Morgunblaðið - 10.03.1998, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Ljóska
Smáfólk
Hvað er það
sem þér þykir
verst að heyra?
„Þú verður heima
núna og ert góði
seppinn."
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Faðirvorinu
breytt
Frá Konráði Eyjólfssyni:
ALLIR foreldrar sem kennt hafa
bömum sínum Faðirvorið hafa upp-
lifað hversu örðugt það er að sam-
tímis því að baminu er ætlað að
læra textann þarf að útskýra fyrir
því algjörlega framandi og merk-
ingarlausa notkun á þéringum sem
það heyrir hvergi annars staðar og
em þess utan slíkt torf að fjöldi full-
orðinna kann þær ails ekki og getur
þar af leiðandi ekki útskýrt þær.
Utkoman verður því óhjákvæmilega
sú að blessað bamið lærir af sam-
viskusemi langa óskiljanlega þulu
sem það hefur engan skilning á né
tilfinningar til. Þessu vil ég breyta.
Það er einlæg ósk mín til okkar
nýkjörna biskups, Karls Sigur-
björnssonar, að hann beiti sér fyrir
þvi að þessi helgasta bæn okkar
verði börnum það sem Jesús eflaust
ætlaði henni, það er að vera heilagt
eintal trúaðra við Guð. Reyndar við-
urkenni ég að mér er alfarið óskilj-
anlegt hvað íyrir þeim vakti sem
töldu sjálfsþéringu eðlilega í bljúgri
bæn, samtímis því að þúa Guð, en
hafi það þótt tilhlýðilegt einhvem-
tímann þá er það fráleitt í dag. Nú
er mér það ljóst að fjöldi sálma, trú-
arlegra texta og jafnvel þjóðsöngur-
inn em orðaðir með sama hætti og
að nánast ógjömingur væri að
breyta því vegna áhrifa þess á ljóð-
stafi, rím og hrynjandi, en það er
önnur saga því slíkt fara böm ekki
að læra fyrr en lengra er komið til
vits og ára og auðveldara er að út-
skýra fyrir þeim hvað þama liggur
að baki. En Faðirvorið, sem oftast
er bæði þeirra fyrsta bæn og helgur
inngangur þeirra í trúarsamband
við Guð, verða þau að skilja, finna
boðskapinn í og geta tileinkað sér.
Eflaust er lítil þörf á því að birta
hér texta bænarinnar Faðir vor, en
til að auðvelda samanburðinn fer ég
þess á leit við blaðið að það birti
báða textana og þá helst hlið við hlið
svo augu manna opnist hversu
mikiu aðgengilegri og einlægari
textinn verður þó svo að innihald
hans breytist ekkert.
Það er gefið að þennan texta má
orða á fallegri hátt og ég biðla til
orðhagra manna að koma með
ábendingar í þá átt. Þeim lesendum
þessarar greinar sem halda vilja í
foma hefð og jafnvel fyrtast við til-
lögu mína vil ég benda á hversu
ánægjulegar afleiðingar það hefur
haft að gefa Islendinga sögumar út
með nútíma stafsetningu þrátt fyrir
mótmæli margra. Nú sækja hund-
ruð ef ekki þúsundir manna nám-
skeið í þessum arfi okkar og annar
eins fjöldi og fleiri ferðast um landið
til að sækja söguslóðir heim. Megi
nútíma málfar á Faðirvorinu leiða til
sömu endurvakningar á okkar helg-
ustu fræðum.
KONRÁÐ EYJÓLFSSON,
Austurströnd 14, Seltjarnarnesi.
Faðir vor, þú sem ert á Faðir, þú sem ert á
himnum, helgist þitt nafn, himnum, helgist þitt nafn
til komi þitt ríki. til komi til ríki.
Verði þinn vilji svo á Verði þinn vilji svo á
jörðu sem á himni. jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt Gefmérídagmitt
brauð ogfyrirgef oss daglega brauð ogfyrirgef
vorar skuldir svo sem vér mér syndir mínar eins og
og fyrirgefum vorum ég fyrírgef þeim sem gert
skuldunautum. hafa á minn hlut.
Eigi leið þú oss í freistni Ekki leiða mig í freistni,
heldurfrelsa oss frá illu heldur frelsa mig frá illu
því að þitt er rddð, þvíþitt erríkið, mátturinn
mátturínn og dýrðin að eilífu. og dýrðin að eilífu.
Um staðarval
tdnlistarhúss
Frá Kristni Björnssyni:
RÆTT er um stað fyrir tónlistarhús
og þá mest nefndir staðir nálægt
gamla miðbænum. En þetta er hús
sem almenningur mun sækja og ætti
því að vera miðsvæðis á höfuðborg-
arsvæðinu, þar sem styst er fyrir
sem flesta að sækja það. Þetta
mundi spara flestum 4-5 km akstur,
dregur því úr umferðaþunga og
mengun.
Hvar er þá miðsvæði byggðarinn-
ar? Ég held að nú sé það nálægt El-
liðaárdalnum, t.d. innst í Sogamýri,
Fossvogi eða Mjódd. Allt í kringum
þessa staði eru fjölmennustu íbúða-
hverfin. Gamli miðbærinn er nú orð-
inn að afskekktum jaðri eða enda
byggðarinnar, og því eru Vesturbær-
inn eða Öskjuhh'ðin óheppilegir staðir.
Vil ég því benda áhugamönnum á
að athuga nú betur möguleika á al-
veg nýju staðarvali sem best mundi
henta almenningi á höfuðborgar-
svæðinu, en það er greinlega í
námunda við Elliðaárdalinn sem fyrr
greinir.
Staður innst í Laugardal hefur
líka verið nefndur og er það ekki
fjarri lagi.
KRISTINN BJÖRNSSON,
Espigerði 4, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.