Morgunblaðið - 10.03.1998, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998 55 t
BRÉF TIL BLAÐSINS
Fjölskyldan á völlinn
Frá Brynju Kristjánsdóttur:
ÞETTA var fyrirsögnin á grein í
Morgunblaðinu laugardaginn 21.
febrúar 1998. Dagsetningin varð mér
umhugsunarefni,
21. febrúar 1998,
sérstaklega ár-
talið 1998. Konur
komnar með
kosningarétt fyr-
ir það löngu að
kynslóðinni sem
er að vaxa úr
grasi í dag dettur
ekki í hug að svo
hafi ekki alltaf
verið. Miklir uppfinningamenn fundu
upp sjónvarpið og tækninni hefur
fleygt svo fram að það eru beinar út-
sendingar í sjónvarpinu af íþrótta-
viðburðum. Þrælahald var afnumið í
Bandai-íkjunum á síðustu öld. Og
konur farnar að vinna utan heimilis-
ins og þó að við séum enn nokkrum
launaflokkum neðar en karlmennh-n-
ir erum við á leiðinni til jafnréttis og
höfum verið lengi að og eigum enn
langan veg framundan. En það er
vegur sem við verðum að fara og af
krafti ef við eigum að áorka ein-
hverju.
Mai-gt smátt gerir eitt stórt eins
og til dæmis þessi fyrrnefnda gi'ein
sem ég las. Þar stóð að leikur Aftur-
eldingar og Skövde ætti að vera kl.
21.15 á sunnudagskvöldið. Og ástæð-
an fyrir þessari tímasetningu var að
sjónvarpsstöðin Sýn ætlaði að vera
með beina útsendingu af leiknum.
Og þá sagði orðrétt í greininni: „Það
er gaman að prófa að leika á þessum
tíma. Fjölskyldan getur öll mætt því
mamma ætti að vera búin í eldhús-
inu.“ Það var Jóhann Guðjónsson,
formaður handknattleiksdeildar Aft-
ureldingar, sem mælti þetta. Nú veit
ég ekki, en vel getur verið að
mamma hans eða mamma barnanna
hans vinni í eldhúsinu á Reykjalundi
eða einhverju öðru eldhúsi þar sem
vinnutíminn er þannig að hún/þær
eigi erfitt með að koma á leik sem er
fyrr um kvöldið. En einhverra hluta
vegna sá ég annað í hugskoti mínu,
ég sá börnin og eiginmanninn komin
í úlpurnar og með stuðningsmanna-
fána í hendumar bíða óþolinmóð eft-
ir því að mamma kláraði að ganga
ffá eftir matinn og þvílíkur óratími
sem það tók mömmu að ganga frá.
Ég vil nú benda Jóhanni á að ef
hann „hjálpaði mömmu“ að ganga
frá eftir matinn kæmist fjölskyldan
öll á völlinn jafnvel kl. 20.00. En ef
það væri til of mikils mælst á þess-
um tíma tækninnar þá er búið að
finna upp uppþvottavél.
BRYNJA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 62, Kópavogi.
Rryrija
Kristjansdóttir
Frá stjórn dagmæðra í Kópavogi:
ERLA Björg Þorgeirsdóttir ritaði
grein í Morgunblaðið 4. febrúar sl. í
greininni þótti okkur vegið að dag-
mæðrum og viljum því svara fyrir
okkur.
í grein sinni segir Erla um dag-
mæður: „Þjónusta þeirra er mun
dýrari en vistun á leikskóla og ef
veikindi eru á heimili dagmóður er
enga gæslu að hafa.“
Greinina mætti skilja sem svo að
dagmæður séu einangraðar hver og
ein á sínu heimili og hafi ekkert sam-
band eða samvinnu innbyrðis. Þetta
er mikill misskilningur þar sem dag-
mæður í Kópavogi eru yfirleitt dug-
legar að hittast og hafa samband sín
á milli. Sem dæmi má nefna að
margar dagmæður í Kópavogi fá af-
not af gæsluvöllum bæjarins og hitt-
ast þar einu sinni til tvisvar í viku á
morgnana og þar kynnast börnin.
Þessar konur hafa haft gott samstarf
Samvinna á
milli dag-
mæðra í
Kópavogi
og leyst hver aðra af ef þörf hefur
verið á. Að sjálfsögðu eru dagmæður
mannlegar eins og aðrir og upp geta
komið aðstæður þar sem þær geta
ekki tekið við börnunum í gæslu eða
útvegað aðra gæslu, en þau tilfelli
eru örugglega færri því yfirleitt
keyra þessar konur sig áfram á vilj-
anum til að bjarga foreldrum frá
vandræðum.
Hvað varðar það að þjónusta dag-
mæðra sé'mun dýrari en á leikskólum
viljum við benda á að gæsla á leik-
skólum er niðurgreidd af sveitarfé-
lögunum en ekki gæsla hjá dagmóður
(í Kópavogi). Dagmæður eru verktak-
ar á sínu heimili og gjaldið til þeirra
þarf að fela í sér viðhald húsnæðis og
húsbúnaðar, leikfanga- og fóndur-
kostnað, tryggingar fýrir bömin og
tryggingagjald til hins opinbera. Af-
gangurinn er laun til dagmæðra og
orlof. A leikskólunum er fæði líka nið-
urgreitt en ekki hjá dagmóður.
Ef sveitarfélögin rækju dag-
mæðrakerfið, eins og Erla Björg
stingur upp á í grein sinni, yrði það
að okkar mati dýrt fyrir skattgreið-
endur því það þýddi í raun gerbreytt
rekstrarform, en í dag eru dagmæð-
ur að okkar mati að bjóða sína þjón-
ustu og afnot af heimili sínu á lágu
verði.
Fyrir hönd stjórnar samtaka dag-
mæðra í Kópavogi,
VALBORGJÓNSDÓTTIR,
formaðm-.
Velúrsloppar á kr. 3.900
í nokkra daga (áður kr. 7.900)
Nýbýiavegi 12,
sími 554 4433.
í Linsunni starfar sérmenntaö
fólk sem veitir þér faglega
ráðgjöf og þjónustu við val
á réttum linsum. Augun þin
eiga það skilið að þú gerir
kröfur.
UNSAIM
Aðalstræti 9
sími 551 5055
ueu