Morgunblaðið - 10.03.1998, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
/
HESTAR
MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson
EKKI er ósennilegt, að mati Vilhjálms, að sú meinta veirusýking sem nú herjar á íslenska hesta hafi verið í hrossum erlendis án þess að eftir því hafi
verið sérstaklega tekið en íslensku hrossin, sem séu veik fyrir slíkum sýkingum, sýni meiri einkenni.
„ÉG HELD að flestir eða allir dýra-
læknar hefðu greint þessa veiki á
svipaðan hátt og þeir dýralæknar
sem greindu veikina sem melting-
arslen í upphafi," segir Vilhjálmur
Svansson, héraðsdýralæknir á
Hofsósi, en hann er doktor í veiru-
"Væði og af ýmsum talinn sá dýra-
læknir hér á landi sem besta mennt-
un hefur á sviði veirufræði.
Hann telur að sú gagnrýni sem
—fram kemur í grein Gunnars Más
Gunnarssonar í Morgunblaðinu á
laugardag sé ósanngjöm. Hann tel-
ur að frekar sé horft í einkenni í
öndunarfærum þegar hugað sé að
smitandi veirusjúkdómum eins og
herpes eða inflúensu og svo aftur
kverkeitlabólgu sem sé smitandi
bakteríusjúkdómur.
* Komin til að vera?
Um framhaldið segir Vilhjálmur
að sér detti helst í hug að ferlið gæti
orðið nokkuð svipað og var þegar
upp kom smitandi sveppasýking og
sprengin hafi orðið á Norðurlandi í
útbreiðslu sveppsins. Þessi veira
verði líklega landlæg eins og
sveppasýkingin. Hann tekur undir
skoðanir annarra dýralækna um að
halda þurfi útbreiðslunni í skefjum
svo vemda megi útiganginn fyrir
Óþreyju farið að gæta meðal hestamanna út af óvissunni
Tímafrekt og flókið að
fínna óþekktar veirur
veikinni því vart megi
til þess hugsa hvað ger-
ist ef þetta kemst í úti-
gangshrossin.
Vilhjálmur segir að
lystarleysi geti fylgt
ýmsir kvillar eins og
komið hefur á daginn.
Nefndi hann þar garna-
flækju, fitulifur og fóst-
urlát. Ekki sé vitað á
þessari stundu hvort
veiran fari í fóstrin en
nokkurra daga hiti og
átleysi getur orsakað
fósturlát.
Smittími eftir veik-
indi óþekktur
Ýmsum spurningum er
og verður ekki svarað fyrr
Vilhjálmur
Svansson
að greina hina meintu
veiru og þá hvernig hún
kemur til með að haga
sér. Við veirusýkingu
fer ónæmiskerfið alltaf
af stað en vel þekkt er
að veirur geta komið
sér undan ónæmiskerf-
inu og gengur viðkom-
andi einstaklingur með
sjúkdóminn í sér ævi-
langt. Sú spurning sem
heitast brennur varð-
andi hitasóttina er
hversu lengi áður veikir
hestar geta smitað. Um
það er ómögulegt að
segja sagði Vilhjálmur
og benti á að þeir gætu
ósvarað verið smitberar í nokkra daga eftir
en tekst veikindi, vikur og jafnvel mánuði.
Það færi allt eftir því um hverslags
veiru væri að ræða. Hann sagði að
lítið hefði verið leitað að veirum í ís-
lenskum hrossum. Fundist hafi
mótefni fyrir veikum gerðum af
herpes-veirum. Hann taldi líklegt
að hér væri um að ræða veiru sem
væri í hrossum erlendis en einkenni
mjög væg og því lítið eða ekki tekið
eftir henni þar. Stofninn hér væri
veikur eða næmari fyrir og því
væru einkenni meira áberandi.
Flókið mál og fjölbreytilegt
Óþreyju virðist gæta meðal
margra hestamanna yfir því að
ekki skuli vera búið að finna hvaða
veiru er um að ræða. Vilhjálmur
sagði að ef veiki er þekkt er hægt
að ganga ákveðið til verks við
greiningu. Til eru ýmis greininga-
kerfi fyrir margar tegundir af vel
þekktum veirum og í slíkum tilvik-
um taki þetta ekki langan tíma. Ef
hins vegar væri um að ræða eitt-
hvað nýtt eða óþekkt eins og virð-
ist vera nú, þarf að víkka leitina.
Jafnvel að einangra og rækta
veiruna og skilgreina. Sjá með þvj
hvaða flokki veira hún tilheyrir. I
slíkum tilfellum þurfi jafnvel að
búa til aðferðir til að leita og getur
það verið tímafrekt og flókið.
Vefjaskoðun eins og komin er í
gang á Keldum getur gefið vís-
bendingar og þrengt hringin í
þeirri útilokunarleit sem virðist í
gangi. Vilhjálmur sagðist ekki ef-
ast um að fullur gangur væri í að
reyna að finna út hvað væri um að
ræða.
„Þetta er flókið mál og fjöl-
breytilegt og alls ekki eins einfalt
og margur kann að halda. Tilkoma
þessarar veiki kennir okkur hesta-
mönnum nauðsyn þess að fara var-
lega í samskiptum við hesta og
menn erlendis. Við gætum átt von
á að fá einhverja smitsjúkdóma til
landsins á komandi árum með
auknum samgangi en við verðum
að prísa okkur sæla meðan við fá-
um ekki alvarlegustu smitefnin
hingað," sagði Vilhjálmur að end-
ingu.
Útflutningsbannið
fer fljótleg’a að
skaða markaðinn
MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson
ÁHRIFA útflutningsbannsins fer að gæta fljótlega, að mati Gunnars,
en hann telur að hátt í 200 hross siiji heima sem annars væru farin
úr landi ef allt hefði verið með felldu.
„ÞETTA er óvænt vetrarfrí en ekki
þó að sama skapi kærkomið," sagði
Gunnar Arnarsson hrossaútflytj-
andi. Útflutningsbann hefur verið í
gildi frá 21. febrúar og taldi Gunnar
að ef allt hefði verið með felldu hefðu
á þessum 17 dögum líklega verið
send úr landi hátt í tvöhundruð
hross. Nú væri að koma að þeim
tímapunkti að erlendir hrossakaup-
endur færu að gera upp hug sinn
* hvort þau fyrirhuguðu kaup sem átti
að gera muni standast vegna útflutn-
ingsbannsins.
„Nú er aðalsölutíminn erlendis og
stendur hann fram í maí en verulega
dofnar yfir sölu í júní og júlí. Hrossa-
kaupmenn ytra reyna að selja sem
flest hrossanna fyrir þann tíma og
vera heldur komnir með ný hross í
september þegar aftur lifnar yfir söl-
unni á ný. Af þessu má ráða að sú
sala sem hugsanlega tapast á næstu
vikum eða mánuðum vinnist vart
upp,“ segir Gunnar.
Gunnar telur tímabært að hags-
munaaðilar fari að setja sig niður og
reyna að kortleggja stöðuna og ráða
fram í hvað næstu mánuðir beri í
skauti sér og hvernig skuli bregðast
við nýju umhverfi. Hann kvaðst ekki
sammála því að betra væri að hefta
útbreiðslu veikinnar við höfuðborg-
arsvæðið fram á vor. Ekki sé betra
að láta veikina fara af stað þegar
hrossin eru komin út um alla haga
eftirlitslaus og bændur komnir í vor-
annir. „Ef á annað borð á að láta
þetta fara um allan stofnin þá held
ég að best sé að gera það sem fyrst.
Ég tel það illskárri kost heldur en að
vera með hryssurnar veikar um og
eftir köstun og stóðhestana jafnvel
líka gagnslausa í girðingunum. Ef
ekki verður breyting á næstu vikum
er jafnvel hætt við að forsendur
landsmótsins fari að bresta. En ég
vil hvetja hrossabændur til að fara
að undirbúa sig eins vel og kostur að
takast á við að hjúki'a sínum hross-
um ef veikin berst í stóð þeirra,"
sagði Gunnar.
Aðgát
við hey-
flutninga
ÖLL áhersla af hálfu yfirdýra-
læknisembættisins og dýra-
lækna er lögð á að hitasóttin
breiðist ekki frekar út en orð-
ið er. Hefur Halldór Runólfs-
son yfirdýralæknir af þeim
sökum beint þeim tilmælum til
heyflutningsmanna að þeir
fari ekki inn á sýktu svæðin
heldur losi heyið í útjaðri hest-
húsahverfa og hestamenn sjái
sjálfir um að flytja tugguna
síðasta spottann.
Bílstjórar þvoi bílana strax
að losun lokinni og skipti um
föt þegar heim er komið. Hall-
dór telur brýnt að þetta verði
virt í hvívetna því sóttin getur
hæglega borist með mönnum
eins og komið hefur glögglega
í ljós.