Morgunblaðið - 10.03.1998, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998 51
Fyrirlestur á frönsku
um Baldur og Saxa
m
INNLENT
Kvikmyndasýnmg
Alliance Frangaise
KVIKMYNDAKLÚBBUR Alli-
ance Frangaise að Austurstræti 3
(gengið inn frá Ingólfstorgi) sýnii'
miðvikudagskvöldið 11. mars ki. 21
frönsku myndina „L’Amour á
mort“ eða Ast til dauða frá 1984
eftir Alain Resnais.
Þetta er dramatísk mynd er
fjallar um ástina, lífið og dauðann.
Efnistök eru ekki ósvipuð og í sum-
um mynda Bergmans, stuttir þætt-
ir og samtöl sem mynda frum-
spekilegar rökræður. Myndin teflir
fram tveimur pörum. Símoni sem
er fornleifafræðingur og Elisabeth
sem er líffræðingur en þau eru yfir
sig ástfangin, á fyrstu mánuðum
sambúðar og mótmælendaprest-
um, hjónunum Judith og Jerome
Martignac, sem Símon hefur þekkt
lengi. Þegar Símon fær alvarlegt
hjartaáfall vaka áleitnar spurning-
ar um trúna, dauðann og rétt okk-
ar yfir eigin lífi.
Alain Resnais er mjög frægur
kvikmyndagerðarmaður ekki bara
í Frakklandi. Meðal annars gerði
hann myndirnar „Hiroshima mon
amour“ og „Providence".
Myndin er á frönsku og sýnd án
texta. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill meðan húsrúm leyfir.
JEAN Renaud, prófessor í norræn-
um bókmenntum við háskólann í
Caen í Normandí, flytur opinberan
fyrirlestur miðvikudaginn 11. mars
kl. 17.15 í boði heimspekideildar
Háskóla íslands í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
frönsku en íslenskri þýðingu verður
dreift til áheyrenda sem þess óska.
Fyrirlesturinn nefnist „Le mythe
de Baldr ches Saxo Grammaticus"
eða Frásögn Saxa málspaka af guð-
inum Baldri.
í fréttatilkynningu segir: „Saxi
málspaki eða Saxo Grammaticus
var samtímamaður Snorra Sturlu-
sonar og er talinn hafa samið Dana-
sögur sínar (Gesta Danorum) um
1200. Hann ritaði á latínu en reiddi
sig eigi síður á heimildir á norrænni
tungu einkum við samningu þeirra
bóka sem fjalla um fyrstu tíð Dan-
merkursögunnar.
Það vekur athygli að frásögn hans
af Baldri og Heði er að flestu leyti
frábrugðin því sem lesa má úr ís-
lenskum heimildum hvort sem það
er kveðskapur eða frásagnir Snorra i
Eddu. Hjá Saxa eru Baldur og Höð-
ur ekki guðir heldur kappar og ekki
bræður heldur keppinautar um hönd
sömu konu. Auk þess klæðir Saxi
Baldur heldur dökkum htum, and-
stætt þeirri mynd sem aðrar heim-
ildir draga upp af honum sem best-
um allra ása. I fyrirlestri sínum mun
próf. Renaud reyna að grafast fyrir
um mögulegar ástæður fyrir því að
mynd Saxa af Baldri er svo ólík
þeirri sem íslenskar heimildir sýna.
Til þess mun hann skoða heimildir
Saxa, athuga viðhorf hans til efnivið-
ar síns og velta því fyrir sér hvort
hann hafi byggt á sjálfstæðum
dönskum sögnum um guðinn.“
Jean Renaud er forstöðumaður
norrænu deildarinnar við Uni-
versité de Caen-Basse-Normandie,
en hún er ein stærsta deild af því
tagi í Frakklandi. Hann skrifaði
doktorsritgerð sína um íslenskar
fornbókmenntir, nánar tiltekið um
Færeyinga sögu og Orkneyinga
sögu en hann hefur þýtt þessar sög-
ur á frönsku ásamt fleiri fornsögum.
Próf. Renaud hefur einnig ritað
bækur um norræna goðafræði og
tengsl norrænnar menningar við
hina keltnesku, auk þess sem hann
hefur rannsakað norræn menning-
aráhrif á svæðum víkinga í Norm-
andí og víðar.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
TIL SOLU
Tæki skipta jafnan öllu!
Hve lengi ætla baráttumenn gegn vímuefnum
og ofbeldi og fyrir náttúruvernd og jafnrétti
að láta sem réttarkerfið skipti ekki máli?
Skýrsla um samfélag, sem upplýsir um rétt-
arfar hér, fæst í Leshúsi, Bókhlöðustíg 6b,
opið kl. 16.00-19.00.
YMISLEGT
Vefjagigt og síþreyta
(Fibromyalgia/Chronic fatigue)
Óskað er eftir sjálfboðaliðum í lyfjarannsókn
vegna vefjagigtar og síþreytu.
Frekari upplýsingargefur Júlíus Valsson, gigt-
arlæknir, Gigtarfélagi íslands, sími 553 0760.
TILBOÐ/UTBOÐ
TIL
S 0 L U «<
Til sölu til brottflutnings
og flutningur á húsi.
11019 Kauptilboð óskast í, til brottflutnings,
tvö timbureiningahús með tengibyggingu
byggð 1985, sem hafa verið notuð sem kennslu-
stofur. Stærð húsanna er samtals 262,5 m2.
Brunabótamat er kr. 28.110.000 og fasteignamat
er kr. 11.888.000.
Húsin geta hentað sem kennsluhúsnæði, veiði-
hús, leikskóli, vinnubúðir eða gistiheimili.
Tilboð óskast í húsin í einu lagi. Húsin eru stað-
sett á lóð Háskóla íslands við Dunhaga 3,
Reykjavík. Kaupandi skal fjarlægja húsin af
grunni en seljandi sér um aftengingu á lögnum
og jöfnun lóðar.
11021 Tilboð óskast í flutning á timburhúsi,
181,5m2 innan lóðar Háskóla íslands. Húsið er
við Dunhaga og óskast flutt á steyptan grunn
við Hjarðarhaga ásamt tengingum við veitur.
Nánari upplýsingar um ofangreindar eignir veit-
ir Óskar Ásgeirsson í síma 552 6844 hjá Ríkis-
kaupum, Borgartúni 7,105 Reykjavík, þar sem
tilboðseyðublöð liggja frammi. Tilboö skulu
berast Ríkiskaupum fyrir kl. 11.00 hinn 12. mars
1998 þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra
bjóðenda er þess óska.
'Jjjj/RÍKISKAUP
Ú t b o & s k / / a árangril
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844,
Bréfasími 562-6739-Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is
i A U G LÝ S I ISI G A
Útboð á viðgerðum og
málun utanhúss
Álfaskeið 90—92, Hafnarfirði
Húsfélagið Álfaskeiði 90—92 óskar eftir tilboð-
um í viðgerðir á útveggjum, gluggum og mál-
un utanhúss.
Helstu magntölur eru:
Endursteypa 45 m2
Múrviögerðir flata 90 m2
Múrviðgerðir kanta 80 m2
Glerskipti 60 m2
Málun steins 1.310 m2
Málun þaks 635 m2
Málun glugga 1.300 Im
Verktími þtfr mánuðir, verklok eigi síðar en
1. september 1998.
Gögnin verða til sýnis og afhendingar hjá
Strendingi ehf., verkfræðiþjónustu, Reykjavík-
urvegi 68, Hafnarfirði, gegn 10.000 kr. skila-
gjaldi. Afhending frá og með þriðjudeginum
10. mars 1998.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudag-
inn 23. mars kl. 11.00.
Strendingur ehf.
verkfmðiþjónusta • Reykjavlkurvegur6S ■ 220 HafcwfðnJur
slml 565-5640 • fax 565-5640 • netfang strendigur@centrum.is
KENNSLA
Skóg- og trjárækt fyrir
sumarbústaðaeigendur
Ný námskeið um skóg- og trjárækt fyrir sumar-
bústaðaeigendur eru að hefjast í Garðyrkju-
skóla ríkisins, Reykjum í Ölfusi. Námskeiðin
eru haldin í samvinnu við Skógrækt og Land-
græðslu ríkisins.
Um er að ræða eitt námskeið sem er skipt í tvo
hluta. Fyrri hlutinn verðursunnudaginn 15.
mars og síðari hlutinn laugardaginn 4. apríl.
Nauðsynlegt er að sækja báða hluta námskeiðs-
ins, en þau eru haldin í Garðyrkjuskólanum og
standa frá kl. 10.00—16.00 báða dagana.
Leiðbeinendur eru sérfræðingar á sviði skóg-
og trjáræktar.
Nánari upplýsingarfást á skrifstofu Garðyrkju-
skólans í síma 483 4340 frá kl. 8.00—16.00 eða
hjá endurmenntunastjóra í síma 483 4061.
FUIMDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Verðbréfastofunnar hf.
Aðalfundur verður haldinn miðvikudaginn
11. mars kl. 15.00 á Hótel Loftleiðum.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
VERÐBREFASTOFAN
Hjallasókn
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Hjallasafnaðar verður
haldinn sunnudaginn 15. mars að lokinni
guðsþjónustu sem hefst kl. 11.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur
mál, löglega fram borin, samkvæmt samþykkt-
um Hjallasóknar.
Sóknarnefnd.
jC É I A HQ QT A DC
■ G» L» v3 - * «31 I # \ Hi 1
VKópavogur — Kópavogur
Hvert stefnum víð
í skólamálum?
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda
helduropinnfund miðvikudaginn 11. mars nk. undir yfirskriftinni:
"Hvert stefnum við í skólamálum?"
Fundurinn hefst stundvíslega kl. 20.30 í Hamraborg 1, 3. hæð.
Framsögu flytur Helga Sigurjónsdóttir, kennari.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Mikilvægt fundarboð
Vi
Húsnæðis- og skattanefnd Sjálfstæðisflokksins boðar
til almennsfundar miðvikudaginn 11. mars nk. kl. 17.15
I Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Fundarefni: Frumvarp um húsnæðismál og skattalagabreytingar
samfara þeim.
Framsögumenn: Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður, Gunnar
S. Björnsson, byggingarmeistari og Steingrimur Ari Arason, aðstoðar-
maður fjármálaráðherra.
Fundarstjóri: Þórhallur Jósepsson.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. Rb.1 = 1473108 - 9.O.*
□ Hamar 5998031019- III.
□ Hlín 5998031019 VI
□ EDDA 5998031019 1
- 1 Atkv.gr. til l°
KR —konur
Fundur mið. 11. mars
kl. 20.15. Páskaskreyt-
ingar og föndur.
Fjölmennið i KR-heimilið.
Aðaldeild KFUK,
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Gönguhópur kemur í heimsókn.
Allar konur velkomnar.
Leiðsögumenn
Munið erindi Þórhalls Vilmund-
arsonar um kenningar hans um
uppruna islenskra örnefna I stofu
401 í Iðnskólanum í kvöld.
Félag leiðsögumanna.
Vetrarfjallamennska
íslenski alpaklúbburinn heldur
námskeið i vetrarfjallamennsku
helgina 14. —15. mars. Á nám-
skeiðinu verða undirstöðuatriði
varaðandi ferðalög á fjalllendi að
vetri til kennd.
Uppl. og skráning í símum
557 8697 og 567 1026 (Guðmund-
ur) eða í húsnæði [salp., Mörkinni
6, mið. 11 mars kl. 20.30.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SÍMI 568-2533
Miðvikudagur 11. mars kl. 20.00:
Aðalfundur
Ferðafélagsins.
Aðalfundurinn verður haldinn í
félagsheimilinu í Mörkinni 6.
Félagar fjölmennið.
Næsta myndakvöld verður
miðvikudagskvöldið 18. mars
f Mörkinni 6.
Efni: Færeyjar og Skotland.
Fimmtudagur 12. mars kl.
20.00. Tunglvaka við Hval-
eyrarvatn. Létt ganga I kringum
vatnið. Brottför frá BSl, austan-
megin, og Mörkinni 6.
Helgarferð í Tindf jöll
13.—15. mars. Gönguskiði.