þá fást þessi fræði við það
hvemig megi skipu-
leggja og framkvæma
skólastarf þannig að
nám og kennsla verði
ögrandi viðfangsefni
bæði fyrir nemendur og
kennara. Þau fjalla um
það hvernig megi á
skynsamlegan og skipu-
legan hátt byggja á
rannsóknum og reynslu
við undirbúning, fram-
kvæmd og mat á námi
og kennslu - og hvernig
megi rannsaka bæði
náms- og kennsluferlið
og árangur skólastarfs-
ins.
Uppeldis- og kennslufræði skipt-
ast í mörg undirsvið, eins og flest
önnur starfsfræði, þ.á m. sálar-
fræði, félagsfræði menntunar,
heimspeki menntunar, siðfræði,
námskrárfræði og námsefnisgerð,
mælingar- og matsfræði. TIMMS-
könnunin, sem er tilefni leiðai'a-
skrifanna, er ágætt dæmi um af-
rakstur þessara fræðigreina sem
leiðarahöfundur kallar „vafasöm
vísindi".
Kennaraháskóli Islands hefur
bent á það árum saman að umbóta
er þörf á kennaramenntun. Það er
mjög brýn þörf fyrir aukna sérhæf-
ingu kennara í öllum þeim kennslu-
greinum sem fengist er við í grunn-
skólum landsins (og reyndar einnig í
framhaldsskólunum), einkum þeirra
kennara sem kenna nemendum í efri
aldursflokkum grunnskólans. En
það er líka brýnt að auka og efla sér-
hæfingu þeirra sem hafa það mikil-
væga starf með höndum að kenna
yngri bömum, nemendum í fámenn-
um skólum þar sem ekki er unnt að
koma við sérgreinakennslu á sama
hátt og í stórum skólum, svo og nem-
endum með sérþarfír af ólíkum toga.
Leiðarahöfundur segir: „Benda
má á að kennaranemar í Kennarahá-
skóla íslands sem hafa stærðfræði,
náttúrurufræði eða aðrar bóknáms-
greinar að aðalfagi taka aðeins 12,5
einingar í faginu en kennaranámið
er í heild 90 einingar.“ Leiðarahöf-
undm' á hér við BEd-nám i'yi'ir
grunnskólakennara. Hér er aðeins
sögð hálf sagan.
Kennaranám til BEd-prófs er nú
90 einingar eða þriggja ára fullt
nám. Viðfangsefni í náminu skiptast
á þrjú svið:
I. Uppeldisgreinar 30 námseiningar.
Hér er lögð áhersla á þær undir-
greinar uppeldis- og kennslufræða
sem þegar hafa verið nefndar. Til
þessa sviðs telst einnig lokaritgerð
(sem tengist þó oftast kjörsviði) sem
er 3 einingar og vettvangsnám (æf-
Tillagan um að lengja
kennaranám í fjögur ár
er ekki aðeins góð hug-
mynd, segir Ólafur
Proppé, heldur ein af
forsendum þess að okk-
ur takist að snúa vörn í
sókn í menntunarmál-
um þjóðarinnar.
ingakennsla í grunnskólum) 2 ein-
ingar.
II. Kennarafræði 30 námseiningar.
Hér er stærstur hluti, eða 21 eining,
kennsla í námsgreinum grunnskóla
og lögð sérstök áhersla á íslensku,
stærðfræði og list- og verkgreinar.
Auk þessa eru 2 einingar ætlaðar
tölvu- og upplýsingatækni og 1 ein-
ing ætluð til að fjalla um starfsum-
hverfi kennara í grunnskólum. Þá
eru ótaldar 6 einingar ætlaðar vett-
vangsnámi. Þessi tvö svið mynda
sameiginlegan kjama þessa kenn-
aranáms.
III. Kjörsvið 30 einingar. Á kjör-
sviði eru boðnar 15 valgreinar
(danska (15e), eðlis- og efnafræði
(15e), enska (15e), félagsfræði og
saga (15e), heimilisfræði (30e), ís-
lenska (15e), íþróttir og líkamsrækt
(30e), kristinfræði (15e), landafræði
(15e), líffræði (15e), myndmennt
(30e), smíðar (30e), stærðfi’æði
(15e), textílmennt (30e) og tón-
mennt (30e)). Hver nemandi velur
tvær bóklegar greinar eða eina list-
og verkgrein. Hluti af námi á kjör-
sviði er vettvangsnám (kennsla val-
greinar), 5 einingar í list- og verk-
greinum en 2,5 einingar í hverri
bóklegri grein.
Leiðarahöfundur telur að um-
rætt nám á kjörsviði, a.m.k. í bók-
legum valgreinum, sé ekki nægjan-
legur undirbúningur fyrir kennslu í
grein. Eg geri ráð fyrir að hann
hafí einkum í huga greinabundna
kennslu í efri bekkjum grunnskól-
ans. Leiðarahöfundur telur úrbóta
þörf og segir: „Mætti til dæmis
ekki lengja námið við KHÍ í fjögur
ár, eins og rætt hefur verið um?
Eða breyta áherslum í skólanum
þannig að meiri þungi yrði lagður á
sérgreinarnar en hið almenna
kennaranám sem felst einkum í
uppeldis- og kennslufræði." Kenn-
araháskóli Islands hefur lengi talið
að nám á kjörsviðum, sem er eins
og áður hefur komið fram þriðj-
ungur kennaranámsins, sé ekki
nægjanlegur undirbúningur fyrir
kennslu í viðkomandi greinum á
efri stigum grunnskólans. Kenn-
araháskólinn hefur hins vegar ekki
treyst sér til að auka þann hluta
námsins meðan námið í heild er
ekki nema þrjú ár. Grunnskóla-
kennarar verða að geta kennt mis-
munandi aldurshópum við ólíkar
aðstæður. Fæstir hafa tækifæri til
að kenna einungis eina eða tvær
námsgreinar.
Tillagan um að lengja kennara-
nám í fjögur ár er ekki aðeins góð
eða telur hann að virka efnið í mál-
frelsinu verði að einangra rétt eins
og „quinta essentia“? Ég skamm-
ast mín ekki fyrir að flytja inn
vandaðar hollustuvörur og hef
aldrei gert nokkra tilraun til að
leyna starfa mínum eða villa á mér
heimildir. Sjálfur kynntist ég krafti
blómafrjókorna og í mínu tilviki
kom eggið á undan hænunni. Hin
góða reynsla sem ég hafði af notk-
un þessara efna varð til þess að ég
fékk áhuga á að kynna mér nátt-
úruefni, sjálfslækningar og
reynsluvísindi tengd við hjálækn-
ingar. Allt sem ég uppgötvaði varð
mér hrein hugljómun. Það var eftir
margra ára lestur og sjálfsmennt-
un á þessu sviði að ég leitaði eftir
og fékk einkaleyfi til innflutnings á
CC Pollen býflugnaafurðum og
Aloe vera húð- og hársnyrtivörum.
Nú nýlega hafa bæst í fjölskylduna
afurðir unnar úr ástralska tetrénu.
Ég hef því jafnmikinn rétt á að
titla mig áhugamann um náttúru-
efni og sjálfslækningar og á inn-
flytjandatitlinum. Ef kennari hættir
á að skrifa um ánægju sína af hóf-
drykkju í Morgunblaðið á þá að
setja honum sem skilyrði fyrir birt-
ingunni að hann titli sig kennara en
ekki hófdrykkjumann? Á að gera
það að skilyrði fyrir birtingu greina
þeirra sem lýsa stuðningi við póli-
tísk framboð að þeir titli sig ekki
með þeim titlum sem þeir telja eiga
við, heldur: „flokksfélagi í flokki
X“? Nei, mikið er það annars klént
að menn skuli hengja sig í það að
undir greinar mínar hafi ekki verið
ritaður titillinn innflytjandi og
reyna þannig að gefa í skyn að þar
með sé efni þeirra marklaust og ég
tortryggilegur. Já, sá sem mikið
reynir hefur jafnan erindi sem erfíði
eða hvað?
Höfundur er innflytjandi hollustu-
efna og áhugamaður um náttúru-
efni.
hugmynd, heldur ein af forsendum
þess að okkur takist að snúa vörn í
sókn í menntunarmálum þjóðarinn-
ar. Þessi tillaga er heldur ekki ný.
Það er villandi að vitna til hennar
eins og hugmyndar sem „rætt hefur
verið um“, svona rétt eins og hana
hafí borið á góma í samtölum
manna. Staðreyndin er sú að Kenn-
araháskóli Islands hefur barist fyrir
lengingu kennaranáms í 120 eining-
ar (fjögur ár) sl. fímmtán ár og bent
ítrekað á þjóðhagslegt mikilvægi
þess að efla á þann hátt kennara-
menntun í landinu. Það er einnig
staðreynd að Alþingi samþykkti
nær einróma fyrir tíu árum, í tíð
Birgis Isleifs Gunnarssonar
menntamálaráðherra, að lengja
kennaranám í fjögur ár. Sú lenging
hefur þó ekki náð fram að ganga
vegna ítrekaðrar frestunar stjórn-
valda á málinu og nú hafa verið
samþykkt lög þar sem engin ákvæði
eru um lengd kennaranáms. Og það
er líka staðreynd að samstarfsnefnd
Kennaraháskóla Islands, Háskólans
á Akureyri og Háskóla íslands um
eflingu kennaramenntunar í landinu
skilaði sl. sumar rökstuddu áliti um
að lengja þurfí kennaranám í fjögur
ár bæði fyrir sérmenntaða gi'eina-
kennara til að kenna á efri stigum
gnmnskólans og fyrir bekkjarkenn-
ara sem vilja sérhæfa sig til að
sinna því mikilvæga starfí að kenna
byrjendum og yngri nemendum
grunnskólans. I kennaranámi fýrir
greinakennara yrði, samkvæmt til-
lögum nefndarinnar, aðalgrein 45
einingar og greinasvið allt að 75 ein-
ingar af 120.
Island er að verða.eitt örfárra
ríkja í hinum vestræna heimi sem
enn hefur einungis þriggja ára
kennaranám. Samt gera Islending-
ar þá kröfu til skólans að hann skili
ekki lakari árangri en í öðrum
löndum og helst betri. Augljóst
svar við spurningu leiðarahöfundar
um það hvort ekki mætti lengja
kennaranámið í fjögur ár til að
bæta menntun í landinu er: Jú, það
má svo sannarlega og þó að fyrr
hefði verið.
Höfundur er prófessor í uppeldis-
og kennslufræði og aðstoðarrektor
Kennaraháskóla Islands.